Vísir - 23.02.1952, Blaðsíða 2
V 1 S I R
Laugardaginn 23. febrúar 1952
Frúin: Hildur, eg sá að mjólk-
ursendillinn var að kyssa yður
í moi'gun. Svona atferli þoli eg
ekki. Hér eftir ætla eg sjálf að
taka við mjólkinni.
Hildur: Það er alveg gagns-
laust frú. Þýðir ekki baun. —
Han hefir Iofað að kyssa enga
nema mig.
•
Philippe Hériat, hinn kunni
franski leiðbeinandi er mikill
Napóleonsfræðingur og hann
fullyrðir að allir leikarar, sem
leiki keisarann, fái einhvern
snert af stórmcnnskuæöi hans.
Hann nefnir mörg dæmi, en
einna bezt þykir frásögn hans
af leikara einum, sem hafði bú-
izt í gerfi Napóleons, stillti sér
síðan fyrir framan mynd af
honum og sagði: „Jú, hann er
reyndar líkur mér!“
•
Mannorð okkar fáum við af
því, sem fólk segir um okkur á
bak.
•
Maðurinn yðar verður að
hafa fullkomna ró. Hér er
Gvefnmeðal.
Hvenær á eg að gefa honum
það?
Þér eigið ekki að gefa honum
það. Þér eigið að taka það
sjálfar.
•
Gesturinn kom of seint áð
veizluborðinu og átti sæti naerri
efra hluta matborðsins, þar sem
verið var að skera niður gæsa-
steik. „Nú, já, já,“ sagði hann,
„svo að eg á að sitja hjá gæs-
tnni“. Þá tók hann eftir að kona
eat honum til vinstri handar og
hann flýtti sér að gera bragar-
bót. Hann sagði í afsökunar-
rómi: „Vitanlega átti eg við þá
Gteiktu“.
Cíhu Mmi
Eftirfarandi auglýsing frá
matvöruverzlun hér í bæ birt-
ist í Vísi hinn 23. febr. 1927:
í gamla daga
fóru karlarnir skreiðarferðir
vestur undir Jökul. Það voru
dýrar og erfiðar ferðir, en þeir
vissu, hvað freðfiskurinn var
. mikils virði fyrir magann og
heilsuna. Fólkið kvaldist ekki
af tannpínu í þá daga, því Jökl-
arinn er ágætur tannlæknir.
Reykvíkingar eiga nú kost á
þessari ágætis vöru mjög fyrir-
hafnarlítið, því það er. verzlun
hér, sem hefir ágæt sambönd
með kaup á fiski vestra og selur
hann hér bæði í smáum og stór-
um kaupum, en það, sem mest
er um vert, sendir hann barinn
heim til yðar.
Önnur auglýsing var á þessa
leið:
Fílsplástur
er ný tegund af gigtarplástri,
sem hefir rutt sér braut um
allan heim. Þúsundir manna
reiða sig á hann. Eyðir gigt og
taki. i
BÆJAR
y* * 5 ^ - ii-i. * l ■
, IMlÍÍÍC
I.augardagur,
23. febrúar, — 54. dagur árs-
ins.
Ungbarnavernd Líknar,
Templafasundi 3, er opin
þriðjud. kl. 3.15—4 og íimmtud.
kl. 1.30—2:30.
Kelgidagsíæknir
á morgun, sunnud. 24. febrú-
ar, er Kjartan S. Guðmunds-
con, Úthlíð 8; sími 5351.
Messur á morgun:
Dómkirkjan: Messað kl. 11.
Síra Jón Auðuns. — Kl. 5. Síra
Óskar J. Þorláksson.
Hallgrímskirkja: Messað kl.
11. Síra Sigurjón Þ. Árnason.
Sarnaguðsþjónusta kl. 1.30.
Síra Sigurjón Þ. Arnason. Kl.
5. Síra Jakob Jónsson.
Nesprestakall: Messað í
Mýrarhúsaskóla kl. 2.30. Síra
Jón Thorarensen.
Fríkirkjan: Messað kl. 5. —
Síra Þorsteinn Björnsson. —
Barnaguðsþjónusta kl. 2. Síra
Þorsteinn Björnsson.
