Vísir


Vísir - 26.08.1949, Qupperneq 2

Vísir - 26.08.1949, Qupperneq 2
2 V 1 S I R Föstudaginn 26. ágúst 1949 Föstudagur, 26. águst, — 238. dagtir drsins. Sjávarföll. ÁrdegisflóÖ kl. 7,50 — síð- degisflóö kl. 20.10. Ljósatími bifreiöa og annarra ökutækja er frá ar.oo—4.00. Næturvarzla. Nœturlæknir er i I /æknavarö- stofunni, sími 50,30, næturvörö- ur er i LyfjaBúöinni Iöunni, sími 7911. næturakstur annast Hreyfill, sími 6633. Sænska ríkisstjórnin hefir skýrt frá ])ví, aö hún muni veita íslenzkutn stúdent stvrk til háskólanáms í Svíþjóö næsta vetur eins og a'ö undanförnu. Nemttr styrkurinn 3000 sænsk- tim krónum, auk 300 s.kr. í ferSastyrk. — í satnráöi viö til- lógttr háskólaráös, hefir menntamálará'öuneytiö mælt me'Ö því, aö Andrés. Ásmtmds- son hljóti stýrkinn til náms í læknisfræSi viö Karólinska Institutet í Stokkhólmi. mrn ; Skipaður fulltrúi. Þann 16. ágúst 1949 v.ar Páll Asg. Tryggvason skipaöur til aS vera fulltrúí 1. flokks í ut- anríkisráSuneytinu frá 1. sept. 1949 aS telja, Valur—Vikingur 1:1. í fyrrakvöld fór fram annar leakur i seinni umferS Reykja- víkurtneistaramótsins og kepptu þá K.R. og Valur. Leikar fóru þannig, aö jafntefli varS 1:1. Hjúskapur. f gær voru gefin saman í hjónaband ungfrú Sigrúu Þor steinsdóttir (Siggeirssonar heitins, fyrrv. bankagjaldkera) og Jón Jónsson (Jónssönar prófasts aö Sethergi). FaSir hrúSgumans gaf hrúðhjónin saman. Heimili þeirra verSur aS Mávahlíð 1. Borgarlæknir flytur. Skrifstofa Borgarlæknis, er fhitt úr Austurstræti 16 í Aust- urstræti 10, 4. hæð. Hvar eru skipin? Eimskip: Brúarfoss kom til Sarpsborg í fyrradag frá Rvík. Dettifoss fór frá Akureyri 23. h. m. til Kaupmannahafnar. Fjallíoss fór frá Reykjavík 22. h. m. til London.■Goðafoss kom til Reykjavikur 23. þ. m. frá New York. Lagafoss kotn til TIull í fvrradag frá Rotterdam. Selfoss kont til Patreksfjarðar í gær. Tröllafoss fór frá Rvík 17. þ. tn. til-New York. \’atna- i(jkull kom til Reykjávíkur 22. þ. m. frá Löndon. Ríkisskip: Hekia er í Rvík. Esja kom til Reykjavíkur í gærkvöldi aö austan og norðan. Herðuhreið kom til Reykja- víkur í gærkvökl frá Vest- fjörðum og Breiðafirði. Skjakl- hreið kotn til Reykjavíkur i gærkvöld frá Austfjörðum. Þyrill var á Raufarhöfn í gær á atisturleiö. Skip Einarsson &: Zoéga: Foldin er í Reykjavík. Linge- stroom er á leiö frá Amsterdam til Færeyja, Flugi'ð: Flugfélag íslands: Innanlandsflug: I dag eru á- ætlunarferðir til Akttreyrar (2 ferðir), Vestmannaeyja, Kefla- vikur, Fagurhólsmýrar, Kirkjtt- bæjarklaustuGs, Hornafjaröar og Siglufjarðar. Á tnorgtm verðttr flogið til Akureýrar (2 ferðir), Vest- tnannaeyja, Keflavíkur (2 ferðir), Blöndttóss, ísafjarðar og Siglufjarðar. í gær voru farnar tvær ferðir til .Akttreyrar, tvær til Vest- matmaeyja og ein til Siglu- fjárðar. Millilandaílug: Gullfaxi, millilandaflugvél Flugfélags ís- lands, er væntanlegur frá Osló kl. 17 í dag. Flugvélin fer k.l. 8,30 í fyrramálið til Kattp- mannahafnar. Loftleiðir: í gær var fjogið til Vest- maniiaeyja (2 ferðir), Akur- evrar og Sands. Frá Akureyri var flogiö til Siglufjarðar (2 ferðir) og ísafjarðar. í dag er áætlað að fljúga til Vestmannaeyja (2 ferðir), Ak- ureyrar, ísafjarðar, Patreks- fjarðar. Bíldudals, Þingeyrar