Vísir - 23.01.1948, Qupperneq 1
38. ár.
18. tbl.
Fesíuöagiim 23. janáar 1948
I,
Á myndinni sjást þeir Robert L. Eichelberger hershöfS-
ingi yfir 5. her Bandatikjamanna og MacÁrth»r*-yfinttai' :«r
hernámsliSs bandamanna í Japan, har sem beir hc.'isa
hersveitum sínum á hersýnir.gu ! Tokyo.
3 £*
Umferðarslys.
i vlli §cs: i-
llþj éSadémstólISna
kemm saman i
næsta mánuði.
I næsta mánuði kemur al-
þjcðadcmstóllinn saman í
Haag og mun þá kæra Breta
á hendur Albönum verða tek-
ín fyrir.
Eins og oft áður hefir ver-
ið skýrt frá í fréttum kærðu
Bretar Albani fyrir að hafa
lagt tundurduflum í Korfu-
sundi, en tundurduflalagnir
þeirra þar urðu 44 brezkum
sjóliðum að fjörtjóni er
brezkur tundurspillir rakst á
tundurdufl þar og sökk.
Albanir hafa eklti vilj-
að bæta Bretum tjónið og
ekki viljað játa, að þeir hafi
lagt duflunum, þótt það hafi
hinsvegar þótt fullsanpað.
Vömsýnlng i Prag.
Tékkar efna til vörusýn-
ingar í Prag dagana 12.—21.
marz næstk.
Verða þeir, sem ætla að
sækja sýninguna að hafa afl-
að sér gistingar með liálfs
mánaðar fyrrrvara, en vænt-
anlegir sýningargestir geta
fengið allar upplýsingar hjá
skrifstofu tékkneska ræðis-
mannsins í Austurstræti 12.
Bæjarbruni
é Eyiafirði.
í fyrradag brann íbúðar-
húsið í Sigluvík á Svalbarðs-
strönd, svo og f jósið sem var
áfast við það og brunnu 12
kýr inni.
Mun eldurinn hafa komið
upp í kjallara hússins, sem
er úr steinsteypu en þiljað að
innan. Magnaðist eldurinn
mjög skjótt og varð ekki við
neitt ráðið. Brann íbúðarhús-
ið allt að innan og þar með
allir innanstokksmunir fólks.
ins, er þar hjó og matarforði I
allur. Fjósið var áfast við
íbúðarhúsið og reyndist ó-
kleift að bjarga nautgripun-
um og brunnu 12 kýr inni,
eins og fyrr getur.
Bóndinn í Sigluvík heitir
Valdimar Kristjánsson. Auk
hans og konu lians bjuggu
þarna synir þeirra tveir,
tengdaforeldrar og öldruð
kona og karlmaður. Fólkið
dvelst nú að Breiðabóli.
Innbú var allt óvátryggt
en húsin lágt vátryggð og má
því heita, að fólk þetta standi
nú eignalaust uppi.
Franska stjórnin hefir lát-
ið banna útkomu vikublaðs.
er kemur út á rússnesku í
París.
Ástæðan fyrir banninu er,
að blaðið er talið vera of á-
róðurskennt fyrir Rússa og
stefnu þeirra í heimsmálun-
um.
16 bátar komu
—14000 mál.
Frá því síðdegis í gær og
þangað til kl. 4 í nótt bár-
ust hingað samtals 14.120
mál síldar í 16 bátum.
Veður var óhagstætt í
Hvalfirði í morgun og biðu
þá nokkur skip með full-
fermi síldar þess að veður
lægði, til þess að geta komizt
til Reykjavíkur.
Þessir líátar komu til
Reýkjavíkur á framan-
greindu tímabili: Auður með
1100 mál, Ingólfur GK 1300,
Fell VE 1400, Atli 650, Jök-
ull 1600, Slieggi 900, Heima-
klettur & Friðrik Jónsson
900, Hannes Hafstein 300, |
Sveinn Guðmundsson 970,1
Þorsteinn AK 600, Hilmir i
& Reykjaröst 950, Ágúst Þór-1
arinsson 1000, Böðvar AK
750 og Ánnann 400.
Lokið er við að lesta Fjall-
l'oss og Selfoss og byrjað á
að lesta Sindra og Straumey.
Haldið er áfram að flytja
síld til geymslu í grjótnámið
við Sjómannaskólann.
Núna munu vera 22 síld-
veiðibátar á Reykjavíkur-
höfn, er bíða löndunar með
samtals 18260 mál.
I nótt var framið eitt af
veigameiri innbrotum, sem
framin hafa verið hér í bæn-
ura, og stolið um 10 þús. kr.
í peningum og sjö nýjum
rifflum.
Innbrot jietta var framið
á Hverfisgötu 18 í verzlun
Jóhanns Ólafssonar & Co. og
enn fremur á skrifstofu
Strætisvagna Réykjavíkur,
sem er til Iiúsa á efri hæð
sömu byggingar.
