Vísir - 18.07.1947, Blaðsíða 1

Vísir - 18.07.1947, Blaðsíða 1
EEdur i líaldbak. Frá fréttaritara Vísis, Akureyrí, í morgun. Um sjöleytiö í fyrrakvöld kviknaði í nýsköpunartogar- anum Kaldbak, þar sem hann lá við bryggju á Akureyri. Eldurinn kom upp í klefa þeim, sem miðstöðin, sem kyndir hásetaklefa, er i. Eld- urinn var að mestu leyti slökktur áður en slökkviliðið kom á vettvang. Skemmdir urðu ekki miklar og tefja ekki útgerð skipsins svo telj- andi sé. -L- Karl. Verkamaður slasast. Það slys vildi til í gær kl. 2,45 að maður féll niður á milli skips og bryggju hér í höfninni. Maður þessi, sem lieitir Guðmundur Kristjánsson, Bóklilöðustig 6 var að vinna við uppskipun á timbri úr ■Bauta, en varð fótaskortur og féll niður með skipslilið- inni. Mönnum, sem voru þarna nærstaddir og sáu þeg- ar Guðmundur féll, tókst fljótlega að ná honum úr sjónum. Um sama leyti kom sjúkrabifreið og flutti hún Guðmund í Landsspítalann. Vrið rannsókn kom í ljós, að liann hafði hlotið áverka á höfði. Guðmundi liður nú vel eftir atvikum. Mynd þessi er tekin inni í stærstu flugvél heims, en teiknarinn og smiðurinn, milljóna- mæringurmn Howard Hughes, er fremst á myndinni, Flugvél þessi verður senn full- gerð. ! i Tékkar kaupa 600 smál. af freðfiski0 Sölumiðstöð hraðfrystihús- anna er þessa dagana að und- irbúa sendingu 200 smálesta af hraðfrystum fiski til Tékkóslóvakíu. 1 vor tókust samningar milli f'ulltrúa S. H. og tékk- neskra aðila um sölu á 600 smál. af hraðfrystum fiski af þessa árs framleiðslu, og er það síðasta sendingin, sem nú er verið að afskipa. — Tékk- urn þykir islenzki- hraðfrysti fiskurinn lostæti og er all- inikil eftirsþurn eftir honum i Tékkóslóvakíu. Lítið sólskin • r % jum. Fjórðungi færri sólskinsstundir og þriðjungi meira regn en í fyrra. Júnímánuður í ár var mjög sólarlítill, og voru sólskinsstundir um það bil íjórðungi færri, en bæði í fyrra og hitt eð fyrra. Alls voru sólskinsstund- irnar í júní í ár 149 að tölu, i fyrra voru þær 193 og 192 'árið þar áður. Júnimánuður í ár var nokkuru heitari en í fyrra og munaði á meðalhita um rúmlega eina gráðu. í júní s.l. var meðalhitinn 9.9 stig, en ekki nema 8.7 í fyrra. Ár- ið 1945 var liitinn hinsvegar nákvæmlega sá sami og í ár 9.9 stig. Úrkoman var mjög áþekk i júní þ. á. og júnímánuði 1945, en hinsvegar röskum þriðjungi meiri en í fyrra. 1 júní þ. á. var úrkoman 33.6 mm„ í fyrra 21.6 mm. og í hitteðfyrra 36.4 mm. Um fyrri helgi var óvenju legl hvassviðri hér um Suð- vesturland, að sumarlagi til að vera. Komst stormurinn iagsins hefst 19. sept. Sýningunni verður skipt nið- ur í marga flokka. Ems og frá hefir verið skýrt áður, efnir Ferða- félag fslands til jjósmynda- sýnmgar fyrir áhugamenn, dagana 19.—30. sept í haust, og er öllum íslenzk- áhugaljósmyndurum heimil þátttaka. Til sýningarinnar er efnt i tilefni af 20 ára afmæli Ferðafélagsins, sem er í ár, en á tíu ára afmælinu var einnig haldin sýning á mynd- um áhugaljósmyndara. Var sú sýning haldin í Sundhöll- inni, en sýningin í liaust verður haldin í Listamanna- skálanum. Sýningunni verður skipt niður i flokka. í A-flokki verða landlagsmyndir, ferða- myndir og náttúrulýsingar, þ. á. m. blómamyndir, svo sem atvinnulíf á sjó og landi, Lítil