Vísir - 23.08.1950, Síða 2
y. i s i r
Miðvikudaginn 23. ágúst 1950
-:.u: yfá
’S
Miðvikudagur,
23. ágúst, — 235. dagur árs-
ins.
Sjávarföll-
ÁrdegisflóS kl. 2-35. — Síö-
degisílóö kl. 15-15.
Ljósatími
þifreifia og annarra ökutækja
er frá kl. 21.00 aö kvöldi til kl.
4-oo að morgni.
Næturvarzla
er í Læknavaröstofunni; simi
5030. Næturvöröur er í Lyfja-
bú'önmi Iöunrii; sími 7911.
B-mótið
í frjálsum iþróttum fer fram1
25. ágúst. Þá 'veröur keppt í 100
og 800 m- lilaupi, hástökki og,
langstökki, kringlukasti, kúlu-
varpi og stangarstökki.
Kvenfélag
Fríkirkjusafnaöarins fer á
morgtin í berjaför upp j Kjós.
Lagt veröur af >staö kl. 10 ár-
degis.
Vörubílstjórafélagið Þróttur
heldur fund i kvöld i liúsi fé-
lagsins. líefst hann kl- 8.30- Á
dagskrá er áríðandi mál.
Dr. IUrstine, Nolfi
flytiir fyririestur í kvöld kl.
20.30 í I.istamannaskálanum um
lækningar með hráfæöi. Verður
íyrirlesturinn túlkaður.
Tímarit tðnaöarmanna,
t• hefti 23. árg. er nýkomið
út- A kápusíðu er mynd af VI.]
yrkiskólaþinginu, sem háð var
í Reykjavík, 9—13. ágúst s. 1.
. surnar. Arinars er þetta m. a.
efni ritsins: Hugleiðingar iðn-
aðarmanns- Minningargrein um
Gunnar Gregersen, forstjóra
Teknologisk Institut í Höfn.
Helgi II. Eiríksson sextugur.
VI. norræna yrkiskólaþingið.1
Stjórnmálaáhugi iðnaðar-
manna* Vísisgreinin 10. desem-
■ber í vetur- Ellefta iönþing Is-
lendinga. Ennfremur eru í rit-
inu ýmsar fréttir um störf og
hagsniunamál iðnaðarmanna-
Ritstjórar eru Sveinbjörn Jóns-
son og Páll S. Pálsson.
Að gefnu tilefni
skal það tekið fram, aö ldaða
sú, sem kviknaði í á mánudag
og sagt var frá i blaðinu í gær,
er i Lágafellslandi, en ekki á
Lágafelli. Húsiö er í umsjá
Búnaðarsambands Kjalarnes-
þings, og er verið aö gera á því
breytingár, vegna starfsemi sem
þar á að reka á vegum Búnaðar-
sambandsins.
Hvar eru skipin?
Ríkisskip: Hekla er væntan-
leg til Reykjavíkur um kl. 9 í
dag frá Glasgow. Esja fór frá
Reykjavík kh 10 í gærkvöld
vestur um land til Þórshafnar-
Heröuhreið fer frá Reykjavík |
í kvöld austur um land til;
Bakkafjarðar. Skjaldbreiö fór
frá Reykjavík í gærkvöld til
Húnaflóahafna. Þyrill er í
Faxaflóa. Ármann. fór frá
Reykjavík i gærkvöld til Vest-
mannaeyj.
Eimskipafélag Rvíkur h-f.:
M.s. Katla er j Reykjavík.
Eimskip: Brúarfoss er í
Rvk. Dettifoss íór frá LIull 21.
ágúst til Rvk. Fjallfoss er i
Gautaborg. Goðafoss fór frá
Rvk. i gær til Akraness, Kefla-
víkur, Vestm.eyjá og austur um
land til Rvk. Gullfoss er á leiö
frá K-höfn til Rvk- J.agarfoss
fór frá Rvk. 19. ágúst til New
York. Selfoss fór væntanlega
frá Siglufirði i kvöld, 22. ágvist
til Svíþjóðar. .Tröllafoss er í
Rvk.
