Vísir - 25.03.1946, Side 2
2
V I S I R
Mánudaginn 25. marz 1946
Skrifið
kvennasíðunni
um áhugamál
yðar.
atur
FISKAFGANGAR.
NauSsyn er það öllum hús-
auæSrum, aö láta sem minnst
at" matvælum fara til spillis.
JBæði vegna þess hve dýr þau
eru og ekki síður vegna þess,
aö úti i löndum eru milljónir,
sem þola hungur og er okkur
því ekki sæmandi að henda svo
miklu sem einum ætunt hita.
Það er mjög auðvelt að búa
til gó'Sa rétti úr fiskafgöngum.
jþvi þá má nota ýmist i pk;kk-
fisk, gratin, „fiskuppstúf" eða
i fisksalat með mayonnaise og
htilli dós af grænuin baunum.
Hér eru tveir skennntilegir
fiskréttir úr fiskafgöngtun.
Fiskréttur í karry.
Einn Stór laukur er hakkað-
mr smátt og hrúnaður í snijöri.
Einni teskeið karry og einni te-
jskeið hveiti er sáldrað yfir
hann og nokkuru síðar er ca.
2R2 dl. af fisksoði helt yíir. Svo
<t lítið, súrt epli hakkað og
,því einnig bætt í pottinn, á-
tsantt einum sykurmola. Lokið
syo set.t á pottinn og þetta soð-
ið í stundarfjórðung. i’á er
tfiskinum blandað saman við
{auðvitað á hann að vera roð-
iaus og beinlaus). Rétt áður en
fiskrétturinn er borinn á borð,
ler ágætt að setja nokkura dropa
af cítrónusafa saman við hann.
■— Borðið hrisgrjón, spaghetti
tða kartöflustöppu með.
Fiskur í pönnukökudeigi.
Hakkið soðinn kaldan fisk
cg setjið hann saman við þykkt
pcnnukökudeig. Bakið eins og
iummur og borðið réttinn heit-
an.
Amerísk hrísgrjónakaka.
Ríz á l’amande.
1 makrónubotn.
Apríkósumauk úr 125 gr. af
aprikósum.
2 dl. þeyttur rjómi.
Ögn af víni (sherry t. d.).
Ríz á l’amande má búa til úr
afgangi af hrísgrjónamauki.
Er hann þá hrærður upp með
sykri, möndlum og vanille eftir
smekk, og rjómi (þeyttur)
settur saman við, en þess gætt
tað grauturinn verði ekki of
þunnur. —. Makrónubotninn er
vættur í víni og á hann er svo
smurt þykkt lag af rís á l’a-1
anande. Má það ekki vera svo
þunnt að það fljóti út af. Yfir
það er svo sett lag af apríkósu-
mauki og röndin svo sprautuð
með þeyttum rjóma.
Batnar hagur jap-
anskra kvenna?
I íiHul við
Jíf/iíi n sh e ísíb B*iBm
Steik á aldrei að snúa með
gaffli. Safinn ur kjötinu renn-
nr þá út uih götin eftir gaff-
alínn. Siiúið steik ávallt með
lveim sleifmn.
Mágkona Hiroliitos liefir
nýlega veitt viðtal blaðakonu
frá United Press og hefir
slíkt ekki skeð í sögunni
áður.
Otani greifafrú er yngri
systir keisarafrúarinnar. Yill
hún að stétlaskipting verði á
burtu íuimin i Japan og und-
irokun kvenna aflétt, að kon-
ur sé fræddar um meginat-
riði lýðræðisins og liljóti
sömu menntun og konur i
lýðræðislöndunum. Ilún vill
og láta afnema þjóðbúning
japanskra lcvenna, „kimono"-
inn, segir liann vera tákn að-
gerðaleysis.
