Vísir - 23.04.1952, Blaðsíða 6

Vísir - 23.04.1952, Blaðsíða 6
6 VI S I B Miðvikudaginn 23. apríl 1952 SKK 05 MflLHINGflR'U I S) g) A H VERKSMIfltlflH Nehru eldar „sólarorku við N. Delhi (UP). — Indverskir vísindamenn hafa komið fyrir hinni fyrstu „sólareldavél“ í bústað Nehrus, forsætisráð- hérra. Hefir eldavélin þegar vérið notuð og í sl. viku neytti Nehru fyrstu máltíðarinnar, sem elduð er að öllu leyti við geisia sólar- innar. Slíkar eldavélar verða brátt framleiddar í stórum stíl í Indlandi. „Vfö, sem vinnum eldhiísstörfm." Gottwald forseti Tékkó- slóvakíu lýsti yfir því í ræðu fyrir skömmu að karlmennirn- ír ættu að sýna umhyggju sína fyrir þjóðarhag með þvi að hjálpa húsfreyjum sínum við uppþvotta og önnur innanhúss- störf. Eins og stæði væri áríðandi að sem flestar konur ynnu í verksmiðjum og til þess að svo mætti verða yrðu mennirnir að hjálpa til heima fyrir. Gottwald er — sem kunnugt er — sérfræðingur í hreingern- ingum! Eldur í N. York (UP). — Eldsvoði hefir eytt kvikmyndatökusöi- um í borginni Fort Lee í New Jersey-fylki. Þar var miðstöð kvikmyrida- iðnaðar Bandaríkjanna, áður en hann fluttist til Hollywood, og salirnir, sem brunnu, voru hinir stærstu í heimi á sínum tíma. Prinsessa „geng- ur til prestsins.“ Úti er þoka og suddi. Svart- ur „limousine“bíll ekur að dyr- um Pálskirkju í London. Prestur nokkur stendui’ í kirkjudyrunum og skyggnist i allar áttir. Þegar bíllinn nemui staðar flýtir prestur sér að opna hann. Út úr bílnum kemui Margrét prinsessa. Hin tigna mey á að fá 11 stunda kristin- dómsfræðslu hjá biskupinum. en hann heldur prédikun einu sinni í viku. Margarét verðui þannig ekki útlærð í kristin- dómnum fyrr en eftir 11 vikur. er yafasamt. Eins og kunnugt er hefur mikið verið ræít um að afnema vegabréfaeftirlit á Norðurlönd- um. Virðast Norðulandaþjóðirnar yfirleitt breytingunni fylgjandi. Lúning, lögreglustjóri í Málm- ey, er samt ekki alveg á sama máli. Á svörtum lista hjá hon- um eru 6500 útlendingar, sem annaðhvort hafa verið reknir frá Svíþjóð eða mega ekki köma þangað einhverra orsaka vegna. í þéssum hópi efu rúmlega 3000 Norðmenn, Finnar og Danir. Þökk fyrir vcturinn. Stérllng h.f.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.