Vísir - 19.01.1952, Side 7
19. janúar 1952
,Qg hvar var Ralplv lávarður, maðúrinn hennar?
,Hann var farinn að hátta. Frænka sagði, að h
íasinn!
DROPPINÖ TO ONE KNEE,
LUKAH DUö THE BUTT OP
THE SPEAR INTO THE
OROUND AND CALMLY
STEAPIED THE POINT TO
MEET THE BREAST OF
THE HURTLINO
CARNIVORE.
AT THE
MOMENT
OF IMPACT,
LUKAH
. DROPPED
fev—THE
5PEAR-
SJW SHAFT
W ANP
r ROllEO
CLEAR.
5NARLINC AND COARIN6
IN SAVA6E AöONy. THE
ÖREAT BEAST «a*.,
CRASHED TO Wm j jW
THE GROUND, f§Sf f/W
ITS SLASHINO m ' Æ
CLAWS BARELY # -j/Mk
MISSING THE íM ÆfffZ
RATHORIAN .,\Mf
Ljónið öskraði um leið og það bylt-
Allt í einu vatt Lukah sér undail;
Sr sér hægt, stakk spjótittu
Ljónið var nú nær alveg komið
Laugardaginn
á hvítan tanngarðinn, svo að Sir Jonas hætti við að ygla sig,
reyndi enn að mæla í léttum tón og sagði:
„Og þegair búið er að troða í þau, hvað þá?“
„Þá stendur þeim til boða að starfa á landareign minni.“
„Starfa — þú treystir veiðiþjófi?“
„Sjóliða, Sir Jonas.“
„Jæja, jæja, þetta er furðulegt allt saman. En þú hefir nú
alltaf verið sérvitringur og farið þínar götur. Hvernig var það
annars með þetta einvígi ykkar Chalmers? Já, hann heíir verið
einhendur síðan. Meðal annara orða — þá veðjaði eg um úr-
slitin og græddi 1000 sterlingspund. Eg hafði nefnilega hlerað
hvað til stóð, þótt þetta ætti víst að liggja í láginni. En þessi
sjóari, já, það kemur nú í ljós seinna hvernig hann reynist.
Leyfðu mér svo áð kveðja þig, gamli félagi, og skilaðu auð-
mjúkri kveðju til konu þinnar, hm, lafði þinnar, jarlsfrúar-
innar!“
Þegar feiti klárinn hafði brokkað burt með Sir Jonas sneri
jarlinn sér að Henry og mælti:
„Henry, sjáið um að þessi hjón fái góða máltíð — það bezta,
sem' til er í búrinu.“
„Vissulega, lávarður minn, það skal verða séð um það —
og svo — læt eg þau fara sína leið, eða hvað?“
„Alls ekki, — eg vil hafa tal af þeim. Og ségið Jane litlu,
að eg bíði eftir henni.“
„Þegar í stað,“ svaraði yfirskógarvörðurinn og hneigði sig
djúpt. Því næst sneri hann sér næsta valdsmannslegur að
hjónunum og mælti í skipunartón: „Komið!“
Þögul bjuggust þau við að hlýða þessari fyrirskipun, en allt í
einu hljóp hin unga kona til jarlsins og þakklætistár hennar
vættu handarbák hans um leið og varir hennar snertu það
rétt sem snoggvast og svo var hún óðara rokin burt.
IV.
Þegar þau jarlinn og Jane litla riðu í hægðum sínum upp
bratta grasbrekku hristi Jane litla allt í einu höfuð sitt, mjög
á sáma hátt og Anna frænka mundi hafa gert, og mælti:
„Sam frændi, seinast þegar við Cecily frænka fórúm út að
ganga og heimsóttúm frú Jennings, var hún öll grátþólgin.“
„Hver, frú Jennings?"
„Nei, Cecily frænka.“
„Hafði hún verið að gráta, væna mín?“ 5 s
„Já, og svo mættum við manni, sem mér geðjast alls ekki
að — ekki baun.“
„Og hvérs vegna ekki, Jane litla?“
„Hann er andstyggilegur — og hann gerði mig hrædda.“
„Nú, hvað gerði hann?“
„Jæja, haiin tók í hönd Cecily svo fast, að hún gat ekki los-
að sig, og svo kyssti hann á höndina, alveg eins og hann væri
að bíta í hana.“
' „Og heldurðu að hann hafi gert það?“
„Það var næstum eins og hann væri að naga bein.“
„Og hvernig leit hann út, þessi, hm, herramaður?“
„Hann var nú bara laglegur, Sam frændi, í ijómandi falleg-
um grænum frakka með silfurhnöppum, og hann var með
gljáandi stígvél, eins og þú átt, með silfursporum á.“
„Veiztu hvað hann heitir?“
„Já, en eg er búin að gleyma því, en frænka bað hann að
fara, en það vildi hann ekki, svo að við sherum heim á leið,
og hvað heldurðu að hann hafi gert? Hann elti okkur alla leið-
ina heim, og talaði ekki um annað en hvað hún væri falleg,
og svona lét hann dæluna ganga alveg heim að dyrum.“
hann væri
„Aha,“ sagði Sam ygldur á svip og starði á eyrun á hestinum.
