Vísir - 22.01.1952, Blaðsíða 2

Vísir - 22.01.1952, Blaðsíða 2
2 V I S I R Þriðjudaginn 22. janúar 1952 Hitt og þetta af þeim mönnum, sem hafa á- nægju af að tala um sjálfan sig.“ Stúlka svarar í síma: „Nei, þetta er ekki hún Maria. Hún er ekki heima rétt í þessu. Þetta er systir hennar, sem er 111 pund, Ijóshærð og bláeyg.“ Maður var að skilja við konu sína og þau voru fyrir rétti. Maðurinn kvaðst ekki geta staðist fjárhagslega, að búa með henni — hún heimtaði af hon- Um 50 króna sekt, í hvert sinn sem hann gleymdi á morgnana að kveðja hana með kossi. Einmana. — Nýlega giftist Margaret Redden manni er heitir John Lewis. Hún var 82 ára en hann 81. Og þau áttu samtals 25 börn frá fyrri hjóna- böndum. Þau sögðust giftast til að fá sér félaga. Hjarta mannsins er öflugt líf- færi og býr yfir mikilli seiglu, eins og auðsætt er. Væri hjart- sláttur eins manns í heilan sól- arhring sameinaður í eitt átak, yrði það nógu öflugt til að varpa einni smálest t.d. af járni 120 fet í loft upp. Sigga Iitla var fimm ára og fór oft í sendiferðir fyrir mömmu sína. Hún var fús að fara, þegar hún gat borið fram nöfnin á því, sem kaupa átti. En sum orð átti hún bágt með að segja og kveið þá fyrir því að hlegið yrði að sér, þegar hún bæri fram crindi sitt. „Sósulitur“ var eitt af þeim orðum, sem henni var verst við að nefna, og færðist hún venju- lega undan að kaupa hann. Þó kom að því einu sinni, að mamma hennar átti ekki ann- ars kost en senda hana eftir þessari vöru. Telpan tók flösku undan sósulit með sér og þeg- ar hún kom í búðina rétti hún afgreiðslumanninum flöskuna og sagði: „Lyktaðu af flösk- unni og láttu mig svo hafa svona lit.“ €im aíhhí ðat..,* Um þetta leyti fyrir 30 árum mótti lesa eftirfarandi í -bæjar- fréttum Vísis: Sprénging'í miðstöð. Á laugardagskvöldið var verið að kynda miðstöð í verzl- Unarhúsi Garðars Gíslasonar við Hverfisgötu ög vissi kynd- arinn ekki fyrri til en eitthvað sprakk inni í miðstöðinni, og af svo miklu afli, að rúður biiotnuðu í kjallaranum og hús- íð skalf allmikið. Kyndarinn brenndist á höndum, en ekki stórvægilega. Vildi það honum til happs, að hann hafði ekki lokað. ofninum, þegar spreng- íngin varð. Telja má víst, að sprenging þessi hafi orsakazt af púðri eða öðru sprengiefni, sem borizt hefir á einn eða ann- an hátt með bréfarusli saman Við kolin. Þriðjudagur, 22. janúar, — 22. dagur ársins. Sjávarföll. Árdegisflóð var kl. 0.10. — Síðdegisflóð kl. 13.05. Ljósatími bifreiða og annarra ökutækja er kl. 16.00—9.15. Ungbarnavernd Líknar, Templarasundi 3, er opin þriðjud. kl. 3.15—4 og fimmtud. kl. 1.30—2.30. Næturvörður er í Laugavegs-apóteki; sími 1618. Kvöldvörður L. R. er Þórarinn Sveinsson, Lækna- varðstofunni, sími 5030. Næturvörður L. R. er Kjartan R. Guðmundsson, Læknavarðstofunni, sími 5030. Frá skrifstofu borgarlæknis: Farsóttir í Reykjavík vikuna 6. til 12. janúar 1951 samkv. skýrslum 28 starfandi lækna (27). í svigum tölur frá næstu viku á undan: Kverkabólga 77 (71). Kvef- sótt 66 (72). Gigtsótt 1 (0). Iðrakvef 29 (37). Hvotsótt 1 (4). Kveflungnabulga 5 (5). Taksótt 1 (0). Munnangur 3 (2). Kikhósti 7 (5). Hlaupa- bóla 1 (1). Gjafaepli. Með