síld- veiði. Mjög lítið af síld barst til síldarverksmiðjanna norð- anlands siðastliðinn sólar- hring. Veiðiveður er ágætt, sól- skin og NA gola. Ríkisverk- smiðjurnar á Siglufirði fengu um 5000 mál í nótt frá 15 skipum. Tvö skip lönd- uðu á Hjalteyri í nótt, Súlan 412 málum og Sædís 394. Síldveiðiflotinn er nú 'dreifður um allt veiðisvæð- ið og hafa nokkur skip hald- ið austur á hóginn síðustu daga. IWusfangvélar til Tyrkja. ( Amerískar Mustangflug- á tíma upp i 10 vindstig að j vétar fara nú daglega suður mprgni mánudagsins 7. júlí,: eftir ítalíu, segir í fregnum Læði hér i Reykjavík og eins á Þingvöllum. En þar og yfir- leitt við Faxaflóa mun hafa orðið hvassast. Kvaðst fólk- ið á Þingvöllum ekki muna annað eins livassviðri þar að sumarlagi undangengin tíu ár. frá Róm. Fljúga um tíu flugvélar af þessari gerð þarna um á degi hverjum og er talið, að þær eigi að fara lil Tyrklands, en vélarnar eru af birgðum, sem skildar vöru eftir í Frakk- Jandi. atburðamyndir, íþróttir byggingar o. s. frv. í þessum flokki verða ennfremur sam- stillingar og andlitsmyndir. I C-flokki verður héraðs- eða kaupstaðarlýsing. Sá flokkur er þannig fyrirhugaður að hver þátttakandi sendi inn 12 smámvndir úr einni sýslu eða kaupstað, er sýnir fyrst óg fremst sérkenni umrædds svæðis. Skulu allar mvndirn- ar vera límdar á sania spjald- ið. Hver sýnandi getur aðeins sent einn flokk frá liverju svæði. Lágmarks- og hánfarks- stærð hefir verið ákveðin á myndunum og mega jrær vera minnst 16 cm. á stýtzta veg og mest 60 cm. á lengsta veg. Allar myndir skulu vera límdar á kartpn. Sérstök dómnefnd dæmir um myndirnar og verða verðlaun veitt a. m. k. öllum aðalflokkunum. Nánari upplýsingar um þátttökuskilvrði og annað fyrirkomulag sýningarinnar verða gefnar á skrifstofu Ferðaffélagsins í Túngötu 5. Þess má geta, að sýningar- myndir skulu hafa borizt lil Ferðafélagsins fyrir 15. sept. n. k. Eldsvoði á Kjalarnesi. Siðarí hluta dags í gær kom upp eldur i Fitjakoti á Kjalarnesi og má húsið. heita gereyðilagt eftir. Þarna bjó Ingólfur Gísla- son stórkaupmaður ásamt konu sinni og sex bömuiii. Voru þau hjónin eklci lieinva er eldurinn kom upp, en það mun hafa verið i svefnher- bergi hjónanna. Var sonur þeirra inni í því og kallaði hann á lijálp, er eldurinn kviknaði. Auk drengsins voru í húsinn tvær systur hans, 19 og 16 ára, auk að- stoðarstúlkir og barns henn- ar. Maður frá Varmadal var þar og stáddnr. Fólkið reyndi að ráða niö'- urlögum eldsins, en inaðiu> inn hljóp niður að Varrna- dal til að ná í hjálp. Rcy.nd- :st ekki ininf að liefta út* breiðslu eldsins og þótt slökkviliðið kæmi á vettvang héðan var aðstaða svo óhæg við öflun vatns að húsið brann að _ heita mátti til kaldra kola. Þrjátíu og fiium böm brezkra lækna, sem fórust á stríðsárunum, eru i þriggja mánaða ferðalagi um Sviss. jBreiar ítí amerésk kaL Washington (UP). Bretar fá um 500 smál. kola frá Randaríkjunum á þessum ársfjórðungi. Þá er einnig talið, að Bret- ar leiti fyrir sér uni vinnu- vélar lil að vinna kol í nám- um. Framhoð er lítið af slík- um vélum nú, en eftirspurn mikil, svo að fá verður sér- stakt leyfi stjórnarinnar, ef af kaupum á að verða slrax*

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.