Vísir - 23.04.1952, Blaðsíða 16

Vísir - 23.04.1952, Blaðsíða 16
LÆKNAB O G LIVIABÚÐIS ¥snti yður lækni kl. 18—8, þá hxmglð í Læknavarðstofuna, símí 5Ö30. Vörður er í Reykjavíkur Apóteki, sími 1760. LJÓSATlMI bifreiða og annarra ökutækja er kl. 21.55—- 5.00. Næst verður flóð í Reykjavík kl. 17.20. Miðvikudaginn 23. apríl 1952 samkomuhiásiiin á suorguu, auk margra daeisbikfa. Takmark Sumargjafar er dagtieimili og leikskólar fyrir 600-700 börn. Barnavinafélagið Sumargjöf cfnir til 19 skemmtana í 11 sam komuhúsum á morgun, sumar- daginn fyrsta, auk útiskemmt- ana og dansleikja. Allur ágóði af skemmtunun- um rennur til starfsemi féiag's- ins í Reykjavík.en það er rekst- ur dagheimila og leikskóla. — Arngrímur Kristjánsson kenn- ari skýrði fréttamönnum frá því í gær, að nú væri takmark- ið 600—700 börn á dagheimil- um og leikskólum árið um kring. ísak Jónsson, formaður félagsins, er erlendis og gegnir Arngrímur störfum hans, en hann er varaformaður. Bogi Sigurðsson er framkvæmdar- stjóri og Jónas Jósteinsson rit- ari, en þeir skýrðu frá tilhög- un hátíðahaldanna á vegúm fé- lagsins á morgun. Hátíðahöldin hefjast með skrúðgöngu barnanna frá Aust- urbæjarskólanum og Melaskól- anum að Austurvelli. Þar flyt- ur sr. Emil Björnsson ræðu af svölum Alþingishússins. En að jþví loknu hefjast skemmtanir í hinum ýmsu samkomuhúsum. Leiksýningar verða fjórar: Happið í GT-húsinu, Litli Klá- us og Stóri Kláus í Þjóðleikhús- in'u, kvöldskemmtun í Sjálf- stæðishúsinu. Skemmtanir verða í kvikmyndahúsunum með leikþáttum, söng, hljóm- leikum, upplestrum o. fl. Á götunum verða seld-merki dagsins og eru þau tvenns kon- ar. Merki, sem kosta 5 kr. og happdrættismerki á 10 kr, Happ drættismerkin eru tvöföld og geta menn þegar í stað gengið úr skugga um hvort vinningur falli á miðann, en dráttur hefir farið fram um vinninga. Vi’.m- ingarnir eru til sýnis í glugga Loftleiða í Lækjargötu. Enn- fremur verður Sólskin selt á götunum og Barnadagsblaðið. 1 SS JB SS JS IIIisas|BiBraMia isastaHi tækifæriði. París (AP). — Tékkneskur íþróttamaður, Emile Bacigal, hefir fengið hæli hér sem póli- tískur flóttamaður. Bacigal var sendur til Frakk- lands til að taka þátt í víða- vangshlaupi, sem kommúnista- samtök efndu til. Hann er með- al sex beztu langhlaupara Tékka. er Hvað verður um giftíng- arhringinn við skilnað. Snmnm er breitt í m&'. Einum fréttaritara AP í Los Angeles flaug í hug að forvitn- ast um það, hvað fólk gerði við giftingarhringa sína, þegar það r skildi. Hann hringdi til Reno, skiln- aðarborgarinnar miklu í Nev- ada, og spurði, hvað yrði af gift ingarhringum þeim hinum : mÖrgu, sem þar losna úr vist- inni. Svörin voru höndum — það er venja að fleygja þeim í Truekee-ána, er rennur hjá borginni. (Hún virð ist vera einskonar Peningagjá). Síðan leit maðurinn sér nær, og spurði margar konur í Los Angeles, hvað þær hefðu gert við hringana, þegar þær skildu. Flestar svöruðu því, að þær hefðu bara stungið þeim ofan í kommóðuskúffu. • , Margar svöruðu því til, að þær hefðu eiginlega ekki hugs- að um, það, hvað þær ættu iað . gera við hann •— hann væri OTeánhvgrs staðar. heima“,., En svörin voru ekki öll á þá leið. . Afgreiðslustúlka í lyfjabuð :svaraði: „Hann gaf mér hring- „kokkíeil“-liringi. farga honum, en ég ætla heldur ekki að bera hahn.