Vísir - 17.05.1952, Blaðsíða 2
V I S I R
Laugardaginn 17. maí 1952
BÆJAR
fíréttir
Þess skal getið,
að gefnu tilefni, að Bjarni Guð-
mundsson, blaðafulltrúi mun
framvegis rita tónlistardóma
fyrir Vísi.
tflitt og þetta
Vitanlegá eru prófessorar
irutan við sig og einn af slíkum
! kom inn í búsáhaldaverzlun og
.ætlaði að kaupa eitthvað. Verð-
i ur honum þá starsýnt á
krukku, sem stóð þar á hvolfi
nog segir:
Nú, hvað er að sjá þetta, það
..er ekkert op á krukkunni.
Síðan hafði hann endaskipti
rú krukkunni og sagði: Nú, —
það er þá enginn botn í henni
heldur!
•
Margs verða lögreglumenn
'visari og eitt kvöld seint kom
snaður ofan á lögreglustöð og
sagðist vera í mestu vandræð-
um. Hann ætlaði á dansleik en
var buxnalaus, bróðir hans
hafði stolið af honum spari-
buxunum, drukkið sig út úr,
þreifandi fullan og svaf nú úr
: sér vímuna í kjallaranum hjá
lögreglunni. „Eg verð að kom-
. ast inn og færa hann bróður
sminn úr buxunum," sagði' hann.
Hann fékk það.
•
„Öll eldumst við.“ Og nú er
! Noel Coward, rithöfundur, leik-
. ari og þúsund þjala smiður bú-
inn að setja upp gleraugu og
þá varð nú upplit á kvenþjóð-
inni, sem dáir hann. Hann var
alltaf eins og unglingur, en nú
• er hann skyndilega orðinn eins
■ <og góðlátlegur roskinn prófess-
«r.
„Eg hefi frestað því í lengstu
lög að fá mér gleraugu,“ segir
hann. „En nú hefir matseðill-
: inn á Savoy gistihúsinu fært
mér heim sanninn um að eg
er að verða gamall. Mér var ný-
'Jega færður þar brauðbúðing-
.ur, þegar mér sýndist „ana-
iias“ standa á matseðlinum. Þá
..ákvað eg að gefast upp og setja
aipp gleraugu.“
£ihu Jihhi tiat....
í grein í Vísi fyrir 25 árum
nar .rætt um það, að danskur
kaupmaður neitaði að skipta
við íslendinga. Er fréttin höfð
• eftir Politiken.
Ötrúleg saga.
Danska blaðið Politiken seg-
’ir 8. .þ. m. frá einkennilegum
. atburði, sem gerst hefir í
Kaupmannahöfn. — íslenskur
verkfræðingur H. Þorsteinsson
að nafni, sem búsettur er í
Kaupmannahöfn, kom dag
nokkurn inn í verzlun Jul.
Kopps við Amagertorg, og ætl-
. aði að kaupa yfirfrakka. Kaup-
maðurinn vár sjálfur við af-
. greiðslu og heyrði á mæli
komumanns, að hann var ís-
lendingur. Innti hann eftir
þessu og sagði Islendingurinn
satt til þjóðernis síns. Varð
kaupmaðurinn þá hinn æfasti
■ og sagði, svo hátt að vel mátti
heyra um alla5 búðina, að í
verzlun sinni fengi íslendingar
■ •enga afgreiðslu. Lauk við-
skiptum kaupmanns og íslend-
::ings á þá leið, að kaupmaður
jrak komumann út.
Síðan segir að blöð í Kaup-
mannahöfn hafi heht gaman
að framkomu kaupmanns og
::reyndust öll á bandi íslendings-
;íns.
Laugardagur,
17. maí, — 137. dagur ársins.
Frá norska sendiráðinu.
í dag, 17. maí — þjóðhátíðar-
dag Norðmanna — er eins og
venjulega opið hús hjá norsku
sendiherrahjónunum, Fjólu-
götu 15, milli kl. 16 og 18.
Iðnsveinar,
sem útskrifuðust úr Iðnskól-
anum fyrir 10 árum (1942)
koma saman í kvöld kl. 9 í
Félagsheimili V.R. Þátttaka
tilkynnist í síma 80729 og
3249.
Munið Mæðradaginn á morgun.
Leiksvæði lagfærð.
Fræðsluráð hefir gert að til-
við barnaskóla verði lagfærð í
við barnaskóla verði lagfræð í
sumar og gerði svohljóðandi á-
lyktun: Fræðsluráð telur óhjá-
kvæmilegt að unnið verði við
leiðsvæði Austurbæjar-, Laug-
arness- og Melaskóla, og felur
fræðslufulltrúi í samráði við
hlutaðeigandi skólastjóra að
fylgjast með fyrirkomulagi og
framkvæmd þessarra mála.
Pípulagningameistarar.
Þessir menn hafa, að fengn-
um umsögnum hitaveitustjóra,
fengið leyfi til þess að tengja
við hitaveitukerfi bæjarins:
Baldur Kristiansen, Kár. 9 A,
Benedikt Jón Geirsson,
Nökkvavogi 2, Tómas Bergm.
