Vísir - 11.03.1948, Blaðsíða 4

Vísir - 11.03.1948, Blaðsíða 4
4 V I S I R Fimmtudaginn 11. marz 1948 DAGBLAÐ Dtgefandi: BLAÐADTGÁFAN 'SOSIR H/F. Ritstjórar: Kristján Guðlaugsson, Hersteinn Pálsson. Skrifstofa: Félagsprentsmiðjunni. Afgreiðsla: Hverfisgöíu 12. Símar 1660 (fimm línur). Lausasala 50 aurar. Félagsprentsmiðjan h.f. „Vitu þér enn eða hvað?" vpil þess að kommúnistar um heim allan geti talað, út- * sendarar cinr^eðisins í austurvegi geti lekið þátt í um- ræðum um stjórnmál, verða þei-r að fá til þess „línu“. Fyrr geta þeir ekki stunið upp úokkru orði, án þess að eiga á liættu að vinna sér til óhelgi i augum miðstjórnar- innar miklu. Hún er hinsvegar furðu fljót að snúast við í málunum og eftir höfðinu dansa limirnir, hér úti á Is- landi sem annars staðar. Þegar kommúnistum tókst með alls konar þekktum og.óþekktum holahrögðum að svæla undir sig öll völd í Tékkóslóvakíu fyrir hálfum mánuði, fengu komnuinistarn- ir liér og annars staðar þá línu.til að tala eftir, að aftur- haldsöflin í landinu hefðu liugsað sér að grípa völdin og koma lýðræðinu fyrir kattarnef. Þeir menn, sem þessa glæpi ætluðu að vinna, voru meðal annars Benes forseti, því að hann reyndi eftir mætti að sporna við ofbeldi kommúnista, og Jan Masaryk, sonur frelsishetjunnar Tomasar Masaryks, sem var faðir tékkóslóvakiska lýð- veldisins. Það kom sér hinsvegar ekki vel fyrir konnn- únista að stimpla þessa menn, þvi að í hinum siðmennt- aða heirni njóta þeir margfalt meira álits en nokkur kommúnisti getur nokkuru sinni notað af eðlilegum á- stæðum. Kommúnistar 1 Tékkóslóvakíu létu sér því nægja að koma Benes forseta fyrir á sveitasetri hans, þar sem hann var raunverulega fangi og þar mun hann dúsa enn þá, en Masaryk var beimínis kúgaður til þess að taka. á ný við embætti því, serh hann hefur gegnt um nokkurt skeið. En sannleikurinn kemur jafnan í ljós og spyr þá ekki að því, hvort það kemur kommúnistum vel eða ekki. Hin nýja ofbeldisstjórn Gottwalds hafði ekki setið lengi að völdum, þegar hún sýndi innræti sitt. Þingmenn voru reknir, ef þeir vildu ekki undirskrjfa ,,eininguna“, cn j)að er sama og að heygja sig í auðmýkt fyrir kommúnistum og kyssa á vöndinn. Einn fyrrverandi ráðherra gerði til- raun til að fremja sjálfsmorð, ef kommúnistar hafa.ekki sjálfir búið til þá „sjálfsmorðtilraun“, er þeim hafði mis- tekizt að koma honum fyrir kattarnef vegna óhlýðni hans við j)á. Annar maður til vildi líka „heldur bíða hel“ en lila við ófrelsi og kúgun og sá maður var Jan Masaryk, góður sonur mikilmennis. llann kaus í gærmorgun j)á leið, sem margur kýs heldur en smán og kúgun — hann réð sér bana. Er j)ó í rauninni óupplýst, hvort honum hcf- ur ekki verið hjálpað yfir um. Þcir menn eru til, J)ótt ])eim fari óðum lækkandi, sem halda, að hægt sé að starfa mcð kommúnistum sem heið- arlegum mönnum. Dæmin sanna þó hvert af öðiui, að samvinna kemur ekki til greina við kommúnista, hvað sem þeir tala um lýðræðisást sína. Þeir sitja alls staðar á svikráðum við alla J)á, sem eru á ánnari skoðun og hnífurinn er alltaf í erminni, reiðul)úinn til ])ess að keyra hann í bak andstæðingnum. Kommúnistar hafa sannað jietta úti um heim óg kommúnistarnjr íslenzlui eru að- eins grein af sama stðfni. Menn geta ekki verið komm- únistar