Útvarpið í kvöld;
20-30 Útvarpssagan: „Ketill-
inn“ eftir \Wlliam Heinesen;
XXII. (Vilhj. S. Vilhjálmsson
rith.) 21.00 Tónleikar (plötur).
2li-20 Staðir og leiðir: Frá
Grímsey; síðara erindi (Jónas
Árnason alþm.). 21-40 Danslög
(plötur). 22-00 Fréttir og veð-
urfregnjr. 22-10 Danslög (plöt-
ur) til 22.30.
t
Ferðalög á næstunni.
Um næstii helgi efnir Feröa-
skrifstofa ríkisins til tveggja
og hálfs dags ferðar í Þórsmörk.
Farið af stað siðari hluta laug-
ardags, ekið inn í Þórsmörk og
tjaídað þar. Á sunnudaginn
munu menn skoöa sig um þar
innfrá og meöal annars ganga
á Valahnúk. Á mánudaginn ek-
ið heim. Á sunnudaginn veröur
íarið að Gullfossi og Geysi og
beðið eftir gosi. Á heimleiðinni
ekiö um Þingvelli. Sama dag er
áætluð Þjórsárdatsferö. Ekið
vcröur inn að Stöng, farið það-
an í Gjána og aö IIjálparfossum-
Ennfremur er ráðgerð berja-
ferð aö Ferstiklu á Hvalfjárð-
arströnd á sunnudagsmorgun-
inn- Það skal tekið frarn, að
fólki er ekki leyft að nota tínur
við berjatínsluna-
Þjóðverjar
KAUPHÖLLIN
er miðstöð verðbréfaviÁ
skiptanna. — Sími 1710
Hótelkaffikanna
iil sölu, sem tekur 100
bolla. Uppl. í síma 80186.
Lárus Ingimarsson.
Til gagns og gamans
ifr Víái fyrir
30 árutn.
23. ágúst 1920 seg'ir Vtsir rri*
a frá þessu:
Sýning Ríkharðs Jónssonar í
barnaskólarium var mjög fjöl-
sótt í gær. Þar er margt að sjá,
málverk og teikningar, myndir
úr leir og eiri, smiðisgripir úr
tré og'. beini. Sýningin er í
tyeim herbergjmn og eru bæði
fullskipuð. Einna tilkomumest- ^
ar eru brjóstmyndir af Þor-^
valdi prófessor Thoroddsen og
Jóni biskupi Vídalín. Margir^
útskornti sntiðisgripirnir eru og
aðdáttnarlega vel gerðir.
Skipsstrand? Sú fregn barst
bingað i fyrradag til bæjarins,
að dönsk skonnorta befði
strandað í Vík i Mýrdal. Vísir
hefir engan hitt er viti sönnur
á þv>. Má vera að fregnin sé
tilhæfulaus.
Pólland- Barist var harðlega
i Póllandi. Unnu Pólverjar stór-
sigra, tóku 30—40 þús. íanga
0 g utnkringdu 6 herdeildir
bolsévika hjá Brest-Litovsk, en
þeirri Itorg höfðu Pólverjar náð
á sitt vald.
Nýja Bíó sýndi kvikmynd-
ina „Jerúsalem“ eftir hinni-
heimsfrægu skáldsögu Selnnt
Lágerlöf.
— £ntœlki —
Maður var tekinn fastur í
Los Angeles fyrir að greiða
kaupsýslumönnum með fölsk-1
um ávísunum. Hann bar frant
þá afsökun við dómarann, að
hann hefði ætlað að nota pen-
ingana til þess aö stofna sjóð,
sem ætti að vernda kaupsýslu-
menn og tryggja þá gegn íólki,
sem gæfi út falskar ávísanir-
KroAAqáta flK 1316
• 1 ■ L i Á
■ ■
■ ■
s ’ ■ 1»
IX ■
■ f
18 I \ ■
Þýzki íþróttafrömuðurinn
Carl Diem, sem nú er stadd-
ur hér á landi í boði
Iþróttanefndar I.S.I. og
U.M.F.I. lét eftir sér hafa í
blaðaviðtali fyrir skemmstu
í Frankfurt, að Þjóðverjar
jrrðu áreiðanlega keppendur
á Ólympíuleikjunum 1952,
bæði á vetrarleikjunum í
Osló og sumarleikjunum í
Helsingfors.