Jónsson, Túng. 40.
Útvarpið í kvöld.
Kl. 20.30 Útvarpshljómsveit-
in. Þórarinn Guðmundsson
stjórnar. 20.45 Upplestur
(Þorst. Ö. Stephensen, leikari).
21.35 Upplestur (Har. Bjöms-
son leikari). •— 22.00 Frétt-
ir og veðurfregnir. — 22.10
Danslög til kl. 24.
Munið Mæðradaginn á morgun.
KtoJJféta ht. 16/9
•Lárétt: 1 Skaut, 3 vindur, 5
neyti, 6 forsetaefni, 7 á seglbát-
um, 8 fréttastofa, 10 mánuður,
12 blóm, 14 hraði, 15 fugl, 17
forsetning, 18 mannsnafn.
Lóðrétt: 1 Mannsnafn, 2 ráð-
herra, 3 bæjarnafn, 4 efst í
liúsi, 6 málmur, 9 skauta, 11
eftir frost, 13 himintungl, 16
fleyg.
Lausn á krossgátu nr. 1618:
Lárétt: 1 mús, 3 tól, 5 et, 6
HE, 7 föt, 8 AB, 10 runa, 12
rák, 14 ráð, 15 ris, 17 II, 18
Butler.
Lóðrétt: 1 melar, 2 út, 3 tet-
ur, 4 lofaði, 6 hör, 9 báru, 11
náir, 13 kit, 16 sl.
Messur á morgun:
Dómkirkjan. Bænadagurinn:
Messa kl. 11, biskupinn yfir ís-
landi prédikar. Sr. Óskar J.
Þorláksson þjónar fyrir altari.
Kl. 5 sr. Jón Auðuns.
Laugarneskirkja: Messað kl.
2 e. h. (bænadagurinn). Sr.
Garðar Svavarsson.
Fossvogskirkja: Messað kl.
2 e. h. (bænadagurinn). Sr.
Garðar Svavarsson.
Frikirkjan: Messað kl. 2. Síra
Þorsteinn Björnsson.
Hafnarfjarðarkirkja: Messa
á morgun kl. 2. Síra Garðar
Þorsteinsson. Bessastaðakirkja:
Messa kl. 11. Kálfatjörn: Messa
kl. 4.
Aðalfundur
Ljósmyndarafélags íslands
var haldinn 14. þ. m. Stjórn
félagsins var endurkosin, en
hana skipa: Sigurður Guð-
mundsson, formaður, Guðm.
Hannesson ritari, Óskar Gísla-
son, gjaldkeri.
Fundurinn samþykkti tillögu
þess efnis, að skora á Lands-
samband iðnaðarmanna að beita
áhrifum sínum kröftuglega
gegn því, að iðnaðarlöggjöfin
sé skert eða fótum troðin.
Nýr viðskiptasamningur.
Hinn 15. maí sl..var undirrit-
aður í Prag nýr viðskiptasamn-
ingur milli íslands og Tékkó-
slóvakíu. Gildir samningurinn
í eitt ár frá 1. maí 1952.
Til Tékkóslóvakíu er einkum
gert ráð fyrir sölu á frystum
fiski og frystri síld, en á móti
er gert ráð fyrir kaupum þar á
svipuðum vörum og undanfarin
ár, svo sem vefnaðarvörum,
gúmmískófatnaði, pappír, gleri,
síldartunnum og járnvörum og
ennfremur sykri og haframjöli.
Áheit á Strandarkirkju,
afh. Vísi: Kr. 10 frá J. S„ 10
frá G. B. 80 frá N. N. 75 frá
S. E.
Til Sólheimadrengsins,
afh. Vísi, áheit frá Á. E. kr. 55.
Munið Mæðradaginn á morgun.
Gangstétt við Hverfisgötu.
Húseigendur við Hverfisgötu
hafa lagt fram áskorun til
bæjarráðs þess efnis, að hellu-
lögð verði .gangstéttin norðan
megin götunnar, frá Vatnsstíg
að Vitatorgi. Áskoruninni var
vísað til bæjarverkfræðings.
Afgreiðslustöð Landleiða.
Bæjarráði hefir borizt erindi
frá Landléiðum h.f. 'um leyfi
til að hafa afgreiðslustöð fyrir
áætlunarvagna við norðvestur-
horn Tjarnarinnar. Erindinu
var vísað til umferðafnefndar.
Mæðrastyrksnefndin
heitir á alla bæjarbúa að
kaupa „mæðrablómið“ á morg-
un, og mæður eru beðnar að
lofa börnum sínum að selja
blómin. Þau verða afgreidd í
skrifstofu Mæðrastyrksnefndar
í Þingholtsstræti 18 og skölun-
Um. — Börnin fá'10% í sölu-
laun.
