Vísir - 26.08.1950, Blaðsíða 1

Vísir - 26.08.1950, Blaðsíða 1
<0. árg. Laugardaginn 26. ágúst 1950 188. tbl. v* __ ffst í<ttsí sistitisfjjze s° í JBrikssel: þrefaldur methafi. Örn 2. í tugþraut, á nýju Islandsmeti. GUNNAR HUSEBY varS Evrópumeistari í kúhi- varpi og kastaði 16,74, sem er í senn íslandsmet, NörS- urlandamet og Evrópumet. Þetta kast lians er 33 clir. yfir hans eigin íslandsmeti, en 14 cln. yfir staðfestu Evrópumeti. Rússinn Lipp mun þó eiga óstaðfest Ev- rópumét 16.95 cm, Gunnar var alveg í sér- ílokki og í úrslitunum varp- aði liann kúlunni 5 sinnum yfir 16 metra, en þeir sem næstir honurn voru, komust rétt yfir 15 metra. í undan- keppni hafði liann þegar tryggt sér fyrsta sæti með 16.29 metra löngu kasti og hélt forystunni án samkeppni úr þvi. í öðru kasti í úrslií- unum náði hann bezta kast- inu 16.74 metra, en sá árang- ur telzt samkvæmt finnsku stigatöflunni bétri heldur en heimsmetið í langstökki, 100 m. hlaupi og e. t. v. fleiri greinum. Sá er næstur varð Gunn- ari varpaði kúltmni aðeins 15.16 metra og sá er varð nr. 3 náði 15.14 m. kastlengd. Annar bezli árangur ís- lendinga á EM-mótinu í gær var frammistaða Arnar Gíausen sem varð annar í tugþrautinn'i og munaði minnstu að hann yrði nr. 1. Yar hann stighæsti maður keppninnar all t fram til næst síðustu greinar Iiennar, spjótskastins, en þá kornst Frakkinn Heinrich fram úr honuin og har sigur úr být- um í samanlagðri keppni, hlaut 7364 stig, en Örn varð næstur með 7297 stig og Tánnander frá Sviþjóð þriðji með 7175 stig. Tugþrautarárangur þriggj a cl'stu mannanna í dág var sem hér segir: 110 m. grindahlaup: Clausen 15.1 sek., Heinrich 15.3 selí., Tánnander 16.0. selc. Kringlukasí: Clausen 36.20 m., Hein- rich 41.44 m., Tánnander 41.00 m. Stangarstökk: Clausen 3.40 m., Ileihrich 3.80 m. Tánnander 3.70 m. Spjótkast: Clausen 47.96 m., Hein- rich 53.31 m. Tánnander 50.00 m. 1500 m. hlaup: Clausen 4.49.8 min, Hein- rich 4:50.6 niín., Tánnander 4:59.0 mín. Tjórði í tugþrautinni varð Svíinn Widenfeldt er lílaut 7025 stig. Árangur Arnar er nýtt ís- lenzkt met. Það cfyrra var 7259 stig. Að vissu leyti má kalla daginn í gær dag íslands,, Morguninn leit aö vonum vel út fyrir landana., Gunn- ar Huseby varð fyrstur í undankeppni í kúluvarpinu með 16.29 metra löngu kasti. Örn bar sigur úr býtum í 6. grein tugþrautarinnar, þ. e., 110 metra grindahlaupi og hélt þá forystunni með 345 stiga mun, miðað við næsta mann, og loks tryggði Torfi sér sæti 1 úrslitakeppninni 1 langstökki meö því að verða þriðji í undankeppni og stökkva 7,20 metra. Ásmundúr Rjarnason hljóp í 200 metruhum og varð annar í sínum riðli á 22 sek. Ih'fir liann þar með tryggt sér sæti í milliriðli og verður keppt í honum i dag. í dag keppir riðill sá i 4x100 m. hoðhlaupinu, sem mesl var deilt um í gær og fyrradag út af ólöglegu Iilaupi eins Bhetans. Svo sem kunnugt er tryggðu íslend- ingar sér þar þriðja sætið ■ ■' Gunnar Huseby. Enn eru bardagar grimmi- egastir náiægt Taegu. M&iiBtatsín i&tar uis&snm tí se usiSBB'séuÍÞta íliaa sa L Frá Kóreu eru pœr fregn- ir helztar, að á Taegu-víg- stöðvunum hafa hersveitir SÞ gert gagnáhlaup og náð á sitt vald hæðardrögum nokkurum. Á norðurvígstöðvunum kom það fyrir í gær, að um 150 af her kommúnista, sem laumast höfðu að baki víg- línu SÞ-manna, voru hraktir inn á jarðsprengjusvæði, en