til lcngdar án ])ess að búa yfir innræti, sem sið- aðir menn hafa fyrir löngu hrénnt úr eðli sínu. Það stóð svo sem ekki á j)ví, að kommúnistar gæfu skýringu á sjálfsmorði Masarvks, -skýringu. sepi rnegir j)eim, þött hún nægi ekki öðruih. Hvað olli svefnleysi íians og deyfilyfjatöku, sem kommúnistar auglýsa i,iú af kappi? Elkkert annað en örvænting hans vegna hinnar nýju kúg- iinar j)jóðarinnar. En kommúnistar segja, að Vesturveldin eigi sök á dauða hans, af Jiví að ])ar hafi verið ráðizt á íiann fyrir afstöðu hans. En sannleikurinn er sá, að ekki var ráðizt á hann — hann var aumkvaður vegna osigurs hugsjóna hans. Nei, nú þarf ekki lcngur vitnanna við um fyrirætlanir kommúnista og hina sönnu lýðræðisást þeirra. Þeir vilja lýðræði, meðan -þeir hafa ekki bolmagn til að leika Tékkóslóyakíu-leikinn. Jafnskjótt og þeir hafa náð völd- nnum, verður lýðræðið aðeins endurminning í húga þeirra, sem fá að halda lífi í hinu frelsaða ríki. Ellefu áfengisvainarneíndii eru nn starfandi á landinu. Ætlunin er að stofna samband þeirra. Áfengisvarnanefnd kven- félaga í Reykjavík og Hafn- arfirði hélt aðalfund sinn í fteykjavík á mánudag. Var-þar m. a. samjiykkt að vinna að þvi að stcrfna sam- band Áfengisvarnanefnd- anna í landinu, en þær eru nú orðnar 11. Samþykkt var svofeljd orðsending til Al- jiingis: „Fundurinn vill minna háttvirt Alþingi á, að kónur um land allt treysta þvi fast- lega, að samþykktar verði þingsályktunartillögur þær, er fvrir júnginu liggja um liéraðabönn, afnám vinveitinga á kostn- að ríkisins og afnám sérréttinda í áfeng- iskaupum. Mál jiessi lágu öll fýrir síð- 'asla þingi og voru lögð á hill- una, hið fyrstnefnda þvert ofan í skýlaus loforð flestra þingmánnanná. Nú hefir meiri hluti allsherjarnefndar lýsl því yfir, að hann sjái sér ekki fært að samþykkja til- löguna um héraðabönnin, sökum Jæss, að ,»ef héraða- bönn takmarki nokkuð veru- lega notkun áfengis, þá hljóti af þeim ráðstöfunum að leiða mjög mikla rýrnun á tekjum ríkissjóðs“, og lagt til, að málið verði enn dregið á lánginn, með þvi að fela rík- isstjórninni }>að „til athugun- ar“. Slík athugun liefði að sjálfsögðu ált að vera búin að eiga sér stað fyrir löngu, en ef svo er ekki, þá krefst fundurinn þess, að strax verði hafizt lianda um hana, og að atkvæðagreiðsla verði látin. fara fram um málið á þessu þingi. Ivonur landsins óska að fá úr því skorið sem allra fyrst, hýerjir fulltrúar þeirra á Alþingi sjá sér ekki fært að efna þau lieit, sem kosning þeirra byggðist á.“ Bæjarst jórn Reykjavíku r var send svohljóðandi áskor- un: „Fundurinn ítrekar þá á- skorun áfengisvarnanefnd- arinnar til hæjarstjórnar Reykjavikur, að liún komi upp vörnum gegn áfengis- höli bæjarbúa samkvæmt tillögum Alfréðs Gíslasonar, læknis. Fundurinn beinir þeirri eindregnu ósk til bæj- arstjórnarinnar, að hún skipi nefnd, til þess "að atliuga þetta nauðsynjamál, þegar á næsta fundi sírium.“ Loks var skorað á lög- reglustjórann í Reykjavík að gefa út nafnskírteini handa börnum og ungling- um til 16 ára aldurs. Brezku konungs- hjónin fara til Ástralíu. Það hefir verið opinberlega tilkynnt, að brezku konungs- hjónin muni fara til Ástra- líu og Nýja Sjálands snemma á næsta ári. í för með þeim verður Ehsabeth Og Philip héi’toga- hjónin vefða iekki í förinrii. Cliifley forsætisráðhérra Ástrálíu tilkynnti þetta í út- varpi í gær. Konringshjónin fara sjóleiðis. 