Vísir - 22.10.1946, Side 4
Þriðjudaginn 22. október 1946
4
VlSIR
DAGBLAÐ
Otgefandi:
BLAÐAÚTGÁFAN VÍSIR H/F
Ritstjórar: Kristján Guðlaugsson,
Hersteinn Pálsson.
Skrifstofa: Félagsprentsmiðjunni.
Afgreiðsla: Hverfisgötu 12.
Símar 1660 (fimm línur).
Lausasala 50 aurar.
Félagsprentsmiðjan h.f.
Öráðna gátan.
V|ingflokkarnir. láta svo á yfirborðinu, sem
* þeir séu tilleiðanlegir til samvinnu. Fram-
sóknarflokkurinn setti sem skilyrði, að sldp-
uð yrði nefnd fjögra Jiagfræðinga, er gera
skyldi sér grein fyrir liag þjóðarinnar og
leggja tillögur sínar því næst fyrir flokkana
.til athugunar. Þetta er virðingarverð við-
leitni til að láta fræðimennsku fyila upp í
eyður brjóstvitsins.
Hagfræðingar þcir, sem starf þetta hefur
’verið falið, bera allir pólitískan Iit, enda
völdu flokkarnir þá, til starfans, en þá
er ekki ólíklegt að þeir freistist til að
draga taum síns flokks, eða lendi í óraun-
hæfum fræðilegum hringiðum, sem leiða að
engu marki. Starf þeirra er æði víðtækt,
enda hætt við að því verði ekki gerð skil á
laum dögum. Svo kemur væntanlega til
kasta stjórnmálaflokkanna, sem standa og
I)íða átckta í liráskinnaleik stjórnmálanna.
■Meðan þessu fer fram þjáist atvinnulífið af
vatnssýki verðþenslunnar og legst í Þyrni-
rósu svefn. Sá blundur verður máske óvær
í fyrstu, en festi það svefninn vegua full-
.kominnar ytri værðar, er ekki víst hvenær
kóngssonurinn kenmr til að vekja það úr
-dauðadái, eða yfirleitt hvort nokkur slíkur
ofurhugi finnst innan vébanda þingflokk-
anna, .enda engri fegurð eftir að sækja, sem
laðar og seyðir.
Er flokkarnir hafa fengið álit hagfræð-
iuganna í hendur, er ekki ólíklegt, að for-
setinn snúi sér á ný til formanns stærsta
þingflokksins og leiti hófanna um hvort
hann treysti sér'tí! að takast stjórnannynd-
rm á Iiendur, eða vilji benda á annan full-
trúa úr þeim flokki til slíkra aðgerða. Tak-
ist sljórnarmyndun ekki er gengið á röðina',
væntanlega eftir þingfulltrúafjölda flokk-
anna. Takist engum þingflokkanna að ná
])ingmeirihluta til stjórnarmyndunar, getur
komið til gréina að einhver flokkurinu myndi
hreina flokksstjórn, með stuðningi eða hlut-
leysi annarra flokka, en slík stjórn gæti
ensgu máli komið í framkvæmd, enda ólík-
legt, að nokkur flokkur treystist til að taka
á sig óvildir vegna þeirra aðgerða, sem ó-
hjákvæmilegar eru, ef mjaka á af stað vél-
hjólum kvrrstæðs athafnalífs. Alþingi stend-
ur nákvæmlega í sömti sporum og ]>að stóð,
er utanþingsstjórnin var mynduð á sinni tíð,
en aðstaðan er iillii verri.
Sent dæmi um hversu ráðþrota þingflokk-
arnir eru, mætti nefna skrif Þjóðviljans á
.sunnudaginn, er var. Þar er i fullri alvöru
rætt um, að við eigum að semja við helztu
fiskiþjóðir um að fiska ekki fyrir heima-
markaðinn, en láta Islendingum hann eftir.
Kommúnistar telja yfirleitt flesta vegi færa,
en sýnilega eru þeir ráðþrota, en kjóra held-
ur að veifa röngu tré en engu. Þeir eru sjálf-
ir' ekki svo grunnhygnir, að þeir skilji ekki,
■að slíkir samnmgar geta ekki byggst á raun-
hæfum grundvelli, þar eð allar þjóðir auka
nú fiskiskipaflota sinn, sem óðast, en Rússar
cinir mun hafa margfaldað flotann eftir
ófriðarlok. Óvissan er nú svo mikil að jafn-
vel þeir, sem grípa hverja flugu á lofti, er
íæri býðst, eru sjáanlega haldnir af fullkomnu
„delirium".
Aðalfundur
S. í. K.
Aðalfundur Sambands ísl.
karlakóra var haldin að Fé-
lagsheimili verzlunarmanna,
föstudaginn 20. september.
