Vísir


Vísir - 19.01.1952, Qupperneq 1

Vísir - 19.01.1952, Qupperneq 1
42. árg. Laugardaghm 19. janúar 1952 15. tbh fjax£@ss!SÍraiMl£lfe 10. sfraiMÍatiI í biiiMÍbyi a Ogerlegft ssð a*et§mm &jöirgmm Ims á asstÞirf§Btas vefgmm h vmssvii&s'is. Um kl. 11 í gærkveldi strandaði m.s. Laxfoss á Brautarholts- nesi hjá Kjalarnestöngum í roki og svartabyl, en um kl. 8 í morgun hafði björgunarsveitinni á Kjalarnesi tekizt að bjarga öllum farþegunum í land, svo og skipverjum nema skipstjóra, stýrimanni og vélstjórum, sem komu í land Iaust fyrir kl. 10. fyrlr S525 stpd. B.v. Hvalfell seldi ísfiskafla í Grimsby í dag, 2071 kit, fyrir 9525 stpd., eða yfir 4 stpd. fyrir kittið. Ófrétt var um sölu Jóns Þor- lákssonar, þegar blaðið fór í preníun. Fiskverð hátt í Bretlandi vegna lítils framboðs. BMegnið af Hskinessm s'ev sslenzkmsst étifgssB'isass. Laxfoss var á leið frá Akra- nesi til Reykjavíkur er hann strandaði. Afspyrnurok var á sunnan eða suðaustan og hríð- in svo svört, að ekki sá út úr augum. Varðskipinu Þór, sem statt var í Flóanum tókst að miða skipið, svo og miðunarstöðinni á Akranesi. Var skotið upp flugeldum frá Laxfossi, til þess að Þór mætti vita, hvað skipið væri í mikilli fjarlægð og glöggváð sig betur á því, en svo var hríðin svört, að flug- eldarnir sáust ekki, enda þótt vitað væri, að Þór væri skammt undan. Þórður Guðmundsson, skipstj. á Laxfossi tilkynnti um nóttina, að enginn sjór væri x vélarrúmi skipsins, en hins vegar væri einhver leki kom- inn að framlest. Farið á staðinn. Slysavarnadeild Kjalarnes- hrepps brá þegar við í nótt, er tilkynnt var um strandið og um kl. 7 í morgun kom hópur manna á strandstaðinn, sem reyndist vera í Brautarholts- nesi, vestan við Nesvík svo- nefnda, austan við Kjalarnes- tanga. Hafði björgunarsveitin meðferðis línubyssu, björgun- arstól og annan útbúnað. Klukk an 8 í morgun hafði tekizt að bjarga öllum farþegunum í land, en þeir voru 5 konur og 9 karlar. Gekk björgunin mjög greiðlega, en skömmu síðar var skipverjum bjargað með sama hætti, en skipstjóri, stýrimenn og vélstjórar héldu kyrru fyrir í skipinu, enda í ráði að reyna björgun jafnskjótt og aðstæð- ur leyfðu. Kl. 10 fóru þeir einnig í land, enda ógerlegt að koma taug í Laxfoss frá sjó. í nótt var sendur björgunar- leiðangur áleiðis uppeftir á bílum héðan úr bænum, til frekari öryggis, en færðin var svo slæm, að kl. 8 í morgun voru bílarnir ekki komnir lengra en að Brúarlandi. Guðmundur Jónasson kom Framh. á 4. síðu. Þessa gjöf færði Churchill Truman, er hann kom á fund hans vestur um haf að þessu sinni. Þetta er líkan af hinu fræga segl- skipi „Mayflower“ sem flutti fyrstu innflytjendurna til Ameríku. Verðlag á fiski er mjög hátt í Bretlandi um þessar mundir, eins og seinustu aflasölur tog- aranna bera vitni um, — stund- um talsvert á 5. sterlingspund fyrir kittið. Framboð á fiski er lítið urn þessar mundir í Bretlandi. T.d. voi-u horfur þær í gær, að ekki mundu verða nema upp undir Miófkurskort Nægileg mjólk verður í bæn- um í dag, en aftur á móti er allt í óvissu með nijólk á morg- un. Mjólkurbílar voru að vísu lagðir af stað frá Flóabúinu í morgun áleiðis til Reykjavíkur. en búist er við mikilli ófærð á vegunum og allt í óvissu hve- nær þeir komist hingað. Þá voru einnig nokkur þúsund lítrar mjólkur með Laxfoss, er hann lenti í strandinu í gær- kveldi. Að því er Mjólkurstöð- in tjáði Vísi í morgun er enn ekki vitað hve mikil mjólk kemst í bæinn í dag eða hvort nokkuð kemst. Margt féik gisti í skrifstofu Slysavarnafélagsins í nótt. Svaf þar í stólum eða 20 pjóðvegfir enn tepptir. f gær voru 20 þjóðvegir enn tepptir af völdum fannkomu í Skotlandi og norðurhéruðum Englands. Bílðf komusf ekki í úfhverfin. f gærkveldi gerði afspyrnu- rok um Suðvesturland allt og reyndar víðar með hríðarveðri svo varla sá úr augum. Af verulegu tjóni eða mann- raunum hefir ekki frétzt enn sem komið er, nema Laxfoss- strandið, en frá því er skýrt á öðrum stað í blaðinu. í gærdag um tvöleytið byrj- aði að hvessa á