Vísir - 22.05.1947, Qupperneq 1
37. ár
Fimmtudagiim 22. mai 1947
112 tbl*
Þetta er drengnr, Jimmy Garvin, 13 ára að aldri, sem sést
á þessari mynd. Hann er líkastur telpu, en hann hefir aldrei
verið kiipptur síðan hann var tveggja ára gamall.
Dýpkunarskipið Grettir fér
frá Englandi 20. þ.m.
Það er eimknúið og mjög
fullkomið í alla staði.
sýiiing, sem
Hún verður n mörgum skál
um, sumum griðar stórum,
Viðtal viS Kristjón Kristjónsson framkvæmdarstjóra.
mesta
Þegar koniið er út úr garð-
| fyrradag lagSi dýpkun-
arskipið Grettir af stað
hingað til lands frá Eng-
landi, en vitamálastjórnin
keypti skipið þar í landi.
Verður það notað við hafn-
ardýpkun við Norðurland
í sumar.
Dýpkunarskip þettá er 125
fet að lengd og 28 fet að
breidd. Það er að mestu af
sömu gerð og grafan hér í
höfninni, að öðru leyti en þvi,
að það er knúið.áfram með
eimvél en gröfu háfnariunar
verður að draga hvert sem
liún þarf að flytjast.
Eins og fyrr greinir lagði
Grettir af stað frá Englandi i
fyrradag. Hann gengur 7—8
sjómílur á klukkustund og
verður ])ví kominn hingað til
lands innan viku. Tveir
prammar hafa verið keyptir
í sambandi við dýplcunar-
slcipið og verða þeir dregnir
liingað af enskum dráttar-
bátum, en hér við land mun
dráttarbátur, sem keyptur
ltefir verið af setuliðinu,
draga prammana.
Mjög mikil þörf liefir ver-
ið fyrir slílct dýi)kunarskip
hér á landi, þar sem aðeins
eilt skip hefir verið til Iiér á
landi, en það er grafa hafn-
arinnar. Verkefnin fyrir
skipið eru næg. Það mun
verða við hafnardýpkun fyr-
ir Norðurlandi í sumar og
síðar þar sem þörfin er mest
aðkallandi.
íbúðir eru fyrir 12 manns
i skipinu, fjögur einsmanns
Iierbergi fyrir yfirmenn, en
hásetaklefi fyrir álta. Skip-
stjóx-i á Gi'etti er Girnnar
Gislason.
'\Jerzlun.in L apríí:
Mest flutt út
til Bretlands.
I apríl-mánuði síðastliðn
um var ísvarinn fiskur seldur
til Bretlands fyrir 6,3 millj.
kr.
Auk þess var flutt út til
Færeyja fyrir 3,1 millj. kr.,
Frakldands fyrir 1,1 millj.,
Pöllands fyrir 2,2 millj.
Tékkóslóvakíu fyrir 1 millj.
og Bandaríkjanna fyrir 0,9
millj. kr.
AIIs voru fluttar út afurðir
fyrir 15,8 millj. kr. — Til
eftirgreindra landa var flutt
út fyrir uþphæðir, sem voru
undir einni millj. kr.: Dan-
merkur, Sviþjóðar, Noregs,
Belgíu, Palestínu, Jamaica og
Venezuela. — (Frá Hagstofu
íslands).
Landbúnaðarsýningin, sem
hefst hér í bæ 26. júní, verður
stórmerkileg og með miklum
myndarbrag.
Blaðið átti nýlega tal við
Kristjón Kristjónsson fram-
lcvæmdastj óra sýriingarinna r
og sagðist honum svo frá:
Til sýningarinnar er stofn-
að fyrir forgöngri Búnaðarfé-
lags íslands, en alls standa að
henni 24 stofnanir, sem á
einn eða annan hátt starfa í
þágu landbúnaðarins.
Sýningarstaðurinn er syðst
við Njarðargölu, rétl lijá
skcmmtistaðnum Tilvoli. —
Fær sýningin þar til urnráða
flugvclaskemmu, sem er 2700
fermetrar að stærð, og land-
rými i kring eftir þörfum.
. (
Aðalskálinn.
Þegar gengið er inn um að-
aldyr skemmunnar, sem eru
á gaflinum, sem að Njarðar-
götu snýr, blasir við stórt Is-,
landlíkan, upphleypt, og með
eðlilegum litum. I baksýn
sést íslenzkt landslág með
buretabæ og grasbletti. Með-
fram fyrstu gangbrautinni
er dagstofa, eldhús og borð-
krókur, búinn nýtizku hús-
gögnum frá Handíðaskólan-
um. Næst borðkróknum
verður líkan, sem táknar
fyrirmyndar sveitabæ; þá er
skógrækt og gamaldags bað-
stofa, sem Ragnar Ásgeirs-
son sér um. Þá taka við sýnis-
horn veggja, en síðan lieim-
ilisiðnaður, sem sýnir muni
úr öllum landslilUtuöi.