Formaður samk.andsins, A-
gúst Bjamason, flutti skýrslu
um liðið starfsár. Hafði fram-
kvæmdaráð einkum látið tvö
mál til sín taka, söngför Ut-
anfararkórs SlK og ráðningu
söngkennara. Hafði fram-
kvæmdaráð tekizt að ráða
sænskan söngkennara, herra
Gösta Myrgart tónlistarstjóra
i Eslöv og byrjaði hann söng-
kennslu á vegum sambands-
ins í byrjun september.
Aýfiangar —
Framh. af 2. síðu.
enda skiljanlegí, þvi aó’ i.eeði
er „musikin“ svo hi'ífandi og
dansarnir sjálfir fjöriegir og
skcmmtilegþ'. Má þar auð-
vitað fyrst og fremst nefna
„Rumbha“, svo og „Paso-
doviblé” og apðvitað „La
Samba“. N’erð eg að segja
þér frá dálitlu sniðugu í því
sambandi, en það er, að „La
Samba“, sem eg sýndi hér
og byrjaði að kenna hér fyr-
ir tveimur árum (haustið
1944) cr núna með þvi
nýjasta á hinum Norður-
lönduniun, en í Knglandi var
þegar farið að dansa „La
Samba“ strax í hittcðfyrra.
Svo má eg ekki gleyma, að
segja þér frá nýjasta dansin-
um, sem við fengum frá
Englandi, en það er „The
Cruising Waltz“ cða „kossa-
valsinn", sem hann er stund-
um líka kallaður, og ætla eg
ekki að fara nánar út í
hvernig á því stendur, að
sinni, en láta mér nægja að
endurtaka orð Josephine
Bradley, cn hún sagði: „Við
hofum ekki síðan á dögum
„Boomps-a-daisy“ haft dans,
sem hefir verið jafn vel fall-
inn til að koma á góðri
„stemningu“, jafnt í sam-
kvæmum, sem á dansleikj-
um“.
— Og alla þessa nýju
dansa ætlar þú svo að kenra
í vetur?
— Já, fullorðnum og
unglingum, en börnum kenni
eg þar að auki eldri dansana,
og hina sérstöku barnadansa.
Verða æfingar harna og
unglinga í Goodtemplara-
húsinu, en fullorðinna á
Þórs-café.
— Já, — þú hefir haft
mikið gagn af ferðinni.
— Mjög mikið. Það er
alíaft skemmtilegt að ferð-
ast og hressandi að sjá og
læra nýtt, en það bezta við
það að ferðast er það, að
geta hlakkað til að koma
heima aftur, því Island er
áreiðanlega dásamlegasta
land heimsins, landið, sem
við elskum o’g þráum þegar
við erurn að heiman, — og
bezt af öllu, —- landið okkar.
og væntir sambandið mikils
af starfi hans.
1 framkvæmdaráð voru
kosnir, forrnaður Ágúst
Bjarnas. og ritari sr. -Garðar
Þorsteinsson, báðir endur-
kosnir. Gjaldkeri var kosinn
Óskar §igurgeirsson, en frá-
farandi gjaldkeri, Árni Bene-
diksson baðst undan endur-
kosningu. Meðstjórnendur
voru kosnir þeir Guðmundur
Gissurarson, Hafnarfirði, sr.
Páll Sigurðsson, Bolungar-
vík, Þqrmpður Evjólfsson,
Siglufiroi og Jón Vigfússon.
Seyðisfirði.
Söngmálaráð skipa söng-
stjórarnir Jón Halldórsson,
formaður, Ingimundur Árna-
son og Sigurður Þórðarson.
Aðalfundurinn þakkaði
forgöngumönnum söngfarar
Utanfararkórs SlK dugnað
við undirbúning og fram-
kyæmd söngfararinnar, sem
i undurinn taldi að orðið hefði
sambandinu til mikils sóma.
Fjársöfnun
handa
ungverskum
börnum.
Frú Irma Weile-Barkany,
söngkona, er nýlega komin
til landsins, og mun hún
syngja hér í útvarpið.
Auk þess mun frúin halda
Iiér I)azar til ágóða fyrir bág-
stödd börn i Ungverjalandi,
en hún er ungversk i móður-
ætt. A bazar þessum ver'ða
ýmsir listmunir frá Ung-
verjalandi. Frú Weile-Bar-
kany hefir verið í sambandi
við bjálparstofnunina „Red
Barnet“ i Kaupmannahöfn.
' Síðasíliðinn laugardag
hittu fréttamenn bla'ða og út-
varps frúna að máli að Hótel
Borg. Gerði hún þá grein
fyrir ýmsum fyrirællunum
sínum. Ilún sagði, að mikil
neyð rikli í Ungverjalandi, og
að sérstaklega væri skortur
á ullarvörum og lýsi handa
börnum. Iíin mikla neyð
barnanna í Budapest hafði
svo djúp áhrif á frúna, að
Iiún befir ákveðið að gcra
það, sem i hennar valdi stend-
ur, til þess að draga úr neyð-
inni þar. Mun allur ágóðinn
af bazarnum, sem f rúin ætl-
ar að halda hér, verða notað-
ur í þessum tilgangi.