Goðafossi komu hingað frá Hamborg 258 kassar af epl- Um, sem gjöf til íslendinga frá Odenwaldschule í Heppenheim, Deutsche Landfrauenbund, Hilfswerk der Evangel. Kirche in Hessen und Nassau í Frank- furt og Arbeiterwohlfahrt í Hamborg. Eplin eru þakklætis- vottur vegna hjálpar íslend- inga í garð Þjóðverja eftir stríðið. HwAAyáta hk /SE§ Skýringar: Lárétt: 1 fyrir mánuði, 3 gat, 5 tyggja hestar, 6 heild, 7 endir, 8 kona, 9 óp, 10 félagi Hróa, 12 hrund, 13 ríki, 14 ílát, 15 ósamst. samhljóðar, 16 trylli. Lóðrétt: 1 sjaldgæft nafn, 2 Btrengur, 3 — bogi, 4 lítilmenni, 5 Þórólfur hinn skeggjaði var kénndur viðthana, 6 —- stræti, 8 fugl, 9 á í Rússlandi, 11 á -barka, 12 ás, 14 snerama. Lausn á krossgátu nr. 1528: Lárétt: 1 tár, 3 ös, 5 bor, 6 Örn, 7 ÓG, 8 álka, 9 ess, 10 lega, 12 FÚ, 13 AEG, 14 ber, 15 RE, 16 sút. Lóðrétt: 1 tog, 2 ár, 3 örk, 4 snákar, 5 bollar, 6 öls, 8 Ása, 9 egg, 11 EEE, 12 fet, 14 bú. Tímarit. Náttúrufræðingurinn 4. hefti 21. árgangs hefir blaðinu bor- izt. Helzta éfni er þetta: Hið ís- lenzka náttúrufræðifélag eftir Sig. Pétursson, Átan og Síldin eftir Hermann Einarsson, Um vítamin eftir Sigurð Pétursson o. fl. Útvarpið í kvöld: 20.30 Leikrit Þjóðleikhúss- ins: „Lénharður fógeti“ eftir Einar H. Kvaran (endurtekið). •— Leikstjóri : Ævar R. Kvaran. Leikendur: Ævar Kvaran, Jón Aðils, Þóra Borg, Valur Gísla- son, Elín Ingvarsdóttir, Gestur Pálsson, Róbert Arnfinnsson, Klemenz Jónsson, Yngi Thor- kelsson, Karl Sigurðsson, Valdi- mar Lárusson, Gerður Hjör- leifsdóttir, Arndís Björnsdóttir og Lúðvík Hjaltason. — 22.00 Fréttir og veðurfregnir. 22.25 Kammertónleikar (plötur). — Kvenfélag Fríkirkjusafnaðarins í Rvk. Félagskonur: Munið skemmti- fund félagsins í kföld kl. 8% í Oddfellowhúsinu, niðri. Próf. Sigurbjörn Einarsson hefur Biblíulestur fyrir al- menning í kvöld kl. 8.30 í sam- komusal kristniboðsfélaganna, Laufásvegi 13. Misritazt hafði í Vísi nafn eins sjómanna, er fórust með vb. Grindvíkingi. Það var Valgeir Valgeirsson, en var sagður Jónsson í frá- sögn blaðsins. Krabbameinsf élagi Reykjavíkur hafa borizt eftirfarandi gjaf- ir til kaupa á ljóslækningatækj- um, afhentar Alfreð Gíslasyni, lækni: Friðrik Ólafsson 200 kr. S. Þ. 500 kr. Guðbjörg Ander- sen 100 kr. Bóndi í Borgarfirði 50 kr. B. og G. 2000 kr. Dahsk kvindeklub í Reykjavík 1000 kr. — Innilegar þakkir til gef- enda. Veðrið. Norðaustanátt; víðast hvass í dag, en hægari í nótt. Léttir til. Slökkviliðið var kvatt í Efstasund kl. langt gengin þrjú 1 gær. Ekki var þar þó um neinn eldsvoða að ræða, heldur var unnið að því að bræða af eirvír og mynd- aðist við það mikill reykur. Fólk, sem sá reykinn úr nokk- urri fjarlægð, hélt að um íkviknun væri að ræða og hringdi á slökkviliðið. Námskeið Kvennad. Slysavarnafél. í hjálp í viðlögum heldur áfram í dag kl. 4.30 í skrifstofu Slysa- varnafélagsins. Stopular gæftir — tregfiski. Heita má að ótíð hafi verið allan janúar, sem af er, og gæft- ír báta því verið stopular, og aflatregðan eftir því. Sjö land- róðrabátar eru nú byrjaðir ver- tíð héðan og hefir aflinn verið rýr. Talið er að landróðrabátur þurfi a. m. k. að fiska 5 lestir í róðri til þess að útgerðin