Vísir - 28.06.1948, Blaðsíða 2

Vísir - 28.06.1948, Blaðsíða 2
VISIH Mánudaginn 28. júní 1948 .....- ■ ■ ---- Pistill frá Kaupmannahöfn. EFTiR RANNVEIGU SCHMIDT. Þaö var bylur í Reykjavik þegar viö lögðum á stað, en Hekla steig á loft og brátl skein sólin og við nutuúi út- sjónarinnar. * í þægilegum stólum flug- vélarinnar gátum við setið upprétt eða legið afturábak eflir vild. Allur aðbúnaður Heklu er ágætur, flugmenn- drnir kurteisir og flugfreyjan umhyggjusöm uin velferð okkar. Veitingar Lol'tleiða eru hinar beztu, en mesta lukku gerðu appelsínurnar. Það er sannarlega gaman, að Loftleiðir flýgur sínum eigin flugvélum, að duglegur íslendingur stendur fvrir fé- laginu og að álverzla er liigð á, að liafa islenzka áhöfn. í Prestwick var sólskin og urðuni við þar fyrst vör við vorið, sem alltaf lætur híða ' svo lengi eftir sér í oklcar blessaða landi. Englending- arnir tók oklcur vel, en fóru með okkur eins og fé í rétt- um, því ekki mátti blandá saman þeim, sem fóru úr vélinni í Englandi og okkur hinum, sem vorura á leið til Kaupmánnahaf nar. Hver liópur var látinn í sinn bás, ]t. e. a. s. hvorn sinn mat- reiðslusalinn á gistihúsinu, þar sem matur var framreidd ur af kjólklæddum þjónum. Ekki get eg samt verið að hrósa enska matnum, en það er ekki við betra að búast af þjóð, sem ltefir eins litið handa á milli og Englending- ar hafa 'upp á siðkastið..... Kaupmánriáliöfn fagnaði okkur i sól og sUmri og sjald- an hefi eg séð liimininn dýrð- legri í Danmorku en kvöldið það. .... Borgin liefir fengið mikið af sinum gamla svip og' er muiiur á henni nú og' fyrir tv'eirri árum síðan. Leif- ar stríðsins, ljótu steinhrúg- urnar, sem allsstaðar blöstu við þá, eru horfnar; borgin er miklu hreimii og bjartari. .... Alltaf er Danmörlc vina- ;legt land og fagtir danski skógurínn þegar lvann er að springa út. Tröllasögurnar, sem gengu heiiria um stríðshræðslu og Rússahræðslu Daua eru, eins bg.mig alltaf grunaði, orðum auknar. Ég hefi, að minnsta kosti ekki liéyrt neitt af þvi tagi hér. Ekki er laust við að okkur bregði'við hvað fólk er árris- ult á þessum slóðum......... Kl. 7 byrjar hjólhestastraum- urinn um göturnar......Búð- irnai'..gjvðast vera fullar af vörum.......Fólk er betur húið en i hitt eð fyrra..... 'Hér fæst ótrúlega mikið af ; amerískum nyjí'asinum. Alltaf dáist eg að ]>ví í Danmörku hvað Danir eru löghlýðnir menn og taka mik. ið tillit til annarra. Aldrei sér maður þá vera nieð troðning á mannamótum; alltaf biða þeir rólegir þar til að þeim lcemur í röðinni o. s. frv. Fólk kvartar hér ekki nærri eins mikið og það gerði fyrír tveim árum síðan og liefir þjóðin þó sannarlega nóg við að stríða sem stendr. .... Allt séiri nöfnum tjáir að nefna er flutt út til þess að ná í gjaldeyri.....Kjöt fá Danir fyrir 49 aura á mann á mánuði. „Káffihungrið“ er mikið, enda kaffiskanuritur- inn lítill. A. kaffihúsum. fáúm við gerfikaffi, sem er eins mikið í ætt við kaffi og hún I Hedvig Collin er í ætt við liann Egil Skallágrímsson. .... En gerfite-ið lítur þó út eins og te og er drekkandi, og þó nuinur var nú að fá verulegl og sterkt te hjá hénni Editli Rode .... en siðar komumst við að þvi, að hún hafði gefið okku.r allt, sem luin átfi eftir í pokan- um......Hrisgrjón liafa Dan- ir'ekki séð árúm saraan.... (En