Ensk menntaskólastúlka
á 17. ári hefir mikinn hug á að
komast í bréfásamband við
jafnöldru sína hér á landi. Hún
hefir sérstakan áhuga fyrir tón-
list og öðrum listum, en ann-
ars langar hana til að fræðast
sem mest um ísland og segja
frá högum og háttum í Bret-
landi á móti. Stúlka þessi tekur
fram, að hún sé einbirni, en
þær, sem vildu skrifast á við
hana, skrifi til: Miss Patricia
M. Bracey, The Close, High
Street, Kingswood, Wooton-
under-Edge, Gloucestershire,
England.
Lilja Björnsdóttir
skáldkona flutti síra Jakobi
Kristinssyni kvæði í samsætinu,
sem honum var haldið á 70 ára
afmælinu 13. þ. m. — Þetta
féll af vangá niður í frétt um
afmælishófið í blaðinu í gær.
Kvennaskólinn í Reykjavík.
Hannyrðir og teikningar
námsmeyja verða til sýnis í
skólanum í dag og á morgun
(sunnudag) kl. 2—10 e. h.
Skip Eimskip.
Brúarfoss fór frá Hamborg
15. þ. m. til Rotterdam og Rvík-
ur. Dettifoss kom til Reykja-
víkur 12. þ. m. frá New York.
Goðafoss fór frá Hull 14. þ. m.,
væntanlegur til Reykjavíkur í
dag. Gullfoss fer frá Kaup-
mannahöfn á hádegi í dag, til
Leith og Reykjavíkur. Lagar-
foss fór . frá Vestmannaeyjurn
12. þ. m. til Gravarna, Gdynia,
Álaborgar og Gautaborgar.
Reykjafoss fór frá Álaborg 15.
þ. m. til Kotka. Selfoss fór frá
Reykjavík 14. þ. m. vestur og
norður um land til Húsavíkur
og þaðan til Gautaborgar.
Tröllafoss fór frá Reykjavík 7.
þ. m. til New York. Foldin fór
frá Reykjavík 14. þ. m. vestur
og norðurlandsins. Vatnajökull
lestar í Antwerpen 17.—19. þ.
m. til Rvíkur.
Skip S.I.S.
Hvassafell kom til ísafjarðar
s.l. nótt frá Kotka. Arnarfell
losar timbur á Austfjörðum,
Jökulfell átti að fara frá Rvík
í gærkveldi, til Patreksfjarðar.
Skipaútgerðin.
Hekla fór frá Akureyri í
gærkveldi til Norðurlanda. Esja
verður væntanlegá á Akureyri
í dag. Skjaldbreið er á leið frá
Breiðafirði til Reykjavíkur.
Þyrill er norðanlands. Oddur er
á Sauðárkróki á norðurleið. Ár-
mann fór frá Reykjavík í gær-
kveldi til Vestmannaeyja.
Reykjavikurbátar.
Allir stærstu bátarnir, 50—
100 lestir, eru að búa sig undir
K. F. 17. M.
Samkoma á morgun kl.
8.30 e. h. Síra Magnús Run-
ólfsson talar. Allir velkomn-
ir. —
@UNME
það að fara vestur eða norður
og munu margir fara í kvöld.
Verða bátarnir þar á togveið-
um, en þenna hátt hafa bátarnir
oft áður haft á, þótt ekki hafi
verið um neina lokun veiði-
svæða að ræða. Þykir útgerðar-
mönnum oft líklegra að eitthyað
aflist á þeim miðum á vorin.
Lúðuveiðar.
Faxaborg kom í dag af lúðu-
veiðum, var með 4V2 lest, sem
er lítill afli eftir nær viku.
Slæmt veður hefir verið á lúðu
miðum að undanförnu, en þar
er mjög straumþungt, ef eitt-
hvað er að veðri, enda veitt á
miklu dýpi. Einkum mun norð
austan átt vera slæm, en strekk
ingur af norðaustri hefir verið
á miðunum lengi.
Góðar þýzkar
ViFTUR
sem blása heitu og köldu
lofti.
Véla- og raftækjaverzlunin
Bankastræti 10. Sími 2852.
Tryggvagötu 23. Sími 81279.
BEZT AÐ AUGLYSAIVISI
ÞRÓTTUR!
Æfing verður á
Háskólavellinum
fyrir 1. og 2. fl. í
dag kl. 3,30 e. h.
3. og 4. fl. Æfing á Gríms-
staðaholtvellinum í dag kl.
2 e. h. — .
4. fl. æfing á Grímsstaða-
holtvellinum sunnudag kl.
10,30 f. h.
Grímsstaðaholtsskálinn
opinn fyrir þá sem vilja
klæða sig þar úr. —
Nefndin.
Sé höreindið rantt
og þurrt
hefir NIV E A-C R E M É reynzt
framúrskarandi vel. Nivea inni-
heldur m.a. eucerit, efni sem er
náskylt eðlilegri húðfitu og hefir
sömu áhrif. — Allir, sem væta
hendurnar mikið, allar húsmæð-
ur og allir, sem starfa úti við
með berar hendur, ættu því að
nota NIVEA-CREME. — Þeir,
sem það nota, komast að raun
um það, sér til furðu og ánægju,
hversu hörundið verður slétt og
þenjanlegt.
NIVEArCREME