“ Önnur, frammistöðustúlka, mælti: „Þetta er enginn dýr- gripur, en ég ætla að geyma hann, svo að hann geti minnt mig á það, að ég gerði einu sinni vitleysu.“ Fæstar konur hugsa sér að selja hringana. Stundum eru á reiðum jþað tilfinningar, sem því ráða, en ekki ævinlega. Kona ein, sem á fulíkomna snyrtistofu, og hefir það ser til dundurs að safna giftingarhringum — en ekki eiginmönnum . jöfnum höndum — sagði um giftingar- hring sjálfrar sín: „Eg ætla að láta breyta honum í „kokkteil"- hring fyrir litla fingurinn á mér. Það hafa margar fráskild- ar vinkonur mínar gert. Eg veit um eina, sem lét breyta sínum í trúlofunarhring handa unn- ustu sonar síns.“ , . Aðeins ein gat ekki,. svarað. Hún var móðir t.veggja barna. Hún sagði: „Nú, hann gaf mér aldrei hring. Það var ein af á- stæðunum fyrir þyí, að ég.skildi ' r T" ' Laxmess fimm- tugur í dag. Rithöfundurinn og skáldið Haildór Kiljan Laxness er 50 ára í dag. Dvelur hann nú í Gljúfrasteini og þangað munu honum margar kveðjur berast. Eftirmæli verða hér ekki skráð urn þenna umdeilda rithöfund, en seint munu beztu verk hans gleymast þjóðinni þótt ýmsum hafi gert bæði sárt og að klæja við lestur annarra bóka hans. H. K. Laxness er heimsborgari og rithöfundur einnig á- þann mælikvarða. Þroskabraut hans hefir legið frá einum öfgum til annarra, og sjálfstæðið verið dutlungafullt í efnisvali og uppbyggingu. Beztu skáldsögur hans eru snilldarverk, og með vaxandi sjálfsvirðingu á hann eftir að skapa mörg slík, end- ist honum aldur til, sem öll þjóðin vonar. Wáffsiöövarassbv* inmöm wesigBwt íi*á Túmgf&im esBBsÉMB" m MMmiIwifgmrsié$g Gamlar erjur milli Vestur-og inhver minni háttar slys hlut- Austurbæinga hafa nú verið ust af þessu, m. a. fékk einn vaktar upp að nýju og undan- ! ,,soldátinn“ slíka kúlu í höfuð- farin kvöld hefir komið til ið ,en ekki varð það honum að snarpra átaka. j bana, enda skelin þykk. Sama Og þeir, sem að erjunúm gegndi um litla telpu, hún fékk standa, eru, enn sem fyrr, unga ’ stein í höfuðið en meiddist ekki kýnslóðin, sú sem nú er á aldr-. til muna. inum 10—14 ára. Og til þess S En þegar hér var komið sögu,' að árásirnar verði sem bezt, komu á vettvang vondir menn skipulagðar af beggja hálfujsem heita Tögregluþjónar eða hafa verið stofnuð félög. í Vest- 1 „löggan“. Lögregluþjónar viljá urbænum heitir félagið „Sann-1 nefnilega sjálfir heyja stríð, er: ir Vesturbæingar44, enda kunn- (er meinilla við að aðrir geri ugt frá fornu fari, að þar er Það- Og sögu þessari lauk meö ættjarðar- og átthagaástin allt Því að foringjar bæði Vestur- að því við suðumark. Austur-j og Austurhersins voru fluttir í bæingar virðast hins vegar hafa, tugatali niður á lögreglust 5o og orðið fyrir erlendum menning- aráhrifum í nafngift sinni, því þeirra félag heitir „Tígriskló- in“ og þarf það ekki frekari skýringa við. í gærkveldi voru aðalvíg- stöðvarnar í Túngötu, Kirkju- stræti og Hallveigarstíg og voru „soldátarnir" vopnaðir trésverð um, skjöldum og þeir vígaleg- ustu höfðu stálhjálma á höfðí. Var hið síðasta skynsamleg ráð- stöfun, því þegar stríðsmönnun- um tók að hitna í hamsi voru sverðin ein ekki látin nægja, heldur hafin kúlnahríð af kappi og kúlurnar voru það grjót, er tiltækilegt var á götunum og gleymst hafði að sópa burtu. áminntir þar, en síðan sleppt úr haldi. :inn, svo að ég ætla ekki aðyvið sharm 'Vi, er olíuskip, Ódýr föt í fjölda- framleiðslu. UHarverksmiðjan Gefjun á Akureyri og