4.269.000 lestir kola á viku. 1 s.l. viku varð kolafram- leiðsla Breta 4 milljónir og 269 þús. smálesta, og hefir þvi kolaframleiðslan verið yfir 4 millj. lesta I 9 vikur í röð. Markmiðið var að láta framleiðsluna aldrei fara nið- ur fyrir 4 millj. lestá á árinu. Ástæðan fyrir því, hve vel gengur með framleiðslu kola, er m. a. sú, að tekizt hefir að leiða verkföll kolanámu- manna til lykta. Árbók íþzéttamanna 1946-47 komin út, Árbók íþróttamanna fyrir árin 1946 og 1947 er komin út. Bókin er að þessu sinni mun efnismeiri en venjulegá. 1 henni eru upplýsingar um íj>róttamót og kappleiki, sem haldnir voru á þessu tíma- bili. Margar myndir eru í henni og frágangur allur vandaður. Nýir kaupendur Vísis fá blaðið ókeypis ti'l næstu mánaðamóta. Hringið í síma 1SH0 og tilkynnið nafn og heimilis- fang. Styrimann vantar á mótorhátinn Ásgeir frá Reykjavík, sem er á línuveiðum. — Uppl. á skrifstofu Ingvars Vilhjálms- sonar, Hafnarhvoli. BERGM í einelti. Hér um daginn vorum viS nokkrir kunningjar að rabba sanian uiii húsbruna og éld- hctítku. K'dm okkur saman um, að j)aö gæti verið grinlaust aö búa á þriöju eða fjóröu hæð í tiriiburhúsi, ef eldur kæmi upp i því. ,,Já, satt er j)að,“ rnælti eiitri. „Eg }>ekki mann. sem á heima í steinliúsi viö Hverfis- götuna. Þar eru allir stigan úr timbri og J>a8 er eg viss um, að ef Kviknaöi í stigagangiuum, væri harin og frúin komin í ein- elti.“ í sjálfheldu, „Sjálfheklu, hlýtur j>ú aö meina,“ sagði einhver. „Þaö er sitthvað aS leggja einhvern í einelti eöa komast í sjálfheklu.'‘ „Nei, eg meina einelti. Þegar eg var strákur í J.foruafirö.i, var oft sagt, að fé, sem væri illa statt í liamrabelti og kæmist hvorki upp né niöur, væri kom- iö í einelti." Ekki tjóaöi aö mót- mæla ’ þessu, nann vildi ekki komast j sjálfheldu, J>aö var.ð ,að' veráæinelti'; Þgss skal getið, aö’ maöurinn sem hélt þessu fram, sagði þetta í íúlustu al- vöru. Skyldi einhver tlorn- íirðingur hafa heyrt j>essa und- arlegu notkun orösins einelti? Eg efast um ]>að, en gaman vajri aö fá líuu frá einhverjum um þetta. Bréf um eitt orð. „J. 'G.“ hefir sent mér eítir- farandi hréf: „Eg ■ liefi tekiö eftir því úftdárifárið, að bæði blöö og útvarp viröast forðast að nota oröiö nálægur, j>egar einhver leiö er aö koma að ööru orði sem er danskt. Það er órðíð ,,riærliggjandi“, sem er aðeíns þýðing á orðinu „nær- liggende". Eg vil skora á blöð og útvarp að hætta við danska orðið og nota hiö íslenzka.“ Stutt svar. Eg vil leyfa mér að þakka „J. G.“ fyrir ]>essa hendingu, en jafnframt vil eg eindregið mælast til j>ess aö hann tetji Vísi ekki meðal þeirra blaða, sem nota orðið nærliggjandi. Það hefir áreiðanlega ekki birzt hér, því aö þótt bæta mætti ís- lenzku þessa blaðs eins og ann- árra, ]>á er þetta tiltekna orð of augljóslega danskt til þess að því yrði hleypt í prentun hér. Hinsvegar er mér það hulin ráðgáta, hvernig á því stend- ur að útvarpið skuli nota að,ra eins vitleysu —- þessi stofnun ,sem hefir á sinum snærum ein- hvern skeleggasta gagnrýnanda hlaöanna," þegar íslenzkt mál er amiars vegar.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.