Vísir - 22.12.1947, Side 6

Vísir - 22.12.1947, Side 6
6 VISIR Mánudágírin 22. desember 1947 D A G B L A Ð títgefandi: BLAÐALTTG.4Í\4N VlSIR II/F. Ritstjórar: Kristján Guðlaugsson, Hersteinn Pálsson. Skrifstofa: Félagsprentsmiðjunni. Afgieiðsla: Hverfisgötu 12. Símar 16C0 (fimm línur). Lausasala 50 aurar. Félagsprentsmiðjan h.f. Hvar er þfóðin á vegi stödd. H|ú er senn komið að áramótum, þegar menn líta venju- lega yfir farinn veg til að bjtggja að, hvernig þeim hefir gengið starfið, lifsbaráttan á árinu, sem er að líða og livernig lvorfur kunni að vera á vaxandi gengi á kom- andi ári. Það er hollur siður að mæna ekki einungis fram á vegínn heldur staldra við endrurA og sinnum lil þess að svipast um og aðgæta, hvort ekki megi læra eitthvað af því, sem á undan er gengið, svo að mönnum megi vegna hetur á hinum ókomna tírria en hinum liðna. Þó mega menn ekki einblina á bið liðna, svo að þeim láist að gera sér ljóst, að framtíðin á ævinlega mikla mögu- leika í fórum sínum, þótt liðni tíminn liafi verið erfiður að ýmsu leyti. Islendingum mun sjaldan vera hollara að svipast um en einmitt um þau áramótin, sem nú eru rúma viku undan. Þeir hafa færzt mikið í fang síðustu árin, dregið að sér allskonar tæki, til þess að létta sér baráttuna við náttúrúöflin og fyrir lífinu. Þar hefir verið horft fram á veginri, en þó ekki með nægilega mikilli framsýni og fyrirhyggju. Rej-nsla okkar og annara þjóða hefir ekki verið tekin fullkomlega með í reikninginn. Við höfum til skamms tíma látið undir liöfuð leggjast að skapa atvinnu- tækjunum traustan grundvöll með því að ráðast gegn dýr- tíðinni. Ifún hefir fengið að vaxa í skjóli þess, að enn væri hún ekki orðin svo mikil, að liún færði atvinnuveg- ina í kaf. En með því að leyfa henni að vaxa nærri ó- hindrað, hefir þeirri hættu verið boðið heim, að bún yrði nær óviðráðanleg, þegar loksins yrði ráðizt gegn henni. Nú hefir um síðir verið gerð tilraun til að hefja þær aðgerðir, sem hefði átt að gera fyrir löngu. Þingið, sem fengið hefir jólafrí, lét það verða síðasta verk sitt að samþykkja tillögur til úrlausnar á þessum málum, sem stjórnarflokkarnir höfðu komið sér saman um að leggja fyrir það til að Iækna meinið. Eins og vænta mátti var stjórnarandstaðan gegn máli þessu og eru það þá þegar nokkur meðmæli með því, nokkur sönnun fyrir því, að það muni geta náð tilgangi sínum, því að markmið stjórnarandstöðUnnar er ekkert annað en aukin dýrtíð og öngþveiti. Flestum mun vera það Ijóst, að aðgerðir þær, sem stjórnin hefir nú beitt sér fyrir með aðstoð þingsins, verða elcki fullkomin lækning. Róttækari aðgerða er þörf, ef hægt á að vera að kveða dýrtíðarófreskjuna niður til fulls. Þó er þetta nokkurt spor í áttina og viðurkenning á því, sem löngum hefir verið haldið fram liér í blaðinu — og í óþökk margra —< að ekki yrði hjá því komizt að sigrast á verðbólgunni, til þess að um eitthvert efnahags legt öryggi gæti verið að ræða fyrir þjóðina, þegar hún hefir ráðizt í svo stórkostlega endurnýj'un atvinnutækj- anna, sem raun ber vitni. Dýrtíðarráðstafanir þæf, sem koma til framkvæmda upp úr áramótunum, eru ekki allra meina hót. Þær eru þó tákn þess, að flokkarnir sé að hrista af sér óttann við kommúnista og þetta fyrsta skref í þá átt er vonandi bvrjun ]>ess, að þeir geri gangskör að því að koma þess- um málum í það horf, sem þjóðinni er fyrir beztu. Það var örlagaríkt skref, sem Þing