Vísir - 13.01.1945, Blaðsíða 2

Vísir - 13.01.1945, Blaðsíða 2
2 VISIR Laugardaginn 13. janúar 1945 Lækkun fiskverðsins í BretlandL Ýsa lækkar um 10—15% cg þorskur heldus meira. ■ Hinn 5. janúar skrifa um- l>oðsmenn eins íslenzks út- gerðarmanns í Bretlandi út- gerðarmanninum eftirfar- andi um fiskverðið: „Við sendum yður hér með lista yfir liið nýja fiskverð, sem gert er ráð fyrir að verði komið á fyrripart marzmán- aðar næstkömandi. Ekki er enn búið að ganga frá þess- um málum til fullnustu og ýmsir aðilar iiafa sótt um það til ráðuneytisins, að verð- ið verði yekki lækkað eins mikið og fyrirhugað er. Það er hinsvegar ákveðið álit okkar, að á þgssu verði eng- in breyting og viljum við í ■ því sambandi aðvara yður . um að gera samninga yðar um fiskkaup, er þér kunnið að gera á næstunni, með lilið- sjón af þessum upplýsing- um. Þér munuð vafalaust hætta að senda okkur fisk- flök, því verðið á þeim er hið sama og á heilum fiski.“ Samkvæmt verðlistanum, sem fylgir bréfinu, er fyrir- hugað að hausuð ýsa lækki úr 8/6 (átta sh. og sex pence) í 7/5 og þorskur úr 8/6 í 6/8. fimlcg í hÖEtkum haf a aukizft um rúml. 135 miSIJ. kr. á einu ári. Innlög í bönkum landsins námu í s. 1. nóvembermán- uði kr. 580.211.000,00 og hafa þau ekki í annan tíma verið meiri. Höfðu þau þá aukizt um rúml. 135 millj. kr. frá sama tíma í fyrra. Ctlán bankanna hafa einn- ig aukizt nokkuð, en .tiltölu- lega miklu minna, eða ekki nema um rúmar 30 milljónir. í nóvembermánuði 1943 námu útlánin kr. 187.133.000, en í s. 1. nóvembermánuði kr. 217.480.000. Seðlar í umferð voru rúml. kr. 156 millj. kr. í nóvember 1944, en tæpar 133 millj. kr. á sama tíma árið áður. Péftur A. Jónsson syngur á morgun. Pétur Á. .Tónsson söngvari heldur afmælistónleika sína, er hann varð að fresta s. 1. sunnudag. á morgun kl. 1.30 í Gamla Bíó. Guðmundur Jónsson og dr. von Urbants- iehtsch aðstoða við hljóm- leika þessa. — Nokkrir að- göngumiðar, sem skilað hefir verið áftur, verða seldir í dag í Bókaverzlun Sigfúsar Ey- mundssonar og í Hljóðfæra- húsinu. Akureyringar sáto í myrkri á jólanóttina. Vatnsskortur í Laxá. Rafveita Akureyrar brást bæjarbúum illa um jólin. Á aðfangadag og jóladag var spenna svo lág, að varla var lesbjart og rafsuða illmögu- leg víðast livar. * Stafaði rafmagnsleysi þetta af vatnsþurrð í Laxá. Var vatnsmagnið i ánni svo litið á timabili, að vélar stöðvar- innar stöðvuðust nær alveg. í blöðum að norðan segir svo nánar frá þessum valns- skorti: Þar sem Laxá rennur úr Mývatni eru grynningar, sem takmarkast af tveimur nesj- um frá aðalvatninu. Nefna Mýyetningar grvnnsli .þessi Breiðu. Þegar svo ber vjíí‘áð aftaka veður 'gerir af veát'ri er eins og vatnið á Breiðunni hlási í aðalvatnið, og stöðv- ast þá að miklu levti rennsli í Laxá. Aðfaranólt 24. þ. m. gerði vestan hvassviðri mikið við Mývatn og stöðvaðist að- rennsli árinnar þá svo mjög, að um morguninn var vatnið i ánni mikils til oí litið íyrir stöðina. Þegar lægði frysti, og safnaðist þá krap og klaki i Breiðuna. svo að úrrennslið stíflaðist og varð vatnsskort- urinn þá engu minni en fyrr. Slarfsmenn rafveitunnar fóru með sprengiefni upp eft- ir á jóladag og tókst þeim að sprengja stífluna burtu. Þar sem frárennsli Mývatns hafði verið stöðvað svo langan tíma, hafði vatnið hækkað eitthvað og varð því valns- krafturinn í frárennslinu mikill eftir sprenginguna. Sópaði áin krapinu og klak- anum með sér og varð ])að til þess að slífla rennslið i þrýstipípur stöðvarinnar. Þetta olli rafmagnsskortin- um á þriðja í jólum ,en þarin dag unnu margir menn við að leiða