Vísir - 29.08.1945, Qupperneq 2
2
V I S I R
Miðvikudaffinn 29. ágúst 1945>
•lÓBlUS €mU ðiBB BMBB bIsSBPBÍ Z
sem
ist á Potsdamráðstefnunni
I.
Poísdamráðstefnunni lauk
ncttina milli 1. og 2. ágúst
s. I., þessari langþráðu ráð-
stefnu, sem átti að tryggja
varanlegan frið um alla ei-
Iífð milli hinna þriggja stór-
velda — Bretlands, Banda-
ríkjanna og Sovétríkjanna,
— og skapa smáþjóðunum
frelsi og lýðræði.
Þessi ráðstefna á eftir að
verða mjög fræg, en Iiún
verður það ekki nærri slrax,
og það stendur þannig á þvi,
að ekki má ennþá segja frá
því sem þar gerðist og mestu
jnáli slciptir En fyrir eitt er
])ún þó orðin fræg nú þegar
og það er fyrir það, að hafa
gefið út lengstu álitsgerð eða
yfirlýsingu sem enn héfir
verið út gefin af fundum
liinna „þriggja stóru“, og þó
alveg sérstaklega fyrir það,
að í þessari nýju, 6000 orða
]öngu tilkynningu skyldi ekki
felast eitt'einasta nýtt atriði,
sem nokkuru máli skipti fyr-
jr friðinn i heiminum, fram-
tíð mannkynsins eða fra)n-
tíðarsamstarf hinna þriggja
stórvelda. Sá, sem les með at-
hygli hina löngu yfirlýsingu
sér að þar er ekkert nýlt, og
ekkert, seni verulega skiptir
máli, og ekki hefði verið
])ægðarleikur að ákveða án
■þessarar ráðstefnu „hinna
þriggja stóru“. En þrátt fyr-
jr þetta jiarf þessi ráðstefna'
ekki að liafa verið neitt ó-
merkur atburður og mun eg
skrifa um það nánar i ann-
ari grein hráðlega hér í
„Vísi“.
II.
ViS vitum samt nú þegar,
að tvær mjög þýðingarmikl-
ar ákvarðanir voru teknar t
Potsdam þótl hvorugrar sé
getið i hinni 6000 orða löngu
yfirlýsingu. Þessar ákvarð-
anir vorur að Bretar og
Bandaríkjamenn mundu op-
inbera heiminum, að kjarn-
orku-sprengjan væri nú full-'
húin og mundi verða
„reynd“ á japönskum borg-
um, og hitt, 'að Rússar til-
kýnntu Bandaríkjunum og
Bretum að þeir mundu nú
„efna gefið loforð“ og ráðast
inn í Mansjúriu til þess að
„frelsa“ liana bæði undan
Japönum og Chang-Kai-
Shek. Eins og menn sjá á
þessu er það svo í reyndinni,
að þess merkilegasta, sem
gerist á slíkum fundum sem
Poísdamráðstefnunni, er alls
ckki getið í hinum opinberu
tilkynningum.
Það setn enn ákveðnara
béndir til þess að Potsdam
ráðstefnan liafi verið hin
merkilegasta er ferðalag
Trumans Bandaríkjaforseta.
Hann hafði tilkynnt áður en
ráðstefnaan hýrjaði, að hann
ætlaði að koma til Noregs,
Danmerkur, Hollands,Frakk-
lands og jafnvel í opinbera
lieimsókn tilBretlands að ráð-
stefnunni lokinni, en náttúr-
lega því aðeins að „allt gengi
vel“. En Pandaríkjaforseti
])ætti við heimsóknirnar,
llraðaði scr héim og lét henda
kjarnorkusprengjunni lafar-
laust á Japan áður en Rússar
kæmu í striðið. Eini maðúr-
inn sem hann talaði við á
leiðinni heim, var Bretakon-
ungur. Svona atburðir eru
það, sem tala sínu máli þrátt
fyrir allar þessar fögru, lang-
orðu yfirlýsingar um „sam-
komulag11, „vináltu“, „ein-
ingu“ o. s. frv., o. s; frv. Mað-
ur man ennþá eftir þessari
„göfugu“ yfirlýsingu: „Fullt
samkomulag hefir náðst milli
þýzku stjórnarinnar og sovi-
etstjórnarinnar um það
hvernig Póllandi skuli skipt
og telji þær eftir þetta enga
ástæðu til að stríðinu sé hald-
ið áfram. Muni Þýzkaland og
Soviet-Rússland, ásamt öðr-
um vinveittum ríkjum, gera
sameiginlega tilraun til þess
að binda enda á slríðið, og ef
það ekki tækist, sé þar með
sannað að England og Frakk-
land beri ein ábyrgðina á
því.“ Undirskriftin var á sín-
um tima Hitler og Stalin eða
umboðsmenn þeirra. Allir
vita nú hversu haldgóð hún
varð þessi vináttuyfirlýsing
og svipuð hefir raunin orðið
á úm fleiri. Þeir, se))i því
vilja reyna að fylgjast með
því, sem raunverulega hefir
gerzt á þessum þýðingar-
miklu „stefnumótum" verða
að reyna að ráða það af lik-
um þegar nokkuð líður frá
og atburðirnir fara að sýna
hvert stefnir.