Bazar þessi verður hald-
inn í næsta mánuði í Odd-
fellowhúsinu. Þar verða á
boðstólum ýmsir ágætir ung-
verskir listmunir, svo sem
áður segir, og verða þeir
seldir hæstbjóðendum. Enn-
fremur verða þar ýmsir mun-
ir, sem flutlir verða loftleið-
is frá Ungverjalandi.
Frú Weile-Barkany kom
til íslands í ágústmánuði síð-
astliðnum frá Kaupmanna-
höfn, þar sem hún er búsett.
Frúin hefir í hyggju að flytja
erindi i stuttbylgjuútvarp lil
útlanda um íslenzk málefni.
Bréí að vestan.
I>að er frá Vestfjörðum, bréfið, sem Bergmál
birtir hér kafla úr, og hann fjallar um veðrið:
„....Það er svo sem oft talað uni það, hvað
veðurguðirnir hafi verið okkur góðir að und-
anförnu. Eg get sagt þér eitt atriði því til sönn-
unar og eg get fengið ntarga til að sanna frá-
sögn rnína. Núna í vikunni, (það er í vikunni sent
leið), fóru tvær fjölskyldur út fyrir bæinn á
berjamó. Já, á berjamó. Það er víst áreiðan-
lega óvenjulegt að tína ber um miðjan október.
Falíeg og góð ber.
Eg var boðinn heint til annarrar fjölskyld-
unnar, þegar hún kom aftur úr leiðangrinum.
Eg vissi ekki, að fólkið hefði farið, svo að þú
getur bara gert þér í hugarlund, hversu ntjög
ntér brá I brún, þegar húsfreyjan segir við ntig
og brosir um leið: „Það ntá víst ekki bjóða þér
upp á ber.“ Eg varð víst eitthvað kindarlegur
á svipinn, því að húsfreyjan flýtti sér* að bæta
því við, að hún yæri ekki að gcra að gamni sínu,
hún ætti dálítið af berjunt, tíndum þá um dag-
inn.
Börnin berjablá.
Þá skildi eg fyrst, hvers vegna börnin á Iteint-
ilinu voru svona blá um varirnar. Mér hafði alls
ekki dotíið í hug að það væri af því, að þau
hefðu vcrið að tína upp í sig. Svo fékk eg.
bcrjaskammtinn minn og hann smakkaðist al-
veg prýðilega, jafnvel enn betur en ella vegna
þess, að eg hafði alls ekki átt von á því að fá
ber að borða á þessum tíma árs. Eg held bara
að eg reyni að stelast til berja einhvern dag-
inn....“
Einiíuinaiíð.
Það eru víst flestir á því, að hér hafi verið-
einniuuatíð síðustu mánuðina, raunar í lieilt
ár, ef allt er meðtaliö. Eitt kuldakast hefir
kontið í haust og aðeins staðið stutta stund og
á dögunum voru meira að segja svo mikil hlý-
indi, að þeirra hefði fremur verið að vænta
um sumar en þegar tæpur hálfur mánuður er
til vetrar. En ekki er öll nótt úíi enn, veturinn
1946—47 er ekki byrjaður og bví siður á enda.
Það getur enn kólnað og hvesst.
Hvað á að bíða lengi?
„Gramur" ritar eftirfarandi bréf: „Það hefir
nú loksins komið fram opinberlega, í hverju
ófremdarástandi strætisvagnar bæjarins eru —
bæði af umræðum á fundi bæjarstjórnar og
fundarsamþykkt strætisvagnastjóranna. Það má
því vera ljóst, að sumir þeirrra munu heltast úr
lestinni bráðlega. En hvaö á að bíða lengi með
að fara að einu ráði, sem komið hefir fram til
að bæta úr þessu um stundarspkir — að fú
bíla lánaða?
í
Mánuður Iiðinn.
Það er víst mánuður liðinn síðan Sigurjórt
Danívalsson gerði það að uppástungu sinni (hér
í Bergmáli), að leigðir væru langferðabílar, seni
einungis eru notaðir að sumarlagi og fara síðan
í vetrarhíði, til þess að halda uppi ferðum á
einhverjum leiða þeirra, sem strætisvagnai*
ganga nú á, til þess að hægt væri að taka vagn-
ana úr umferð hvern af öðrum og „yfirhala"
þá rækilega, því að til þess er annars aldrei tími.
Einn nýr vagn.
Síðan hefir sést einn nýr vagn í ferðum fyr-
ir strætisvagnana. Það er allt og sumt og það
hefir hvergi komið fram, að reynt hafi verið
að fara þá leið, sem Sigurjón Danívalsson
benti á. Meðan ekkert er reynt í því efni, cr
heldur ekki von að vagnarnir fari aö aka
sjálfkrafa fyrir bæjarbúa. Og hafi þessi leið
ekki verið reynd, þá.verður það að teljast vita-
\ vert og hið versta sleifarlag.“