Vísir - 28.05.1952, Síða 1
$2. árg.
Miðvikudaginn 28. maí 1852
118. tbl.
HóHa? laxveiðiihtsrfur
ialdar i EliiðaáreuiBi.
Mlkið vatii og væiifr fiskar i kistu.
Kunnugir telja, að góðar
liorfur sé á að talsvert verði
um lax í Elliðaánum — að
minnsta kosti framan af.
Að þessu sinni er til dæmis
um miklu meira vatn að ræða
en um sama leyti í fyrra, raun-
ar yfirfullt fyrir ofan uppistöð-
una við Elliðavatn, svo að þess
vegna er sýnt, að meira vatn
verður í ánum fyrst um sinn
en í fyrrasumar. Þá hefir lax-
veiðimaður, sem fylgist með
Nýfasistar sigruðu
í NapóSí.
Einkaskeyti frá AP.
Fregnir af kosningunum sýna,
að flokkur De Gasperis —
kristilegir lýðræðissinnar —
hefir gengið verr en ætla mátti
eftir úrslitunum, sem kunn voru
í gær.
Miðflokkarnir hafa sameigin-
lega mest fylgi, þar næst kom-
múnistar og þriðju nýfasistar,
en fylgi þeirra hefir vaxið í-
skyggilega, og mun það setja
svip sinn á ítalskt sjórnmálalíf
næstu ár því að þeir fengu
meirihluta í Napoli.
Fullnaðarúrslit kosninganna
eru enn ekki kunn.
Miðflokkarnir hafa haldið
meirihlutaaðstöðu í Rómaborg,
og í 11 af 20 stærstu borgunum
út um land, hægri flokkarnir
undir forystu nýfasista í 5 og
róttækir undir forystu kom-
múnista í 4.
ánum, skýrt blaðinu svo frá,
I að á mánudagsmorgunnn haí'i
þrír laxar verið komnir upp í
kistu í ánum, og voru það dá-
vænir fiskar, og megi eitthvað
af því dæma, virðist það einn-
ig gefa góðar vonir um það; að
afli geti orðið sæmilegur.
Veiðar mega hinsvegar ekki
hefjast fyrr en á hvítasunnu-
dag, það er næstkomandi
sunnudag', en Vísir hefir haft
tal af nokkrum duglegum
veiðimönnum og er kominn í
þá mikill veiðihugur, eins og
ævinlega, þegar að því líður,
að þeir geti farið að týgja sig
„í verið“. Þeir, sem til þekkja,
vita, að veiðigarparnir eru fyr-
ir nokkru byrjaðir að taka fram
tæki sín, athuga þau og eftir-
líta, til þess að allt verði í full-
komnu lagi, þegar stundin
mikla rennur upp, að hægt
verði að renna.
©fst nýtt taugasfríð eft-
Ir undirritun samniiiganna?
Norðanátt næsta
sólarhring.
Samkvæmt upplýsingum frá
Veðurstofunni er búist við
norðanátt um allt land næsta
sólarhring.
Yfirleitt hefir norðanáttin
gengið niður víðast, en var þó
nokkuð hvass sums staðar á
Austurlandi. Snjókoma var
nokkur í nótt fyrir norðan og
austan og frostlaust, en sums
staðar var hitinn við frostmark.
Fyrstu brúagerðir á
landinu eru nii hafnar.
Stærstu verkefnin í sumar brýrnar yffr
Jökulsá í Lóni og Laxá hjá Laxamýri.
Viðtal við Árna Pálsson yfirverkfræðing.
Brúarsmíðar eru nú hafnar
á nokkrum stöðum á landinu og
aðrar hefjast hvað úr hverju.
Samkvæmt upplýsingum er
Vísir fékk hjá Árna Pálssyni
yfirverkfræðingi á Vegamála-
skrifstofunni í gær var byrjað á
fyrstu brúasmíðunum fyrir 10
•—12 dögum.
Ein fyrsta brúin sem byrjað
var á í sumar var yfir Djúpá í
Vestur-Skaftafellssýslu. Er það
44 metra löng stálbrú og verður
lokið við að smíða hana í næsta
mánuði. Djúpá var mikill og
illfær farartálmi austast í Vest-
ur-Skaftafellssýslu, en þegar
brúin kemst upp verður bílfært
alla leið austur að Núpsstað.