sameinuðu þjóð- arina tók, er það samþykkti, að Palestinu skyldi skipt í tvö riki — milli Araba og Gyðinga. Báðir aðilar líta á landið sem föðurland sitt, þótt úr því fáist vafalaust aldrei skorið, hvor eigi meiri rétt til þess. Hefði því að líkindum frekar átt að reyna samkomulagsleiðina, leit- ast við að fá báða þessa þjóðflokka til að lifa í sátt og samlyndi — eftir getu — í einu og sama landi, eins og Bretar vildu. Nú verður ekki snúið aftur. Landinu verð- ur skipt og eins og nú horfir er ekki annað sýnilegt en að úr verði ófriður. Virðist þá bandalagið sjálft eiga sök á því, sem það er stofnað til að koma í veg fyrir. liostrsaðu? ásef 6 mlll|éii! Þrír þingmenn — Sigurður Bjarnason, Finnur Jónsson og Áki Jakobsson — bera fram frv# til laga um hita- aflstöð og hitaveitu á ísa- firði. Segir svo i frv., að ríkis- stjorninni sé heimilt að veita bæjarstjórn ísafjarðar leyi'l til þess að koma upp og reka bitaaflstöð og hitaveitu á ísafirði, einkalevfi til að leiða heitt vatn um. lögsagnarum- dæmið, og einkarétt til þess að selja heitt vatn til upphit- unar á húsum. Er þá hæg't að banna hitun með öðrum hætti i húsum, sem liitaveita nær til. Þegar ríkisstjórnin hefir leyft að koma upp bitaafls- stöð og liitaveitu samkvæmt lögum þessum, ábyrgist hún fyrir hönd i’ikissjóðs gegn þeim tryggingum, sem hún metur gildar, lán, er bæjar- stjórn ísafjarðar tekur til framkvæmdanna, allt að 5.5 milljónum króna, þó ekki yf- ir90% af stofnkostnaði, enda samþykki ríkisstjórnin láns- kjörin. Greinargerð er of löng til þess að hún verði birt i heild. Þar segir m. a.: rámlegci Sr ísafjarðarkauþstaður og Eyrarhreppur fá raforku frá orkuveri í Engidal, um 9 km. frá kaupstaðnum. Orkuverið samanstendur af tveim vatnsaflsvéluin, sem eru um 1230 kw. alls og full- nægja á erigan hátt orkuþörf þeirra 3250 manna, sem eru nú á 'orkuveitusvæðinu, ásámt þvi að sjá ýmsum iðn- aði fvrir nægilegri orku. Hamlar þvi orkuskortur allri venjulegri þróun alls þess iðnaðar, sem þarf að nota vél- ar til iðnrekstrar. I því sambandi má geta þess, að s. 1. vetur varð að skammta raforkuna yfir 3ja mán. tímabil, og að síðustu varð að stöðva vélarnar frá kl. 1 e. b. til ld. G e. li. dag- lega og aftur frá kl. 10 að kvöldi til ld. 6 að morgni. Hafa verið gerðar nokkur- ar athuganir á leiðum til framtíðarúrbóta, og raim- sóknir leitt í ljós, að skyn- samlegasta leioin muni verða sú að byggja á ísafirði liita- aflsstöð til orkuframleiðslu. Hefir í því sambandi sú bug- mynd kolnið fram að leggja hitaveitukerfi um bæinn og reisa eimtúrbinustöð, sem bvort tveggja í senn sæi íbú- um fyrir rafmagni ásamt vatnsaflsvélunum og heitu vatni til húsahitunar, þvotla o. fl. Voru 3 verkfræðingar, þeir 'Ben. Gröndal, Eirikur Briem og Gunnar Böðvars- son, fengnir til að athuga og gera frumáætlun vfir slíkt mannvirki. Ilafa þeir skilað áliti sínu, og leiða rannsókn- ir þeirra í ljós, að vandfund- in muni öllu betri lausn á hitunar- og rafmagnsmálum Isafjarðarkaupstaðar og Eyr_ arhrepþs. Gera þeir ráð fyrir, að hyggð ve'rði eimtúrbínu- stöð með diesilvéXasamslæðu 1700 ha., er hiti kaupstaðinn og framleiði 4.3 millj. kwst. af raforku á ári. I sambandi við þessar tillögur bafa þeir gert Svohljóðandi kostnaðar- áætlun: Aflslöð ásamt húsum og öllu tilheyrandi 2.650.000 kr. Hitaveita ásamt vatns- geymum, dælum, ventlum, pípukerfi o. fl. 2.450.000 kr. Hitaveitu lieimtaugar 340.000 