Vísir - 29.11.1944, Qupperneq 2
VISIR
VISIR
DAGBLAÐ
Útgefandi:
BLAÐAÚTGÁFAN VÍSIR H.F.
Ritstjórar: Kristján Guðlaugsson,
Hersteinn Pálsson.
Skrifstofa: Félagsprentsmiðjunni
Afgreiðsla Hverfisgötu .12
(géngið inn frá Ingólfsstræti).
Símar: 166 0 (fimm línur).
Verð kr. 4,00 á mánuði.
Lausasala 35 aurar.
Félagsprentsmiðjan h.f.
I deiglnnnL
IWfargir undrast átökin á Al-
þýðusambandsþinginu og
úrslit málanna þar, einlcum þar
eð Alþýðuflokkurinn og komm-
únistar hafa nýlega tekið upp
náið samstarf á Alþingi og í
ríkisstjórn. Telja sumir líklegt
að ágreiningurinn kunni að
hafa nokkur áhrif á stjórnar-
samstarfið og þá einnig á sam-
vinnu flokkanna innan Alþing-
is. Verður þó að telja það ó-
sennilegt, enda ekki nema
tvennt til í því efni, að annað-
hvort slitnar algerlega upp úr
stjórnarsamvinnu flokkanna,
eða að henni verður haldið á-
fram um nokkurt skeið, og er
það líklegra. Þó er sá mögu-
leiki fyrir hendi, að flokkarnir,
annaðhvor eða háðir, telji svo
óvænlegar horfur í atvinnu- og
fjárhagsmálum, að þeir kjósi
að draga sig út úr samvinn-
unni i tima og áður en bein
óhöpp hafa skeð.
Meðan ekki liggur annað né
meira fyrir um breytingar á
sambúð ofangreindra flokka en
ágreiningurinn á Alþýðusam-
bandsþinginu, er ekki gerandi
ráð fyrir samvinnuslitum, er
nái verulega út fyrir verkalýðs-
samtökin. Þar verður vafalaust
blásið að glóðunum áfram, enda
fyllilega eðlilegt, að Alþýðu-
flokkurinn uni ekki slíkri kúg-
un, sem beitt var á Alþýðusam-
bandsþinginu 'og vafalaust er
einnig beitt innan verkalýðsfé-
laganna um land allt, þar sem
kommúnistar eru þess um-
komnir og höfðingi þeirra lief-
ir ekki gefið þeim ný fyrirmæli
um breytta hegðun frá því, sem
greint var í bréfi hans, er les-
ið var upp á Alþýðusambands-
þinginu. Eina lausnin á þessum
deilumálum er sú, að hlutfalls-
kosningar verði uppteknar inn-
an verkalýðsfélaganna, sam-
kvæmt eðlilegum lýðræðisregl-
um, þótt æskilegast væri að þar
gætti ekki lióflausrar flokka-
baráttu.
Ágreiningurinn á Alþýðusam-
bandsþinginu er eðlilegur, en að
honum rak vonum fyrr. Hann
er einn þáttur í pólitískri þró-
un, — þeirri, hvort gera skuli
gælur við kommúnistana, eða
standa í beinni andstöðu við þá,
er þess gerist þörf, og afstýra
þjóðhættuleguin áformum
þeirra í ýmsuin myndum. Al-
þýðuflokkurinn hefir sýnt ó-
venjulegan manndóm í átökun-
um á Alþýðusambandsþinginu,
og spáir það góðu um framtíð
hans að öðru leyti, falli hann
ekki fyrir þeirri freistni, að slá
af stefnumálunum fyrir stund-
arhagsmuni. Flokkaskipunin í
heild er í deiglunni, og vel get-
ur farið svo, að hitastigið verði
víðar það sama og það reynd-
ist hjá vinstri flokkunum að
þessu sinni, áður en eðlileg
skipan er komin á í landinu,
— en þróunin gengur sinn
gang.
Cordell Hull.
ta nrí kisráðherra Bandaríkj-
anna, Cordell HulJ, hefir
sagt af sér störfum, sökum
heilsubrests, enda er hann há-
aldraður maður og hefir haft
umsvifameiri og vandasamari
Sænsk verðlaunasaga væntanleg á bóka-
markaðinn á næstunni.
Merkt norskt skáldrít
Bókaútgáfan Norðri mun
vera það forlag hér á landi, sem
mest gerir að því að kynna Is-
lendingum bókmenntir Norður-
landa.