III.
En það er nú að koma bet-
ur og betur í ljós, að eitt
mjög þýðingarmikið atriði
hefir bersýnilega gleymzt
með öllu á hinni frægu Pots-
dam ráðstefnu og sú
gleymska gæti haft hinar al-
varlegustu afleiðingar fyrir
allt mannkyn. Það hefir sem
sé gleymzt alveg gersamlega
að koma sér saman um það
hvað sé lýðræði (demokrati).
Allir hinir „þrir stóru“ eru
yfirlýstir „lýðræðissinnar“.
Allir vilja þeir „efla lýðræð-
ið“ og „stofna lýðræðisríki“
á rústum nazismans, ekki
vantar það, en þeim kemur
augljóslega saml ekki saman
um livað sé lýðræði. Á þessu
flöskuðu þeir hroðalega
Churchill og Roosevelt á
Krímráðstefnunni, því þeir
komust báðir að þeirri niður-
slöðu eftir þá ráðstefnu, að
Slalín meinti allt annað með
lýðræði en þeir. Hann átti við
„rússneskt lýðræði11," sein
Þjóðviljinn hér kallar „hið
fullkomna lýðræði sósíal-
ismans“, en 'þeir Churchill
og Roosevelt áttu við hið
vestræna, borgaralega lýð-
ræðið, en þeir vöruðu sig ekki
á því, að slikt lýðræði heitir
óvart á máli Stalins bónda
, nuðvaldssinnað einræði“
(Capitalist dictalorship).
En J)eir „tveir stóru“, seni
komu í stað Churchills og
Roosevelts á Potsdamráð-
stefnuna, Truman og Attlee
hrasa greinilega um sama
steininn. I stað þess að fá úr
þvi skorið hvað Slalin eigi
við með lýðræði liald.i þeir
áfram að nota orð með
tvennskonar merkingu i hin-
um sameiginlegu yfirlý&ing-
um sínum. Manni sýnist nú
að margl megi fyrirgefa
ýmsum smærrj spámönnuni
og blaðainönnum i hugsana-
ruglingi Jægar hinir „Jirír
stóru“ gera sig seka um
slikt. .
Bevin, hinn skeleggí' for-
ýstum.aður brezka verkálýðs-
ins og núverandi utanríkis-
ráðlierra brezka heimsveld-
isins, lætur nú svo um mælt,
að „svo virðist sem í Búlg-
aríu, Rúmeníu og Ungverja-
landi liafi ein tegund einræð-
is komið í stað annarrar“.
Og utanrikisráðherra Banda-
rikjanna er á sama máli.
Hann segir að Bandaríkin
„semji hvorki frið“ við Búlg'-
aríu né „taki upp stjórnmála-
samband" við hana meðan
slíkt einræðisfyrirkomulag
er Jiar og nú rikir, en Rússar
eru harðánægðir með „lýð-
ræðið“ í Búlgaríu og hafa
tekið upp stjórnmálasam-
band við landið án þess að
semja frið við það formlega.
Þeir hafa meira að segja lát-
ið einn af aðalmönnum sin-
um — Dimitrof — „afsala
scr borgararéttindum sínum
í Sovétríkjunum til þess að
gela gerzl þegn“ í hinni nýju
Búlgaríu og orðið þar „í
kjöri“ við þingkosningarnar.
