Vísir - 04.09.1948, Page 4
4
V I S I R
Laugardaginn 4. september 1948
1 DAGBLAÐ
Ctgefacdi: BLAÐAtJTGÁFAN YISIR H/F<
Kltetjórar: Krlatján Guðlaugsson, Hersteinn PáLse&a.
Skrifstcfa: Félagsprentsmiðjunni.
Mgreiðsla: Hverfisgötu 12. Símar 1660 (fimm iínnr).
Félagsprentsmiðjan h,f,
Lausasala 50 aurar.
Viiþnrrð og vöruskortui.
Hér í blaðinu var fyrir skömmu rætt um þá vöfuþurrð,
sem farin er að gera vart við sig í landinu og virðist
fara vaxandi með mánuði hverjum. Var á það bent, að
margar almennar neyzluvörur væri með öllu ófáanlegar
og þessi vöruskortur stafaði ekki sízt að því, að hlutl’allið
í irinflutningi milli „kapitalvara“ og neyzluvara væri orð-
ið mjög várhugavert. Skortur væri á hinum síðarnefndu,
er gæti haft alvarlegar afleiðingar og takmörk væri fyrir
þvi hversu mikium hluta gjaldeyrisins væri varið til inn-
fiutnings „kapitalvara'1.
Alþýðublaðið þoldi ekki þessa bersögli vegna þess að
gjaldeyfis og innflutningsmálunum er stjórnað af ráð-
herra Alþýðuflolcksins. 'Setti það strax af stað leiðara
með fynrsögninni „Meira glingur, en færri togarar“. Er
þar ráðist að Vísi á mjög dóígslegan hátt, er sýnir, að
Alþýðublaðið hefur misst alla stjórn á skapsmununum.
Segir hlaðið að sfáðhæfingin um vöruskortinn sé upp-
spuni og til þess eins komið á framfæri, að hægt sé að
fá innflutningsleyfi fyrir vissum vörutegundum, en það
séu þær vörutegundir, „sem menr.irnir er kosta útgáfu
Vísis, Ieggja mesta áherzlu á að flytja inn í landið og
selja“. — Margir vissu áður að Alþbl. er illa á vegi statt
að því er skynsamlegt vit snertir, en þar virðist nú um
algera vitþurrð að ræða. Blaðinu til upplýsingar má geta
þess, að útgáfa Vísis er ekki kostuð af neinum sérstökum
mönnum. Dtgáfan er kostuð af lesendum, sem eru um
helmirigi fleiri en lesendur Alþýðublaðsin». Vísir hefur
aldrei sótt um né fengið nokkurn styrk frá erlendum
aðihun og er það meira cn ýmsir aðrir geta talið sér til
gildft.
Fáviska Alþbl. i innflutningsinálurium er ekkert nýtt
fyrirbrigði. En í þetta skipti gerfr blaðið sig að athlægi,
vegna þess að hinn pólitíski taglhnýtingsandi er svo rikur
í því, að það telur sér skylt að hælbíta þá sem gagnrýna
framkvæmdir er heyra undir ráðherra Alþýðufiokksins.
Blaðið segir að Islendingar lifi við alsnægtir. „Það eru til
þjóðir sem búa við skort á matvæknn og fatnaði, en Is-
lendingar eru sem betur fer ekki í þeirra hópi“. Ennfrem-
ur segir blaðið: „Vísir er alveg óhætt að leggja niður önn-
ur cins fíflalæti og þau að reyna að tclja lesendum sínum
trú um, að hann sé að hugsa um að skóa og klæða alþýðu-
manna, þegar hann fer með fals eins og það, að þjóðin
þurfi að fá fleira en „varanleg verðmæti“ til landsins“.
Þannig geta ekki skrifað aðrir en andlega volaðir.
Vill ekki Alþbl. spyrja sjómennina okkar um það
livernig þeim gangi að fá vinnuvetlinga og sjóstígvél. Þetta
er hvortveggja ófáanlegt og ástandið hefur verið þannig
undanfarið, að legið hefur við borð að sjómennirnir hafi
orðið að fara herhentir á sjóinn. — Vill ekki blaðið spyrja
einhverjar alþýðukonur um það, hvernig þeim gangi að
fá skó á börnin sín, einkum þau yngri. Vill það elcki líka
spyrja Jiær hvernig þeim gangi að l'á tvinna, sokka léreft
í rúmfatnað, handklæði, eða efni í algengustu kjóla? Allt
er nú þetta ófáanlegt. Ef blaðið vildi ómaka sig til þess
að láta líta inn í stærstu vefnaðarvöruverzlanirnar i bæn-
um, Jiá mundi J)að komast að raun um að flestar hyllur
eru tómar. Það sem J)ær hafa að selja er ósamstæður
tíningur, og þær tegundir sjást ekki, sem mest er þörf
fyrir. Vafalaust telur Alþbl. ekki mikla þörf á því að
ahnenningur geti hreinsáð í sér tennurnar enda hefur
tannkrem verið ófáanlegt um langt skeið.
