Vísir - 29.04.1950, Blaðsíða 8

Vísir - 29.04.1950, Blaðsíða 8
Laugardag'inn 29. apríl 1950 Tito óskar eftir bættri sambúð við vestrænar þjóðir. Vilfi taka upp nána samvlnnu við Grikki. Allt bendir til pess að sam- búð Grikkja og Júgóslava muni fara batnandi á nœst- unni, en Tito marskálkur og einvaldur í Júgáslavíu hefir lýst yfir pví að hann óski eft ir pví að taka upp stjórn- málasamband við Grikki að nýju og sendi sendiherra til Apenu, en par hafa Júgó- slavar ekki haft sendiherra síðan 1940. Lýsti Tito yfir þessu í ræSu, er hann hélt í gær og sagði þá ennfremur aö frið- urinn á Balkanskága væri kominn undir góðri sambúð Grikkja og Júgóslava. Taldi hann þessar tvær þjóðir geta sameiginlega mestu ráðið um batnandi horfur meöal Balkanþjóöanna. Horfið frá einangrun. í London er litið svo á, að með þessari ræöu sinni, hafi Tito stigiö fyrsta skrefið frá einangrunarstefnu sinni og muni Júgóslavía á næstunni eiga nánara samstarf við vestrænar þjóðir. Engum blöðum virðist um það að fletta að ræða Titos er nokk- urt skref í friðarátt og líkur vera til aö önnur deilumál verði nú auðleystari svo sem Triestemáliö. Grikkir fagna. í Aþenu hefir gríska stjórnin lýst því yfir aö hún fagni því aö nú verði aftur komið á stjórnmálasam- bandi við Júgóslava. Um sambúðina við Sovétríkin sagði Tito að hann vildi reyna , að bæta hana, en benti aftur á móti á að Júgó slavar ættu nú miklu meiri viðskipti viö vestrænar þjóð- ir en þeir hefðu nokkru sinni átt við Rússa. Fá ekki að fara frá Listamannaþingið hefst í Þjóðleikhúsinu í dag. Listsýningln í Þjóðmirijasafn' inu opnuð kl. 4.15. Sjanghai. Frestað hefir verið brott- flutningi 2000 Bi*eta og Bandaríkjamanna frá Sjang- Itai, sem brezka skipið An- king' átti að taka þar. Samningar höfðu lcngi staðið yfir við komnuinistisk yfirvöld um að fólki þessu yrði leyft að fara frá Sjang- hai, en fullnaðarsamþykki hefir ekki fengizt enn þá. Listamannapingið verður sett í Þjóðleikliúsinu kl. 2 í dag, eins og Vísir hefir áður greint frá. Verður þá flutt tónverkið „Minni íslands“, eftir Jón Leifs og stjórnar höfundur- inn symfóníuhljómsveitinni, sem leikur. Þá verður þingið formlega sett og lýst kjöri forseta. Síðan flytur Björn Ólafs- son, menntamálaráðherra, ávarp. Síðan flytur Halldór Kiljan Laxness, rithöfund- ur, ræðu, en aö síðustu verð- ur þjóðsöngurinn leikinn. KI. 4.15 í dag verður svo opnuð listsýning í Þjóð- minjasafnsbyggingunni. Þar sýna verk sín 6 myndhöggv- arar, þeir Axel Helgason (í fyrsta sinn) Gunnfríöur Jónsdóttir, Magnús Á. Árna- son, Ríkarður Jónsson og Tove Ólafsson. Listmálararnir, sem þarna sýna verk sín, eru 27 talsins, og sýna þeir 1—4 myndir hver. Vekur það nokkura at- hygli, að fáir hinna eldri og þekktustu málara, eiga þarna verk á sýningunni, svo sem Kjarval, Ásgrímur, Jón Stefánsson, eöa Jón Þor- leifsson. Tíu arkítektar. sýna verk sín á sýningunni. Er þar um að ræða líkön og uppdrætti aö fyrirhuguðum bygging- um, svo og tillöguuppdrætti. Ennfremur sýna