kr. Baðvatnstaugar í liúsum 140.000 kr. Innanbæjarkerfi vegria raf- lagna og spennistöðva 550.000 kr. Alls 6.130.000 kr. Rekstraráætlun: Tekjurí 2.260.000 kr. Gjöld: 2.018.000 kr. Stofnkostnaður er, sem áour er getið, um 6.13 millj. kr. Af þessu mun um 70% verða innlendur kostnaður, en um 30%, eða um 2 millj. kr., þarf í erlendum gjald- Frh. á 8. siðu. Á , Jam-session‘4. Eg hafði heyrt marga tala um „Jam-session“ í BreiSfirð- ingabú'ð, en svo nefnist, er nokkrir ungir jazzvinir koma saman í kaffitimanum og ieika ýmisleg jazzlög, óundirbúnir, a'S mér skilst, fyrir kaffigesti. Mér lék hugur á að vera við- staddur eina slika ,,session“ og brá mér í ,,Búðina‘‘ s.,1. laug- ardag. Skal tekið fram í upp- hafi, að eg hafði gaman að, enda þótt eg sé ekki neinn sér- legur áhugamaðm- um jazz. Efnilegir liljóðfæraleikarar. Allmargt manna var fyrir í „Búðinni", er jazzinn hófst, allt ungt fólk, piltar í yfirgnæf- andi meirihluta. Jón Múli Árna- son útvarpsþulur, sem er. kunn- ur áhugamaður um jazz, kynnti lögin jafnharðan og þá, er léku hverju sinni, en skipt var um menn eftir hver þrjú lög, og virtist nógu af að taka, því allir virtust hinir ungu hljóðfæra- leikarar hafa náð íurðu mikilli leikni á hljóðfæri sín, Sagði mér jazzfróður maður, að strák- arnir í „jamminu" í Breiðfirð- ingabúð stæðu fyllilega á sporði sams konar jazzhljóm- sveitum í nágrannalöndum okk- ar, og get eg vel trúað því, eftir því sem eg hefi séð á Norður- löndum. Mikill áhugi. Eg tók undir eins eftir því, að áheyrendur fylgdust með jazzinum af lífi og sáj, og mátti heita, að annar eða þriðji hver maður hreyfði fætur eða fingur í takt við jazzinn. Hins vegar höfðu mér verið sagðar ýmis- legar kynjasögur um, að viö borð lægi, að sumir ungir jazz- vinir fengju allt að því flóg og vældu eins og úlfar, er þeir komust í ,,stemningu“ í ,,hot“- Iögúm. En ekki varð eg var við neitt slikt. Mér virtist fólkið, sem þarna var komið til þess að hlýða á ,,jammið“ vera laust við allan taugaóstyrk. Meira aö segja dúllaði enginn undir, a la Louis Armstrong og var það mér og fleirum mikill hugar- léttir. Skemmtileg dægrastytting. Eg fæ ekki betur séð en að hér sé um skemmtilega dægra- styttingu að ræða fyrir ungt fólk, sem áhuga hefir fyrir jazz og nútíma-dansmúsík, enda þótt „jammið“ kunni að geta farið út i öfgar, eins og gerist og gengur. Eg fæ ekki betur séð en að.hér séu á ferðinni ágæt jazz-hljóðfæraleikaraefni, sem flytja jazzinn með þeim hætti, er ungu fólki nú á tímum geðj- ast bezí. „Einkennisbúningar“. En eitt finnst mér dálítið skrítið hjá sumum hinum „villt- ari“ jazzaðdáendum. Þeir virð_ ast leggja allt kapp á að ldæðast einhverjum annarlegum flik- um, til dæmis hinum örþröngu buxum (þakrennúbuxum), sem naumast mun vera hægt að komast í án þess að nota skó- horn, ennfremur með hálsbindi með 'hnútum á stærð við Svea- eldspítustokka af stærstu gerð og fáránlega jakka, sem ná allt að því niður í hnésbætur. Munu þetta vera einhverskonar ís- lenzkt afbrigði af „zoot“- klæðnaði þeim, ér „jitterbugg- ar“ Bandaríkjanna angruðu venjulegt fólk með um eitt skeið. En þetta keniúr ekki jazzinum við, og skal ekki skrifað á hans reikning. En jazzinn í „Búðinni“, eins og hann var leikinn s. 1. laugardag er góður sem slíkur, og áreiðan. lega ekki hættulegri geðsmun- um manna en t. d. ping-pong eða Framsóknarvist.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.