Svona mætti lengi telja og sýna fram á fáfræði Alþbl.,
sem er svo mikil að hún getur aðeins jafnast við illgirnina
í ritsmíð J)ess. Blaðið J)ykist ætíð hafa einkarétt á ])ví að
rita fyrir aíþýðufÓlk, vegna þess að það vill eitt hafa
áhrif á skoðanir þess. Vísir hefur ekkert á móti J)ví að
Alþbl. haldi áfram að skril'a um „allsnægtirnar" fyriy
alþýðu manna. Ekkert mundi betur opinbera andleg ör-
hirgð þess.
Til umhugsunar:
Menry Wallace. - Framfaraflokkiirmn
ameríski. -
Varaforsefaefns skemmflr. - Kommiin-
Isfar bjoða fram. ~ Anðmaðurinn Wallace
Kommúnistar dá fátt, sem
amerískt er, nema — eins og
sakir standa — Henry Wall-
ace og fylgismenn hans, sem
flestir eru kommúnistar.
En Wallace heitir vitanlega
ekki. kommúnisti á þeirra
máti, hann er bara viðsýnn
og frjálslyndur stjórnmála-
maður, sem séð hefir þau
augljósu Sannindi, að Rússar
hafa alltaf á réttu að standa
og Vesturveldin þar af leið-
andi alltaf á röngu, því að
varla geta háðir dciluaðilar
i máli lialdið fram réltum
málstað.
Wallace er líka einn þeirra
manna, sem telja sjáll'a sig
algóða og að allir aðrir haldi
upp ofsóknum gegn þeim. —
Það er sama „manían“ og
kemur fram, er kommúnistar
hakla að það sé ofsóknir á
liendur Sovétríkjunum, þeg-
ar spyrnt er gegn því, að þ.au
gleypi öll völd í fleiri lörid-
Urii en þau hafa þ.egar gert.
'Ar
Þegar þing republikana og
demokrata stóðu yfir í sum-
ar, birtu Þjóðviljinn fjálgleg-
ar lýsingar á skrípaleik þcim,
sem þar liefði átt sér stað,
strípaðar stelpur hefði verið
að spígspora um þingsalinn
og þar fram eftir götunum.
Hinsvegar bilaði fréttaþjón-
ustan, þegar fylgismenn
Wallaces tóku uþp á saraa
fjára og vitanlega var þess
ekki getið, að Glen Taylor,
sem cr varaforsetaefni Fram-
faraflokksins (Þjóðviljinn
kann ekki yið Eramsóknar-
| flokksnafnið), skemmti þing-
heimi með söng og dúlli.
! Önnur blöð hér hafa því
' miður ekki gert þcim stór-
' viðburði eins góð skil og
J Þjóðviljinn og er það vitan-
lega til skammar. Kemur
þar til greina, að þau gera
sér ekki sömu vonir og Þjóð-
viljinn um að geta haft áhrif
á kosningarnar vestan liafs,
hafa og samúð með liinúm
villuráfandi sauði, sem
glæpzt hefir i framboð fyrir
einn flokkinn, Henry Wall-
ace. Telja þau þögnina geyma
liann bezt.
En rétt er að geta uffl sitt
af hverju, sem fram fór á
stofnþingi Wallace-flokksins,
því að þau atvik varpa sterku
ljósi á það, hverjir eru þar
innstu koppar í búri. Eitt
var það lil dæmis, að sam-
þykkt var að „einfaldurj
meirihluti “ nægði til að á-
kveða stefnu flokksins, er
miðstjórn hans kæmi saman.1
Þetta er ákaflega þægilegt,1
því að þá geta til dæmis
tveir eða þrír kommúnis.tar
ráðið öllu. Yar umræðum um
þetta hraðað eftir mætti af
kommúnista þeim, sem var í
sæti fundarstjóra og at-'
kvæðagreiðslan afgreidd með
methraða.
★
Hægri liönd fundarstjór-
ans var maður að nafni
William Gailmore, þekktur
kommúnisti. Hann var lát-
inn stánda fyrir samskotum
fyrir flokkinn á þinginu, en
er annars þekktur fvrir að
vera dæmdur hílþjófur. —
Skömmu eftir bilþjófnaðinri
var hann tekinn úr umferð
og lagður inn í geðveikrahæli
til alhugunar. Nú virðist
hann „hafa fundið sjálfan
sig-“
Einri helzti ræðumaðurinn
—■ sá sem flutti stefnuræðu
flokksins — heitir Viío
Marcantonio. Hann er eini
kommúnistinn, sem situr á
þingi í Bandarikjunum og
stjórnar félagi því, sem
vinnur fyrir liann i kjördæmi
hans í New York, líkt og
einræðisherra.
★
Hámark sínu náðu skrípa-
lætin á þessu kommúnisla-
J)ingi, þegar Glen Taylor hélt
ræðu og kvaðst fús til að
vera í kjöri fyrir flokkinn.
