Vísir - 12.06.1950, Blaðsíða 1
40. árg.
Mánudaginn 12. júní 1950
129. tbl.
k 14. þúsund manns voru
á ÍbróttaveHinum í gær.
JLeiharat* ttfg bt-aöamenn
.-ÍB9t>hhiu~* hetur eu nahhr"
isa uös'iw* ípróttu(juB*purm
Aldrei lór það svo, að ekki yrði met sett á Iþrótta-
vellinum hér í gær, enda þótt þar væru ekki neinir veru-
legir afburðamenn að sýna listir sínar. En metið var
sennilega heimsmet, því að það mun hvergi þekkjast að 10.
hver maður heillar þjóðar, eða þar urn bil, komi saman til
að sjá ,4þrótta“-keppni.
Á laugardaginn voru þeg- [ Verölaunin voru eggjabikar-
ar seldir næstum 6500 miðar ar en annars voru eggin soð-
að Iþróttavellinum og annað
eins seldist á þeim hálfum
öörum tíma, sem aðgöngu-
miðasala fór frani áður en
leikurinn hófst í gær. Höfðu
verið prentaðir 10,000 tölu-
settir miöar, en þeir seldust
allir upp og meira en 3000
að auki.
Skemmtikraftarnir vöktu
allir hina mestu kátínu, þeg-
ar þeir gengu inn á völlinn
undir hljóðfæraslætti og fóru
heilhring til að kynna sig
áhorfendum. Síðan tók „al-
varan“ við og hófst hún á
setningar- og kynningar-
ræðu Haralds Á. Sigurösson-
ar, kynnis mótsins, sem
sagði kost og löst á hverjum
manni, sem við sögu átti að
koma.
Því næst hófst knatt-
spyrnukappleikurinn og
hlutu blaöamenn að leika
undan vindi, sem var all-
hvass. Lá alltaf á leikurum,
svo að bakverðir og mark-
maður blaðamanna höfðu
eiginlega ekkert að gera og
hefðu jafnvel mátt fara heim
án þess aö það kæmi að sök.
í hálfleiknum skoruöu blaða
menn eitt mark og gerði það
Sverrir Þórðarson, blaðamað
ur við Morgunblaðið.
í hálfleik fór fram eggja-
hlaup leikkvenna og varð
Edda Kvaran sigurvegari.
Skæmr á Celebes.
Skœrur liafa verið undan-
farið á Celebes-eyju í Indo-
nesíu milli hollenzkra og
indonesiskra hermanna.
Hefir einkum verið barizt
í og við borgina Macassar,
sem er stærsta borg eyjaiv
innar og hafa 32 hollenzkir
hermenn falliö, en að auki
hafa 100 óbreyttir borgarar
beðið bana.
in, til þess að engin þeirra
þyrfti að þola skort, þótt hún
kæmi seint í mark.
í hálfleiknum söng þjóð-
kórinn einnig — forsöngvari
Guðmundur Jónsson — og
Lárus Ingólfsson söng gam-
anvísur.
Þegar síðari hálfleikur
hófst, bjuggust margir við
því, að leikarar mundu leika
illilega á.þá, þar sem þeir
áttu nú að leika undan vindi,
en blaðamenn vörðust bæði
höfuðskepnunum og leikur-
um og var ekkert mark sett
í hálfleiknum. Tók Haraldur
Á. Sigurðsson þó vítaspyrnu
af alkunnri snilli, en knött-
inn bar af leið vegna veður-
hæðar og hefir það eitt senni
lega ’ bjargaö heiðri blaða-
manna.
Að leiknum loknum var
dregið í happdrættinu og
munu vinnendur allir hafa
gefið sig fram.
Veður var leiðinlegt í gær
og urðu áhorfendur því ekki
eins ánægðir með daginn og
ella, en það bakaði þeim
einnig nokkur vonbrigði, að
leikmenn virtust hafa ein-
hverja nasasjón af knatt-
spyrnu, en við því höfðu
menn almennt ekki búizt.
