Vísir - 27.12.1950, Blaðsíða 1
40. árg.
Mijðvikudaginn 27. desember 1950
290. tbl.
MacArthur býst við nýrri
stórsókn Kínverja í Kóreu
Þessi mynd var nýlega tekin í Lake Success af Sir Bene-
gal Rau, fulltrúa Indlands hjá S.Þ. cg nefndarmanni í
vopnahlésnefndinni. Hann ræðir þarna við annan fulltrúa
frá Indlandi Gopola-Menon (til hægtri) og einn af fulltrúum
Pekingstjórnarinnar Iíuan-Chua.
Hátt fiskwsrS
í Fleetwood.
Einkaskeyti frá U. P. —
London í morgun.
Sökum þess, að ekkert
barst að af íslenzkum fiski
í gær í Flettwood rauk
t'iskverðið upp úr öllu
valdi og varð þrefalt hærra
en hámarksverðið gamla.
Ýsa seldist fyrir 16
shillinga „pr. stone‘‘ (6.35
kg.)? en hámarksverðið
var 5 shilíingar, og þorsk-
ur 15 sh., en hámarksverð
var 5 sh.
Mæðrastyrksnefnd og Vetrarhjálp aðstoðuðu
á 10. hundrað fjölskyldna 0g einstaklinga.
Æ&&S S&ÍMMÖMSÉ MMM ■
17ú þús* mrnlk fmínaÖMr.
Framlag til hjálparstarfsemi þeirrar, sem rekin er hér
í bænum fyrir og- um jólin, náði nýju hámarki að þessu
sinni. Alls söfnuðust til þeirra tveggja stcfnana, sem starf-
semi þessa annast, Vetrarhjálparinnar og Mæðrastyrks-
nefndair, yfir 176 þús. kr., en á 10 hundrað fjölskyldur
og einstaklingar nutu aðstoðarinnar. Báðar stofnanirnar
starfa fram yfir árámótin.
Vetrarhjálpinni bárust fyr
ir jólin í peningum kr.
96.403.82 (þar af söfnuðu
skátar kr. 49.411.02). Að-
stoðarinnar nutu 556 heimili
og einstaklingar Úthlutað
var með ávísunum á mat-
vælf og mjólk kr. 124.782,30,
og að auki talsverðu af fatn-
aði. Til samanburðar má
geta þess, að í fyr.ra söfnuð-
ust kr, 76.488.25, og hafa því
safnast um 20 þúsund kr.
meira nú en þá. í fyrra nam
úthiutun kr. 111.613.55 og
að auki 25 þús„ kr. til ein-
staklinga í ýmsum stofnun-
um, svo sem Elliheimilinu,
Arnarholti, Farsóttahús-
inu, Kumbaravogi o. s. frv.,
en það var ekki gert nú, þar
sem bærinn o. fl. sjá um þess
ar stofnanir,, — Vetrarhjálp
in starfar áfram fram yfir
áramótin og má gera ráð fyr
ir, að enn berist gjafir til
hennar. — Forstöðumenn
Vetrarhjálparinnar láta í
ljós mikla ánægju yfir und-
irtktum og hjálpsemi bæj-
arbúa, sem hafa brugðist hið
bezta að vanda við tilmæl-
um um aðstoð handa þeim,
sem bágt eiga.
Heildarsöfnun til Mæöra-
styrksnefndar nam 80 þús.
kr., en í fyrra um 60 þús. ki\,
og var þá miklu hærri en
hún hafði nokkurn tíma áð-
ur verið. Mikið safnaðist að
auki af fatnaði. Seinasta
söfnunardaginn, á Þorláks-
messu, söfnuðust 12.850.00.
Úthlutað hefir verið fyrir
um 60 þús. kr., en enn liggja
fyrir margar beiðnir um að-
stoð. Um 370 barnaheimili
og einstæðingsmæður og
aðrir einstaklingar, sem eng
an eiga að, hafa notið að-
stoðar. — Mæðrastyrksnefnd
hefir beðið Vísi að bera öll-
um stuðningsmönnum sín-
um kveöjur og innilegt þakk
læti fyrir mikla rausn og sí-
vaxadi tryggð.
ísrael' fær fiási.
Export-import bankinn í
New York hefir veitt Israel
lán að upphæð 35 millj. doll-
ara til ýmissa framkvæmda
heima fyrir.
Lán þetta eiga Israelsmenn
að greiða aftur á 15 árum.
Þetta er annað lánið, sem
Israel er veitt úr bankanum.
ser
drukknar a!
