Alþýðublaðið - 15.05.1920, Blaðsíða 4

Alþýðublaðið - 15.05.1920, Blaðsíða 4
ALÞYÐUBLAÐIÐ 4 Xoil kontmgur. Eftir Upton Sinclair. Önnur bók: Prœlar Kola konungs. (Frh.). Hallur var staddur í kofa Jack Davíðs og hlustaði á álit Tom Olsons og Jerry Minetti á málinu. Félagið hafði slumpað á, að tala þeirra, sem grafnir væru, væru að eins fjörutíu, en allir vissu, að þeir voru þrisvar eða fjórum sinn- um fleiri, sem menn söknuðu Félagið hafði númer á hverjum einasta verkamanni, svo þetta voru vísvitandi ósannindi hjá því. En flestir þeirra höfðu slavnesk nöfn og áttu hvorki ættingja né vini. Þetta heyrði alt saman kerfinu til, sagði Jack Davfðs. < Á þennan hátt gat félagið haldið áfram að drepa menn, án þess að eyða fé sínu eða eyðileggja mannorð sitt. Hallur áleit, að það væri ómaks- ins vert, að bera aftur þessar fölsku fregnir og setja það í blöð- in. Þeir, sem krafist höfðu vogar- eftirlitsmanns, voru þegar komriir á svarta listann, svo þeir höfðu engu að tapa. „En hvaða blöð myndu taka það upp?“ sagði Tom Olson. „Eru ekki tvö b!öð í Pedro, sem keppa hvert við annað?" „Jú — annað á Alf Raymond sjáiiur, hitt á Vagleman dómari, sem er lögfræðisráðunautur -Gt F. C Þar mun vafalaust verða tekið vel á móti þér". „Svo eru nú blöðin í Western City. Fréttaritarar þeirra eru hér, og einhverjir þeirra hijóta að vilja taka það“. „Eg efast um, að þú fengir önnur hiöð, en jafnaðarmanna eða verkamannablöðin til þess, að prenta slíkar fregnir", sagði Ol- son. „Nú, jæja, það er nú samt ó- maksins vert", sagði Jack Davíðs, sem fylgdi ákaft verkamannasam- tökum og allri starfsemi þeirra. „Það, sem við þurfum að gera, er að rannsaka nákvæmlegá, hve margir í raun og veru eru niðri í námunni". Þeir tóku þessari uppástungu allir með ákafa. Það var þó að minsta kosti fróun, að taka sér eitthvað fyrir hendur. Þeir sendu Verkmaaijafél. Dagsbrúa heldur fund í G.-T.húsinu Laugardag 15. maí kl. 7V2 síðdegis. — Eiaar Helgasoa garðyrkjufræðingur flytur erindi. — Söngfélagið Bragi syngur nokkur lög. — Félagsmenn ámintir um að fjölmenna. Félagsstjórnin. Noltór dnglegip ðs géta fengið pláss á mk. Sigríði yfir vor- og snmarvertíð. Th. Thorsteinsson. Æí Allir þeir gasnotendur, sem ætla að skifta um bustað, eru beðnir að tilkynna gasstöðinni það strax. é^Qsátöð ÆayFijamFur. eftir þeim: Mary Burke, Rovetta, Klowoski og mörgum öðrum og kl. 11 morgunin eftir hittust þau aftur. Listarnir voru bornir saman og þá sýndi það sig, að ekki færri en eitt hundfað og sjö, fuli- orðnir menn og unglingar voru birgðir niðri í númer eitt. En umræðum um þetta varð snögglega slitið, því Davíð kom með nýjar fregnir. Það var nýaf- staðið uppþot við uppgönguna. Það var verið að koma nýju Ioft- dælunni fyrir, en það gekk svo hægt, að allmargir þóttust vísir um, að ekki ætti að setja hana af stað, heldur ætti að halda nám- unni lokaðri, svo eldurinn breidd- ist ekki út. Austurríkismaðurinn Huszar, sem stóð fyrir hóp af ó- ánægðum og æstum mönnum, hafði farið til hr. Carmichal, námu- eftirlitsmanns ríkisins, til þess að kæra þetta. En fáum augnablikum síðar var hann tekinn fastur og skundað með hann að hliðum héraðsins og honum kastað á dyr. Gjöldum til íélagsins er veitt móttaka á afgr. Alþbl. (í Alþýðu- húsinu við Ingóifstræti). — Fyrri gjalddagi er 14. maí, — Lög fél. eru einnig afhent þar. Gjaldkerinn. Verzlunin „Hlíf* á Hverfisgötu 56 A selur: Hveiti, Haframjöl, Sagögrjón, Bygggrjón, Kartöflu- mjöl, Hænsnabygg, Mais heiian og Baunir. Kæfu, Tó!g, Steikar- feiti og ísl. Margarine. Rúsínur, Sveskjur, Gráfíkjur og Kúrenur. Sæta saft, innlenda og útlenda, Soyju, Matarlit, Fisksósu og Edik. Niðursoðna ávexti, Kjöt, Fiska- bollur, Lax og Síld. Kaffi Export og Sykur. Suðuspíritus og steinolíu o. m. fl. Spyrjið uin verðið! Reynið vörugæðin! Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Ólafur Friðriksson. Prentsmiðjan Gutenberg.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.