Vísir - 30.07.1948, Page 3
Föstudaginn 30. júlí 1948
VISIB
3
Togarinn Forseti
fór í gærmorgun áleiðis
til Bretlands með afla sinn,
sem var 2500 kit. Siðdegis
í gær lagði togarinn Hvalfell
af stað til Þýzkalands með
284 smálestir fiskjar.
Neptúnus
seldi afla sinn í Þýzkalandi
(Bremerhaven) 27/7, en
hann var 324 smálestir. Sex
smálestir af aflanum reynd-
ust ónýtar. Þá seldi togarinn
Yörður í Hamborg 26. júlí,
285 smálestir.
Brezkt herskip,
Mariner, kom hingað til
Reykjavíkur i gærmorgun.
Togarinn Bjarni Ólafsson og
Skeljungur komu í fyrrinótt.
Júpíter
fór í slipp hér í gær, og
verður hotn togarans hreins-
aður og málaður.
Hvar eru skipin?
Eimskip: Brúarfoss er í
Leith. Fjallfoss fór í gær-
kveldi frá Hamborg til Ant-
■werpen. Goðafoss er i Nexv
lYork. Lagarfoss kom til
Leith i morgun frá Gauta-
borg. Reykjafoss fór frá
Reykjavík í gærkveldi til
Hull. Tröllafoss er i Reykja-
vík. Selfoss er í Hull. Horsa
er í Keflavik. Southernland
fór frá Hull í fyrrradag, á-
leiðis til Reykjavikur.
Reíkisskip: Hekla er á
Akureyri. Esja er í Glas-
gow. Súðin er í Reykjavík.
Herðubreið fór frá Reykja-
vík um hádegi í dag. Skjald-
breið er á Húnaflóa, á norð-
urleið. ;]
- 1
Skip Einarssonar & Zoéga:
Foldin og Vatnajökull eru i
Reykjavík. Westhor er á
Vestfjörðum og lestar fryst-
an fisk. Lingestroom er á
förum frá Antwerpen um
Amsterdam og Hull til
Reykjavíkur.
Um 100 manns
biðu bana í
Ludwigshafen.
I morgun logaði ennþá í
rústum hinnar miklu verk-
smiðju IG Farben, er sprakk
í loft upp í Ludwigshafen í
fyrradag í
I Var þetta geysistór byggf
ing, 6 liæðir og mjög. mikil
um sig. Um 100 manns fór-
ust i sprengingunni, en hátt
á annað þúsund manns særð-
ust meira eða minna.
Ludwigshafen er á her-
námssvæði Fralvka og brugðu
Frakkar þegar við og sendu
aukalest á vettvang, búna
lyfjum og sjúkragögnum.
Franskt, þýzkt og bandarískt
slökkvilið kom þegar á slys-
staðinn og hefir unnið að því
síðan að slökkva eldana í
.rústunum.
Anglýsingar
sem birtast eiga í blaðinu á laugardög-
um í sumar, þurfa að vera komnar til skrif-
stofunnar >
eigi síðar en hL 7
á föstudögum, vegna breytts vinnutíma
á laugardögum sumarmánuðina.
Islenzk ull
Batnanæriöt
Ford 10
nýlegur til sölu.
Uppl. á Óðinsgötu 30
A. Sími 7772 i dag og
á morgun.
Sendibílastöðin
Sími 5113
er ný bílastöð, sem byður yður til leigu yfirbyggða,
hentuga sendiferðabíla til ýmsra flutninga.
Athugið að nota þessa bíla — það borgar sig.
Geýmið auglýsinguna.
Síminn er 5113.
DAGSKRA
Fríhelgi verzlunarmanna, daganna
31. jiílí, 1. og 2. ágiíst 1948
Laugardaginn 31. júli
I TlVOLI (Á LEIKSVIÐINU):
Kl. 17,00 Hátíðahöldin sett (Baldur Pálmason)
— 17,20 Óperettulög (Svanhvít Egilsdóttir og Kristján Kristjánsson)
, — 17,40 Upplestur (Lárus Pálsson)
— 21,30 Harmonikuleikur (Jan Moravek)
— 21,50 Flækingarnir (Spaugilegir trúðleikarar)
— 22,50 Hawaii-kvartett og öskubuskur
— 23,10 Kabaret í 3 atriðum (Red Barbakoff o. fl.)
I TlVOLI (VEITINGAHUSINU ):
— 15,00 Sígild hljómlist
— 22,00—2 Dansleikur (5 manna hljómsveit J. Moravek’s)
Sunnudaginn 1. ágúst
Kl. 11,00 Messa í Dómkirkjunni (Biskup Islands, herra Sigurgeir Sigurðs-
son, predikar. — Síra Garðar Þorsteinsson þjónar fyrir altari)
(Kl. 10,45 verður gengið undir fána félagsins frá Verzlunar-
mannahúsinu til kirkju).
1 TlVOLI (Á LEIKSVIÐINU):
Kl. 16,00 Slavnesk hljómlist (Hljómsveit Jan Moravek’s)
— 16,20 Leikþáttur (Jón Aðils, Ævar Kvaran og Erna Sigurleifsdóttir)
— 21,30 Hljómlistar-kabarett (Jan Moravek o. fl.)
— 21,50 Flækingarnir (Spaugilegir trúðleikarar)
— 22,50 Leikþáttur (Jón Aðils, Ævar Kvaran og Erna Sigurleifsdóttir)
—< 23,10 Hawaii-kvartett og öskubuskur
I TlVOLI (VEITINGAHUSINU):
— 15,00 Sígild hljómlist
— 22,00—1 Dansleikur (5 manna hljómsveit J. Moravek’s)
IViáiuidaginn 2. ágúst
1 TÍVOLI (A LEIKSVIÐINU):
Kl. 16,00 Flækingarnir (Sþaugilegir trúðleikarar)
— 16,20 Einleikur á píanó (Einar Markússon)
— 21,30 Flækingarnir
— 21,50 Lúðrasveit Reykjavíkur leikur
— 22,40 Hawaii-kvartett og Öskubuskur
— 23,00 Upplestur (Brynjólfur Jóhannesson)
— 0,30 Flugeldar
1 TlVOLI (VEITINGAHCSINU):
— 15,00 Sígild hljómlist
— 22,00—1 Dar.sleikur (5 manna liljómsveit J. Moravek’s)
Aðgöngumiðar að dansleikjunum eru seldir í skrifstofu félags-
ins, Vonarstræti 4, til hádegis á laugardag. Það sem óselt kann
að vera þá, verður selt í T í v o 1 i.
n