og Flateyrar og frá Akureyri til Siglufjarðar. Á morgun er áætlað að fljúga til Vestmannaeyja (2 ferðir), Ákureyrar, ísafjaröar, Patreks- íjarðar, Siglufjarðar, Kirkju- hæj'arklausturs og Helltt. l lekla fór í morgun kl. 8 til Prest-wick og Kaupmanna- hafnar'. \’æntanleg aftur á mörgun. Geysir fór í tnorgtin kl. 8 til Stokkhólms. Væntanlegi á morgun. Fer annað kvöld til New York, fullskipuö íarþeg- um. Útvarpið í kvöld: 20,30 Útvarpssagan: „Hefnd vinnupiltsins" eftir \'ictor C’herhttliez; VI. lestur (Helgi Hjörvar). 21.00 Strokkvartett útvarpsins: Kvartett nr. iö í Es- dúr eftir Mozar.t. 21.15 Frá út- Jöndum (Þórarinn Þórarinsspn ritstjóri). 21.30 Tónleikar: Bo- ston Promenade hljómsveitin leikur (nýjar plötur). — 22.00 Fréttir og veöurfregnir. 220.5 \’insæl lög (plötur).,.22.30 Dag- skrárlok. Veðrið. Lægðin yfir Grænlandi er nú að mestu eydd. Skammt fyrir norðatt land er grunn lægð á hreyfingu í norðáustur. Veðurhorfur: Suðvestan gola eða kaldi, smáskúrir. Háskólafyrirlestur um Goethe. 1 Sunnudaginn 28. ágúst verða liðnar tvær aldir frá fæðingu Goethes. Véröur afmælis þessa minnzt i háskólánum með því, aö Gtmnar skáld Gunnarsson flytur þann dag fyrirlestur um Goethe í hátíðasalnum. —• Fyr- irlesturinn hefst kl. 2 stund- víslega og er öllnm heimill aö- gangur. j . Ms. Katla fór frá Alaborg í dag áleiðis til Kotka j Finnlandi. Reykt síld er lostæti. Egill Steí'ánsson, kaup- maður á Siglufirði hefir að itndanförnu reykt talsvert af jsíld og er framleiðsla hans hið mesta lostæti. Hefir Egill komið sér upp ágæiu reykhúsi, sem er 1 skammt frá söltunarslöðinni Suniiu á Siglufirði. Mikil eft- irspurn er nyrðra eftir þess- ari sild, enda er hún herra- manns matur, að því er „Siglfirðingur“ segir. . £kákih: Tit gaffns of/ ffamans • HrcAAgáta hr. 83 7 A B C U E F tt Skák nr. 29. .. .. . Hvítt mátar í 3. leik. Ráðning á skák nr. -/ - I. RÍ2—g4 Kg2—h3 2. Dl)2 ll2 g3xh2 3. Kg4—Í2 mát eða- I. RÍ2 g4 Kg2—hi. 2. Rg4—112 .... 3. D eða H mát eða I. RÍ2—g4 Kg2—Í3 2. Db2—03 S3S2 3. Dc2—d3 mát 0g loks 1. RÍ2— g*4 Kg2—f 1 2. —h8 • • • • "3. Ha8—ai mát. iit VUi fyrít 35 átum. Eftirfarandi fregn, sem hirt- ist í Visi hinn 26. ágúst árið 1914, vakti mikla athygli: ,;Synt úr Viðey. Á sunnudaginn var synti Ben. Waage verzlun- armaður frá Viðey að Kleppi og var hann aðeins 19 minútur á leiðinni. Bátur fvlgdi honum alla leiðina. Kalt var í sjónum og innstraumur. Er þetta því sérlega vel synt. Áður hefir Ben. Waage synt frá Effersey (1910) til lands á 12 mínútum og írá Engev (23. júlí 1912) á 59 mínútum. Það er lengsta sund, sem synt hefir verið hér viö land á siðari tim- um. Waage hefir verið veikur i fæti all-lengi og því ekki iðkað sund utn tima, en nýlega náði hann fullri heilsu og tók þá þegár til við sundið. Þtss má geta, að Waage hefir þreytt öll sín sttnd um háflóð og er það erfiðara.“ Ekki borga Rússar enn. Sfalin ætlar að athuga málið. Moskva. — Sendiherra Bandaríkjanna í Moskvu, Kirk flotaforingi, hefir spurt Stalin, hvenær Rússar muni greiða láns- og leigulagaskuld síiía. 