Suðvesturlandi og voru þá komin 8 vindstig á Stórhöfða. Um fimmleytið var byrjað að snjóa og voru þá komin 6 vindstig við Faxaflóa en 9 vindstig á Stórhöfða. Hvassviðri skellur á. Um áttaleytið var skollið á hvassviðri um allt Suður- og Vesturland. Hvassast var í Vestmannaeyjum og Keflavík 14 vindstig í byljum. Hvassast í Reykjavík varð 12 vindstig. í morgun var lxlýviðri komið um mest allt landið, en þó var enn frost sums staðar norðan- lands. í Reykjavík var 2,5 stiga hiti kl. 8 í morgun. Á götum Reykjavíkur var moldbylur í gærkveldi og stóð hann langt fram á nótt. Komu snemma skaflar á götur og snjó traðir fylltust svo að bifreiða- umferð tepptist er líða tók á kvöldið. Strætisvagnaferðir féllu að meira eða minna leyti niður og fólk átti í mestu vand- ræðum með að komast heim til sín. Leitaði fjöldi fólks á náðir lögreglunnar, en hún átti erf- itt með að sinna beiðnum þess, ekki sízt vegna þess að bifreið- ar hennar eru yfirleitt ekki öðr um bílum betur búnar með að komast í gegnum ófærð. Amasamt hjá Slysa- varnafélaginu. Slysavarnafélagið hafði líka nóg að gera í alla nótt með að aðstoða fólk og bíla, sem ekki komst leiðar sinnar. Strax og fréttist um strand Laxfoss fór björgunai-sveit Slysavarnafé- lagsins áleiðis upp á Kjalarnes, en lenti í mikilli ófærð og var ekki komin lengra en að Brú- arlandi í morgun. Flugbjörgun- arsveitin starfaði með Slysa- varnafélaginu í alla nótt að því að flytja og sækja fóllc og liðsinna því eftir þörfum og getu. Voru þar fremstir í flokki þeir Úlfar Jacobsen, Björn Br. Björnsson og Hrafn Jónsson sem lögðu bíla sína og eigin krafta fram til hjálpar fólki. Sofið í skrifstofu SVFÍ. Ein hjálparbeiðnin sem Slysa varnafélaginu barst var frá konu í barnsnauð sem búsett var fyrir sunnan Silfurtún. — Sendi félagið þangað bifreið með ljósmóður sem það fékk á Fæðingardeild Landsspítalans. Þá hýsti Slysavarnafélagið fjölda fólks á skrifstofum sín- um, var það einkum utanbæj- arfólk eða fólk út úthverfum sem komst ekki heim til sín. •Svaf það í sjúkrabörum, í stól- um eða teppum á gólfinu og var því. öllu gefið heitt kaffi. Um tíuleytið í morgun var sumt af þessu fólki enn ófarið. Framh. á 4. síðu. 3000 kit á markaðnum í Grims-. by í dag, en þar hefir Hvalfellið, er selur þar í dag, um 2000 kit. Jón Þorláksson selur í Hull í dag og mun sennilega hafa yfir 2000 kit. —• Undanfarna daga hefir lítið borist af fiski á brezkan markað, nema það, sem íslenzku togarnir hafa flutt þangað, en orsök þess hve lítið berst að, er gæftaleysi og afla- leysi. Brezku togarax-nir eru flestir, hinir stærri að minnsta kosti, í norðurhöfum, við Bjarnarey og á Hvítahafi, og berast fregn- ir þaðan um gæftaleysi og afla- leysi. Hér við land hafa komið smáhrotur, en gæftaleysi hefir verið alveg óvenjulega mikið, veðrahamur oft svo mikill, að ekki hefir verið viðlit að fiska. í næstu viku rnunu 4—5 ís- lenzkir togarar landa í Bret- landi, allir síðari hluta vikunn- ar, nema Egill Skallagrímsson, sem selur á mánudag. Að sjálfsögðu bjargar það miklu hve fiskverð er gott nú, því útkoman hefði ella orðið næsta bágborin í gæfta og afla- leysinu. 100 whisky- flöskur til lækninga. St.hólmur (UP). — Lækn- ir hér í borg, sem vinnur að vísindarannsóknum, hefir fengið 100 flöskur af whisky fyrir tilstilli heil- brigðisstjórnarinnar, þar sem hann ætlar að nota á- fengið til lækninga á fólki með hjarta- og æðasjúk- dóma. Ýmsir læknar telja þó rétt, að lyfjagjöfin fari fram í sjúkrahúsi, þar sem hægt er að hafa eftirlit með henni. Haf narfjörðtvr ralmagRslaus. Háspennulínan til Hafnar- fjarðar bilaði um kl. 4 í nótt, og var því straumlaust þai* syðra í morgun. Hefir þetta jafnframt í för með sér, að rafmagnslaust er nú í Keflavík og annars staðar á Suðurnesjum. Samkvæmt upplýsingum, sem Vísir fékk í rafsstöðinni við Elliðaár laust fyrir hádegið, höfðu menn ver- ið sendir til þess að finna bil- unina á línunrii, en ekki var talið líklegt, að hún væri al- varleg.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.