Vísir - 22.12.1947, Page 5

Vísir - 22.12.1947, Page 5
Máfíudaginn 22. desember 1947 V 1 S I R 356. dagur ársins. ^ Næturlæknir. j Læknavarðstofan, sími 5030. Næturvörður er í Ingólfs Apóteki, sími 1330. Næturakstur annast B. S. R., simi 1720. Vetrarsólhvörf eru í dag, 22. desember, og skemmstur sólargangur. Veðrið. Austanátt, allhvasst undan Eyjafjöilum, snjókoma eða slydda fyrst en gengur í sunnan stinningskalda og rigningu þeg- ar líður á daginn. Munið eftir Mæðrastyrksnefndinni fyrir jólin! Skrifstofan er í Þing- holtsstræti 18, sími 4349. Eldsvoði. Á laugardag kviknaði í bragga á Skólavörðuholti. Fólkið, sem bjó í bragganum var nýflutt úr honum þegar eldurinn kom upp. Slökkviliðinu tókst fijótlega að I ráða niðurlögum eldsins. — í gær kom upp eldur í húsinu nr. 58 við Sörlaskjól. Var hann fljótlega slökktur, engar skemmdir urðu á Iiúsinu. Reykvíkingar. Látið ekki undir höfuð Ieggjast að minnast Vetrarhjálparinnar fyrir jólin. Útvarpið í kvöid. 18.25 Veðurfregnir. 19.25 Þing- fréttir. 20.30 Jólakveðjur — Tón- leikar. 21.55 Fréttir. — (22.05 Endurvarp á Grænlandskveðjum Dana). Að gefnu tilefni. Það vottast hérmeð * að málm- Icikföng jiau, sem eg hefi látið rannsaka og tiibúin eru lijá Halldóri Sigurbjörnssyni, Iiafa reynzt algjörlega laus við blý og! ^ tel eg þau þvi alveg liættulaus J fyrir börn. Magnús Pétursson, liéraðslæknir (sign.). — Ofanrit- að bréf iiefir Halldór Sigurbjörns- son kaupmaður fengið frá héraðs- lækni vegna þess umtals, er leik- föng úr blýi hafa vakið í bænum. Ýmsir þeirra manna, er framleitt hafa tindáta fyrir börn hafa séð um að blý væri ekki í framleiðslu þeirra og sjá má á auglýsingum frá þeim undanfarna daga. Fólk skal þcss vegna varað við að kaupa leikföng þessi nema stimp- ill eða yfirlýsing fylgi með, að þau séu framleidd úr hreinum málmi. Jóiablað Fálkans 1947 er komið út. Blaðið er 52 siður að stærð og prýtt mörgum mynd- um. Efni þess er m. a. þetta: Ljósið skín í myrkrinu, jólahug- leifing eftir sira Garðar Svavars- son, jólasaga sem heitir Miklulas, grein um Eiðsvelli eftir Skúla Skúlason, smásaga eftir Hjalmar Haug, sem heitir Draumur Regin- ers læknis, Gleðileg jól eftir Dag Djuve, Síðasta laufið, smásaga eftir O. Henry, grein, sem ber nafnið Landið helga, land óhelg- innar, grein um krýningarkirkj- una í Westminster, Fyrstu jólin i liöfuðstaðnum, saga eftir Guð- laugu Benediktsdóttur, Sælustað- ur að fjallabaki eftir Skúla Skúla- son, og Júlidagar á fjöllum eftir Þóri Friðgeirsson frá Húsavík. Þá er ennfremur í ritinu Jólablað barnanna, myndaskrítlur, kross- gáta o. fl. Peningagjafir til Vetrarhjálpar- innar: Ilavakl Faaberg 500 kr. Starfsfólk hjá Víkiingsprenti 330 kr. K. R. 100 kr. Starfsfólk Kassa- i gerðarinnar 800 kr. H. Ó. B. 500 kr. P. E. 30 kr. Lillian Elisson 50 kr. Pétur Sigurðsson 100 kr. Fundið fé 100 kr. Guðmundur 100 kr. N. N. 100 kr. Starfsfólk lijá Sjúkrasamlagi Rvikur 185 kr. Listi nr. 59 110 kr. Starfsfóllc i Timburverzl. Árna Jónssónar 140 kr. Timburverzl. Völundur li.f. 500 kr. S. V. Þ. 100 kr. Ó. M. 300 kr. N. N. 100 kr. J. G. 100 kr. Guð- björg Narfadóttir 50 kr. Skúli G. Bjarnason 20 kr. Veik stúlka 200 kr. Starfsfólk bjá Veiðarfærav. Geysir 120 kr. T. Á. 1Q00 kr. N. N. 50 kr. M. J. 100 kr. N. N. 20 kr. Starfsfólk hjá G. Helgason & Mel- sted 200 kr. Skátasöfnun i Aust- urbæ, kr. 27,493,97. — Kærar þakkirr — F. li. Vetrarhjálpar- innar, Stefán A. Pálsson. Skrifstofa Vetrarhjálparinnar er í Bankastræti 7, simi 2488. Opin frá kl. 10—-12 og 2—6. Þar er tekið á móti peningagjöfum og öðrum gjöfum til starfsemi henn- ar. Styrkið og styðjið Vetrar- lijálpina. foferk bók fyrir drengi. DRENGURINN FRÁ GALÍLEU, eftir A. F. Johnston. Síra Erlendur Sigmundsson þýddi. — 234 bls. — Bókagerðin Lilja. Mikið hefir komið út af góðum unglihgabókum upp á síðkastið. Meðal þeirra er at- hyglisverð bók, sem lætur þó minna yfir sér en rnargar aðrar. Það er Drengurinn frá Galíleu. Hún er skrifuð af ameriskri skáldkonu og er um ungan, fatlaðan dreng i Gyðingalandþ á dögum Krists. Sagan er óvenju vel skrifuð og skemmtileg með afbrigð- um, enda eru sögur um slíkt efni hvarvetná meðal eftir- sóttasta lestararefnis. Bók þessi hefir verið þýdd á fjölda tungumál og hefir allsstaðar vakið mikla at- hygli og Iilotið einróma lof. Bókaútgáfa Páima H. Jónssonar á Akureyri hefir síðustu dagana sent á m'ark- aðinn skemmtilega bók sem iíkleg er til þess að ná hylli ungu kynslóðarinnar og annarra sem gaman hafa af útþrá og ævintýrum. Bók þessi heitir ,.Ævin- lýrabrúðurin“ og segir frá ævintýrúm og æviferli ungra iijóna, sem l'erðast meðal mannætna og villidýra á Suðurhafseyjum og Afríku. Þau ferðast í fvrsta lagi til þess að taka ljósmyndir og hlutu fyrir það heimsfrægð. í öðru lagi voru ferðir þeirra leit að æVintýrum, en á þeim virtist enginn skortur vera. í formála að bókinni segir m. a.: „Martin, þ. e. önnur söguhetjan, hinn frægi ljós- myndari) var borinn til æv- intýra með bruna ferðaþráar- innar í blóði, og þegar Osa (kona hans) giftist honum, I gerði hún forlög hans að sín- um: Sifelld ferðalög, sífellt nýtt og nýtt að sjá og kanna. Stundum var lieimilið skonn- orta í Suðurhafi, stundum húsþátúr á fljótum Borneosj stundum tjald í óbyggðum Afríku, stundum voru þau í myrkviðum Kongólanda, stundum’ brugðu þau sér til Parísar, stundum dvöldu þau í íbúð við Fifth Avenue — en ætíð var dvalarstaðurinn til bráðábirgða.“ I bókinni er allmargt mynda, einkum af villidýrum og villimönnum, en fyrir þær varð Martin Johnson heims- frægur. Ævintýrabrúðurin er hátt á 4. hundrað bls. að stærð, í stóru broti og prentuð á góð- an pappír. Wý úfsaumsbók í fyrra kom út ný útsaums- bók, með útsaumsteikningum eftir Arndísi Björnsdóttur. Mun bók þessi hafa notið verðskuldaðra vinsælda kvenna og nú hefir verið gef- in út önnur slik bók. Þarf ekki að efa, að islenzkar kon- ur-á öllum aldri, sem hann- yrðum unna, munu fagna þessari nýju bók og seljast þegar við að sauma eftir henni. Teikningarnár eru eft- ir ungfrú Arndísi og bókin er prentuð í Prentverki' Odds Björnssonar. A KV0LDBOBÐIÐ: Kaviai. Gátfaibitar. Marta. læfa, Sdtweizei- esfar, 45% esfnr, Kex, larðfister. VERZLUN Einnig' fást sítrónur. 8ÍMS 4205 i§ og gföri lóiainnkaupin sem fyrst Gr. bamir, Gikæfiir, BL Grænmefi. Brekkn- bamir, Splmaf, Svepplr. TakmarkaSar birgSir. Fickles, Fkcadilly, GÉrkasalat, lanðréfnr, Capers, IF-sésa, Worchesfersbiresésa. Témat Oilllsésa, Marmife, BevriL Sandwich Spreac Salaf Gream. Kom JólaepEin eru komin. Það er sama tegund í ölluni verzlunum.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.