Þegar smíði Djúpárbrúar er
lokið fara vinnuflokkurinn og
brúarsmiðirnir þaðan að tJren-
|læk í Landbroti. Grenlækur
liggur á leiðinni frá Skaftárbrú
niður í Landbrotið og getur ver-
ið torfær farartækjum í leys-
ingum og á vetrum.
Stærsta brúargerðin, sem
enn hefir verið byrjað á er
steypt bogabrú yfir Laxá hjá
Laxamýri með 52 metra löngu
gólfi. Þessi brú er byggð í stað
gamallar járnbrúar, sem þarna
var fyrir, en er of veik til þess
að þola flutning á þungum véla-
hlutum, sem nú þarf að flytja
til Laxárvirkjunarinnar nýju.
Er brúin í senn breiðari og
gerð fyrir miklu meiri þunga
en gamla brúin. Verður þetta
mikið mannvirki, og er búíst
við að því verði lokið í ágúst-
Framhald á 8. síðu.
Leit al selveil-
urum hætt
Allri leit að norsku selveiði-
skipunum er nú hætt og err
síðustu leitarskipin á leið til
Noregs.
Fiskimálaráðuneytið norska
hefir gefið leyfi til að birta
nöfn þeirra, sem farizt hafa.
Almenn fjársöfnun er hafin
í Noregi til þess að styrkja þær
fjölskyldur, sem verst eru
staddar og hefir almenningur
brgðizt mjög vel við hjálpar-
beiðninni. Meðal þeirra sem
fórust var 34 ára sjómaður;
hann lét eftir sig konu og sjö
börn.
Kownm,únisiar umstan
járntjnMs steynir óííts.
„Öryggislíelti^ við laBadamærin upp-
fiaf gagnráðstaíana.
Tékkar eru að hefja fram-
íeiðslu þrýstiloftsflugvéla fyrir
Rússa.
Konurnar æf a ról-
ur af kappi.
Þrjár eða fjórar sveitir
kvenna munu taka bátt í kapp-
róðri á sjómannadaginn —
þann 15. í röðinni — sem hald-
inn verður hátíðlegur b. 8. júní.
Eru þær þegar byx-jaðar, og
æfa af kappi. Eru konur þessar
úr félögum, sem starfandi eru
að nokkru leyti í sambandi við
stéttarfélög sjómanna, svo og
KSVÍ. Ætlunin var að fá leyfi
bæjarstjórnar til að hafa kapp-
róður kvenna á tjörninni, en
hún vildi ekki leyfa það. Þó
mun stjórn Sjómannadagsráðs-
ins gera tilraun til þess að fá
bæjarstjórn til að breyta þeirri
ákvöðrun.
Ekki er enn vitað, hversu
mörg skip verða í höfn þ. 8.
júí, en hátíðahöldin verða mjög
fjölbreytt eins og venjulega.
Dagur er í Kefla-
vík vegna velurs.
Strákarnir hinir
hressustn.
V.b. Dagur lá inni í Kefla-
vík í gær og fer út aftur, þegar
er lægir. Gæftir hafa verið
stirðar.
Drengirnir eru allir hinir
hressustu og una vel hag sín-
um. — Það fer nú að styttast
hjá þeim útivistin, því að Dag-
ur á að koma hingað fyrir.næstu
helgi, og fara þeir þá á land, en
annar flokkur fer síðar.
Drengirnir biðja fyrir kveðj-
ur heim.
Einkaskeiyti frá A.P.
London í morgun.
Fulltrúar Norður-Atlants-
hafsríkjanna í París og fram-
kvæmdastjóri þeirra, Ismay
lávarður, auk Achesons og
Edens, voru viðstaddir undir-
ritun samninganna í París í
gær um varnarsamtök Vestur-
Evrópu.