nóg er til af eggjum og gfænmeti og óska eg oft að gela galdrað heim til Islands stói’U söluvagnana fulla af blómkáli, tómötum pg |„aspargus“, sem maður sér á götum Kaupmannahafnar; ,það myndi iyftast brúnin á j íslenzku húsmæðrununi ef |þær lcæmust i slikan lrimna- mat........... Sigaretturnar ^ dörisku eru vel reykjandi nú, |eri skannnturinn er ósköp lít- ill.....Sjaldan sér maður nýjar bifreiðar. Danir hafa gefið nýju amérísku bifreið- unum skrítið nafn — Dollar- grin — en nafnið draga þeir af glitrandi stál-slánum, sem eru eins og tennrir framan á bifréiðunrim..... Mikið’hefir verið talað héf uiri „heimsins áttunda við- undur“, tíu ára gamlan ít- alskan dreng, Pierre (Pétur) Gamba, sém stýrt hefir beztu hijómsveitum • Ivaupmanna- hafnar af óviðjafnanlegri snilld. Þegar liaim stýrði hljómsveit Konungíega leik- hússins risu hljómsveitar- mennirnir upp honum til heiðurs, að hljómleiknum loknum. Margt hefi eg seð gott á léikhúsunum hér. Hún Anna okkar Borg var töfrandi Aphrodite í „Dage paa Sky“ eftir Ábell. Fegurri kona sést ekki á leiksviði og leikur liennar var með afbrigðium góður....... Þá var ekki ónýtt að sjá leikarann, sem ber af þeiiri öllum, Poul rii. Buddinge í ,.Genboerne“ eftir Hostrup. « Nýlega þótti það í frásögur færandi, að þrir kvenprestar voru vígðir við mikla viðhöfn í bærium Odense .... og þetla var í fyrsta sinri að konur voru vigðar til prests í Danmörku. Ein ‘þeirra þriggja, Ruth Vermerhen, liefir verið fangelsisprestur í Horseröd í nítján ár, en dönsk lög liafa verið þannig, að vigsluna féklc liún fyrst nú. Alltaf eru Danir manna hjálpfúsastir að vísa til veg- ar. Eg bið vagnstjórann í strætisvagninum um að segja mér til þegar við komum að Pefer Bangs-vegi. Sjálfsagt, segir hann brosandi og að hálftima liðnum lnópar ekki aðéins liann heldur líka fiirim eða sex af farþégunum í vagn- inum: Hérna farið þér út, frú! Ekki þeklþ eg til að þetta komi nokkursstaðár fyrir nema i Danmörku..... Tízkan er á allra vörum' (the néw look, eins og }>að er kallað um allan heini). .... I Kaupmannahöfn veit „nýja útlitið“ varla livort það er að koma eða fara! Margar Kaup- ma n na ha f na rdom u r ganga enn í pilsuin niður að lmé og kæra sig koÚöttá uiri „nýja útlitið“, en aðrar eru í löngu pilsunum, þvengmjóar í íniltið. Eg kom inn í lifstykkjahúð um daginn með danskrí vin- konu minni og Íiúri kváldi sig inn í eilt af þessum pímilitlu lífstykþjum, sera „nýja útlit- ið“ fyrirskipar. Ilúri var svo hlægileg, að eg hló mig mátt- lausa að henni, en hún lók sjálfa sig mjog hátíðlega og strunsaði að lokum út úr búð- inni, reyrð inn í lífstykkið og í nýju dragtinni sinni, sem var hérumbil niður á ökla. Ilún þóttist helzt líkjast vin- konu Játvarðar Breakonungs, leikkonunni Lily Langtry, sællar mmningar eða eitthvað minntist hún á hana; að minnsta kosli var hún eins og stundaglas í laginu.. Jæja, þegar lieim lcom þoldl hún ekki við i lífstykkinu og ef lil vill líða þó nokkrir dag- ar þarigað til liún fer í það aftur! Mótspyrnan er mikil gegn „nýja útlitinu". Síddin og viddin í pilsunum þykir ó-1 jiraktisk og konurnar, sem hafa fallega ökla og leggi vilja sýna þá, sem fýrr, en fæstar liugsa út í, að einmitt ljótir ökar þola verst „nýja útlitið"...