Vísir - 18.05.1945, Side 1

Vísir - 18.05.1945, Side 1
Fyrirætlanir f. R á næsutnni. Sjá bls. 3. S5. ár Föstudaginn 18. maí 1945 Lesið garðyrkju- greinina á 2. síðu í dag. 110. tbl. Cape heoo 5TATUT6 MIUS Hcdo K umcj.imi Unfcn MOfOBU Onrtó 5 Kimmu Boy Gushícha Pocific Ocean Ntilí.vjjusuku NAHA SHURli 'Yóhabaru \ NAHA's ;AIRflELD Itom.in Gusbichan OKINAWÁ CAPE CHAMU Þegar Bandaríkjamenn geta farið að nota flugvelli eyjar- innar, byrja loftárásirnar á Japan fyrir alvöru. Höfuðborg- in Naha er um 15 km. frá syðsta odda hennar. Japanir höría úr Suður-Burma. Þeir hörfa til varnar- virkja á vesturlanda- mærum Síam. Japanar tilkynna, að þeir muni hörfa með her sinn úr Burma vestur fyrir varnar- virki sín á vestur-landamær- um Síam. Brezkar og indverskar liersveitir eru að ljúka við að luppræta þær hersveitir Japana í Bruma, sem ekki liefir ennþá tékizt að kóma sér undan yfir landamærin til Síam, en á landamærun- um hafa Japanar komið sér upp sterkum varnarvirkj- um. Brezkar og indverskar hersVeitir liafa náð saman á nýjum stað, svo undan- haldsleið Japana minnkar óðum, en þeir reyna að konl- ast undan á svæðinu milli IrraWaddy-óshólmanna og strandar. Aðrar Japanskar hersveitir í Suður-Burma, sem eiga sér ekki lengur undandkomu auðið, liafa ’verið einangraðar í smáhópa og er nú verið að uppræta þá. Talið er, að um 50 þús- und Japanar séu innikróað- ir í Burma. Bretar kaupa sænskt timbur. Bretar kaupa 330,000 „standarda“ af timburvör- um í Svíþjóð, vegna endur- reisnarinnar. Samningar um kaup þessi voru nýlega gerð í Svíþjóð og fór þangað nefnd frá Bret landi. Áður höfðu Bretar fest kaup á timburvarningi og er þetta allt samtals um 400,000 standardar. Verðið hækkar ekkir frá fyrri kaup- uniun. (S.I.P.). Norskir fangar segja frá drápi mörg þúsund Gyðinga. Sex norskir lögregluþjón- ar, sem Þjóðverjar tóku höndum og fluttu til Þýzka- lands og voru í fangabúðum í Stuttgart skammt frá Dan- zig komu nýlega heim. Þegar þeir komu heim til til sán aftnr sögðust þeir hafa verið sjónarvottar að því, að nazistar liefðu blygðunar- laust skotið nokkur þúsund Gyðinga, sem voru í fanga- búðum með þeim. Ástæðan var ekki önnur en sú, að þeg- ar þeir þurftu að flýja vegna. framsóknar Rússa var ekki nægilega mikið af flutninga- tækjum fyrir hendi til þess að flytja Gyðingana líka. Kjarni xtýs dansks flughers. Á annað hundrað þýzkar flugvélar fundust óskemmd- ar á flugvöllum á Fjóni. Talað er um, segir í fregn- um frá London, að Dönum verði afhentar flugvélar þessar til eignar og umráða og verði þær þá kjarninn í nýjum, dönskum flugher. Kínverjar hörfa úr Foochow. Kínverjar hafa orðið að hörfa úr borginni Foochow aftur, en þeir. hrutust inn Nazlsfar fáíu stolin verðmæti í jörðu. Danskir föðurlandsvinir fundu fyi-ir nokkurum dög- um felustað í Kaupmarina- höfn, þar sem nazistar geymdu allskonar verðmæta gripi og verðbréf. Nazistar höfðu allan Iier- námstímann bækistöðvar sínar í húsi sendisveitarinn- ar norsku í Kaupmannahöfn og þegar Danmörk var aftur oriðn frjáls þótti föðurlands- vinum rétt að Ieita vandlega í húsinu og í kringum það. Við nákvæma rannsókn kom í ljós að nazistar höfðu grafið mikla fjársjóði niður í garð- inn, sem er í kringunt hús sendisveitarinnar. Þarna fundust allskonar verðmætir munir og listaverk hvaðan- æfa að, meðal annars margt frá Rússlandi. í einu liorni garðsins fannst viðaraskja og í henni kvikmynd úr einum fangabúðum Þjóðverja. Fjöiutíu kaíbáfai gef ast upp. Fjörutíu þýzkir kafbátar hafa mí tilkynnt uppgjöf sína til Breta. Helmingur þessa lióps er köminn til