Vísir - 20.06.1945, Síða 3

Vísir - 20.06.1945, Síða 3
Miðvikudaginn 20. júní 1945 3 Landshmdi Sjálfsfæðisflokksins lokið: Nokkrar af ályktnnum þeim, sem samþykktar vorn á Þingvöllum. AfstaÖa flokksins í fjármálum, skattamálum og verzl- unarmálum og ályktun um stofnun lýðveldisins. Gagnfræðaskóla Beykvíkinga var sSitið kl. 2 e. h. í dag. 117 nentendur voru I skólanum í vefur. 57 nemendur iuku gagnfræðaprófi. Landsfundi Sjálfstæðis- flokksins, sem haldinn var hér í Reykjavík og á Þing- völlum, er nú lokið fyrir nokkuru. Mörg mál voru til umræðu á fundum þeim, sem lialdnir voru i Valhöll á laugardag, en fundur var fyrst settur rélt eftir kl. 10 um morguninn. Var fyrst tekið fyrir skipu- lagsmál flokksins, sem Jó- hann Hafstein, framkvæmd- arstjóri flokksins hafði fram- sögu í, en að ræðu hans lok- inni voru frjálsar umræður. Til máls tóku Ágúst Jónsson, Hofi, ólafur Jónsson, frá Ell- iðaey, Jón Brynjólfssón frá ólafsvöllum og Jóhann Sclie- ving. Þessum fundi stjórnaði ól- afur Bjarnason frá Brautar- liolti, en ritarar voru Sigurð- ur ólafsson kaupmaður á Selfossi og Ragnar Lárusson fátækrafulltrúi hér í bænum. Þegar skipulagsmálin Iiöfðu verið rædd, var fundar- hlé til klukkan þrjú og voru helztu sögustaðir skoðaðir, þegar hádegisverði var lokið. Þegar fundur var settur á ný, var frú Guðrún Jónasson fundarstjóri, en ritari frú Jakobína Mathiesen frá Ilafn- arfirði og frú Jónheiður Eggerz frá Akureyri. Jóhann Þ. Jósefsson al- þingismaður flutti framsögu- ræðu um Nýbyggingaráð, hlutvei'k þess og störf, en er hann hafði lokið ixiáli sínu var fundi frestað til kl. 5,40, en þá var Benedikt Sveinsson, skjalavörður, fundarstjóri, en ritarar Hermann Þórarinsson frá Blönduósi og Stefán Jónsson frá Hafnarfirði. Á þessum fundi var rætt um margar till. til ályktana, sem fram liöfðu komið fyrr á flokksþinginu og voru þær ræddar. Tóku mjög margir til máls og slóð fundurinn fram yfir kl. 10. Kosið í miðstjórn. Fyrir lá nú að kjósa fjóra menn í miðstjórn flokksins i stað þeirra, sem úrhenni áttu að ganga, en þeir voru: Bjarni Benediktsson, ólafur Thors, Pétur Magnússon og Pétur Otlesen. Kom fram tillaga um að iþeir skyldu endurkjörnir og var það gert í einu hljóði. Einn fundarmanna sat hjá. Um kveldið var siðan Iiald- ið skilnaðarhóf í Valhöll og voru þá haldnar margar ræð- ur. Sjálfstæðismáli ð. Landsfundur Sjálfstæðis- flokksins, haldinn á Þing- völlum í júní 1945, lætur í Ijósi fögnuð sinn }Tfir því, að lýðveldi var endurreist á íslandi 17. júní 1944, svo sem síðasti landsfundur fól öll- uin • trúnaðarmönnum flokksins að vinna að. Þakk- ars fundurinn forustumönn- um flokksins ágæta for- göngu í málinu og ö/llum landslýð nær einhuga fylgi við það á úrslitastund. Verzlunarmál. 1. Sjálfstæðisflokkurinn er fylgjandi frjálsri verzlun einstaklinga og félaga. Hann .er mótfallinn ríkisrekstri og emkasölum. Flokkurinn tel- ur óþvingaða samvinnu- verzlun eðlilega og telur að einkaverzlun og samvinnu- verzlun eigi að starfa í frjálsri samkeppni á jafn- réttisgrundvelli. 