krapið frá innrennsl- inu og tóksl það, svo að sæmileg spenna var komin á að kvöldi þess dags. Má svo heita nú, að þetta sé komið í lag og hættan á stöðvun liðin hjá í bili. Hins vegar er Ijóst að gera þarf ráðstafanir til þess að fyrirbyggja endurtekningu þessara atburða. Mun það vera hægl með því að hyggja stíflu við kvíslarnar allar til þess að liækka vatnsborðið á Mývatni. I veðrum og frost- um, sem þeim, er nú liafa gengið yfir, mundi þá vera liægt að veita nægilegu vatni i ána, þótt einhverjar .stíflur mynduðust á Breiðunni. Raf‘_ veitan lét gera mælingar og Mjög anldn veznd barna og ung linga uiti allt land. Frumvarp um jjessi mál komið lyrir Alþingi. Á Alþingi er komið fram frumvarp um vernd barna og unglinga. Samkvæm t þessu frum- varpi skulu barriaverndár- nefndir vera starfandi í öll- um kaupstöðum landsins, en utan kau])staða vinna skóía- nefndir störf barnaverndar- nefnda. Starfssvið ])ess°''!i barnaverndarnefnda skal vera, að hafa almennt eftirlit með aðbúð og uppeldi á heimili, eftirlit með hegðun og háttsemi utan heimilis, ráðstöfun barna i vist, í fóst- ur, til kjörforeldra eða á sér- stakar uppeldisstofnanir, eft- irlit .með upipeldisstofnunum, eftirlit með börnum og ung- mennum líkamlega eða and- lega miður sín, heilsu. og vinnuvernd, eftirlit með skemmtunum og fræðslu- og leiðbeiningarstarfsemi varð- andi uppeldismál. Barnaverndarmenn og barnaverndarráðsmenn skulu vera fulltrúar harnaverndar- •nefndar og barnaverndar- ráða. Ber þeim að sýna börn- um og unglingum fyllstu nær- gætni í allri umgengni og eins eru þeir bundnir ströngu þagmælskuheiti um einka- mál fólks, er þeir kunna að komast að vegna starfs síns. Barnaverndarráð skal skip_ að af ráðherra. samkvæmt þriðja kafla frumvarpsins, til fjögurra ára í senn. Skal ráð- ið skipa þrem mönnum og starfa i Reykjavik. Einn skal skipaður samkvæmt tillögu Prestafélags íslands, annar samkvæmt tillögu Sambands íslenzkra barnakennara en Iiinn þriðji af ráðberra, og er hann formaður ráðsins. Árið 1943 flutti þáverandi rikisstjórn frumvarp til laga um vernd barna og unglinga, en frumvarpið dagaði þá uppi. Var það.frumvarp sam- ið af þriggja i ípanna nefnd, senr ráðþerra hafði til þess kvalt. Málið var aftur tekið til umræðu af félagsmála- nefnd neðri deildar haustið 1944 og þá rætt við dómend- ur ungmennadóms, harna- verndarráð og barnayeimdar- nefnd Reykjavíkur. Er frum- varpið irú flutt að mestu ó- brevtt nema að ákvæðið um ungmennadóm er lagt niður. enda Iiefir sú stofnun ekki starfað síðan haustið 1943. ivíaE geta dregið úr vigbúnaði. Sænska þingið var sett í gær, segir í fréttatilkynningu frá sænska sendiráðinu. I hásætisræðu sinni sagði konungur,að þrátt fyrir mikla breytingu á afstöðunni á meg- inlandi álfunnar væri ekki víst. að stríðið yrði brátt á enda, en það hefði haft i för með sér margvíslega erf- iðleika fyrir Svía, svo sem að verzlunin við önnur lönd hef- ir að heita má orðið að engu og hætta á, að hún gangi enn saman. Nauðsynlegt hefir orðið að hafa mjög stranga skömmtun á ýmsum inn- flutningsvörum og hagnýta innlendar vörur sem bezt, m. | a. eldsneyti. Um vígbúnaðinn sagði kon- ungur, að líklega mundi hægt að draga mjög úr kostnað- inum á næsta ári og með það fyrir augum hefir verið hægt að semja hallalaust fjárlaga- frumvarp. Heildartala fjárlaganna er 3240 millj. kr. og fara 12,3 nrillj. kr. til utanríkisþjón- ustunnar og 841 millj. kr. til landvarnanna. Slænit veðurfar á ítaliu hefir hindraö hernaSaraSgerSir síS- ^rj hluta vikuiinar. Þó er.tals- vert um aSgerbir njósnaflokka. Reyndu að