Oháði fríkirkjusöfnuðurinn:
Messað í Áðventkirkjunni kl. 2
e. h. Þessir sálmar verða sungn-
ír : Nr. 223, 374. 13 og óprent-
aður sáimur. Síra Emil Björns-
son.
Laugarneskírkja: Messað kl.
2. Síra Garðar Svavarsson. —
Barnaguðsþjónusta kl. 10.15.
Fossvogskirkja: Messað kl.
11. Síra Garðar Svavarsson.
Hafnarfjarðarkirkja: Barna-
guðsþjónusta í KFUM kl. 10 f.
h. Síra Garðar Þorsteinsson.
KtcMgáta hk /SS6
Lárétt: 1 svsekja, 6 lítinn
hóp, 8 hljóm, 10 fiskur, 12 gerð
úr heyi, 13 ekki beint, 15 léttúr
á fæti, 17 ending, 18 grannur,
20 björg.
Lóðrétt: 2 ekki van, 3 hlé, 4
sænskt nafn, 5 barefli, 7 akrar
um vetur, 9 í kindum, 11 á ak-
týgjum, 13 reiðmenn slá stund-
um undir hann, 16 ílyt út!, 19
rafveita. ■
Lausn á krossgátu nr. 1556:
Lárétt: 1 sjóli, 6 efi, 8 þý, 10
ámur, 12 Eli, 14 als, 15 Níls, 17
la, 18 mús, 20 Márana.
Lóðrétt: 2 JE, 3 ófá, 4 lima,
5 Aþena, 7 orsaka, 9 ýli, 11 ull,
13 ilma, 13 súr, 19 SA.
Merkjasala KSVÍ.
Börn þau, sem ætla að sélja
merki KSVFÍ í Reykjavík 1.
Góudag, sæki þau í dag í skrif-
'stofu félagsins, Grófinni 1,
l'rá kl. 2 e. h. Kvennadeildar-
konur efna til sérstakrar kaffi-
eöIu á morgun í Breiðfirðinga-
búð til ágóða fyrir slysavarna-
etarfsemina.
Hjúskapur.
í dag verða gefin saman í
hjónaband ungfrú . Steinunn
Guðnadóttir, verzlunarmær, og
Guðm. Jónasson, skipasmiður.
Heimili brúðhjónanna verður í
Faxaskjóli 4.
Fimmtug
er í dag frú Ingibjörg Briem,
Eskihlíð 14.
Náttúi'ufræðifélagið
heldur fund í 1. kennslustofu
Háskólans n. k. mánudag kl.
20.30. Þar sýnir Sturla Frið-
riksson myndir úr Eldlandsför.
Virkið í norðri,
2: hefti 1. árg. er komið út und-
ir ritstjórn Gunnars M. Magn-
úss.
VfSIU.
Nýir kaupendur blaðsins £á
það ókeypis til mánaðamóta.
Visir er ódýrasta dagblaðið,
sem hér er gefið út. — Gerist
áskrifendur. — Hringið í síma
1660.
Ferðaskrifstofan
ráðgerir, ef veður og færi leyfir
að fara tvær skíðaferðir á
runnudaginn. Sú fyrri verður
farin kl. 10 -upp að Kolviðar-
hóli og í Hveradali.
Síðari ferðin er kl. 13.30 og
verður ekið að Lögbergk Skíða-
fólk vei'ður tekið í eftirgreind-
Um bæjarhverfum':
Kl. 9.30 við Sunhutorg, vega-
tnót Nesvegar og Kaplaskjóls
— Miklubrautar og Lönguhlíð-
ar.
Kl. 9.40 við vegamól Laugar-
nesvegar og Sundlaugarvegar.
Vegamót Hofsvallagötu og
Hringbrautár og við Litlu-
bílastöðina.
Útvarpið í kvöld:
i 20.30 Útvarpstríóið: Tríó í
F-dúr eftir Hummel. — 20.45
Leikrit: „Blóm til ídu“ eftir
Hans Hergin, í þýðingu Leifs
Haraldssonar. Leikstjóri: Þor-
cteinn Ö. Stephensen. — 21.35
Tónleikar (plötur). 22.00 Frétt-
ir og veðurfregnir. 22.10 Passíu-
cálmur nr. 12. 22.20 Danslög
(plötur) til kl. 24.