2. Sjálfstæðisflokkurinn telur nauðsynlegt að afnum- in verði öll höft á innflutn- ingsverzluninni, eins fljótt og ástæður leyfa, svo að inn- flytjendur geti keppt um að útvega landsmönnuin sem beztar vörur með sem lægstu verði. Fjármál og skaltamál. Jafnvel þótt landsfundur- inn telji, að óhjákvæmilegt hafi verið, eins og málum var komið, að leggja á nýja skatta á síðasta Alþingi, er hann þeirrar skoðunar, að keppa heri að þvi, að færa niður útgjöld ríkissjóðs, svo að unnt verði að létta skatta- bjTðina aftur. Útisamkoma templara í kvöld. Stprstúkuþingið hefst á morgun. f kvöld kl. 9 efna templar- ar til almennrar útisamkomu í skólaporti Miðbæjarskólans. Ræður flytja þeir síra Friðrik A. Friðriksson pró- faslur á Ilúsavík, Jakob Möll- er alþingismaður og Friðrik Hjartar skólastjóri á Akra- nesi. Þá leikur Lúðrasveit Reykjavíkur nokkur lög und- ir stjórn Alberts Klahn. Eins og áður hefir verið getið um i hlaðinu hefst Stór- stúkuþingið á morgun kl. 2 e. h., með því að teni]ilarar ganga skrúðgöngu í kirkju og hlýða á messu. Síra Árehus Nielsson prédikar, en síra Árni Sigurðsson þjónar fyrir altari. Kommúnistar reka kaupfélagsstjórann á Siglufirði. Við síðústu kosningar i deildir Ivaupfélags Siglfirð- inga löpuðu kommúnistar meiri lilula þeim, sem þeir höfðu haft um nokkra hríð. \rar almennt búizt við að stjórn Ivaupfélagsins sem skipuð er kommúnistum, mundi segja af sér eftir' að hat'a fengið á sig þessa van- traustsyfirlýsingu frá félags- mönnum, en iþað var nú öðru nær. í gær ráku kommúnistar kaupfélagsstjórann Sigurð Tómasson fyrirvaralaust og auk þess eru þeir" búnir að reka 70 fúlltrúa og meðlimi, frá ‘því kosningaósigur þeirra í deildunuiii var kunnur í byrjun júní. Aðalfundur Kaupfélagsins verður haldinn n. k. fimmtu- dag og á þá einn maður að ganga úr stjórninni. VISIR Islenzkar fréttakvik- myndir sýndar hér á næstunni. Bráðlega mun Óskar Gisla- son, Ijósmyndari, sýna hér í hænum kvikmynd sem hann liefir gert af merkum atburð- um sem skeð liafa hér frá þvi í júnibyrjun jiessa árs. Til dæmis voru kvikmynd- uð hátíðahöldin 17. júni, bæði liér í bænum og í Hafnarfirði. Einnig hátíðahöld listamanna á aldarafmæli Jónasar Hall- grimssonar, úrslit i firma- keppni Golfklúbbsins og aðrir merkilegir atburðir. Seljendumir vildn kaupa skipið aftur og gefa 10 þús. doll. á milli. Eins og skýrt var frá í Vísi í fyrradag, kom nýtt flutningaskip, M.s. Haukur, frá Kanada hingað til lands s. 1. sunnudag. í gær var blaðamönnum hoðið til þess að sjá þetta skip, sem er það fyrsta, sem kem- ur lil landsins á vegum Ný- byggingaráðs. Tildrögin til þess, að þetta skip hefir feng- izt keypt eru þau, að eigendur þess, h.f. Haukur og h.f. Baldur í Reykjarfirði á Ströndum, höfðu frétt, að skip væri til sölu í Kanada. Var svo til ætlazt, að skip þetta yrði tilbúið í marz, en vegna ófyrirsjáanlegra al- vika var ekki unnt að ljúka við smiðí jxiss fyrr en í mái. Fóru þeir Haraldur ólafsson, Pétur Bóasson og Skúli