Er ljóst af Jiessu að ekki er
miklum vandkvæðum bund-
ið fyrir árifamenn í Sovét-
rikjunum að fá borgararétt-
indi í Búlgaríu.
é
IV.
Og það er eins og banda-
menn furði sig á Jiessu fyrir-
’brigði, „að nýtt einræði hafi
komið i stað Jiess sem fyrir
var.“ Vissu þeir Jiá ekki hvað
þeir voru að gera þegar þeir
seldu Rússum í hendur Balk-
anlöndin? Það má vel vera að
Churchill hafi ekki vitað
það, að einræði væri i Rúss-
landi eða vinskapur hans við
Stalin hafi blindað hann, en
liitt er alveg áreiðanlegt, að
bæði Ernest Bevin og Herberl
Morrison hafa vitað að svo
var. Þeir eru ekki nú fyrst að
komast i kynni við lygakerfi
kommúnistanna, sem hnupla
öllum hugtökum og hug-
myndum, sem sósialdemó-
kratar eru búnir að .vinna
vinsældir meðal almennings
og rangsnúa Jieim siðan eins
og bezt hentar.einræðisstefnu
Rússa á hverjum tíma og i
hverju landi. Bevin og Morri-
son vissu vel, að konnnúnist-
arnir rússnesku eru engu
minni einræðissinnar en
Hitler sálugi og lians fólk var.
Þeir vissu að ekkert lýðræði
er til í Rússlandi og rúss-
neskum lepþríkium. Þeir
vissu líka að kommúnistar
falsa öll liugtök og rangsnúa
Jieim þar til þau eru verri en
einskisvirði. Þannig er nú
komið með „lýðræðið“, að
hver sæmilega skynugur
maður hlýtur að fara að líla
á það sem spaugsyrði, ef með
því er ált við rússneska kúg-
unarskipulagið, sem enga
flokka leyfir eða viðurkenn-
ir nema kommúnista, en
beitir einstaklingana heima
fyrir skoðanakúgun og allar
þær Jjjóðir kúgun og harð-
stjórn, sem eru svo óliam-
ingjusamar að búa í nánd við
J)að, s. s. Búlgaríu nú og önn-
ur Balkanlönd. Orðin „sósíal-
ismi“ og „sósialisti“ eru á
sömu leið. Rússneska kúgun-
ar-hagkerfið er kallað „sósí-
alismi“, og svokallaðir ungir
hagfræðingar hérlendir
blekkja Jijóðina með því að
halda slíku að henni í „lærð-
um“, ritgerðum. í raun og
veru er ekkert jafn fjarlægt
sósíalisma en rússneski rík-
isrekslurinn sein að Verulegu
leyti byggist á ánauðugu
fólki líkt og lénsskipulag
miðaldanna. Það er aðeins
meira „búmannsvit“ í Jjví að
fóðra þrælana belur og fata
J)á skár og veita þeim meiri
hvíld, svo Jieir endist lengur,
sem nú kemur fram í rúss-
neska hagskipulaginu, en
koni fram hjá þrælahöldur-
um bændaánauðarinnar
fyrr meir. Sósíalismi er J)að
ekki frekar en national-
sósíalismi Hitlers sáluga var
sósíalismi. Orðið „sósíalisti“
er blátt áfram að verða
skammaryrði síðan komm-
únistar slálu því og fóru að
flagga með því baéði liér
heima og erlendis. Að komm-
únistar séu sósíalistar er al-
gerlega rangt því sósíalistar
stefna og liafa stefnt að
auknu frelsi almennings á
öllum sviðum, en kommún-
istar stefna að aukinni kúgun
sama almennings á öllum
sviðum.
Nú er kominn til valda i
brezka heimsveldinu stjórn
sósíalista — sósíal-demokrata
— nianna sem raunverulegá
eru sósialistar og niunu starfa
samkvæmt því. Þess mun
ekki langt að bíða að þeir
menn verði svívirlir af
kommúnistum og taldir „fas-
istar“ og „auðvaldsþý", á
sama tíma sem „rauðu fas-
istTinum“, sem Churchill svo
nefndi, eða þessari „nýju ein-
ræðislegund" sem Bevin
talar um verður liossað liér í
„Þjóðviljanum“ sem „frelsis-
her“ og „endurlausnurum“
eins og gert hefir verið að
undanförnu með glæpaflokka
þá, sem sumstaðar — s.s. i
Danmörku — hafa vaðið uppi
eftir fall Þjóðverja.