Barnaskemmtun
verður í G.T.-húsinu á morg-
un kl. 3 e. h. Til skemmtunar
verður: Gamanvísur, píanósóló,
söngur, upplestpr, harmoniku-
sóló, söngur með guitarundir-
leik, leikþættir o. fl. Aðgöngu-
miðar fást við.inngánginn.
Skip Eimskip.
Bfúarfoss fór1 frá ‘Hull s. 1.
miðvikudag frá Hull áleiðis til
Réykjavíkur, Dettifoss fer frá,
Reykjavík í kvöld til Akureyr-
ar, Siglufjarðar og Vestfjarða,
Goðafoss kom til New York 16.
þ. m., Gullfoss er í Kaupmanna-
höfn, fer þaðan í dag til Leith
og Reykjavikur, Lagarfoss fór
frá Hafnarfirði til New York
sl. fimmtudag, Reykjafoss fór
frá Aptw.erpen sl. fimmtudag
til Hamborgar, Belfast og
Reykjavíkur, Selfoss fór frá
Reykjayík í gærkveldi til
Stykkishólms, Bolungarvíkur,
Tröllafoss fór í gærkvöld héð-
an frá Reykjavík til New York.
Súgandafjarðar og Flateyrar,
Skipaútgerðin.
Hekla var á ísafirði síðd. í
gær á norðurleið, Skjaldbreið
er á Eyjafirði, Þyrill er í Rvík,
Oddur er á Austfjörðum, Ár-
mann fór frá Reykjavík í gær-
kvöld til Vestmannaeyja.
SH- C1.S.
Hvassafell losar kol fyrir
Vesturlandi. Ai'narfell er vænt-
anlegt til Vestmannaeyja á
morgun, Jökulfell lestar 'freð-
fisk fyrir Norðurlandi.
Reykj aví kurbátar.
Landróðrabátar eru allir á
sjó í dag aftur, en í gær var
afli þeirra með skársta móti.
Steinunn gamla 6 lestir, Svan-
ur 4 leslir, Skeggi 2y2 lest, Ás-
geir 6290 kg., Dagur 5 lestir,
Hagbarður um 9 lestir.
Höfnin. __
Danskt kolaskip, Concordia,
er komið hingað með kol og
mún leggjast að uppfylling-
unni ’hjá kolakrananum, þegar
búið er að losa saltskipið, sem
þar er.
Togararnir.
B.v. Goðanes seldi ísfiskafla
í Hull í gær, 3400 kit fyrir 830.0
stpd. oð Bjarnarey. í Grimsbylí
dag, -3333 kit fyrir 7611 stpd.
Togarinn Fylkir seldi afla
sinn í Grimsby í morgun, 3733
kit fyrir 9550 stpd.
BEZT AÐ AUGLYSAI VISl
Gœfan fylgir hringunum frá
SIGURÞÖR, Hafnarstræti 4.
Margar gerOir fyrirUggjandL
Karlmanna-
bomsur
Karlmannaskóhlífár, barna-
bomsur, barnagúmmístígvél,
kvenbomsur, kvart hælar.
MAGNOS THORLACIUS
hæstaréttarlögmaður
Málaflutningsskrifstofa
Aðalstrætl 9. — Siml 1875.
Barnaspítalasjóðs Hringsins
eru afgreidd í Hannyrða-
verzl. Refill, Aðalstræti 12,
(áður verzl. Aug. Svendsen),
í Bókabúð Austurbæjar,
Laugav. 34, Holts-Apoteki,
Langholtsvegi 84, Verzl.
Álfabrekku við. Suðurlands-
braut og Þorsteinsbúð,
Snorrabraut 61.
Dóttir mín og systir,
Jóita Jónsdótiir
iézt á Landspítalanum 22. b.m.
IngigerÖur Þorvaldsdóttir,
Elín Meisted.
er ódýrastur í áskrift.
Sparið fé og kaupið Visi.
Þökkum samúSarkveðjur og hluttekningu
við fráfalS og jarðarför móður okkar og fóstru,
Ifielgu Símonardótinr
Guðrún Gísladóttir,
Jóhann Gísiason,
Norðmann Thomasen.
iV^i> kaupendur fn blað-
ið ókeypis íil wnánaða-
tnóia - Míringið * sitna WðO