Vísir - 12.03.1952, Blaðsíða 1

Vísir - 12.03.1952, Blaðsíða 1
42. árg. Miðvikudaginn 12. marz 1952 59. tbl. Einn af enæfy^ ¥eðyr- stofunnar fér m skorð- úm. Upptökim kaae. íb°m íiepíiges;a?ék Laust eftir klukkan 11,10 í morgun fannst snarpur land- skjálftakippur hér í bæ og grennd. Var kippurinn svo snarpur, að lausir munir. léku á reiði- skjálfi og bollar dönsuðu þar sem þeir stóðu á; borðum. Mun þó ekki hafa orðið verulegt tjón af völdum landskjálftans, að minnsta kosti hafði logregl- an hér ekki frétt um annað en að tveir steinar hrundu úr reykháfi hússins nr. 19 við Skólavörðustíg, og munaði litlu, að þeir lentu á vegfar- anda. . , Samkvæmt upplýsinguró, sem Veðurstofan hefir gefið blaðinu, :munu upptök hrær- inganna hafa orðið um það bil 30 . kílótnetra héðan, suður á íteykjanesi, og fannst kippur- inn til dæmis greinilega í Keflavík, að því er Vísi var tjáð, . en , þar mun ekki: heldur hafa verið um neitt tjón að ræða. í Hafnarfirði mun kippurinn hafa verið álíka snarpur og hér. En svo var kippurinn hgrður hér, að einn af land- skjálftamælum Veðurstof- , unnar fór úr skorðum við liræringarnar. Telja menn, að hér hafi ekki orðið vart eins snarpra hræringa síðan árið 1929, en þá urðu hér nokkrar skemmdir af völd- um landskjálfta. Vísir átti tal við Selfoss á tólfta tímanum, eftir land- skjálftann, og var blaðinu tjáð, að þar hefði hræringanna ekki orðið vart. Þeirra varð heldur ekki vart í Hveragerði. Börn forðuðu sér af Tjörninni. — Börn voru að leika sér á ísn- um á Tjörninni, þegar hrær- inganna varð vart, og urðu þau skelkuð vegna braks og hávaða í ísnum, svo að þau þustu til lands í flýti. í fyrradag var góður afli hjá Grindavíkurbátum, en þann dag fengu tveir bátar, Búi og Bjarnþór, um 24 Iestir ‘hvor. Afli.annarra báta var ágæt- ur og segja útgerðarmenn í Grindavík að. þann dag hafi verið mokafli. Af 15 bátum, er leggja afla sinn upp í Grinda- vík, eru 12 með net en 3, með línu. Landróðrabátar með línu hafa fiskað mjög lítið, og sízt betur en bátar héðan úr Reykja vík. , í Þorlákshöfn hefir frétzt um ágætan afla, en það ber þó að hafa það í huga, að þar suður frá er fiskur veginn upp úr sjó og má draga ríflega l/e frá vigt- inni, ef borið er saman við afla t. d. ’Reykjavíkurbáta. . - Skeytin Flotamálaráðunéytið í Banda ríkjunum skýrir frá nýrri gerð eldfiauga, sem skjóía má úr flugvélum. Eldflaugarnar eru þannig gerðar að þær elta uppi flug- vélar, sem þeirn er skotið á, jafnvel þótt þær breyti stefn- unni, og granda þeim. Snjóbílar bóðnir til kaups hér. Eins óg getíð hiefir verið í Vísi, hafa boðizt hingað beltis- bílar af Weasel-gerð. Er það sænskt fyrirtæki, sem hefir boðið bílana til sölu hér, en þeir voru áður eigh ameríska hersins í Þýzkalandi, og hafa mikið verið notaðir í snjóþyngstu héruðum Skandi- naviu. Slíkir bílar kosta um 35.000 kr. hingað komnir, en umboðið hefir Þ. Jónsson & Co. hér í bæ. ÞorkeSs mána. B.v.' Þorkell máni seldi ís- fiskafla í Hull í gær, 3829 kit fyrir 10.056 stpd. Er það bezta aflasala íslenzks togara í Englandi nú um hríð. Fregnir hafa nú borizt um sölu Jörundar. Hann seldi í Aberdeen 3594 kit fyrir 7068 stpd. eftir 5 daga bið ytra. Gottwald forseti Tékkósló- vakíu er um þessar mundir í opinberri heimókn í Austur- Berlín, ásamt utanríkisráðherra landsins, og fleiri ráðherrum. „Hafrót" spílfir AðgerH firaaia- kvœmd á lioimm. Undanfarna daga hafa vegfarendur veitt því at- hygli, að nokkrar fram- kvæmdir væru í sambamli við Tjarnarhólmann. Er verið að byggja upp hólmann, sem orðið hefir fyrir tjóni af öldugangi, þótt undarlegt megi virðast. Að vísu gætir „hafróts“ ekki mikið á Tjörninni, eins og nærri má geta, en þó svo, að ástæða hefir þótt til þess að hefta spjöll af völdum þess. Jafnframt fara fram at- huganir á því, hversu mikið kosti að dýpka Tjörnina, og hefir leðja af botninu verið flutt til uppfyllingar í Vaínsmýrinni. Þá hefir ver- ið gengið úr skugga um, að í henni eru ekki þau gróður- efni,. scm margir hafa talið. Þessu verki mun að lík- ipdum veyða lokið í dag. Eisenhover sigraði Taft Og báðir sigurvegarar eru vStanlega ánægðir. Sú var tíðin, að Iiandaflið var nær eitt notað við höfnina, en. nú er öldin önnur. Myndin sýnir, hvernig tyær vinnuvélar eru notaðar samtímis, til að lyfta geymi, er vegur átt smálestir, upp á vagn, sem á að flytja hann til „síns heima“. Hægra megin er krani, sem dregur geyminn upp að vagninum, cii til vinstri vörulyfta, sem lyftir honum yfir smábrún, sem var til trafala. 