saumastofa Gefj- unar í Reykjavík hafa sett á markaðinn í Reykjavík sport- jakka og stakar buxur, og er verð jakkanna frá 473 og 485 lcrónum, en verð buxnanna frá 257 krónum. Jakkarnir eru sniðnir eftir nýjustu, amerískum tweed- sniðum í 40 stærðum og úr 22 mismunandi efnum. Fötum þessum hefir verið valið vöru- heitið sólíd. Eru fötin öll saum- uð eftir sérstöku númerakerfi og eru fjórar síddir af hverju númeri. Er auðvelt 'fyrir menn af öllum særðum að finna föt, er henta þeim, og geta þeir síð- an beðið um sama númer fram- vegis, eins og menn biðja um ákveðið. skónúmer. Sportjakkar úr tweed-éfnum og stakar buxur eru mjög vin- sæll klæðnaður í öllimr ná- grannalöndum okkar. Á því verði, sem er -á ; Sólíd4íötum,.. munu menn geta .fengið jakka og • tvennar buxur fýrir það yerð, sem er á flestum fötum með oðeins einum bukum. ávó Viðskipti US ogi Tékka minnka. New York (AP). Vörukaup frá Tékkóslóvakíu námu 9 milljónum dollara, á fyrsta árs- fjórðungi 1951, en aðeins 2.5 millj. dollara á seinasta fjórð- ungi ársins. Þetta stafar m. a. af því, að ýmsar gagnráðstafanir hafa verið gerðar í mótmælaskyni vegna fangelsunar fréttaritar- ans Williams Oatis, sem kom- múnistar fundu sekan um njósnir. Sannað er hinsvegar, að hann stundaði fréttaöflun á þann hátt, sem með vestrænum þjóðum er talinn heiðarlegur, lögmætur og nauðsynlegur. Stórfengleg frönsk mynd í Nýja Bíó. Nýja Bíó sýnir um þessar mundir stórfenglega franska mynd, sem vakið hefir feikna eftirtekt hvarvetna, sem hún hefir verið sýnd. Á London var myndin t. d. sýnd í 13 mánuði stanzlaust á sama kvikmyndahúsinu. Þetta er ósvikin frönsk mynd, listræn og smekkleg í upptöku. Efnið er hinn gamalkunni. samdrátt- ur karls og könu. Aljir. helztu og kunnustu leikarar Frakka fara með hlutyerk f myhdinni, en kynnir leikatriða er hinn kunni Anton • Walbrook. f iv. si, Togari eyðileggur veiðarfæri. Brezki togarinn „Brontes“, sem tekinn var að veiðum í landhelgi, eins og frá var sagt í Vísi í gær, hafði samkvæmt mælingum Ægis verið 0,6 míl- ur innan landhelgi, er að hon- um var komið. Togarinn var á bátamiðum og að veiðum — var að draga inn vörpuna, er varðskipið kom. Á vírunum voru netjatrossur og netjatrossa var bundin aftan í skipið, en togaramenn skáru á taugina. Skipstjórinn hefir viðurkennt brot sitt. Yfirmenn Ægis hafa lagt fram 3 merkta netjasteina, sem fundust í borð um togar- anum. — Leitisi. Framh. af 1. síðu. ur ekki í dag, því að lágskýjað er nú yfir ströndinni. Tvær norskar korvettur eru nú á Grænlandshafi og verð ég að ræða við áhafnir þeirra. Sel- veiðiskipið Nordland I verður sent hingað frá Tromsö, til þess að taka þátt í leitinni, ennfrem- ur mun Polarsel leita, en hann er nú á ísafirði. Eg verð að samræma leit allra þessara skipa við leit flugvéla.“ Birgir Rasmussen er sérfræð ingur í íshafsveiðum og hefir dvalið við rannsóknir á Sval- barða, Jan Mayen og Græn- landi. Fjögur síðastliðin sumur hefir hann verið ávesturströnd Grænlands og fer þangað aftur í sumar. í norskum blöðum, sem Ras- mussen hafði meðferðis stóð m. a. að 53 eiginkonur ættu menn sína á selveiðiskipunum og átta tíu börn biðu komu feðra sinna. Einn faðir, sem á son á einu skipanna, hefir áður misst fjóra syni í sjóinn. Hvarf skipanna er enn aðalefni alra blaða í Nor egi og umræðuefi alls almenn- ings.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.