Greifafrúin sagðist lesa
blöðin og fá þár fræðslu um
þau mál, sem efst eru á
baugi í lieimintun. En ekki
kveðst liún ætla sér að taka
neinn virkan þátt í stjórn-
málum lieima fvrir, helzt
gæti henni dottið í hug að
starfa að fræðslu, sem byggð-
ist á trúmálum. Og hún tók
það fram, að systir sin, keis-
arafrúin, tæki aldrei neinn
þátt í málum rikisins.
„Ivonur mega ekki glevma
heimilisskyldum sinum,“
sagði hún. „En þær þurfa að
hafa meiri tíína til þess að
sinna félagslifi og borgara-
legum málum. Og fyrst og
fremst ælti engin stétta-
skipting að vera.“
Iiún sagði að sér hefði
hrugðið í brún er hún hevrði
að Japan gæfist upp fyrir
sameinuðu þjóðunum. Hún
stendur framarlega í
Buddha-trúarflokki og er því
andvíg Iiernaði. „En eg
hugði,“ sagði hún, „að Japan
a'tti í lieilögu slriði, sem
stefndi að lieimsfriði. LTpp-
gjöfin var þvi eins og reiðar-
slag. Mér kom ekki til hugar
að við værum svona illa
stödd.“
Frú Otani er sex barna
móðir og liafa fjórir synir
hennar verið í herþjónustu
lieima fyrir.
Hún ræddi langa stund um
það að endurreisn Japans
yrði að byggjast á trúar-
brögðum. Hver þau trúar-
brögð sem fólkið aðliyllist
gæti gert sama gagn.
Fréttaritarinn ræddi við
liana langa stund í skraut-
hýsi fjölskvldunnar. Var þar
glæsilegt um að litast. Stól-
arnir voru fóðraðir með
rauðu silki. Lítið borð klætt
grænu sillci átóð álengdar og
á því var dýrindis kér með
orkidé-blómum í. Bar salur-
. mbtnB .c'iljtrr oh J!
inn i öllu japanskri listfengi
og smekkvisi vitni.
Frú Otani lét svo um mælt,
„að liún gerði ráð fyrir að
liin nýja japanska stjórn
mundi ráða bót á mörgu
innanlands. En það mun
ekki gerast í fljótu bragði“,
mælti hún ennfremur.
„Stjórmnálamennirnir
skilja ekki liöfuðatriði lýð-
ræðisins,“ sagði hún. „En
þegar konurnar eru búnar að
fá meiri menntun býst eg við
að þær geti lijálpað mikið
til.“
„Við þurfum margar uin-
bætur og hjálpartæki til þess
að létta undir á heimilunum,
svo að störfin þar verði auð-
veldari og heimilisliættir
betri,“ mælti hún. „Við vilj-
um að sjálfsögðu að japanska
konan lialdi þeim góðu og
göfugu siðum og eiginleik-
um sem hún hefir tamið sér.
Hún er skírlíf, trú og trvgg’.
En jafnframt þessu væri
lienni gott að öðlast þekkT
ingu á borð við vestrænar
konur.“
Sorpvinnslustöð eða
sorpeyðing?
Þess var gelið i dagblöð-
um Reykjavíkur fyrir einu
eða tveimur árum að bæjar-
stjórnin léli atliuga mögu-
leika á því að vinna einhver
verðinæti úr öllum þeim úr-
gangi sem lendir í skarn-
tunnum lieimilanna. Hefir
lítið af þessu máli spurzt
siðan en nú eru aftur á döf-
inni athuganir um þelta mál.
Var þess getið í Visi þriðju-
daginn 19. marz.
Það væri að sjálfsögðu
gott ef hægt væri að notfæra
sér allan úrgang. En þólt
bæjarstjórnin sjái um sorp-
hreinsunina éru þó sorp-
tunnurnar svo hvimleiðar og
svo illa um þær gengið hjá
mörgum, að stór lýli eru að.
Og þar sem margir bvia í
sama húsi virðist svo sem
engin samtök sé um það að
hreinsa til kringum sorp-
skrínurnar. Það ætti þó að
vera auðvelt fyrir íbúa hús-
anna að hafa samtök með
sér um það, að fara út einu
sinni í viku, t. d. þann dag
sem tunnurnar liafa verið
tæmdar, sópa hlaðið ræki-
lega og tína upp það sem
kann að ligg'ja þar, henda því
svo í tunnurnar sem þá eru
tómar. Mundi fljótlega verða
þrifalegra í kringum húsin.