Að ræðu sinni lokinni lióaði
hann saman fjölskyldu sinni,
konu, þrem kprnungum
drengjum og bróður sínum
og öll hersingin „gaf númer“,
sem var fólgið i að syngja
sönginn „When you were
sweet sixteen“.
Litlu síðar kom Wallace
sjálfur akaridi eins og róm-
verskur sigurvegari i opinni
bifreið og hélt ræðu. Kenndi
hann stjórn Bandaríkjanna
um allt milli himins og jarð-
ar, scm illa færi, en blakaði
ekki við Rússum, erida hefði
það verið hin mesta góðgá og
hann liklega fengið á bauk-
inn fyrir, hefði hann gerzt
svo djarfur og sjálfstæður,
Frh. á 6. s.
Útvarpið í kvöld.
19.25 Veðurfregnir. 19.30 Tón-
leikar: Sanrsöngur (plötur). 20.30
Útvarpstríóið: Einleikur og tríó.
20.45 Upplestur og tónleikar: a)
Bókárkafli: „í grýtta jörð“ eftir
dósent les). b) Rvæði (Ævar R.
Bo Giertz (Sigurbjörri Einarsson
Kvaran leikari les). c) Smásaga
(Sigurður Skúlason magistcr
les). Ýms lög. 22. Fréttir. 22.05
Danslög (plöturj. — (22.30 Veð-
url'regnir).
í dag
er laugardagur 4. september, —
248. dagur ársins.
Sjávarföll.
Árdegisflóð var kl. 6,55 i morg-
un. Síðdegisflóð verður ld. 19.20
i kvöid.
Helgidagslæknir cr Þórarinn
Sveinsson, Rcykjavíkui-vegi 24,
sínii 2714. — Næturlæknir er í
Læknavarðstofunni, sími ■ 5030,
Næturvörður er í Laugavegis Apó-
teki. Næturakstur i nótt og aðra
nótt annast Ilreyfill, sínji 0633.
Meistarainót
Hafnarfjarðar í frjálsum íþrótt-
um yerður háð dagana 18. og 19.
september. Iveppt verður í 11 i-
þróttagrejnum. Það er' íþrötta-
bandalag Hafnarfjarðar, sem sér
um mótið.
Nýlega ;
tilkynnti Frandeiðsluráð land-
búnaðarins verðlækkun á ný- (
slátruðu dilkakjöti. Verð þess er
nú lcr. 15.85 pr. kg. í smásölu.
í fyrrakvöld
komu fjórir af íþróttamönnun-
um, sem dvalið liafa að undan-
förnu á Norðurlönduni, liingað
til Reykjavíkur. Iþróttamennirn-
ir eru': Finnbjörn Þorvaldsson,
Sigfús Sigurðsspn, Óskar ffóns-
son og Torfi Bryngeirsson. —
Þeir Clausens-bræður eru vænt-
anlegir um miðjan mánuðinn.
Norræna myndlistarsýningin
verður opnuð ld. 4 í dag lyrir
almenning. Kl. 2 opnar Forseti
íslands, berra Sveinn Björnsson,
sýninguna.
í fyrradag
hófst fundur Stéttarsambajids
bænda að Reykjaskóla í Hróta-
firði. 48 fulltrúar sitja fundinn,
auk stjórnar sambandsins og
;'nokkurra gesla.
A bæjarstjórnarfundi
í fyrradag kom tillaga þcss
efnis, að loka injólkur- og brauða-
J)úðum kl. 4 á laugardögum og
siinniidögum allt- árið. Tillögunni
var visað til bæjarráðs.
Nemendur
i skólagörðum Reykjavíkur eru
bcðnir að koma í garðana við
Löngublíð kl. 1 e. h. á mánudag
til þess að taka upp kartöflur.
Brúðkaup.
í dag verða gefin saman í
Iijónaband, Lára Kristinsdóttir,
Ránargöfu 32, og Valtýr Ludvigs-
son, rafvirkjamcistari, Tjarnar-
götu 10. Heimili þeirra verður í
'i ‘jarnargötu 10.
Utanríkisráðuneytið
befir afhent Slysavarnaíélagi
íslands peningaávísun að upplneð
kr. 4.229,00, fyrir hönd norska
sendiráðsins í Reykjavik, en upp-
bæð þessi er gjöf til Slysavarna-
félags ísiands frá áhöfnum ellefu
norskra síldveiðiskipa og er ætl-
ast til að fénu verði varið lil
kaupa á björgunarflugvél fyrir
Slysavarnáfélag íslands.
Messur á morgun.
Dóipkirkjan: Messað á morgun.
kl. 11 f. h., síra Jón Auðuns.
Fríkirkjan: Messað á niorgim
kl. 2 e. b., síra Árni Sigúi’ðsson.
Lúðrásveitin Svanur
(eiluir á Arnarhóli i dag kl. 4
cf veður ieyfir.