þar var herdeild þessari eytt með vélbyssu- og riffilskot- hríð. Hið sama kom fyrir 1000 manna herdeild úr liði kommúnista á öðrum stað. Noröanmenn gerðu í gær harða skriðdrekaárás á her sveit úr her Suður-Kóreu- manna, sem hafði tekið sér örn Clausen. og þar með sæti í úrslitariðli. I úrslitunum verður keppt á sunnudaginn. í dag fer einnig fram úr- slitakeppni í langstökki og stangarstökki, og hefir Torfi tryggt sér sæti í báðúm þeim úrslitum. Hinsvegar er óvíst áð Torfi geti keppt í þeim háðum vegna þéss hve skammt verður á milli þeirra eða jafnvel að þær fara báð- ar fram samstimdis. Framh. á 8. síðu. Sprenging Fiat-smi5iu>num. Torino (UP). — Spreng- ing- varð í gær í bílaverk- smiðjum Fiat-félagsins hér í borg. Var sprengingin svo mikil, að nokkur hluti verksmiðju- byggjngarinnar cyðilagðist. Manntjón varð minna en ætláð vár. Biðu tveir mcnn bana, cn 15 slösuðust. Þó cr saknað niu manna að auki. A-sprengju- byrgi í New York. New York (UP.) — Svo gctur fadið, að lofjtvarna- byrgi verði gerð undir skemmtigörðum New York- borgar. Hefir opinber nefnd rann- sakað, livernig helzt mætti gera í borginni hyrgi sem k j arnörkusprengj ur gæ tu ekki grandað og varð þáð niðurstaða hennar, að hyrg- in yrðu undir skemmtigörð- um og öðrum opnum svæ'ð- um í hoi'ginni. Er gerð á- ætlun um fjórtán slik skýli, sem yrðu öll gi'iðarstör og mundi kostnaðurinn við að gera þau verða um tvær milljarðar dollara. Skýli þessi mælti einnig nota sem bif reiðagey mslur. Par fengism vlð ekkl verðiaure. Eins og menn muna var efnt til riígerðasamkeppni í vor um neitunarvald stór- veldanna í SÞ. Héðan vorii scndar tvær ritgerðir vestur um liaf, en verðlaun fengúst ekki fyrir þær. Voru ein verðláun fyrir beztu ritgerðina, sem bærist frá Norðiu'löndum stöðu við borg eina á austur ströndinni. Hersveit Suöur-Kóreu- manna stóö illa aö vígi í við- ureigninni, þar sem hún hafði ekki eins fullkominn útbúnað og kommúnista- herinn og varö af þeim sök- um að láta undan síga. Kom hún sér fyrir í nýjum stöðv- um og er gert ráö fyrir því, að hún og amerísk skrið- drekasveit, sem er á leið til hennar, geri fljótlega gagn- áhlaup til að reyna að vinna það land aftur, sem hún missti í viðureign þessari. Á suðurströndinni hefir verið venju •„ fremur kyrrt undanfarið, þar sem aðal- átökin hafa verið á miðhluta vígstöövanna eða í grennd við Taegu. Hefir kommún- istum tekizt aö halda fleyg þeim, sem þeir ráku í stöðv- ar Bandaríkjamanna á þess um slóðum, en þeir búa sig sem óðast undir gagnáhlaup og hafa margt skriðdreka á þessum slóðum . Öryggisráöið mun enn koma saman til fundar í kvöld og ræða þá Kóreumál- ið, undir forustu Maliks, fulltrúa Rússa. Brezka stjórnin vísar á bug þeim ásökunum Peking stjórnarinnar, að brezk her- skip skerði hlutleysi Kína. Er á það bent, að þvert á móti hafi strandvirki kom- múnista skotið á brezkan tundurspilli, sem var á al- þjóðasiglingaleið á leið til Hongkong. Kommönistar hafa í hótunum Róm (UP). — ítalskir kommúnistar hóta því að koma af stað f jölda verkfalla um alla Italíu í næsta mán- uði. Hafa foringjar verkalýðs- sambands kommúnista, scm í eru um fimm milljónir maima, látið orð falla um, að septemher mun verða mesti verkfallamánuður í sögu landsins, ef ekki verði geng- ið að öílum kröfum þeirra. v

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.