1 Er það enginn smápening- ur, sem þar er um að ræða, ,J)vi að Bandarikin eiga 11 I milljarða dollara inni hjá Rússum fyrir hergögn og nauðsynjar,' sem þeir fengu á stríðsárunum, en liafa ekki 1 greitt neitt af og ckki svat að, þegar þeir liafa verið rukk- aðir. Kirk spurði einnig, hverju það sætti, að Rússar trufla útvarpssendingar Banda- rikjamanna tit Rússlands. Hét Stalin þvj að minnast á það mál við Vishinsky. (Sabi- news). Sundmennirnir Finnlandi standa sig vel. Sundflokkur Islendinga í Finnlandi stendur sig enn sem fyrr með miklum ágæt- um. Eftirfarandi fregn harst Vísi frá Iþróttasambandi ís- lands í gær: Finnlandsfararnir kepptu i fyrrakvöld í Ábo. — Úrslit urðu þessi: Sigurður Þingey- ingur sigraði í 200 stiku hringusundi á 2 mín: 47 sek. Atli Steinarsson varð annar á 2 mín. 55 sek. Ari Guðmunds- son var fyrstur í 100 st. skrið- J sundi á 1 mín. 1,8 sek. Ölafur j. Diðriksson var annar í 400 st. á 5 mín. 29,6 sek. og Hörður Jóhannsson varð annar í 100 st. baksundi á 1 min. 17,5 sek. — Loks sigraði sund- sveit íslands í 3x100 sh hoð- sundi (þrisundi) á 3 mín. 37,2 sek., sem er nýtt met. Fararstjórinn segir öllum líða vet. Sundkapparnir kóma lieim í næstu vikú. STEF undir eftirliti. Stef hefir nú tilkynnt, aö prókúrísti sænska Stefs komi hingað í næsta mánuði til aðstoðar uið störf íslenzka Stefsins. Segirí tilkynningunni, „að það hafi verið eitt af skilyrð- um fyrir upptöku íslenzka stefsins, að erlent systurfélag j annaðist ýmiskonar aðstoð .við starfrækslu félagsins, 'cnda allir gagnkvæmir samn ingar milli Stefjanna því skilyrði bundnir, að þau megi senda eftirlitsmenn hvert til annars." Sem sagt, að islenzka Stef- ið er þegar komið undir eft- irlit erlends Slefs, en flestir mundu heldur óska, að hið opinbera tæki upp rækilegt eftirlit með þvi. Lárétt: 1 Bjástra, 5 stikill, 7 ónefndur, 9 hár, 11 kjarkur, 13 dans, 14 dugleg, 16 frumefni, 17 mvlsna. 18 gúll. Lóðrétt: r Vanþakklæti, 2 tveir eins, 3 rö<ld, 4 eyðir, 6 hókstafurinn, 8 gagn, 10 fugl, T2 drasl; 15 sull, 18 ósamstæðir. Lausn á krossgátu nr. 837: Lárétt: 1 Vasast, 5 sló, 7 N. N., 9 tagl, 11 þor, 13 ræl, 14 öt- ul, 16 Si, 17 sag, 19 kilpur. I.óðrétt: 1 Vanþökk-, 2 S.S., 3 alt, 4 sóar, 6 elliö, 8 not, 10 gæs, 12 rusl, 15 lap, 18 G.U. Kreppir aö? Ef dæma má eftir síðasta lögbirtingablaði, sem út kom 20. þessa mánaðar, virðast allmargir Reykvíkingar komnir í ískyggileg fjárþrot. Borgarfógetinn auglýsir hvorki meira né minna en 45 nauðungaruppbpð til lúkningar opinberutn gjöld- um. Ekki er það alltaf miklar fjárhæðir, sem hér eru á ferðinni og upplioð skulu lialdin út af. T.d. er auglýst nauðungarupphoð' á éignum eins mímnsins í'yrir einum 200 krónum, en ann- ars allt upp í 20 þúsund krónur. — Á öðrum stað er svo getið um uppboð á eign- j um Halldórs Kiljans Laxness, • eins og dagblöðin hafa getið ; undanfarna daga fyrir upp- ! hæð samtals 224.811,00. LÉtsð fékkst í fiotvörpuna Nýlega reyndi m.b. Aðal- björg hina nýju dönsku flot- vörpu hér í Faxaflóa. Veiddist títið af sikl í nót- ina, enda þótt síldin liafi vað- ið milli bátanna. Er það eðli- legt þar sem varpan er ekki gerð þannig úr garði, að hægt sé að veiða i liana þann fisk, sem er við yfirborð sjávar. ^Jliiniar ÁÁc oái iöggiltur skjalþýdandi og dóm- túlkur i ensku. Hafnarstr. 11 (z. hæð). Simi 4824. A> .<ast allskonar þýðingar ur og á ensku.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.