Það gengur sú saga, að ein leikkonan hér hafi sagt við vinkónu sína: „Þér ér vélkomið að taka nýja útlitið — eg læt mér iiægja gamla augnatillitið“. .... Og samt, .... ætli það séu ekki álög kvenna að bera ok tízkunnar að eilífu! SUmabúti* GARÐUEI Garðastræti 2. — Síroi ’7?u<* Prestastefnan vill ekki að prests- setrin verði bútuð í smábýli. Prestastefnunni lauk á þriðjudag. Síðati fundur prestastefn- unnar hófst kl. 9 á þriðjudag 22. júní. Síra Sigurður Haukdal annaðist morgunbænir. Þá var tekið fyrir að ræða uiri prestsetur landsins. Hóf sr. Þörsteinn Jóhannesson prófastur umræður. Aðrir málshéfjendúr voru sr. Sveinn Víkingur og sr. Lárus Arnórsson. Yoru ræður allra i framsögumanna hinar at- j hyglisverðustu. Eftir nokk- i urar umræður var samþykkt í einu hljóði svofelld áíyktun: | Prestastefna íslands minn- ir á að íslenzkir prestar liafa um aidir búið við rausn og myndarþrag á prestssetrum íaridsins, svo að til fyrir- myndar hefir verið og gera það.margir eim i dag. Þess vegná vill jirestastefn- an beina því til ríkisstjó'rnar- innar og skipulagsnefndar prestssétra að koma i veg fyr- ir að bútuð séu í smábýli hin forriu svéitaprestssetur, sem enn eru í ábúð prest- anna, eða svipla prestana umráðarétti þcirra, ])ótt slík- ar ráðstafanir hinsvegar geti verið réttmætar á einstökum stöð'um. Jafnframt beinir presta- stefnan þvi til biskups að virina að því, að vcitt verði riflcga fé til nauðsynlegra útihúsabýggingá á sveita- prestssetrum og ennfremur að fýlgifé það (kúgildi),* er fargað liefir verið frá slíkum prestssetrum á undanförnum áratugum verði skilað þeim aftur og það auldð þannig, að prestar fái betri aðstöðu en nú liafa þeir, til þess að koma á fót myndaríegum búskap á prestssetrum. Samþykkt var tillaga sú frá séra Sigurði Einarssyni um útvegun hjálpargagna til kristilegrar æskulýðsstarf- ' semi, sem fyrr hefir verið ' getið. Þá var og i sambándi við æskulýðssfárfsemina sam- þykkt svofelld tillaga frá alls- herjarnefnd: J Prestastefna íslantLs 1948 beinir þeim tijmælum til biskups og kirkjuráð að hluL ast til íim, að sett verði lög um námsstjóra í kristmuri f ræðum er leiðbeini um krist- indómsfræðslu í barnaskól- um og frainhaldsskólum, svo og frjálst æskulýðsstarf í 1 söfnuðum landsius. Skal j liann skipaður að fengniuri J tillögum hiskups og fræðslu- ^ málastjóra og starfa i ná- inni samvinnu við vfirstjórn kirkju- og fræðslumála. Biskup ávarpaði þá prest- ana að skilnaði. Var síðan gengið i liáskólakapelluná og prestastefnunni slitið þar kl. rúml. 12 á hádegi. Tveiin kliikkustundum eft- ir furidárslitiri fór biskup flugleiðis til Englands að sitja Lambcth-fundinn, ásamt mörgum öðrum biskupum, sem erkihiskupinn af Kant- araborg hefir boðið til fund- ar þessa. Fundarmenn á prestastefn- unni niunú liafa orðið um 99 er flest var, og liefir presta- stefna víst áldréí vefið svo fjölmenri. Nokkrar stiílkur vantar nú þegar. Herbergi fylgir. Uppl. á skrifstofunni. Hótel Barg Hæð til 4 herbergi og eldhús í nýju lnisi við Laugateig. Olíukynding. Si^vir^eir ^i^nrjóyióóo^ m ‘ Aðalstræti 8. —Simi 1043 Silungapoll Börnin að Silungaþolli fara sem hé Stúlkur, mánudaginn 28. Drengir, þriðjudag'inn 29 Farið frá Varðarhúsinu. ur. r segir: júní, kl. 3. júní, kl. 3. * Kauoi Itross islands. X

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.