Vísir - 06.02.1952, Síða 8
VISIR
Miðvikudaginn 6. febrúar 1952
limræðum um utanríkismál
í brezka þinginu frestað.
líomi’iigs nilnnsf í hrezka>
þinginu' og funduon siðan
Brezka bingið kom saman til fundar á venjulegum tíma. Var
hins látna konungs rninnst og þingfundum bar með frestað. —
. I
í gær fluttu aðalræðurnar
Eden ' utanríkisráðherra og
At'tlee fyrrverandi forsætisráð-
hérra. Stjórnarandstæðingar
hafa lagt fram tillögu, þar sem
lýst er ánægju yfir stefnu fyrr-
verjandi stjórnar í utanríkismál
um varðandi Kína og Kóreu, en
síðari hluti tillögunnar felur í
sér gagnrýni á Churchill fyrir
að taka ekki skýrt fram í Wash
ington, að sú stefna væri ó-
bréytt. Atkvæðagreiðsla fer
fram að loknum umræðum í
kvöld.
Eden kom víða við í ræðu
sinni sem að líkum lætur. Nokk
ur höfuðatriði ræðunnar voru:
Minni hætta er á bráðri
styrjöld í Evrópu. Saardeiluna
væri auðið að leysa með gætni
og stjórnhyggindum. Bretar
munu hafa nána samvinnu við
Vestur-Evrópuþjóðirnar. Brezki
herinn á meginlandinu mun
hafa náið samstarf við fyrir-
húgaðan Evrópuher, m. a. að
því er varðar þjálfun, birgðir
o. s. frv. Bretar vilja í allri ein-
lægni, að samkomulag náist,
er tryggi öryggi Suezskurðar.
í>eir vilja einnig samkomulag
um Sudan en án þess að ganga
á bak loforða sinna til Sudan-
búa. Bretar vilja lausn brezk-
persnesku olíudeilunnar og
telja samkomulagshorfur hafa
batnað eftir seinustu ummæli
Mossadeghs forsætisráðherra.
Heppilegra hefði verið, ef jap-
anska stjói’nin hefði frestað
viðurkenningu sinni á stjórn
kínverskra þjóðernissinna. —
Bretar hefðu ekki tekið sér á
herðar nýjar skuldbindingar í
Washington varðandi Kóreu-
styrjöldina. — Viðræður yrðu
hafnar þegar, ef vopnahlé í
Kóreu yrði rofið.
Fundirnir í
Washington.
Einn þingmanna jafnaðar-
manna vitnaði í ummæli banda-
ríska flotamálaráðherrans og
Fechtélers flotaforingja, þess
efni's, að herja yrði á Kína,' ef
vopnahlé yrði ekki samið. Ed-
en sagði, að á fundunum í
Washington hefði ekkert verið
sagt, sem kæmist í námunda
við að vera í samræmi við þessi
ummæli. Eden kvað Bandaríkja
stjórn ekki vilja útbreiðslu
Kóreustyrjaldarinnar. Hvatti
hann eindregið til rétts skiln-
ings-manna á afstöðu hennar
og minnti á fórnir Bandaríkja-
manna í Kóreu.
Attlee sagði í ræðu sinni, að
ræða Churchills í Washington
hefði frekar borið keim sölu-
mennsku en stjórnvizku, og
hún hefði ekki verið í sam-
ræmi við það, sem hann sagði
í ræðu sinni í neðri málstof-
unni eftir heimkomuna. Hann
kvað sum ummæli í ræðu
Churchills hafa vakið mikinn
kvíða margra, einkanlega þau
ummæli, sem menn skildu svo,
sem Churchill vildi styðja
stjórn Chiangs Kai-shéks. —
Attlee mælti nokkur viðvörun-
arorð til þeirra, sem með ógæti-
legum skrifum og ummælum
stofna samstarfi Breta og
Bandaríkjamanna í hættu. —
Hvatti hann til stuðnings við
þá Bandaríkjamenn, sem vilja
hindra útbreiðslu Kóreustyrj -
aldarinnar.
Meira frjálsræði
á Suez-eiði.
Erskine hershöfðingi Breta
á Suezeiði liefir tilkynnt, að
dregið verði úr hömlum á
frjálsræði manna á Suezeiði og
takmörkun á olíufiutningum
frá Suez til Kairo.
Egypzkum verkamönnum,
sem starfa fyrir Breta, fer nú
aftur fjölgandi.
Farouk konungur hefir opin-
berlega vottað samúð sína að-
standendum þeirra, sem létu
lífið í óeirðunum í Kairo.
Fellur Faure
fljótlega?
Faure forsætisráðh. Frakk-
lands hefir farið fram á traust-
yfirlýsingu vegna ágreinings,
sem upp er kominn, um stefnu
stjórnarinnar í kaupgjalds- og
launamálum.
Hefir stjórnin lagt fram til-
lögur um stig-hækkandi og
lækkandi kaup í samræmi við
verðlagsbreytingar.
Umræða um þessi mál hefst
á morgun. Faure hefir boðað
að hann muni og ræða Saar-
málið og Tunismálið.
Vígbúnaðarkostn-
aður Breta.
Churchill var spurður að því,
hvort hann hyggði að endurvíg-
búnaðaráætlunin, sem ráðgert
er að framkvæma á 3 árum, og
verja til 4700 milljónum sterl-
ingspunda, yrði framkvæmd á
áætluðum tíma.