Sí- vertsen utan til þess að sækja iskipið og komu með það eins og fyrr segir, hingað til lands s. 1. sunnudag, eftir að hafa verið 12y2 dag á leiðinni frá Halifax. M:s. Haukur er 520 tonn brúttó, en 420 tonn néttó að stærð og hefir tvær 240 hesl- afla dieselvélar. Á skipinu eru 2 dekkspil með 10 hest- afla mótor livort og ampter- spil með sama hestaflafjölda. Á skipinu eru dýptarmælir, miðunarstöð og íalstöð, allt hin ágætustu tæki. Skipið, er allt hið sterkasla og vandaðasta að öllum frá- gangi. Sérlega smekkleg og hentug er vistarvera skip- stjóra, sem er innréttuð eins og í prýðilegasta farþega- skipi og nnin slíkt eins dæmi um flutningaslcip. Var reynd- ar svo til ætlazt upphaflega, að skip þetta yrði ibúð og að- setursstaður heillar fjöl- skyklu og hyggt með það fyr- ir augum. Er ski])ið hafði verið selt vildu seljendurnir fá skipið til baka og liuðu 10 ]iús. dollara milUgjöf, ef þeir fengju þessu framgengt, en íslendingarnir, sem höfðu 'agt í mikinn kostnað til þess að afla þessa skips vildu ekki ganga frá kaupunum, því þá var ferð iþeirra orðín til einskis. Heilbrigt líf, tímarit Rauí5a kross íslands, 1. —2. hefti, 5. árgangs, hefir borist blaðinu. Ritið er efnismikið og vandað eins og endranær. Af efni þess má nefna: Penecillin. Blóð- kornastökk. Þættir úr sögu þoska- lýsisins. Rottur. Undralækingar Sín ögnin af hverju. Forsaga Landsspítalans og fleira. Auk þess er ritið prýtt myndum og prentað á sérlega góðan pappír. i^agnfræðaskóla Reykvík- inga var slitið kl. 2 í dag. Knútur Arngrímsson, skólastjóri, flutti ítarlega ræðu um starfsemi skólans og framtíðarhorfur. Fara hér á eftir nokkur atriði úr ræðu hans. Bekkjarpróf. Próf upp úr 4. bekk stóð ust 19 nemendur. Hæstu einkunn d331' á vorprófi hlaut Bragi Sigurðsson, 7,72, en fullnaðareinkunn. lians og Jóns Hallgrímssonar '■oi-u jafnar, 7,46. Upp úr 3. beKk stóðust 15 próf. Hæsta einkunn lilaut Kristrún Karlsdóttir með fullnaðar- einkunn 7,62. í fyrsta hekk gengu 75 nemendur undir próf, 63 þeirra stóðust próf- ið, en 3 fengu frest á nokkr- um greinum, vegna veik- indaforfalla. Hæstur á 1. bekkjar prófi, miðað yið fullnaðareinkunn, varð Er- lingur Halldórsson frá Arn- gerðareyri, með 8,39, en á vorprófinu sjálfu var Sverrir Júlíusson hæstur (einkunn 8,47). Af 117 nemendum, scm gengp undir bekkjarpróf skólans (upp úr 1., 3. og 4. bekk) voru 17 sem ekki náðu tilskildum einkunnum, en aðeins 5 þeirra liöfðu of lága meðaleinkunn, hinir 12 hafa fallið á svonefndum frádráttar einkunnum, en þeim var beitt á prófum skólans í fyrsta sinn á þessu ári. Frádráttareinkunnirnar koma í veg fyrir, að þeir nemendur flytjist bekkja á milli, sem vanrækja ein- stakar námsgreinar, eða standa sig laklega í þeim. Gagnfræðapróf. Gagnfræðaprófi úr 2. hekk lauk 12. þ. m. og gengu und- ir það 57 nemendur. 3 liafa ekki lokið því að fullu, en 48 liafa staðizt prófið. Hæslu einkunn lilaut Erla Vil- hjálmsdóttir, 8,10 (hafði 8.50 á vorprófi). Næstir í röðinni voru Pétur Guðfinnsson 7.85 (prófseink. 