Myndir þessar voru teknar á kappleik leikara og blaðamanna í gær. Að ofan t. v.:
Leikari borinn út í yfirliði, Bjarni Guðmundsson sparka, Thorolf Smith með blóm-
vönd, er blaðamönnum barst. Neðri myndir: Þátttakendur í eggjaboðhlaupinu borða
eggin, Haraldur tekur vítispyrnu, þrjár blómarósir úr hjálparsveit kvenna. —
(Fótó.: Þorgrímur Einarsson).
ErrópuBtBeistuB'utnótiö i bridge:
fSLENDINGARNIR URÐU ÞRIÐJU
Innbrot og /i/óí'n-
nöur utn helginu.
IMiðursoðnum sviðum stoSið
í stórum stíl.
IHaður hverfur.
Óttazt er um, að Jón
Bjarnason, bóndi að Önd-
verðarnesi í Grímsnesi, hafi
drukknað í Hvítá s. 1. föstu-
dag.
Jón Bjarnason fór að heim-
an á föstudagskvöld til þess
að vitja netja. Er Jiann kom
ekki heim aftur, var farið að
leita Jians, en fannst ekld.
Ekkei t hefir spurzt til Iians
síðan. *,1 ,S£
Tvö innbrot voru framin
um helgina hér í bœnum.
Ennfremur var tilraun til
innbrots gerð á þriðja staðn-
um og loks var vörupalli af
bifreið stolið.
Aðfaranótt laugardagsins
var framið innbrot á skrif-
stofu Skipaútgerðar ríkisins
því að brotin var upp hurö
inn á skrifstofurnar. Farið
var þar í hirziur, en litlu
stolið.
í fyrrinótt var brotizt inn
í Matbarinn 1 Lækjargötu og
stolið þar um 40—50 dósum
af niðursoðnum sviðum, en
aðrir birgðir látnar aískipta:
lausar.
í fyrrinótt var einnig gerð
tilraun til þess að brjótast
inn í Pylsusöluna nýju í
Austurstræti en hún mis-
tókst.
Aðfaranótt laugardagsins
var stolið vörupalli af bifreið
með sætaútbúnaði frá Sölu-
nefnd setuliðseigna. Var pall
urinn geymdur ásamt ýmsu
bílskrani fyrir innan Elliöa-
ár, og lætur nærri að hann
hafi vegiö um 2 tonn. Það
mun því hafa verið útilokaö
að fjarlægja pallinn nema
með kranabíl, enda sáust
slík bílför aö staönum. Vill
rannsóknarlögreglan fá upp-
lýsingar um þetta, ef ein-
hverjir kynnu að hafa orðið
varir við þjófana og athæfi
þeirra.
Páli V. G. Kolka
héraöslækni á Blönduósi, hefir
veriti boSiö til Vesfurheims til
þess aö flytja þar fyrirlestra.
Þjóöræknisfélag íslendinga í
Vesturheimi býöur Páli, en
hann mun fara vestur i ágiist-
mánuði.
Magnús Hákonarson,
bóndi i Nýlendu á Miðnesi, er
sextug'ur i dag*
Bretar urðu
meistarar \ báð-
um flokkum.
Einkaskeyti frá UP.
Evrópumeistaramótinu í
bridge lauk í gœrkveldi og
urðu Bretar hlutskarpastir í
bœði karla og kvenna flokki.
Bretar og Svíar uröu samt
jafnir að stigum, fengu báö-
ir 14 stig, en þar sem brezka
sveitin sigraöi þá sænsku í
keppninni ' milli landanna
var þeim dæmdur sigurinn.
Þetta er í þriðja skipti, sem
Bretar bera sigur úr býtum
í Evrópumeistarakeppni í
bridge. Alls voru spilaðar 10
umferðir og unnu Bretar 7,
töpuðu þremur, en gerðu
aldrei jafnt. NiðurstaÖan hjá
Svíum varö nákvæmlega
eins, sjö vinningar, þrjú töo
og eitt jafntefli.
íslendingar þriðju.
íslenzka sveitin stóð sig,
með ágætum, en hún varö
sú þriðja í rööinni með 13
vinningsstig. Sveitirnar írá
Frakklandi og ítalíu fengu
Framh, á 8. síðu.