Times og fleiri blöð telja
undirritunina marka tímamót
og varnarsamtökin byltingar-
kennda tilraun í þjóðasam-
skiptum, sem of snemmt sé að
segja um hversu gefist. Mörg
brezku blöðin leggja áherzlu á
hversu hratt sé unnt að efla
þessi samtök, svo að þau dugi,
ef til Rússneskrar ofbeldisárás-
ar kæmi. Önnur blöð leggja á
það megináherzlu, að varnar-
samtökin hafi verið til þess að
sýna Rússum, að samtakamætti
yrði beint gegn ofbeldi hvaðan
sem það kæmi, og hyggilegast
væri því fyrir alla, að farnar
væru samkomulagsleiðir til
þess að leiða deilumálin til
lykta — og þessar leiðir bæri
enn að fara. Vestrænu lýðræð-
isþjóðii'nar ættu, segja blöð
eins og Daily Mirror og Daily
Express, að gei'a allt sem í
þeirra valdi stendur til þess
að samkomulag náist um deilu-
málin við Rússa.
Yfirstjórn Evrópuhersins
verður í höndum herstjórnar
NA-varnarsamtakanna og jatn-
an tæknilega og á annan hátt I
nánum tengslum við þau.
Hin stærx'i aðildarríki leggja
til 12 herfylki hvert í Evrópu-
íerinn. Þeii'ra meðal Vestur-
Þýzkaland, eða 300.000 menn.
Kommúnistar í Austuv-
Þýzkalandi eru nú all tauga-
óstyrkir, þótt friður sé vís,
nema árás yrði gerð úr austri.
Hafa þeir
fyrirskipað að austan landa-
mæra Vestur- og Austur-
Þýzkalands skuli vera ör-
yggissvæði allhreitt og eins
með ströndum fram við
Eystrasalt. — Þarna mun
verða komið fyrir ýmsum
varnarvopnum, haft aukið
lið o. s. frv., enda verður
umferð takmörkuð.
Þegar Rússar hófu að stöðva
umferð um vegi á landamærum
Vestur- og Austur-Þýzkalands
fyrr í vikunni, var í rauninni
um upphaf að heilli röð öryggis-
ráðstafana að ræða, að því er
fréttaritarar telia. — í Vestur-
Berlín og víðar búast menn
mjög almennt við harðnandi
taugastríði, eftir að allar til-
raunir til að hindra undirritun
samninganna misheppnuðust.
Lítið varð úr því, að komm-
únistar í París gerðu uppsteit í
gær eins og þeir höfðu hótað.
Tvö blöð þeirra hvöttu enn í
morgun til múgæsinga, í sam-
bandi við komu Ridgways, en
— voru gerð upptæk.
Kúbumenn hafa brennt 900
lestir af tóbaki, til að halda
verði uppi.
Rússar tilkynna, að í landinu
sé 8000 blöð, er komi út í 40
milj. eint.
Oliur og eldsneytí liðurinn í
innflutningi okkar.
Kaupverð þess 53,5 millj. kr. á 4 mánuðum.
Á fjórum fyrstu mánuðum
yfirstandandi árs liafa Islend-
ingar flutt út vörur fyrir rösk-
ar 183 milljónir króna.
Stærsti liðurinn í útflutnings-
verzluninni var á þessu tíma-
bili freðfiskur, sem við seldum
fyrir 70 millj. króna. Þar næst
kemur svo ísfiskur fyrir 2?
millj. kr., þurrkaður saltfiskur
fyrir 14% millj. kr. og óverk-
aður saltfiskur fyrir 12 millj.
kr. Aðrir liðir eru yfii'leitt
smærri, en næst að verðmæti
komast síldarmjöl, gærur og
fiskimjöl.
Á sama tíma kaupum við frá
útlöndum vörur fyrir röskar
278 millj. kr. Langstærsti lið-
urinn er eldsneyti, smurnings-
olíur og þess háttar, sem við
flytjum inn fjóra fyrstu mán-
uði ársins fyrir 53% milljónir
króna. Þar næst kemur álna-
vara, garn og vefnaðarvörur
fyrir 32.4 millj. kr. rafmagnsá-
höld fyrir 19 millj. kr., vélar
16% millj. kr., korn og korn-
vörur fyrir rúmlega 15 millj.
kr. málma fyi'ir 12 millj. kr.
málmvörur 11 millj. kr. papp-
írsvörur 11.8 millj. kr. og vörur
úr ómálmkenndum jarðefnum
rösklega 10 millj. kr. Aðrir liðir
eru smærri.