8.30) og Ein- ar Hlíðdal 7.83 (prófseink. 8.03). Frá því 1938 höfðu nem- endur úr 2. bekk Gagnfræða- skóla Reykvíkinga orðið að ganga sem utanskólamenn undir gagnfræðapróf Mennla- skólans. í vor varð hreyting á þessu, er menntamálaráð- lierra veitti skólanum gagn- fræðaprófsréttindi og jafn- gildir nú gagnfræðapróf hans gagnfræðaprófi Mennta- skólans, sem skilyrði til inn- löku í lærdómsdeild og til að Laka stúdentspróf. Samlímis löggilti menhtamálaráðherra próf skólans í tveim greinum upp úr 3. bekk og öðrum tveimur upp úr 4. bekk sem fullgilt stúdentspróf. Hiiiir nýútskrifuðu gagnfraéðingar setjast að sjálfsögðu í haust i 3. bekk skólans. Á næsta ári að afloknu 3. bekkjar prófi keinur fyrst til greina, að ein- Íiverjir þeirra flytjist yfir i Menntaskólann og þá sérstak- lega ijieir, sem stunda ætla nám í stærðfræðideild, þvi að 4. bekkur Gagnfræðaskóla Reykvíkinga hefir einungis máladeildarkennslu. Mótbárur gegn mennta- skó’ankennslu skólans. Þá vék skólastjóri að þvi, að síðasta áratuginn hefðu á að gizka 2 af hverjum 5 slúd- entum frá Menntaskólanum i Reykjavik átt það Gagn- fræðaskóla Reykvikinga að þakka að þeir komust leiðar sinnar á námsbraulinni. Þannig liefði hlutverk skól- ans alla tíð verið fremur að veita Menniaskólanám en al- menna gagnfræðaskóla- kennslu. Gat hann. þess, að ýmsir létu sér nú detta i hug, að skólinn gæti lagt niður menntaskólakennslu sína. Gegn þeirri starfsemi hans væri aðallega hreyft þrem mótbárum. Ein væri sú, að liann fleytti 3. einkunnar mönnum í áttina til stúdents- prófs. „Það er námshrokans nauma geð, sem gerir sér slíka röksemd að góðu, því að margur 3. eink. maður í skóla hefir skákað 1. eink. mönn- uin á prófi lifsins.“ önnur mótbáran væri sú, að með tilvonandi skólakerfi, sem að vísu væri ekki búið að lögleiða og því siður nokkur reynd komin á, myndi takast að veita straumi æskulýðsins frá stúdentsmenntun til ein- hers hagnýtara náms. „Þetta skraf uin að veita straumi námsfólks frá stúdents- menntun út í athafnalífið, var byrjað áður en eg kom i skóla,“ sagði skólastjóri. „Það var notað sem röksemd gegn Mennlaskóla Akureyr- ar á sínum tíma, það var notað scm rök fyrir tak- mörkunum á inntöku i Menntaskólann hér og það er notað enn. En straumurinn i þessa átt liefir aldrci verið striðari en nú, þrátt fyrir allt þetla tal, enda streymir fjöldi unglinga út i athafna- lifið samtímis.“ Þriðja mótbáran er sú, að hráðum verði byggt yfir Menntaskólann i Reykjavik og muni þá einn meiinta- skóli nægja. „Grunur minn er sá,“ hélt skólastjóri áfram, „að áður en sú hygging verði komin upp verði sú skoðun orðin ríkjandi, að ekki verði komizt af án tveggja mcnnta- skóla i bænum.“ Nýtt húsnæði. Fyrir nokkru var frá því skýrt hér i hlaðinu, að G. R. myndi fá hús gamla Stýri- mannaskólans næsta haust, og fær skólinn þar verulega aukið húsnæði,. SUIPAUTG ERÐ ..S U Ð R r Vörumóttaka til Vest- mannaeyja fram til há' degis á morgun.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.