I
1 fyrra réðst Norðri í að gefa
út þrjú bindi af sögunni um ^
Bjarnardalsmenn og nú er hafin
útgáfa á öðru norsku skáld- J
verki sem einnig verðiy í þrem
bindum og væntanleg er bráð-
lega sænsk skáldsaga, sem hlaut
bókmenntaverðlaun á síðast-
liðnu ári.
Vísir hefir leitað sér upplýs-
inga um störf forlagsins.
Stórviði nefnist fyrsta bindi
skáldverks þess, sem að ofan
getur. Er það sagnabálkur all-
mikill um þá Breiðabólsfeðga.
Sagan gerist í hinum skuggsælu
skógarhéruðnm Noregs, og er
dýrðaróður óðalsástar og
heimahaga og lýsir hinni
römmu taug, er tengir synina
Við feðraóðul sín. Þetta er mjög
eftirtektarverð liók fyrir oss Is-
lendinga.
Annað bindi þessa skáldverks
heitir Garðurinn og grenndin,
en hið þriðja heitir Grænadals-
skógurinn.
Höfundurinn er Sven Moren,
einn fremsti rithöfundur á ný-
norsku.
Þá er innan skamms von á
tveim nýjum bókum frá
Norðra, þrátt fyrir hindranir
þær, sem prentaraverkfallið
olli, og gerði Norðra, sem og
öðrum útg. ókleift að koma öll-
um þeim bókum út, sem ákveð-
ið hafði verið.
önnur hinna væntanlegu bóka
frá Norðra nefnist Glitra dagg-
ir, grær fold, örlagaþrungin
sveitasaga frá Helsingjalandi,
eftir slcáldkonuna Margit Söd-
erholm. Saga þessi lilaut hæstu
bókmenntaverðlaun Svíaríkis
1943. Bókin er í stóru broti og
528 bls. að stærð. Hefir liún
lilotið óhemju vinsældir í Sví-
þjóð og víðar, enda talin mesti
liókmenntaviðburður Svía það
ár. — Þýðingu bókarinnar hefir
Konráð Vilhjálmsson annazt;
störfum að gegna um langt
skeið en nokkur annar fyrir-
rennari lians i þessu virðulega
embætti. Mun vera óvenjulegt,
að islenzk blöð láti sig slíka at-
liurði nokkru skipta, en að
þessu sinni er full ástæða til
slíks, með því að sem utanrík-
isráðiierra Bandaríkjanna hefir
herra Cordell Hull haft bein af-
skipti af íslenzkum málum og
það á þann veg, að hans mun
verða lengi minnzt í sögu Is-
lands, ásamt Roosevelt forseta.
Þessir menn lögðu lóð sitt á
metaskálarnar, er þess þurfti
mest við, og við Islqndingar
getum þakkað þeim öðrum
fremur að við njótum í dag ó-
skerts sjálfstæðis að alþjóða-
lögum. Á langvarandi skeiði
þjáningar og neyðar og í sjö
alda látlausri sjálfstæðisbaráttu
þjóðarinnar, hafa Islendingar
lært að meta það, sem vel er
gert i þeirra garð. Margir ör-
væntu um afdrif sjálfstæðis-
málsins, en hinir, sem trúðu á
sigur réttlætis og siðgæðis,
urðu ekki fyrir vonbrigðum i
því efni, vegna þess að góðir
menn, víðsýnir og réttlátir fjöll-
uðu um málið utan þessara
landsteina. I þeirra hópi verð-
ur ávallt minnzt utanríkisráð-
herra Bandaríkjanna, Cordell
Iiulls, og er á engan hátt óeðli-
legt að íslenzka þjóðin votti
honum þakklæti sitt og sendi
honum hlýjar árnaðaróskir, er
hann nú sökum aldurs og sjúk-
leika lætur af störfum.
byrjað að koma út.
er hann áður kunnur þýðandi,
m. a. af sögunum um þá Bjarn-
ardalsmenn, er Norðri gaf út
s.l. ár.
Hin bókin, sem væntanleg er
frá Norðra, heitir Bandaríkin.
Hún er eftir hinn fræga rithöf-
und Stephen Vincent Benet, sem
látinn er fyrir nokkuru. Er
liann þekktur hér á landi fyrir
ýmsar smásögur sínar. Bókin
f jallar um þróun Bandarílija N,-
Ameríku frá dögum ensku ný-
lendnanna í byrjun 17. aldar til
vorra daga, er Bandaríkjamenn
berjast fyrir þeim hugsjónum,
sem þjóðin hefir harizt og látið
lífið fyrir frá öndverðu, hug-
sjónum mannréttinda og frelsis.
Hersteinn Pálsson hefir ís-
lenzkað þessa bók.
Aðrar bækúr Norðra á þessu
ári voru:
Jón Sigurðsson í ræðu og riti.