Pappírsrusli öllu væri sjálf-
sagt að brenna, þvi að víða
eru miðstöðvar ennþá Og þar
má vel brenna rusli meðan
vatn er á hitakerfinu — en
það á ekki að gera það ef
ekki rennur vatn í gegn um
kerfið.
Þessi áætlun um sorp-
vinnsluna verður sjálfsagt
athuguð vel, svo að séð verði
hvort borgar sig að setja upp
dýra sorpvinnslustöð. Þó að
slík stöð verði reist er ruslið
i tunnunum jafn-hvimleitt
fyrir því. Það leggur af því
ódaun Og flugnagerið er
hreinasta andstyggð, flug-
urnar leita svo úr tunnun-
iib.h; 'jc. 'umut!
um inn i húsin og bera með
sér allan óþverrann, þær setj-
ast á matinn bæði á heimil-
unum, og annarsstaðar þar
sem matur er um hönd hafð-
ur. Sér Iiver maður hversu
háskalegt þetta er og ógeðs-
legt. — Það er augljóst mál
að það væri gott að losna
með öllu við sorptunnur og
allan úrgang' í eitt skipti fyr-
ir öll, og frá sjónarmiði
heilsu og hollustu í bænúm
væri það ómetanlegt.
Fyrir einu eða iveim árum
var þess getið í amerískum
blöðum að þar væri nú búið
að finna upp tæki, sem mal-
aði allan úrgang mélinu
smærra, svo að hægt væri að
skola öllu þvilíku niður um
vaskinn. Yar meira að segja
talað uin að þetta merkis-
tæki malaði bein lika. Þótti
mér þá sem hér væri fundin
lausn á miklu vandamáli
heimila og bæja og óskaði
þess að þessi tæki yrðu brátt
flult hingað til landsins. En
eg hefi ekki orðið þess vör
að þau væri auglýst neins-
staðar. Yeit eg' heldur eklci
hvort þetta eru sérstök tæki,
sem setja má í sambandi við
livaða afrennsli sem er, eða
livort það eru sérstakir vask-
ar, sem eru útbúnir með
þessu. En það In’gg eg, að
allar liúsmæður væri fegnar
að fá svona tæki á lieimili
sín. Og séu þetta sérstakir
vaskar mundu víst flestir
húsráðendur sjá sér hag í
þvi að skipta um vask i eld-
liúsinu til þess að gela orðið
Jiessara þæginda aðnjólandi.
Þarna er þá vandamálið
um úrganginn leysl. Þarf þá
ckki að byggja dýra sorp-
vinnslustöð og sorp-skrin-
urnar hverfa af lilaðinu.
Yænti eg þess að einhverj-
ir þeir sem verzla með muni
sem nauðsynlegir eru á heiin-
ilum, sé svo miklir framfara-
menn að þeir flvtji þessi
hreinlætistæki inn i landið.
Húsfreyja.
BEZT AÐ AUGLÝSAI VÍSl
Magnús Thorlacius
hæstaréttarlögmaður.
Aðalstræti 9. — Sími 1875.
Já, tíl tfc erum
cœt'ókitjahley
i>er megið
treysta því, að
PERLETAND
tannkrem er
með þvi allra
bezta tann-
kremi sem fáan-
legt er. PERLE-
TAND verndar
tennurnar gegn
óhollum sýru-
myndunum og
heldur tönnunum perluhvítum og heilbrigðum. Munið
að PERLETAND tannkrem er nauðsynlegur þáttur í
daglegri snyrtingu. PERLETAND tannkremið er hress-
andi á bragðið.
heildsölubirgðir: i
Im Ðrynjólfsson A Kvaran
:::Ai(ííi) i;
..h,z
.17
.'ÍIÍi’H j