Það slys varð á Halamið-
um á aðfangadag, að mann
tók út af b.v. Bjarna riddara
og drukknaði hann. Hét
hann Guðmundur Danivals-
son.
Tveim bjarghringum var
þegar kastað til mannsins,
en hann virtist ekki hafa
mátt til að halda sér uppi
og stökk þá annai' skipverji
fyrir boi'ð, en vað var brugð-
ið um hann miðjan. Báðir
mennirnir náðust síðan um
borð og gerðu skipverjar lífg
unartilraunir á Guðmundi
og skipinu haldið til lands.
Héraðslæknirinn á Þing-
eyri fór til móts við skipið,
en Guömundur var örendur,
þegar hann kom um borð.
Guðmundur var ungur
maöur, ókvæntur og barn
laus.
Um jólin var hráslagalegt
veður á Bretlandsevjum, viða
þokusamt, slydda eða rigning.
Truman forseti kominn
aftur til Washington.
Sat i gær fund með Bielztu?
ráHgjöfum sínum.
Truman Bandaríkjafor-höfðingja til Evrópu í jan-
úar. Eins og áður hef-ir ver-
ið skýrt frá mun Eisenhow-
er fara til Evrópu til þess að
kynna sér varnir Vestur-Ev-
rópuþjóðanna, en hann hef
ir veriö skipaöur yfirmaður
sameiginlegs varnarafla
þeirra.
Þegar Eisenhower hefir
kynnt sér möguleikana á
vörnum Vestur-Evrópuþjóða
mun hann gefa forsetanum
skýrslu og gera tillögu um
hve mikinn herafla og hve
mikið af hergögnum Banda
ríkin verði að leggja- fram
til þess að tryggja varnir
Evrópu.
seti kom í gær til Washing-
ton aftur úr jólaleyfi sínu
og var það degi fyrr en œtl-
að var. Hann dváldi um jól-
in í Missouri.
Forsetinn sat í gær 2Vz
klukkustundar fund með
helztu ráöamönnum sínum,
en fundinn sátu einnig Ache
son utanríkisráðherra, Brad
ley forseti herforingjaráðs-
ins og Snyder fjármálaráð-
herra.
Snerust umræðurnar að-
allega um Kóreustríðið,
heimavarnirnar og væntan-
ega för Eisenhowers hers-
í herstjórnartilkynningu
MacArthurs í morgun segir
að þess sjáist nú Ijós merki
að Kínverjar séu að undir-
búa nýja stórsókn fyrir norð-
an 38. breiddarbaug.
Hermenn úr 9. bandaríska
liernum standa vörð við 38.
breiddarbaug og hafa engar
alvarlegai’ árásir verið.gerð-
ar á þá ennþá,, Sums staðar
hafa þó fámennir hópar
kommúnista gert árásir, en
þess ar árásir hafa naum-
ast haft annan tilgang en að
reyna styrk varna S. Þ.
Stöðugir
liðsflutningar.
Könnunarflugvélai’ Sam-
einuðu þjóðanna hafa orðið
varar við mikla liðsflutninga
suður á bóginn. Kínverjar
virðast safna að sér miklu
liði og hergögnum, sem bend
ir til þess að ekki verði langt
að bíða nýrrar sóknar. Enn-
þá hafa engar kínverskar
hersveitir sótt suður fyrir
38„ breiddarbaug.
V arnarherinn
fœr liðsauka.
Eins og skýrt er frá á öðr-
um stað í fréttum tókst und
anhald 105 þúsund her-
manna S.Þ. frá Hungnam
mjög giftusamlega og munu
nú þessar hersveitir verða
skipulagðar og látnar taka
þátt í vörnunum við 38.
breiddarbaug, ef til árásar
kemur af hendi Kínverja
og Norður-Kóreumanna.,
Risaflugvirki
gera árásir.
Flugsveitir úr flugher S.Þ.
í Kóreu halda uppi stöðug-
um loftárásum á liðflutn-
ingalestir Kínverja og vörp-
uðu risaflugvirki niður.
miklu magni af sprengjum
á stöövar Kínvei'ja í gær.
í herstjórnartilkynningu
MacArthurs, sem aö ofan
getur, segir ennfremur að
hermenn 8. hersins hafi orð-
'ið varir bæði hermanna úr
hersveitum Noröur-Kóreu-
manna og kínverskra her-
manna skammt fyrir norðan
landamæri Suður- og Norð-
ur-Kóreu„