Það mætti segja fnér það,
að það yrði jafn erfitt „utan-
ríkismál“ milli Rússa og
Rreta áður en lýkur að fá úr
J)ví skorið livað sé „sósíal-
ismi“ eins og það reynist nú
að fá nokkurn botn i J)að
Iivað sé „lýðræði“. Rússar
munu halda því fram að
kommúnisminn sé liinn eini
„fullkomni sósíalismi" eins
og þeir lialda því nú fram að
konimúnistaeinræðið í Rúss-
landi sé „hið eina sánna lýð-
ræði“.
V.
Ilvað finnst. niönnum nú
annars um annað eins og
þetta, að J)að skuli gela kom-
ið fyrir á sameiginlegum
fundi J)riggja ráðamestu
manna i heiminum — og það
fuml eftir fund — að gefnar
séu út sameiginlegar yfir-
lýsingar, sem blekkja íbúa
jarðarinnar, byggöar á al-
gjörlega andstæðum skiln-
ingi á grundvallarhugtaki
yfirlýsingarinnar?
Á þessum yfirlýsingum
stórveldanna byggja svo smá-
þjóðirnar von sína um frelsi
sem svo reynist ekki annað en
hrein blekking. Öllum Balk-
anríkjunum hefir vcrið lofað
„frelsi“ og „lýðræði“. Nú fá
þau „rússnéskt frelsi“ og
„rússneskt lýðræði“. Fama
verður sagan með Pólland.
Og Rússunum er alveg sama
um „viðurkenningu“ Bret-
lands og Bandarikjanná á
þessum ríkjum. Þegar þau
einu sinni hafa verið hnept í
þjóðafangelsið rússneska
eiga þau aldrei aflurkvæmt
þaðan fyr en fangelsismúr-
arnir verða sprengdir. Balt-
isku löndin, Estland, Lett-
Iánd og Lithauen, eru öll
horí'in inn fyrir fangelsis-
múrana án þess Bretland og
Bandarikin liafi „samþykkt“
hvarf J)eirra.
Það sem þvi fram fcr nú i
Evrópu er í mínum augum
bæði grátlegt og hlægilegt.
Það er eins og hin miklu vest-
rænu stórveldi, Brelland og
Bandaríkin, séu nú fyrst að
álta sig á J)vi, að l)au hafa
verið á loddarasamkundu
J)ar sem leikið hefir verið á
þau livað eftir annað. Hver
maður sem af raunsæi litur
á málefni Evrópu nú, hlýtur
að sjá að hin miklu vestræiíu
slórveldi liafa afhent livorki
meira né minna en 10 J)jóð-
lönd (Éstland, Lettland, Lit-
1 íáen, Pólland, T ékkóslóvakiu,,
Rúmeníu, Búlgaríu, Ung-
vcrjaland, Júgóslaviu og Al-
baniu) undir hið rússneska
„lýðræðisskipulag“, sem J)au
eru nú. fyrst að ,,uppgötva“'
að er aðeins „ný tegund af
einræði“. Þetta er stærri
„fasteignasala“ en dæmi eru
til áður í veraldarsögunni..
Er það ekki meira en grát-
legt að þetta skuli vera á-
vöxturinn af stórkostlegasta
sigri, sem hin vestrænu Iýð-
ræðisríki hafa nokkru sinni
unnið? í stað frelsis og mann—
réttinda, lýðræðis og lýð--
stjórnar kemur „nýtt ein-
ræði“ — en „í Rússlandi
fagna menn afrekum Pots-
damráðstefnunnar," segir
Þjóðviljinn.
J. G.
Hið nýja
Cream Deodorant
stöðvar svita tryggilega
I • Saerlr ekki hörundið. Skemmir ekkl
kjóla eða karlmannaskyrtur.
2. Kemur I veg fyrir svitalykt og er
skaðlaust.
3. Hreint, hvltt, sótthreinsandi krcm,
sem biettar ekkl.
4. Þornar þcgar i stað. Má notast
þegar eftir rakstur.
5. Hefir fenglð vlðurkenningu frá
ran n sók n a r stof n u n amcrískra
þvotcahúsa. Skemmir ekkl fatnað.
Notið Arrld reglulega.
Beztu óritt
frá
BARTELS, Veljusundi.
Sími 6419.