leiktjalda- málarar þarna í fyrsta skipti. Sigfús Halldórsson sýnir þar tillögur að Hamlet- leiksviöum, en Nína Tryggva dóttir sviðteikningar fyrir ballett. Um kvöldið verður hátíða- sýning, „íslandsklukkan“, eftir Halldór Kiljan Laxness, tileinkuð listamannaþing- inu. Kl. 2 e. h. á morgun verða fluttir hinir fyrstu tónleik- ar af sviði Þjóðleikhússins. Hefir sviðið verið sérstaklega útbúið vegna þeirra, stækk- að fram yfir hljómsveitar- grófina. Þá leikur Symfóniu- hljómsveitin undir stjórn þeirra Roberts Abraham, Jóns Leifs, dr. Páls ísólfsson- ar og dr. V. von Urbant- schitsch, verk eftir Karl O. Runólfsson, Jón Leifs, Jón Nordal, Jón Þórarinsson, dr. v. Urbantschitsch og dr. Pál ísólfsson. Einsöngvari með hljómsveitinni verður Guö- mundur Jónsson. Vísir mun síðan geta þess daglega, sem gerist á þessu þriðja listamannaþingi ís- lendinga. Gullfoss Hnefaleikamót íslands í gær. Míkill fjöldi áhorfenda sótti hnefáleikakeppnina að Hálogalandi í gœrkveldi, pá er fór fram Hnefaleikamót íslands 1950. Fyrst fóru fram 3 sýning- arleikir drengja úr Ármanni og K.R. Fóru leikir þessir vel fram. Síðan hófst aðalkeppn in og hófst á keppni í flugu- vigt milli Birgis Egilssonar K.R. og Gísla Sigurhansson- ar K.R. og vann Birgir auö- veldlega leikinn, sem var ekki fallegur. í fjaöurvigt sigraði Guðbjartur Kristins- son K.R. Sverri Sigurösson K.R. Léttvigt: Gissur Ævar Á. sigraði Sigurð Jóhanns- son, sem varð að hætta eítir fyrstu lotu vegna óstöðvandi blóðnasa. í léttmillivigt hafði verið búist við hörðum og jöfnum leik milli Jóns Noi’ðfjörðs og Björns Eyþórs sonar, en þaö fór á aðra leið. Sýndi Björn mikla yfirburði og sigraði Jón auöveldlega. Birgir Þorvaldsson K.R. varð meistari í millivigt og sýndi hann sem fyrr ágætan hnefaleik og drengilegan. Virðist hann að ýmsu leyti af öllum öðrum hnefaleikur- um í hvaða flokki sem þeir eru. Birgir átti við Kristján Pálsson, K.R., og átti alls kostar viö ann, en beitti sér ekki meir en þurfti. í léttþungavigt sigraöi Grétar Ái’nason Í.R. Alfons Guömundsson eftir jafnan og góðan leik. Fraiah, aí 1» sffe, Jakob Möller sendiherra var þarna með leikhúsblæ í huga, Jon Krabbe kominn mitt úr önnum dagsins. GGuðmundur Vilhjálmsson og husfreyja hans komin til þess að veita skipinu við- töku fyrir hönd Eimskipafé- lagsins. Dithmer framkv,- stjóri B & W sem afhenti skipið og hélt hlýlega ræðu fyrir minni íslands og Eim- skipafélagsins. Ég kann ekki að greina nöfn allra sem þarna voru staddir en þar var „jónótt“ mjög, auk Jóns Krabbe var þarna kominn Jón Sveinbjörnsson fyrrver- andi konungsritari, Jón Helgason prófessor og Jóxi Guðbrandsson framkvæmda stjóri Eimskipafélagsins í Kaupmannahöfn. FuUtrúar allra íslenzku dagblaöanna voru þarna staddir. Geir Að- ils fréttaritari útvarpsins, fulltrúar tllra stórblaða Kaupmannahafnar og vitan- lega fjöldi starfsmanna frá B & W. Meðan snæddur var hald- góður danskur miðdegis- verður voru margar ræður fluttar og vakti ræða skip- stjórans Péturs