„Af hverju yglirðu þig og segir „Aha“, Sam frændi?“
„Það voru léiðinlegar hugsanir, sem komu — eins og ljót
væna mín, — en við rekum þær burtu og brosum, og
tölum um annað, nei, segðu mér annars meira um þennan
mann.“
„Nú, Cecily frænka sagði, að hann yrði að fara, og loks fór
hann, og hún vildi ekki einu sinni kveðja hann, þótt hann tæki
ofan og hneigði sig kurteislega.“
„Geturðu ekki með nokkru móti munað, hvað þessi maður
heitir?“
„Nei, það get eg ekki, Sam frændi.“
„Jæja, það skiptir kannske ekki máli, en segðu mér, er langt
siðan þú komst til frú Jennings?“
„Nei, við Cecily frænka fórum til hennar, og hún lék á
gríðarstórt píanó — og svo á hörpuna sína, þangað til hún fór
að gráta, og þá kyssti frænka hana, og þá fór henni að líða
betur og hún fór að brosa, og veiztu það, að hún brosir svo
oft og tárast um leið.“
„Það hefir ekki farið fram hjá mér, Jane litla.“
„Já, og eg veit af hverju það er. Hún átti ljómandi fallegan
og gáfaðan son, sem drukknaði í ljótu tjörninni við mylnuna,
þar sem eg var næstum drukknuð þegar eg var lítil, en Meda
frænka kóm niður í vatnið sem er dökkt eins og nóttin og
lyfti mér upp í ljósið.“
„Þú ferð um þetta skáldlegum orðum, Jane litla.“
„Já, og eg hefi reynt að búa til vísur, og Anna frænka hefir
leyft mér að skrifa þær með bleki og penna — og einhvern
tíma skaltu fá að heyra, og’ þær eru um tjörnina og mig og
Medu og þig og um hvað eg er einmana, síðan hún eignaðist
barnið, og hvað það væri gaman, ef hún hefði eignast mig.“
„0-já,“ sagði Sam og leit til hliðar, til þess að leyna brosi.
„Þú ert þó ekki að hlæja að mér, Sam frændi,“ sagði Jane
Sám hnyklaði brúnir og setti upp alvörusvip.
„Hlæja — er eg að hlæja?“
„Nei, en af hverju horfirðu á mig svona byrstur á svip?“
spurði hún og leit á hann stórum, skærum spurnaraugum.
„Ertu reiður?“
„Nei, eg er glaður,“ sagði hann hlæjandi, beygði sig niður
og þrýsti henni dálítið að sér.
„Heldurðu, að þér muni geðjast að kvæðinu mínu?“
„Án vafa, eg ætla að biðja þig að lesa það upphátt í allra á-
heyrn í Willowmead."
„Nei, eg orti það bara fyrir þig og Medu frænku, svo það
get eg ekki.“
„Jæja, hjartað mitt, þá erum við loks komin upp á brún.
Sjáðu, þama niðri í dalnum er Willowmead-búgarðurinn.“
„Já, og þarna er gamla húsið, sem við Anna frænka bjugg-
um í, þegar eg var Íítil, þangað til þú sóttir okkur í stóra húsið.“
„Og eg Vona, að þar líði þér vel, Jane litla.“
„Já, já, Sam frændi og Önnu frænku líður þar vel líka, því
að þó hún hafi svo mikið að gera, að hún sé búin að stein-
gleyma ekkjustandinu — það sagði hún einu sinni.“
Brátt voru þau komin svo nálægt býlinu snóturlega, að þar
mátti heyra, ef þau kölluðu, og lyfti Sam sér nú upp í hnakkn-
um, bar hönd að munni og kallaði:
„Hæ, hó, Ned, vertu viðbúinn, við erum að leggja að.“
Kallað var á móti þrumandi röddu:
„Allt í lagi, félagi, legðu að.“
Þau riðu nú inn í húsagarðinn, þar sem Edward Harlow
uppgjafaskipstjóri, en nú bóndi, fagnaði þeim innilega, og hin
fagra kona hans, Káte, kom fram í dyrnar og er hún sá Jane,
hljóp hún til hennar faðmaði hana að sér og leiddi hana inn,
svo að gömlu félagarnir frá sjómennskudögunum voru einir
eftir. Þeir voru andstæður, félagarnir, en þó mátti hvorugur af
oðrum sjá á þeim tíma, og einhvern veginn var það svo, að
hvert tækifæri var notað til að hittast, og rif ja upp það, sem
gerðist forðum daga, þegar viðburðir hvers dags voru sem
keðja ævintýra. En Edward Harlow virtist kunna vel við
Bréfið var 94
ár á leiðinni.
London (UP). — Sennilega
er það met, að bréf sé nær
94 ár á leiðinni til áfangastað-
ar.
Þ. 6. marz 1858 var bréf
lagt í póst til skólapilts í St.
Andrews College í Mells í S.-
Englandi, og það bárst til
Mells fyrir fáum dögum.
Skólinn er ekki lengur til, svo
að sóknarprestinum var
fengið bréfið til geymslu.
Gondólar Feneyja
með hjálparvélum!
Feneyjar (UP). — Til að
standa betur að vígi í sam-
keppni við vélbáta, er nú farið
að búa gondóla borgarinnar
vélum.
Eru hinir fyrstu farnir að
sigla um slcurðina með hin-
um nýja útbúnaði. Þeir ganga
vel, en farþegamir sækjast
ekki eins eftir þeim og hinum
— „með gamla Iaginu“.
1 dag’ er síðasti dagur
Ésölunnar
Bútar verða seldir i dag
og á mánudaginn.
. TOFT
Skólavörðustíg 5.
rafmagnsáköld
Yöflujárn
Ofnar, 1000 w.
með skiptirofa
Borðeldavélar,
einhólfa og tvíhólfa
Pressujám
Straujárn
MJÖG LÁGT VERÐ. —
Véla- og raítækjaverzlunin
Bankastrœti 10. Sími 6456.
Tryggvagötu 23. Simi 81279.
að þeim, og voðinn virtist þeim vís.
_n oddurinn vissi að þón-
en spjótsoddurinn gekk 1 gegnum
Ijónið.
ist á bákið og tók dauðateygjurnar.
auú.