4! menn} ara jg bjarpst allir. ÆtiteeB'öeeB’ Jeeési skeöi eé JsejskeeBBe iet/zet'ee út eef HeejkjeeBeesi é fejBTÍnótt. í nótt, laust eftir miðnætti, kom þýzkur togari hingað til Reykjavíkur með fjóra slasaða menn, sem allir voru lagðir í sjúkrahús. Togari þessi heitir „Seefahrt“ og er frá Bremerhaven. . Lagði hann af stað þaðan þann 4. þ. m. og hélt beint á íslandsmið. I fyrrinótt var togarinn að veiðum vestur af Reykjanesi. Vindur var þá suðaustlægur og veðurhæðin 8—9 stig. Um hálfþrjúleytið í fyrrinótt var lokið við að draga vörpuna inn og var togarinn látinn reka á meðan unnið var að því að festa rúllurnar og vörpuna. Kl. 3.45 reið allt í einu brotsjór yf- ir skipið, tók hann út ýmislegt lauslegt á skipinu, braut brúna og rúður í glugga o.g olli fleiri skemmdum. í þessum sama brotsjó tók út fjóra menn, en sá fimmti gat á síðustu stundu náð handfestu og haldið sér föstum. Tveir meira eða minna slasaðir og voru fluttir á sjúkrahús í nótt. Voru tveir þeirra fluttir í Landakotsspítala, einn í Lands- spítalann og einn. í sjúkrahús Hvítabandsins. Um líðan þeirra í morgun var blaðinu ekki kunnugt. Hér er um einstæða björgun að ræða, er tekst að bjarga fjór- um mönnum frá drukknun, sem alla tekur út í sama ólaginu. Skipstjóri á ,,Seefahrt“ heitir Hans Wahren og er frá Bremer- haven. Fregnir frá New York herma, að langt sé komið að telja atkvæði í undirbúnings- kosningunum í New Hamps- hire. Þær eru jafnan taldar veita athyglisverðar vísbendingar um hverjir muni verða fyrir endanlegu vali sem forsetaefni flokkanna. Þegar seinast fréttist höfðu 35.000 republikanar greitt Eisenhower atkvæði, en 27.000 Robert Taft, sem í fyrri fregn- um var talinn hafa unnið mik- ið á að undanförnu, en. hann hefir ferðazt um fylkið þvért og endilangt til fundahalda. Eisenhower sigrar Taft fyrir- sjáanlega með talsverðum meirihluta og hefir hershöfð- inginn lýst ánægju sinni yfir úrslitunum. „Republikanar í New Hamps- hire hafa vottað mér traust, sem hver Bandaríkjamaður gæti verið hreykinn af“, sagði hann. 16.500 demokratar höfðu greitt Estes Kefauver öldunga- deildarþingamanni atkvæði, er síðast fréttist, og 13.500 Tru- man forseta. Hefir Kefauver lýst yfir, þótt fullnaðarúrslit séu ekki kunn, að hann hafi sigrað Truman. Mig-vélum grandað. Bandarískar þrýstiíoftflug- vélar í fylgd með sprengjuflug- vélum skutu í morgun niður 4 þrýstiloftsvélar af MlG-gerð. Fundir voru haldnir í Pan- munjom í morgun. Kommún- istar báru fram nýjar tillögur í undirnefndinni, sem ræðir eft- þessara manna voru frammi á irlit meS vopnahiéi. Kommún- skipinu, en þrír voru á þilfari við síðuna. Stýrimanni tókst méð snar- ræði sínu og þrátt fyrir að allt væri á kafi í sjó að ná í einn mannanna og kippa honum upp á þilfarið aftur. Tveir mann- anna höfðu náð handfestu á kaðli og voru þeir einnig dregn- ir upp á þilfar þegar í stað. -— Fjórði hásetinn hafði lent á milli vörpunnar og rúllanna sem einnig flaut fyrir borð í ólaginu og heyrðist í honum \neyðaróp. Tókst skipverjum að kasta til hans björgunarhring með línu og draga hann upp á þilfar fimm mínútum eftir að brotsjórinn reið yfir. Mennirnir fjórir voru allir istar hafa ekki hvikað frá þeirri afstöðu sinni, að Ráð- stjórnarríkin fái fulltrúa í eft- irlitsnefndinni. Verðhrun á kaup- höll í Kalkútta. Eitthvert mesta verðhrun, er átt hefir sér stað um langt ára- bil varð nýlega á kauphöllinni í Bombay. Gæt.ti áhrifanna þegar í Cal- kutta og öðrum stórborgum austur þár. Verð á gulli féll um 20% og mikið verðfall varð á verðbréfum og afurðum. j

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.