Björnssooax einna mesta athygli, hann talaöi jafn sköruglega á íslenzku, kvað skipin hafa verið fyrsta ástvaka sinnt húsfreyjuna annan. Ástin til beggja hefði haldist óbreytt. Meðan á ræðuhöldunum stóð voru fréttaritarar íslenzku blaðanna kallaðir upp í shna stöö einn af öðrum, vakti það mikinn fögnuö meöal margra landa, að viö skyld- um verða þess vísari, að á þessum degi væru hugir þeirra sem daglega hugsa fyrir allan fjöldann, bundnir við Gullfoss. Því miður láö- ist okkur að spyrja um veðr- ið heima á íslandi, en við vonum að sólin hafi ekki sett landið okkar hjá í dag. Klukkan 16.30 eftir dönsk- um tíma var danski fáninn dregínn niður og danski þjóðsöngurinn leikinn á með an, brátt blakti íslenzki fán- inn við hún og „Ó, guð vors lands“ var sungið. Lesendur munu þegar hafa séð lýsingu á Gullfossi og skal ég ekki endurtaka hana. Ef helmingur þeirra hamingjuóska, sem forráöa- mönnum Eimskipafélagsins bárust í dag eiga eftir aö ræt- ast, á Gulifoss eftir aö reyn- ast gulli betri. Meö honum höfum við náð hámarki í svip hvað glæsileg skip snertir en hann er ekki loka Minningarsjóður Öldu Mölier. Minningai'sjóði öldu Möll- er leikkonu hefur borizt 2400,oo kr. gjöf frá nokkx- um vinum leikkonunnar. 1 ávarpi um minningar- sjóðinn, sem birtist í dag- blöðum bæjarins við opnun Þjóðleikhússins stóð: ,,Er það von okkar að möi’gum verði kært að styrkja liann nokkrum fjárframlögum, því með þeim hæíti geta menn, hvorttveggja x senn, vottað mei’kilegri listakonu verð- skuldaðan heiður og lagt var- anlegt lið því málefni er hún bar fyrir brjósti“. En sjóðn- um er ætlað það hlutverk. að styrkja ungar og efnilegar leikkonur til náms og frama. Öll dagblöð bæjai’ins hafa góðfúslega lofað að veita gjöfum til sjóðsins móttöku og munu áskriftaiiislar liggja franuni á afgreiðslu dagblaðanna í Reykjavík og í bókabúðum á morgun og næstu daga. Utifundir leyfðir í Vestur-Berlin 1. maí. Hernámsstjóri Breta í Ber- lín tilkynnti í gær, að bann það, er Bi’etar höfðu sett við útifundum í hernámshluta sínum í borginni 1. maí, hefði verið látið niður falla. Jafnframt gaf liann þá yf- irlýsingu, að Bretar myndu eklci hverfa á brott frá Berlín með liðsafla simi, en senda þangað liðsauka, ef til þyrfti að talca. f sambandi við væntanlega útifundi í Berlín 1. maí og æsingafundi þá, er lcommún- istar hafa boðað til í Berlín urn livítasunnuna, sagði her- námsstjórinn, að hann teldi víst, að lögveglulið Yestur- Berlínar myndi geta lialdið uppi reglu í þeini borgar- hluta, en annars væri í ráði að senda liðsauka á vettvang loftleiðis. Ilinn 1. maí hefir verið leyfður úlifundur á brezka hernámsliluta Berlínar, skammt frá mörkum Austur- Berlínar. takmark. Traustar hendur íslenzkra sjómanna eiga von andi eftir að stýra þessu dýra skipi um mörg höf ís- landi til gagns og soma. Ó. G. Flugvélar og slcip leita nú brezka togarans Milford Vis- count en til hans hefir ekki spurzt í liálfan mánuð.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.