Kom hún út fyrir lýðveldishá-
tíðina 17. júní. Vilhjálmur Þ.
Gíslason skólastjóri annaðist
útgáfu bókarinnar. Er hún að
allra dómi merk og fróðleg bók,
og nauðsynleg öllum, er kynn-
ast vilja merkasta foringja
þjóðarinnar.
Friður á jörðu, eftir Björg-
vin tónskáld Guðmundsson,
nefnist fyrsta óratóríó, sem út
hefir verið gefið á Islandi, og
er talið einn merkasti viðburð-
ur í tónmenntum þjóðarinnar.
Frétzt hefir að Tónlistarfélagið
liafi hug á að uppfæra þetta
mikla tónverk í vetur.
Þér eruð ljós heimsins, eftir
hinn kunna fræðimann séra
Björn Magnússon á Borg, sem
er mjög eftirtektarverð bók, er
öllum hugsandi mönnum væri
hollt að kynnast.
Greifinn af Monte Christo.
Eins og kunnugt er, er saga
þessi heimskunn skemmtisaga,
sem um heila öld hefir verið í
miklu dálæti hjá flestum þjóð-
um heims. Þýðingin er eftir Ól-
af Þ. Kristjánsson kennara í
Hafnarfirði. Er hér um stytta
útgáfu að ræða.
Þá hefir Norðri gefið út tvær
barna- og unglingasögur, sem
báðar hafa orðið mjög vinsælar:
Blómakarfan og Beverly Gray,
I. Nýliði.
Þá hefir Norðri mörg stór og
merkileg ritverk í undirbúningi.
Sum þeirra munu koma út
snemma á næsta ári, en önnur
síðar á árinu.
Fiá Alþingi. •
Geðveikramál.
Mikil vöntun er nú á húsnæði
til hjúkrunar fyrir geðveikt
fólk. Sjúkrahúsið að Kleppi er
löngu orðið of lítið og ófull-
nægjandi til þeirra hluta. Vant-
ar mikið á að unnt sé að veita
öllum þeim sjúklingum hælis-
vist, sem þess þyrftu þó nauð-
synlega með, að dómi lækna.
Alþingi hefir fjallað um þessi
mál að undanförnu. Jóhann Þ.
Jósefsson flytur tillögu til
þingsályktunar um að skora á
ríkisstjórnina að gera nú þegar
ráðstafanir til þess að auka við
húsnæði fyrir geðveikt fólk. Á
fjárlögum fyrir yfirstandandi
ár er heimild til að auka hús-
rými fyrir geðveikissjúklinga,
er samþykkt var af síðasta Al-
þingi. Var gert ráð fyrir í sam-
bandi við þá fjárveitingu að
byggja viðbótarbyggingu á
Kleppi, en það hefir ekki þótt
tiltækilegt.
Það hefir verið rætt allmikið
um þetta mál og menn ekki á
eitt sáttir um úrlausn þess. Jón-
as Jónsson hefir komið fram
með þá tillögu, að taka til við-
gerðar og afnota kjallarann
undir þeirri álmu sjómanna-
skólans, sem ekki verður notuð
undir kennslu fyrst um sinn.
Einnig að byggja í samráði við
heilbrigðiss tj órnina geðveikra-
hús á Akureyri fyrir 50 sjúk-
linga næsta vor.
Hver sem niðurstaðan verður
um þessi mál, virðist öllum ljóst
að við svo búið megi ekki leng-
ur una og er þess að vænta, að
Alþingi finni á þessu einhverja
hæfilega lausn.
Hálf milljón atvinnu-
laus í Frakklandi.
Um þessar mundir er rúm-
lega hálf milljón atvinnuleys-
ingja í Frakklandi, samkvæmt
opinberum heimildum.
Þessir menn eru þó smám
saman teknir í vinnu við við-
reisnarstörf, og innan skamms
er hætt við að skortur verði á
mönnum til slíkrar vinnu, þar
sem um þrjár milljónir striðs-
fanga eru enn i Þýzlcalandi og
mikil þörf á kröftum þeirra.
Hinum stærri fyrirtækjum er
nú flestum stjórnað af nefnd-
um eigenda og starfsmanna,
líkt og tíðkazt hefir í Bretlandi
síðustu árin.
Bertar hafa afhent Norð-
mönnum tundurspilli, sem
nefndur hefir verið Arendal og
verður áhöfn hans alnorsk.
Tekjur bæjarins námu
tæpri 31.5 millj. króna
síðastliðið ár.
Nærri 858 þús. kr. varið til
jarðhitarannsókna 1933--43.