sleppi hallalaus. Undanfarið hafa þessi bátar fengið mest í róðri um 3 iestir og hrekkur það ekki nærri fyrir kostnaði. Fiski bátur 3 lestir er útkoman þannig: 3540 kr. fyrir fiskinn lagðan í frysti- hús. Olía 1500 kr., laun sjó- manna 14 hlutir af 23 um 1000 kr., tryggingar, slit (þ. e. eðli- legt) og önnur útgjöld 1600— 1700 kr. Tap útgerðar 4—500 kr. 1 Yz—4 lestir. Þessir sjö Reykjavíkurbátar. cem byrjaðir eru á vertíð, hafa fengið þetta 1 % lest í fjórar lestir í róðri. Aflinn hefir verið hér um bil eingöngu þorskur. Tveir útilegubátar eru byrjaðir Veiðar og kom Sædísin á laug- ardag með 14 lestir af fiski eftir 3ja sólarhringa útivist. Stendur það á endum, að aflinn borgi kostnaðinn. Engir togbátar né dragnótabátar eru byrjaðir Veiðar. Afli togaranna hefir verið tregur, 2000 til 2500 kit eftir langa útivist. Markaður í Englandi hefir aft- ur á móti verið ágætur, enda lítið borizt þar að af fiski úr enskum togurum. Má heita að íslenzku togararnir hafi verið einir um hituna undanfarið. Skip Eimskip. Brúarfoss kom til Reykjavík- ur í gærdag frá London. Detti- foss fór frá New York áleiðis hingað til Reykjavíkur s. 1. föstudag og er væntanlegur mabgtAsamastað Stúlka óskast. HEITT OG KALT Uppl. á staðnum milli ld. 6 og 7 í dag. Kanpi gaii og silfur hingað um næstu helgi. Goða- foss fór í gær frá Siglufirði til Húsavíkur og Kópaskers, síðan heldur skipið áfram austur um og til Reykjavíkur, með við- komu á Austfjarðahöfnum. Gullfoss kom í gærmorgun til Reykjavíkur frá Kaupmanna- höfn og Leith. Lagarfoss og Reykjafoss eru í .Reykjavík Selföss er á leið til Antwerpen og Tröllafoss á leið til New York. ' Ríkisskip: Hekla er á Aust- fjörðum á norðurleið. Esja er í Álaborg. Herðubreið er á Húnaflóa á norðurleið. Skjald- breið er í Rvk. Þyrill er í Rvk. Ármann var í Vestm.eyjum £ gær. Skip S.Í.S.: Hvassafell er á ísafirði. Arnarfell er í Stettín. Jökulfell er í Rvk. Flaug undir Tower-brúna 1 London hefir maður nokkur verið dæmdur í sekt fyrir að fljúga undir Tower-hrúna. Fór hann milli brúargólfsins og göngubrúarinnar, sem er milli stöplanna efst, og munaði aðeins metra, að ann ir vængurinn rækist i annan stöpulinn. Maður- inn bar fgrir réttinum, að hann hefði gert þetta i sportvél sinni til að skemmta sgni sínum, sem var með í flugvélinni. Kongo veídur usia Brussel. (U.P.). — Flóð mikil eru nú í Kongo-fljóti í nýlendu Belga í Afríku. Hafa fljótin brotið nokkrar brýr yfir fljótið og sópað á brott járnbraut á bökkum þess á nokkrum kafla. Vegna flóðanna hefir höfuðborgin, Leopoldville, verið rafmagns- laus um hríð. - ICeísarastylly stolið. Bonn. (U.P.). — Mynda- styttu af Vilhjálmi keisara hefir verið stolið í borginni Eckernförde. Myndin var hálfur þriðji metri á hæð og óg yfir 300 kg. Leikur grunur á, að brotajárns- salar hafi haft styttuna á brott með sér. -v.r« KveHjuathöfn mol - oli’kar, ■ Margrétar rí JœriisilóátMr ' • frá Ásl /s ,;.?Weppiý- . r& r í ■' *" Ú; ■;,$ _ _ 'X fer fram Irá Dómkirl: \ miðvikud 2 3-. kl. 3 e.h. Jarðarförii ■TraiBi að Ásirlangard. 26. þ.m. kl. 1 e.h. Eörn hiönar F >na. mmmMmMMBmLLzzisiimss

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.