Garðyrkju-
sýning.
Fram með endilöngum
gafii, sem er gegnt aðaldyr-
um, er garðyrkj usýning og
sjá ýmsar blómaverzlanir um
liana. Verða þar til sýnis alls-
konar blóm og ávextir, niður-
soðnar grænmetisvörur og ef
lil vill matreiddir grænmet-
isréttir. Jafnvel er i ráði að
koma þarna fyrir smátjörn
og fosslíkani á gáflinum.
Hinum megin við ganginn,
sem liggur fram með liliðar-
veggnum verða ýmsar smá-
sýningar fyrirtækja og stofn-
ana.
yrkjudeildinni er öðru megin
skógræktar- og sandgræðslu-
sýning, en hins vegar mjólk-
urðiðnaðardeild. N'erða þar
gömul 'tæki til sýnis frá dög-
um heimavinnuslunnar auk
nýtízku mjólkurbús með
Frh. 6 4. siðu.
BlffS ' 11 i/
„Tyr vio sjo-
mælingax á
Faxaflóa.
í byrjun júní n. k. mun
sjómælingaskipið „Týr“
hefja sjómælingar hér á
Faxaflóa og við Suðurland.
Eins og kunnugt er var
„Týr“ keyptur af brezku
herstjórninni í fyrra og hon-
um breytt þannig, að liægt
var að nota hann lil sjómæl-
inga. Var þeim breytingum
lokið nokkru eftir að skipið
liafði verið afhent og þá var
það fyrst við sjómælingar á
Húnaflóa.
Síðar í sumar mun skipið
fara norður fyrir land og
vera við sjómælingar undan
Ströndum. Skipstjóri á
„Tý“ er Pétur Sigurðsson,
sjóliðsforingi.
Síldar- og
fisldmjölsverk-
smiðjan fær lóð
t Örfirisey.
Á fundi bæjarstjórnar 20.
maí s. 1. var tekið fýrir erindi
frá eigendum hraðfrystihús-
anna í Reykjavik og fleirum,
er frestað var á fundi liafnar-
stjórnar liinn 16. apríl s. 1.
og samþykkt, „að gefa um-
sækjendum lcost á löð í krik-
anum innan Hafnar við Ör-
firisey, enda verði tryggilega
frá þvi gengið, að lykt berist
ekki til bæjarins.“
Blaðamannafél. íslands
heldur fund á morgun, föstud.,
kl. 3, að Hótel Borg. Félagar eru
hvattir til þess að mæta á fund-
iuum. t,
verið haldin.
Axel Suðmunds-
son tekur sæfi
á Alþingi.
Enn einn varamaður tólc
sæli á Alþingi í dag, Axel
Guðmundsson, sem kemur í
stað Hallgríms Benédikts-
sonar.
Hallgrímur Benediktssoa
fer til útlanda í dag, en fyrstt
varamaður er Björn Ólafs-
son, fyrrum ráðlierra. Hann_
er hinsvegar svo nýkominn.
heim úr langri utanferð —
kom til landsins í gærkveldi
— að hann óskar ekki að
taka sæti á þingi. Mun ann-
ar varamaður því taka sætl
Hallgríms, en liann er Axel
Guðmundsson, skrifstofu-
maður.
Eignarkönnunin
afgreidd frá ISId.
Frumvarp ríkisstjórnar-
innar um eignaköiuiun er mí
komið í gegnum neðri deild.
Fjárhagsnefnd klofnaði i
málinu og skilaði tveimur á-
lilum. Vildi meirihlutinn, að
frumvárpið yrði samþykkt,
en Áki Jakobsson að því yrðl
vísað frá með rökstuddrl
dagskrá. Var liún rædd i
gær og felld með 21 atkv.
gegn 7. Var frv. sent Efrí
deild í nótt.
REVYAN;
„Vertu bara
kátur."
Annað kvöld verður revý-
an, „Vertu bara kátur“.
frumsýnd í Sjálfstæðishús-
inu.
Þarna er Fjalakötlurinn á
ferðinni og er ekki að efa, aS
revyan sé skemmtileg. Helztu
Ieikarar eru: Erna Sigurleifs-
dóttir, Aurora Halldórsdóttir,
Fmilia Jónasdóttir og Nína
Sveinsdóttir, Haraldur A.
Sigurðsson, Lárus Ingólfsson,
Jón Aðils, Baldur Georgsson
og Konni kunningi lians. —•
Aðrir karlnienn eru Robert
Arnfinnsson, Guðjón R. Ein-
arsson, Finnur Sigurjónssou
og Halldór Guðjónsson.
Leikstjóri er Indriði Waage.
Hljónisveit Aage Lorange og
gítarhljómsveit annasl allau
■undirleik.