Bretlandseyja, en hinir eru á leið til lands, því að sumir voru staddir vest- ur undir ströndum Ameríku, er þeim harst skipunin um uppgjöfina. Hæsta* éinkennistala kaf- báts, sem upp hefir gefizt, er U-1305. Chnrchill spurður um Himmler. Churchill var spurður að því í brezka þinginu í gær, hvort hann vissi hvar Himm- ler væri niður kominn. Churchill svaraði því, að hann hefði ýmsum mikil- vægum störfum, að gegna og liefði ekki tíma til að koma með getgátur um dvalarstað lians, en sagðist fullviss, að Himmler myndi koma i leit- iranr seinna, annað livort þessa heims eða hinum meg- in, og væri hið síðara alveg eins lieppilegt fyrir stjórn lians. í hana fyrir nokkrum dög- um. í fréttum í morgun var frá því skýrt, að Kínverjar hefðu orðið að liörfa aftur út úr borginni Föochow, eftir fjögra daga harða bardaga við öflugar japanskar lrer- sveitir. i Þetta er josef Kramer, sem stjórnaði fangabúðunum í Bclsen. Hann er hlekkjaður á fótum á myndinni. Quislíng unir illa vistinni. £r láfinn vinna ýmisleg störf í fangelsinu. Vidkun Quisling situr nú í fangelsi í Osló og er sagður una illa vistinni. Hann er sagður kvarta stöðugt yfir meðferðinni og lialda því fram, að hann sé efthþá liinn eini löglegi l'orseti norsku stjóriiarinnar. Fanga- verðirnir í stærsta fangelsinu í Oslo, en þar er Quisling hafður í haldi, eru sagði helzt velja honum þau slörf sem minnkun þykir af að inna af hendi, svo sem að hrcinsa salerni og hella úr skólpföt- um. Það má því segja að sér grefur gröf þótt grafi, því þessi verk máttu margir mæt- ir menn leysa af liendi fyrir nazista meðan þeirra naut við. Mál hans verður brátt tekið fyrir. . í fréttum nýlega var sagt að mál haiis yí’ði tekið fyrir í þessari viku, en búast má við að einliver frestur Verði á því. Fréttaritarar segja, að með málið verði farið með mikilli leynd og gætt verði ýtrustu varkárni, vegna þess að enn- þá leikur fjöldi lausum hala af fjörutíu þúsund fylgis- mönnum hans. Hinn ákærði hefir játað mamdráp. Kveðsi reiðubú- inn til að taka afleiðingunum. ||éttarhöldin í máli íslend- mgsins Astvaldar Braga Brynjólfssonar hófust í Southampton í gær. Við réttarhöldm kom í jós, að Ástvaldur Bragi taldi sig sekan um manndráp, en vildi ekki viðurkenna sig sekan um morð. Hinn opinberi ákærandí flutti stutta skýrslu og sagðí meðal annars, að íslending- urinn og stúlka úr lijálpar- sveit kvenna í brezka hern- um, ungfrú Simpson að nafni, hefðu farið burt sam- an úr danssalnum í af- skekklu lióteli í Bourne- mouth um kvöldið þess 11. marz síðastl. Tuttugu mínút- um síðar sáust þau tala sam- an fjrir aftan hótelið. Skömmu síðar hejTÍ kona, sem bjó á hótclinu óp mik- ið og kallaði á lögregluna. Þegar lögreglan kom að, fann hún stúlkuna liggjandi, höfuð hennar var alblóðugt og föt öll í óreiðu, og Ást- valdur Bragi stóð yfir henni. Lögreglan fór með þau bæði á lögreglustöðina. Ástvaldur Bragi ákærður. Þegar lögreglan bar verkn- aðinn upp á Ástvald Braga, svaraði hann: „Eg veit ekk- ert um þetta. Eg skil ekki í því, livernig eg liefði átt að gera annað eins og þetta. Hafi eg gert þelta, skal eg taka aflciðingunum.“ Málinu var frestað. Göring og Dönitz í haldl Aðvörun Eisenhovers til liðsforingja Bandaríkjahers, að gera sér ekki dælt við háttsetla nazista, hefir bor- ið árangur. Þeir Göring og Dönilz liafa báði verið settir i varðhald. og er nú farið með þá eins og aðra, sem bíða dóms með- an verið er að rannsaka mál þeirra. Sagt er, að þeir muni fá það, sem þeir þurfa, en verði ekki leyfður neinn munaður,

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.