Vísir - 23.12.1944, Blaðsíða 8
8
V 1 S I R
•sap -gr uuiSup.mgnnq
.<*. Helgfa^on & Helnted li.f.
PÓSTHÖLF 547 — REYKJAVIK — SIMI 1644 (3 línur).
ALLSKONAR VELAR OG VERKFÆRI
LEITIÐ TILBOÐA HJÁ OSS, ÁÐUR EN ÞÉR FESTIÐ KAUP ANNARS STAÐAR.
Messur um jólin.
Fríkirkjan: Messað á aSfanga-
<lag kl. (i e. h., síra Árni Sigurðs-
son. Messað á jóladag kl. 2 e. h.
síra Árni Sigurðsson Messað á
annan í jólum kl. 11 f. h. síra
Árni Sigurðsson.
Hallgrímsprestakall: - Aftan-
sðngur verður kl. (i e. h. i Aust-
urbæjarbarnaskólanum, síra Sig-
urbjörn Einarsson dócent. —
Messað á jóladag kl. 2 e. h. á
sama stað, sira Jakob Jónsson.
Messað á annan í jólum kl. 2 c.
h. a sama stað, sira Jakob Jóns-
son.
Laugarnesprestakall. Aftan-
söngur verður kl. (i e. h. á að-
l'angadag. síra Garðar Svavars-
son. Messað á jóladag Id. 2 e.
h., síra Garðar Svavarsson. —
Barnaguðsþjónsta á annan í jól-
um kl. 10 f. li. síra Garðar Svav-
arsson.
Nesprestakall: Messað verður
í Háskólakapellunni á jóladag kl.
2 e. h., síra Jón Thorarensen.
Messað á annan í jólum í Mýrar-
húsaskóla kl. 2,30, sira Jón Thor-
arensen.
Dómkirkjan: Messað á aðfanga-
dag kl. (i e. h., síra Bjarni Jóns-
son. Messað á jóladagjil. 11 f. h.,
sira Friðrik Hallgríinsson. Mess-
að sama dag kl. 1,30. Dönsk
messa. Síra Friðrik Hallgríms-
son. Messað á jóladag kl. 5 e. li.
Sira Bjarni Jónsson. — Barna-
guðsþjónusta verður á annan i
jólum kl. 5 e. h., síra Bjarni
Jónsson.
Garðaprestakall: Messað verð-
ur í Ilafnarfjarðarkirkju á að-
fangadag kl. (i e. h., sira Garðar
Þorsteinsson. Messað í Iiafnar-
fjarðarkirkju á jóladag kl. 5 e.
h., séra Garðar Þorsteinsson. —
Barnaguðsþjóhusta í Hafnar-
fiarðarkirkju á annan í jólum kl.
11 f. h„ síra Garðar Þorsteins-
son.
Iíálfatjörn: Messað á jóladag
kl. 11 fTh., síra Garðar Þorsteins-
son.
Bjarnastaðir: Messað á jóla-
dag kl. 2 e. h., síra Garðár Þor-
sleinsson.
Peningagjafir til Vetrar-
Kjálparinnar.
H. Þ. 50 kr., Starfsfólk hjjá
Eggert Kristjánssyni & Co. 100
kr„ Starfsfólk Laugavegs Apó-
teks 135 kr„ Fétur 20 kr., Sig.
Jónsson 100 kr., Starfsfólk hjá
Olíuverzl. Islands h.f. 170 kr.,
S. B. 50 kr„ A. .1. & E. .1. 200 kr„
E. W. 50 kr„ Þ. Á. G. 50 kr„ X.
N. 10 ki\, Slarfsmenn hjá Hreyfil
90 kr„ Starfsfólk í Burstagerð-
inni 10 kr„ Skalli 30 kr. Starfsfólk
hjá Þvottah. Drífa 270 kr„ Gömul
lcona 20 kr„ Kunnugur 15 kr„
Hallur Halisson tannl. 200 kr„
Slarfsmenn hjá Verzl. Áfram 100
kr„ Starfsfólk hjá Sjóvátrygg-
ingarfél, íslands 870 kr„ Starfs-
fólkk hjá Efnagerð Reykjavíkur
85 kr„ Sverrir Bernhöft h.f. 500
ki\, Starfsfólkið á Pósthúsinu
240 kr„ Veiðarfæraverzl. Geysir
h.f. 500 kr„ Á. S. B. 50 kr„ Starfs-
fólkið hjá Sjúkrasamlagi Rvíkur
185 kr„ Starfsfólkið hjá Slippn-
lum 250 kr„ Starfsfólkið lijá
Gefjun 50 kr„ Starfsfólkið hjá
Gutenberg 385 kr„ Starfsfólkið
hjá .1. Þorláksson & Norðmanu
250 kr„ Halldór Steinþórsson 100
kr„ Sira Kristinn Daníelsson 50
kr., Sigurjón Jónsson Læknir 20
kr„ Starfsfólk hjá Ilejga Magnús-
syni & Co. 200 kr„ Eimskipafél.
Reylcjavikur h.f. 500 kr„ Starls-
fók hjá Eggert Kristjánsson &
Co. 250 kr„ Starfsfólk hjá Stein-
dórsprent og Vikunnar kr. 231.05
Starfsfólk lijá Viðskiptaráði 110
kr„ Starfsfólk hjá Sverrir Bern-
höft h.f. 235 kr„ Verzl II. Tofl
200 kr„ Fo. 50 kr„ Starfsfólk hjá
Litlu Bílstöðinni 415 kr., — Kær-
ar þakkir. — F. h. Vetrarlijálp-
arinnar í Rvík.
Stefán A. Pálsson.
TABZAN 06 LJÓNAMAÐURINN Eftir Edgar Rice Burroughs.
Ni. 5
Major White hljóp til Ormans, lil þess
að hindra hann i að ráðast á Kwa-
mudi, en slíkt gat haft afdrifaríkar af-
Jeiðingar fyrir leiðangursfólkið allt.
Pal O’Grady, aðstoðarforstjóri kom
White til lijálpar og sagði um leið:
„Hættu, Tom! Þetta er glapræði.“ Pat
.sneri sér að White. „Þú lagar þetta,
niájór. Við skulum fara.“
Major White gekk til Kwamudi og
fullvissaði hann um ]iað, að mönnum
hans skyldi ekkert mein gerl. „En það
er ekki öllu lokið ennþá, ]iólt við liöf-
um sefað1 svertingjana — nú eru það
Basutarnir," sagði White við Pat. „Þeir
munu ráðast á okkur á morgun og
næstu daga, ef við sýnum ekki á okk-
ur fararsnið. Við verðum að fara.“
Þegar skyggja tók, gekk Pat út í
skóginn til að athuga, hvort lianu yrði
nokkurs vísari um háttalag hurða.r-
niannanna. Hann kom auga á nokkra
Araha, sem sátu á jörðinni og voru
niðursokknir í samtal sín á milli. Hon-
um fannst eins og þeir væru nokkuð
eftirvæntingarfullír, eins og þeir virt-
ust híða einhvers.
Þegar aldimmt var orðið, læddist Ob-
roski, Ijónamaðurinn, að tjaldi því, sem
stúlkurnar voru í. „Það er eg, Stanley,”
sagð.i hann lágt. „Eg hefði komið fyrr,
ef eg hefði ekki haldið, að Orman væri
hér. En svo komst eg að því, að hann
er í sínu tjaldi. Býstu við, að hann
komi núna‘?“ Naomi Madisön sagði
honum að koma inn.