slökhva í brenn- andi flugvéla- rtprengju. Sprenging í sko'tfæraverk- smiðju í Englandi. Sextán menn hafa verið sæmdir heiðuismerkjum í sambandi við sprengingu, sem varð I skotfæraverk- smiðju í Hereford í Englandi fyrir skemmstu. Sprengingin varð með þeim hælti, að eldur kviknaði af sjálfum sér í 1000 kg. flug- vélasprengju, sem verið var að fylla með sprengiefni. Komst eldurinn í tvær aðrar sprengjur, cn sprengingar urðu þó ekki strax. Verkamenn og aðrir starfs- menn reyndu að koma í veg fyrir sprengingu með því að moka sandi ofan í 'sprengj- urnar og kæla ])ær með því að dæla vatni utan á þsr. Héldu þeir þessu áfram í tutt- ugu mínútur, en þá urðu allt í einu tvær ægilegar spreng- ingar. Var þrýstingurinn svo mikill, að menn lföstuðust allt að 30 metra vegna loft- þrýstingsins. Fórust nokkrir menn og aðrir særðust, en þarna hefði orðið hið ægilegasta slys, ef menn hefði ekki almennt sýnt þá' hugprýði við að réyna að forða sprengingum og raun har vitni. feikningar um þcssi mann- virki á sl. sumri, en ckki var hægt <að liefja framkvæmdiT þá. Er augljóst, að ekki verð- ur hjá þvi koririzt, að leggja i þær framkvæmdir. Þótt þær lconri lil með að kosta talsvert fé, tjóar ekki að horfa í þ að. Það er brýn nauðsyn að búa svo um hnút- ana_ að bæjarbúar geti hafl full not rafmagnsins með eins litlum töfum og truflunum og frekast cr unnt. Að þvi verður að vinna þegar á næsla vori. Dauðadómar 50—60- íaldasft í Þýzkaiandr. Voru 5336 árið 1943. Dauðadómar voru um 55 sinnum fleiri í Þýzaklandi árið 1943, en árið 1939. Brezka útvarpið hefir Irirt útdrátt úr grein, sem birtist í þýzka tímaritinu „Die lage“ rétt fyrir áramótin. Greinin fjallar um dauðadóma í Þvzkalandi og er eftir dr. Thierack, •dóinsmálaráðhen a nazista. Skýrir hann l'rá því, að ár- ið 1939 hafi þýzkir dómstól- ar kveðið upp 99 dauðadóma, tveim árum síðar 1292, og árið 1943 hvorki meira né nrinna en 5336 dauðadóma. Tæpur þriðjungur dóm- anna — eða 1745 — var l’yrir drottinsvik, en hinir voru fyrir margvísleg afbrot, sem nú er hegnt með dauða, en áður ekki. M. a. voru 182 menn dæmdir til dauða fyrir rán úr húsum, sem höfðu skennnzt í loftárásum. Góð uppskera á Ítalíu. Uppskera varð með betra móti á Mið-ítalíu í haust. Hcfir hún reynzt svo mikil, að þegar opinberir eftirlits- menn höfðu kynnt sér birgð- ir bænda, var gefin skipun um að dreifa hveitinu til fleiri héraða, en áður var ætlað. Fregnir frá Róm herma einnig, að viðreisnarstarfið gangi að mörgu leyti vel. Hefir verið gert við meira en 120 hrýr á Mið-Italíu síðustu mánuði og áveitu- og raf- veitustíflur lagfærðar. Skotið yfir Maas. Nyrzt á vésturvígstöðvun- um helir verið tíðindalítið, síðan bandamenn komust áð Maas hjá Venlo. Nú bcrast fregnir um, að þar sé aftur að lifna við. Er haldið uppi stórskotahríð á báða bóga yfir Maas. Margir amerískir vísinda- menn hafa verið í Bretlandi til aS aðstoða flugher Bandaríkj- anna í tæknilegum efnum. Skattstoian í Reykjavík hefir tjáð ráðuneytinu, að margir atvinnu- rekendur hafi eigi enn, þrátt fyrir kröfu Skattstofunnar í auglýsingu birtri í dagblöð- unum 4. þ. m., skilað skýrslum um launa- greiðslur til starfsmanna þeirra, sem hún hefir krafið um samkvæmt 33. gr. skatt- laganna frá 1935. Verða því ínnheimtar hjá þeim dagsektir samkvæmt 51. gr. fyrgreindra laga, kr. 100,00 á dag frá og með 15. þ. m. að telja, og kr .200,00 til viðbótar á dag frá og með 1 9. þ. m. að telja, þar til er skýrsl- um þessum verður skilað til Skattstofunnar, Fjármál&ráðuneytið, 13.janúar 1945.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.