Rekstursreikningur Reykja-
víkurbæjar fyrir árið 1943 liefir
verið birtur i reikningum bæj-
arins fyrir árið 1943. Samkv.
þeim hafa tekjur bæjarins á ár-
inu numið kr. 31.410.701.30
(þrjátíu og einni milljón, fjög-
ur hundruð og tiu þúsundum,
sjö hundruð og einni krónu og
þrjátíu aurum). Helztu tekju-
liðir á árinu voru fasteigna-
gjöld kr. 1.485.586.46, tekjur
af ýmiskonar starfrækslu kr.
1.941.832.29, sérstakir skattar
kr. 4.645.620.29, útsvör kr.
20.612.308.25.
Á árinu námu gjöld samtals
kr. 26.742.906.49 (tuttugu og
sex milljónum, sjö hundruð
fjörutíu og tveim þúsundum,
níu liundruð og sex krónum,
f jörutíu og níu aurum). Hreinar
tekjur bæjarins námu þvi á ár-
inu kr. 4.667.794.81.
Hæstu gjaldaliðir eru stjórn
kaupstaðarins kr. 1.465.936.70,
löggæzla kr. 1.755.168.33, lieil-
brigðisráðstafanir kr. 1.469,-
528.07, ýmiskonar starfræksla
kr. 1.566.345.52, lil framfærslu-
mála kr. 2.254.333.86, gjöld
samkv. ákvæðum alþýðuli'ygg-
ingarlaga kr. 2.925.058.72, til
gatna kr. 3.795.925.33, til
barnaskólanna 1.968.646.22, til-
lög til sjóða 3.441.459.50, 'fyrn-
ingarafskriftir 1.249.577. 51.
I reikningum Reykjavíkur-
kaupstaðar fyrir árið 1943 er
yfirlit yfir fjárupphæðir þær,
sem varið hefir verið til jarð-
hitarannsókna á Reykjum, en
rannsóknir þessar voru sem
kunnúgt er undanfari liitaveit-
unnar og gerðar í því skyni að
afla nægilegs vatnsmagns fyrir
bæinn.
Samkv. reikningum hefir
bærinn varið samtals kr.
857.999.90 xtil þessara rann-
sókna, en þau 10 ár, sem rann-
sóknunum hefir verið lialdið
Otlend sulta
Klapparstíg 30. - Sími: 1884.
£
T
Scrutator:
c* V.
abwwwús
Barnatímarnir.
Barnatímarnir eru nú byrjaðir í
útvarpinu á sunnudögum fyrir nokk
uru, og heíi eg fengið nokkur bréf
um þá. Flest eru þau um það, að
gott sé að börnin, fái sem mest af
skemmtilegum leikritum við sitt
hæfi, því að þau muni hafa einna
mest gaman af að hlusta á jafnaldra
sína í útvarpinu. Eg er ekki frá
því, að þetta sé rétt athugað og nú
mun vera í undirbúningi nýtt barna-
leikrit. /
En „G. S.“ vill að sögurnar, sem
lesnar eru fyrir börnin, verði athug-
aðar gaumgæfilega, áður en þær eru
teknar til meðferðar. Sá kaflinn úr
bréfi hennar — eg býst við því, að
hér sé um konu að ræða, ef dæma
má af rithöndinni — sem um þetta
fjallar, hljóðar svona:
„Eg hlustaði á barnatímann síð-
astliðinn sunnudag og líkaði allt
mæta vel, sem þar var á borð bor-
Íð, en þó kunni eg ekki allskostar
við orðbragðið sums staðar" í sög-
unni, sem þulur las. Eg held, að
það hafi ekki verið við barna hæfi
sums staðar, t. d. þegar litli dreng-
urinn, sem sagan er um, er kallað-
ur „argasta úrþvætti" eða „argvít-
ugur“ og honum hótað með húð-
strýkingu, þangað til blóðið lagi úr
honum. Eg þykist vita, að hægt sé
finna sögur, sem sneyða hjá slíku
og þá ætti að gera það.“
Þingin.
Það hefir verið mikið um að vera
i henni Reykjavík upp á síðkastið.
Hér hefir verið haldið Alþýðusam-
bandsþing, Alþýðuflokksþing, kom-
múnistaþíng og hver veit hvað •—-
að ógleymdu sjálfu Alþingi, sem
enginn man nú eftir, þegar öll hin
þingin sitja á rökstólum.