Churchill sagði, að hann
hefði áður látið í ljós, að það
yæri vafasamt, að áætlunin
gæti staðist, en hún kynni að
kosta allt að 5200 millj. stpd.
vegna hækkaos verðs á hra-
efnum.
Næg mjólk
barst í gær.
Mjólkurstöðinni bárust í gær
um 30 þús. lítrar mjólkur frá
Mjólkurbúi Flóamanna, 6—7
þús. lítrar frá Borgarnesi, nokk
ur þúsund lítrar frá Akranesi
og úr nærsveitum Reykjavíkur,
eða samtals 46—48 þús. lítrar.
Fékk Mjólkurstöðin þannig
venjulegt mjólkurmagn eða
það, sem hún þarf. Mjólkur-
flutningarnir méga nú heita
komnir í vanalegt horf aftur og
sýna tölurnar einnig, að mjólk-
urflutningar til mjólkurbúanna
eru að komast í betra horf. —
Mjólkurbú Flóamanna mun í
gær hafa fengið mjólk úr öll-
um sveitum, nema Mýrdaln-
um. Mjólkurflutningar til Borg
arnessbúsins munu ganga greið
lega.
Hætti ekki á
að lenda við
Sauðárkrók.
Flugvél frá Flugfélagi íslands
tyllti sér á flugvöllinn við Sauð
árkrók í gær, en flugmaður
taldi ekki rétt að nema staðar
vegna glerhálku á vellinum.
Fugvélin hélt síðan áfram til i
Melgerðismelavallar í Eyjfirði
og lenti þar. Þykir flugmaður-
inn hafa sýnt mikla aðgæzlu og
varúð við þetta tækifæ.ri, sem
ástæða er að geta,. með ,því áð
kunnugt er, að stórslys hafa
orðið víða á flugvöllum, er
flugmenn hafa reynt að hemla
vél sína á hálli flugbraut.
Batnandi horfur
í Panmunjom?
Aðalsamninganefndir Sam-
einúðu Þjóðanna og kommún-
ista komu saman á fund x morg-
un í Panmunjom.
Var þetta fyrsti fundur aðal-
nefndanna í tvo mánuði. Full-
trúar kommúnista lögðu fram
tillögur um ráðstefnu forystu-
manna á sviði stjórnmála, og
skyldi hún haldin eigi síðar en
3 mánuðum eftir undirritun
vopnahlés.
Allsherjaþinginu lokiö.
Sjötta allsherjarþingi S. Þj.
lauk í París í gær.
Seinasta ályktunin, sem það
samþykkti var um að allsherj-
arþingið skyldi kvatt saman, er
vopnahlé yrði gert í Kóreu, eða
ef knýjandi ástæður væru fyrir
hendi.
JarðbéfBii Iwar-
vefna aiiestaix*
fjalls.
Færð austanfjalls er emt
mjög þung og víða illfært, að
því er Vísi var tjáð á Sclfossi £
gær.
Þá var ennnfært í Laugardal,
en mjólk er flutt á sleðum á
móts við bíla að Apavatni, en
þar skipzt á vörum. Flóinn var
mokaður í fyrradag, þá er fært
í Holtin, um Rangárvelli, í
Fljótshlíð, upp. á Land og í
Þykkvabæ. Illfært er austur
undir Eyjafjöll. Þá hefir leiðin
til Eyrarbakka og Stokkseyrar
opnazt.
í fyrrinótt var hæg hláka
austanfjalls, en í gær gekk á
með útsynningi og éljum. Jarð-
bönn eru alls staðar austan-
fjalls.
Bíllinn féll
úr „stroffu.“
Fyrir nokkru eyðilagðist bíll
í eigu Reykvíkings í Englandi,
og með nokkuð óvenjulegunr
hætti.
Var þetta Buick-bifreið, eigix
Ásbjarnar Ólafssonar, stór-
kaupmanns. Var hann á leið til
Danmerkur á Gullfossi, og var
bíllinn í lest. Þegar komið var
til Leith, þurfti að flytja bílinn
til, svo að komizt yrði í næstu
lest fyrir neðan, en þá mun
bíllinn hafa runnið úr ,,stroffu“
eða taug bilað, sem honum var
lyft með, svo að hann féll nið-
ur og eyðilagðist að mestu. —
Ekki er blaðinu kunnugt unx
nánari atvik.
18 manns drukkna
hjá Singapore.
Singapore (UP). — Nýlega
drukknuðu 18 manns — þ. á m.
10 börn — af vélbáti í fljóti
6kammt héðan.
Vélbáturinn mátti aðeins
bera 10 manns, en alls voru á
honum 46, sem hlupu út í annan
borðstokkiim, þegar báturinn
rakst á rekavið, ög hvolfdi þá
bátnum.
Mynd þessi er tekin af i
Elisabeth ríkisarfa og)
Philip hertoga, manni:
hennar. Elisabetli mun j
nú setjast í veldisstól i
að föður sínum látnum.
Mun hún að sjálfsögðu í
hætta við för þá, sem i
hún og hertoginn eru i
nýlögð af stað í tilip
samveldislanda Breta. '|
Munu hertogahjónin j
hraða sér heim og vera i
komin til Lundúna áii
morgun.