Á báðum þessum stöðum
Um miðnætti aðfaranótt
miðvikudags varð bifreiða-
árekstur sunnan Hljómskála.
garðsins og slösuðust þrír
menn nokkuð.
Fólksbifreið ók á mann-
lausa bifreið, er stóð á vegar-
brún sunnan garðsins. Mun-
bifreiðin hafa ekið allhratt
og urðu töluverðar skemmd-
ir á báðum bifreiðunum. Þrír
menn, er j bifreiðinni voru,
meiddust nokkuð, m. a. fékk
einn þeirra heilaluisting.
Voru þeir fluttir í slysavarð-
stofuna, en síðan i Lands-
spítalann. Málið er í rann-
sókn.
Iiefir þjófurinn (eða þjóf-
arnir) stolið 7 nýjum riffl-
um og auk þess miklu af
peningum. Þar á meðal var
stolið 3500 krónuseðlum,
3300 krónum i tveggja krónu
peningum og 2800 krónu-
peningum. Ennfremur var
nokkuru stolið af eins- og
tvegg j-eyri ngum.
Innbrotið var framið með
þeim hætti, að brotnar voru
upp kjallaradyr á bakhlið
hússins og farið jiaðan upp
á efri hæðirnar.
sfas'f
köMíiiiiéiglsta®
Pietro Nenni, formaður
jafnaðarmanna á Ítalít;, vill
áframhaldandi samstarf við
kommúnista.
Hann hefir farið j)ess á leit
við flokksmenn sína á þingi
jafnaðarmanna, er nú stend-
ur yfir, að samþykkt verði
að Iialda samstarfinu áfram.
Tillaga í þá átt, að slíta sam-
starfinu, hefir verið borin
fram og má búast við at-
kvæðagreiðslu urn hana
næstu daga.
inil mjólk.
Ófærð er nú svo ntikil
kornin austur í Rangárvalla-
sýslu að erfitt og jafnvel ó-
mögulegt er að fara þar um
á bílum.
Mjclkurflutningar hafá
stöðvast þar eystra og bil-
arnir lííið sent ekkert komizt
austur fyrir Þjórsá.
í uppsveitum Árnessýslu
er einnig kontinn mikill
snjór og í gærkveldi vantaði
samtals 8 mjólkurbíla af
mjclkursvæðinu, seiu töfðust
eða tepptust vegna öfærðar.
Af jtessu leiddi það, að mjólk-
urmagnið, sem kom til
Reykjavíkur í gær, var um 5
j>ús. lítrum minna en gert
hafði verið ráð fyrir. Má j>ó
gera ráð fyrir að mjólk verði
nægjanlega niikil hér i bæn-
um í dag.
sfldtir nýlega.
Það vekur mikla athygli,
að Bandaríkin hafa nú mun
stærri flota á Kyrrahafi en
nokkur þjóð önnur.
Ameriska flotadeildin —■
eitt aðalskip hennar er hið
risavaxna flugstöðvarskip
Midway, 45.000 smálestir —
hefir að undanförnu verið
að æfingum á Eyjahafi. —
Ilafa landgöngur og innrás-
ir verið æfðar af kappi.
Landgönguliðum flota-
deildarinnar er hefir og ver-
ið fjölgað um þúsund og þeir
búnir mun betur en áður
hefir tíðkazt. Ilafa þeir nú
til umráða skriðdreka og
eldsprautur. Flugvélar flota-
deildarinnar Iiafa og verið
húnar jiannig, að þær geta
börið kj arnorkusprengj ur.
Þárf jiað |)ó alls ekki að
tákna, að j)etta vopn sé á
herskipum þessum.
Hjálpin til
Tyrkja.
Þá liefir jiað og áhrif á af-
stöðu jjjóðanna við Miðjarð-
arhaf, að Bandaríkin hafa
ákveðið að aflienda Tyrkj-
um 15 herskip, þar á meðal
fjóra kafbáta, sem smíðað-
ir voru 1944 og eru jiví full-
komin skip. Gefur jjetla
Tyrkjum aukna trú á mátt
sinn, en margvíslegir örðug-
leikar sleðja nú að jieim, m.
a. frá Rússum.
Hjálpin til
Grikkja.
Þá er hjálp Bandaríkja-
manna við Grilcki nú miklu
meiri en áður. Hefir stjórnin
nú mun betri aðstöðu í bar-
dögunum við Ivonitza en
,'fyrir fáeinúm dögum. Hafa
liersveitir Markos að sögn
verið hraktar að mestu yfir
landamærin og undirbýr
liann nú sókn í Þrakiu, frá
Búlgariu.
UmferðarsBys.
Tveggja ára telpa varð fyr-
ir bifreið á Túngötu í gær og
skrámaðist nokkuð á höfði.
Litla telpan heitir Guðrún
Adólfsdóttir og á heima í
Túngötu 35, en slysið varð
skammt frá lieimili hennar.
Telpan vár jiegar flutt í
Landsspítalann og jiar gert
að meiðslum hennar.
10 þúsund krónum !
stnlið í smámynte