Vísir - 09.12.1948, Page 5
Fimmtudaginn 9. desember 1948
V I S I R
5
bækur til jólagjafa
OSe Muií E&esfflur
tii Ésslamds
I dag kemur í bókabúðir, bólc um norska fiðlusnillinginn
Ole BuH, eftir Zinken Hopp í Jjýðingu ’Skúla Skúlasonar rit-
stjóra.
Bókin heitir
OSe SSmiS
og segir frá hinum ævintýralega lífsferli hins mikla norska
meistara.
Ole Bull dvaldi langdvölum fjarri íosturjörð sinni, en í list
sinni var hann þjóðlégastúr allra. Cr fiðlunni seiddi hann
fram vísumar, sem ainma haiis söng fvrir hann ungan, stef
ofan úr fjalladölum, visur um liuldufólk og galdra, og fríðar
meyjar og gauka, sem gólu í grænum hlíðum.
1 þessari bók leitast höfúndurinn við að lýsa Ole Bull eins og
hann kom samtíð sinni fyrir sjónir, hvers virði hann var
Jieim andans stórmcnnum, sem kúnnu að meta hann, og þeinj
smáu, sem aðeins gátu gónt á hann -— þetta heimsstirni,,
snilling, töfrandi, með allar sínar tiltektir, demanta, kvenfólk,
óhöpp, hjartagæzku — frægasta manninn í Noregi og norsk-
astan allra
Þetta @r ftelilaiidl rémaistísk ævisaga um
óviSjafnanlegan smlling ®g ævintýramaxm.
Eyfellskar sagnir
Skráðar af Þórði Tómassjmi í Vallnatúni.
f þessari bók er sagt frá mönnum og atburðum síðastliðinnar aldar undir Evja-
fjöllum og viðar.
★
Aðalstoðir sínar á hún í munnlegum frásögnum, en einnig er leitað í skjallegar
heimildir efninu til eflingar.
★
Eyfellskar sagnlr cr bók, sem mun skipa virðulegan scss við hlið þeirra bók sem út
hafa komið á síðari árum um þjóðleg fræði.
ic
Þetta er bók, sem segir frá alþýðuíólki, er skráð af alþýðumanni og ætluð íslenzkri
alþýðu. Húh er ein-af þeim taugum, sem binda umsvifamikla nútíð við sérkennilega
fortíð.
★
Bókamenn ættú að tryggja sér eintalc strax, því reynzlan hcfir sýnt, að allar hækur
um þjóðleg fræði hverfa fljótt úr bókabúðum.