Hann gat þess einnig, að
keppendur yrðu aðeins menn
og konur, sem fæðst hafa
eftir 1931, þannig að útilok-
að væri, að nokkrir nazistar
kæmu fram fyrir Þýzkaíands
hönd á leikjunum.
—o—
Gaston Reiff hljóp nýlega
3999 m. hlaup á timanum
8:99,6.
Langá, neðra
veiðisvæði
Dagana 25.-39. ágúst eru
lausar 2 stengur. 3.—8.
september eru 3 stengur
lausar.
Á efra veiðisvæði eru
lausar 2 stengur 25.—39.
ágúst og 3.—8. september.
Sjóbirtingsveiði cr ágæt
fyrir Hraunslandi í ölfusi.
SKIPAUTGCRÐ
RIKISINS
M.s. Hekla
fer frá Reykjavik n.k. sunnu-
dagskvöld til Glasgow og
verður komið við í Thoshavn
í Færcyjum á heimleið. Þetta
er síðasta ferð skipsins til
Skotlands á þessu sumri.
Nokkrir pantaðir farmiðar,
sem ekki hafa verið sóttir,
verða seldir í skrifstofu
vorri í dag.
iP*
M.s. Dronning
Alexandzine
Næsta ferð skipsins til
Færeyja og Kaupmannahafn-
ar verður laugardaginn 2.
sept.
Pantaðir farseðlar með
þeirri ferð, óskast sóttir í
dag og á morgun.
Skipaafgreiðsla Jes Zimsen
Erlendur Pétursson.
Stúlka óskast
Veitingastofan Vega,
Skólavörðustig 3,
Sími 2423, eftir kl. 6.
Spánarviðskipti
Leðurskófatnað útvegum vér frá Spáni. — Sýnis-
horn fyrirliggjandi. Stuttur afgreiðslutími.
Friðrik Bertelsen & Co. h.f.
Sími 6620. Hafnarhvoli.
Eg gaf bóndanum óþvegiö
orð í eyra í dag. ITarin var tala
tæpitungu í barnaherberginu.
Æ, blessuð, láttu ekki þessa
s já 1 f skipuðu u ppel d i s f ræö i nga
vera aö segja þér fyrir verkum.
Þaö gerir engum meín þó tæpi-
tunga sé töluð við lítið barn.
Hann var ekki að tala við
barnið. Hann var aö tala viö
barnfóstruna.
Lárétt: i Meöal, 3 Biblíttnafn,
5 tónn, 6 tvíhljóði, 7 tímabil, 8
lézt, 10 götótt, 12 vond, 14
fugl, 15 livert og eitt, 17 hljóm,
18 árás.
Lóörétt: 1 Baröi, 2 þys, 3
hluti af Palestiriu, 4 þyngdarfl.,
6 mjög, 9 fús, 11 snáða, 13 þrír
eins, 16 tónn.
Lausn á krossgátu nr. 1115:
Lárétt: 1 Löt, 3 mús, 5 ós, 6
Ra, 7 íor, 8 tir, 10 farg, 12 róm,
14 tau, 15 nýt, 17 S-R., 18 mis-
tpk.
Lóðrétt: 1 Lómur, 2 ös, 3
Marat, 4 söngur, 6 rof, 9 róni,
11 Raslc, 13 mýs, ió tt.
Kveðjuathöfn
Helgu Guðmundsdóttur
er andaðist 20. þ.m. fer fram frá Dómkirkj-
unni, föstudaginn 25. þ.m. kl. 3^2* — Jarð-
arförin fer fram frá Stokkseyrarkirkju, laug-
ardaginn 26. þ.m. kl. 1,30.
Aðstandendur.
Þökkum innilega auðsýnda samúð við
andlát og útför móður okkar og tengdamóð-
ur og ömmu,
Jarðþrúðar Olsen
f. Oddgeirsdóttir.
Fyrir hönd vandamanna,
Jósefine Ölsen, Ottó Ólsen.