Já, það er að minnsta kosti sagt
svo, að þau hafi setið á rökstólun-
um, þótt Iitlu hafi munað, að fót-
unum yrði kippt undan þeim ágætu
stólum og brugðið á loft, eins og
forðum í Góðtemplarahúsinu, þeg-
ar Héðinn stóð ekkreinn. Svo hafa
verið haldin mörg þing áður í haust
og sumar, og mun enginn kunna
nöfn á þeim öllum. Hér var haldið \
þing bandalags starfsmanna ríkis og
bæja, þing farmanna- og fiski-
mannasambandsins og víst einhver
fleiri, en Góðtemplarar héldu sitt
þing á Akureyri, til þess að verða
ekki fyrir „áhrifum" af öllum hin-
um þingunum. Já, það þýðir ekki
'að deyja ráðalaus.
Nú, og þá má líklega ekki gleyma
þingi íþróttamanna. Segja fróðir
menn, að átökin hafi verið einna
mest þar, hörð keppni og drengileg,
en þó ekki keppt í reipdrætti.
Þingaþing.
En þetta skraf hér að framan er
aðeins formáli að bréfi, sem eg fékk
í gær frá einum af háðfuglum þessa
bæjar. Hann er orðinn leiður á öll-
um þessum þingum, líklega af því
að hann hefir ekki enn verið kosinn
á neitt þeirra, svo að hann kemur
með tillögu um nýtt þing, sem hann
vill láta heita „Þingaþing" og þyk-
ist viss um að ná kosningu þar,
eins og um hnútana á að vera búið.
Bréfið er svo hljóðandi:
„Hið nýja þing skal halda á
hverju ári, þá er ekkert annað þing
er haldið. (Hvenœr œtli það vcrði?
Fyrirspnrn vor og lcturbrcyting').
Á þing þetta skulu eingöngu kosnir
menn, sem fallið hafa við kosning-
ar á önnur þing, eða verlð gerðir
rækir af þeim. Komist hinsvegar
upp, að einhver þingmanna hafi
aldrei fallið við kosningar eða ver-
ið gerður þingrækur, skal hann taf-
arlaust þingrækur ger, og er honum
þá heimilt að taka sæti á þinginu.
Þingið skal vera til húsa í kjall-
ara Stýrimannaskólans, sem J. J.
vill að verði ætlaður geðveiku fólki.
Skal þingið koma saman á óákveðn-
um tímum og helzt slitið, áður en
það hefir tekið til starfa. Að öðru
leyti setur það sér sjálft starfs-
reglur.“
uppi hefir framlag bæjarins
livert einstakt ár numið sem
■hér segir:
Ár. Kr.
1933 ................. 9.424.50
1934 ................ 37.008.38
1935 ................ 38.982.90
1936 ................ 36.642.59
1937 ................ 69.880.19
1938 ................ 98.693.76
1939 ................ 94.594.12
1940 ............... 101.329.39
1941 ............... 108.859.79
1942 ................ 95.238.30
1943 .....!....... 167.345.98
Samt. kr. . . 857.999.00
Þess má geta, að árið 1943
stóð bærinn einnig fyrir jarð-
hitarannsóknum við Rauðará
og kostnaðurnn við þær reikn-
aður með i tölunni fyrir það ár.
Stúlka
vön jakkasaum, óskast;
einnig stúlka, sem getur
saumað vesti lieima. —■
HREIÐAR og SVAVAR
Garðastræti 2.
STORVIÐI
eftii SVEN M0REN.
STÓRVIÐI er dýrðaróður óð-
alsástar og heimahaga, —
þeirrar tegundar ættjarð-
arástar, sem vér Islending-
ar þelckjum of lítið til.
STÓRVIÐI lýsir hinni örlaga-
þrungnu rás viðburðanna í
fjölbreyttu lifi fásinnisins,
þar sem skógurinn mikli
er líf mannanna og lán —
æskuást þeirra og bani.
STÓRVIÐI er bók um æsku-
lýðinn og upphaflega rituð
handa lionum. Hefir norsk-
ur æskulýður einna mest
dálæti á henni af öllum
sögum Sven Moren. Var
hún um langt skeið notuð
sem lesbók í allflestum
ungmennaskólum í Noregi,
og einnig sem kennslubók
i norsku í ýmsum háskól-
um erlendis.
STÓRVIÐI
fæst hjá öllum bóksölum.
ALLSKONAÍÍ
auglýsinga
rEIKNINGAK
VÖRUUMBLHIR
VÖRUMIÐA
BÓKAKÁPUR
BRÉFHAUSA
VÖRUMERKI
VERZLUNAR-
MERKI, SIGLl.
EK
AUSTURSTRÆTt IZ
ULLAR-drengjafataefni,
kr. 34,60 met.
E R L A, Laugavegi 12.
Módelleir
í kössum.
/F
ilkiiD.
Sími 5781.