Vísir


Vísir - 06.08.1952, Qupperneq 5

Vísir - 06.08.1952, Qupperneq 5
Miðvikudaginn 6. ágúst 1952 V f S I B '5. t Luxemborgarinn Joseph Barthel koma fyrstur í mark í 1500 m. hlaupi -Ól- annar varð McMiiIan frá Bandaríkjunum (til vinstri) og Þjóðverjinn Lueg, l hœgri). Zatopek þótti mesti afreksmaður Olympíuleikanna í Helsingfors. Mathias sýndi mikSa yfirburði i tugþrautarkeppninni. Helsingfors, 26.—27. júlí. Bob Mathias tugþrautar- meistari sýndi ennþá einu sinni fjölhæfni sína og keppnihörku xneð því að ná betri árangri í tveim greinum en hann hefur nokkru sinni afrekað, og setti nýtt heimsmet í tugþrautinni. Verður sagt frá þessu síðar í greininni. Spennandi1500 xnetra hlaup. Úrslit þessa hlaups komu mönnum mjög á óvart. Þeir voru ekki margir, sem fylgdust með litla Luxemborgaranum Joseph Barthel. Þeir voru líka margir, sem urðu að grípa til keppendaskrárinnar til þess að vita, hver hann væri, litli mað- urinn nr. 406, sem hljóp fram úr öllum stórstjörnunum ó endasprettinum og varð greini- lega sigurvegari, enda þótt Bandaríkjamaðurinn MeMillan jiæði sama tíma. Þjóðvei’jarnir Lammers og Lueg sáu fyrir því, að mikill hraði varð í hlaupinu frá byrjun, og olli það vafa- laust því, að bæði þeir og Norð- urlandabúarnir áttu lítið eítir í endasprett þeirra Barthcis og McMillans. Luxemborg, eitt minnsta ríkið, sem þátt.tók í leikunum, hlaut hér sigurveg- arann í vinsælustu hlaupa- greininni, og fagnaði allur manngrúinn ákaflega sigri Bartliels. Er lúðrasveitin iék þjóðsöng Luxemborgar, brast Barthel í grát, og hreif þetta fjöldann mjög, svo innileg sem gleði hans var. Tugþrautin. í 110 m. grjndahlaupi tug- þrautarinnar náði blökkumað- urinn Cambell (U.S.A.), 14,5 <en næstur varð Mathias á 14,7 sek. í kringlukastinu gekk Mathias einnig mjög vei, og sigraði á 46,89 m. Nú gat hann farið að láta sig dreyma um að bæta heimsmet sitt frá í sumar. Náði hann persónulegu met.i í stangarstökki, 4,00 m., og jók þetta mjög á vonir hans. Rúss- in Volkov komst aftur í fjóiða sætið, fram fyrir Þjóðverjann Hipp, og hélt því sæti síðan. Spjótkastið vann Mathias með 59,21 m., og nú þurfti hann að- eins að hlaupa 1500 metrana á 4,53 mín. til þess að setja met. Þetta tókst, og reyndist tíminn 4,50,8 mín., og annað skiptið á ævinni varð þessi ungi Kali- forníumaður Ólympíumeisturi í tugþraut, 21 árs að aldri. Harin sigraði einnig með mestum yf- irburðum allra Ólympíumeist- aranna hafði rúm 900 stig um- fram næsta mann, sem var Cambell, 18 ára gamall og virð- ist hann eiga mikla framtíð fyrir sér í tugpraut. Simmons, Bandaríkjunmaður, varð þriðji. Hann er fjölhæfur íþróttagarp- ur, sem ekki hefur eins mikla hæfileika eins og hinir, hvað burði og atgervi snertir, en hefur náð mikilli kunnáttu og tækni. Rússinn Volkov er mis- jafn og hefur litla möguleika á móti hinurn stjörnunum. Hipp varð svo fjórði, á undan Sví- unum Widenfeldt og Tánnand- er. íslenzka boðhlaups- sveitin dæmd úr leik. í 4X100 metra boðhlaupi fóru fram undanrásir í 4 riðl- um. Fyrsta riðilinn vann sveit Bandaríkjanna á 40,3 sek. en Frakkar ui’ðu aðrir á 40,8 sek. þriðju Pólverjar, 41,8. Úr hverjum riðli komust þrjár sveitir í undanúrslit. Úr öðrum riðli komust Bretar, 41,2 sek. Ítalía 41,5 og Kúba 41,9. Þriðji riðill varð mjög hraður. Ung- verjar sigruðu á 41 sek, en næstir voru Tékkar, 41,5, þá Argentína á sama tíma, en Svisslendingar og Þjóðverjar „slegnir út“ á 41,6. Við ís- lendingar hrósuðum því happi að lenda í fjórða riðli, með Rússum, Nígeríu og Pakistan. Héldu menn, að sveitin gæti orðið önnur, eða að minnsta- kosti þriðja. Á Evrópumeistara- mótinu í Brússel kepptu ís- lendingar og Rússar í milliriðli og skildu jafnir á 41,7 sek. Nú höfðu íslendingar aðra braut, svo allt var eins gott og hugs- azt gat. Ingi hljóp fyrsta sprettinn. Hversvegna? Hann er lélegur í „starti“ og hleypur ekki vel á beygju, enda tapaði hann talsverðu. Pétur hljóp beinu brautina vel, en Hörður fór allt of fljótt af stað og varð síðan að hægja á sér til þess að Pétur næði honum. Skipt- ingin varð ógild. Hörður hljóp vel eftir að hann komst af stað, en Ásmundi tókst ekki að vinna upp „forskotið“ og ’rarð sveitin síðust á 43,1 sek. 4X4G0 metra boðhlaup. í úrslit í þessu hlaupi kom- ust Jamaica, Frakkland, Bandaríkin, Bretland, Þýzka- land og Kanada. Það voru fjórir blökkumenn, sem gátu fagnað verðskulduð- um sigri í hlaupinu, sveit Jamaica. Wint hljóp fyrsta sprettinn fyrir Jamaica og Matson fyrir Bandaríkin. Wint var á yztu braut, og þótt hann ynni, komst Laing ekki framar en í þriðja sæti er brautin var sameiginleg. Bandaríkjamaður- inn Cole skilaði keflinu um 17 metrum á undan til Moore, 400 m. grindahlauparans. En það var einn maður, sem var á- kveðinn í að ná í gullverðlaun. Það var vinur okkar McKenley. Hann vann smá saman upp þessa 17 metra og skilaði um það bil 4 metrum á undan til Rhodens. Millitíminn á McKen- ley var 44,8 eða 44,9, heilli sekúndu betra en heimsmetið. Rhoden mátti , hafa sig allan við að halda Whitfield á eftir sér og vann með tæpum metra. Tíminn varð auðvitað heims- met, 3,03,9, eða betra en 46 sekúndur á mann. Á eftir hlupu hinir vinsælu Jamaica-menn heiðurshring við nærri eins mikil fagnaðarlæti og Zatopek. Ekkert óhapp eða tilviljun skeði í 4X100 m. boðhlaupinu. Röðin varð eins og búizt hafði verið við, Bandaríkin, Rúss- land .og Ungverjaland fyrst. Ekki tókst þó að hnekkja heimsmetinu frá 1936, en tím- inn varð þó mjög góður, 40,1 sek. Maraþonlilaupið. Það var stór skari bjartsýnna manna, sem lagði upp í mara- þonhlaupið frá Ólympíuvellin- um klukkan tæplega hálffjög- ur. Eftir tvo og hálfan hring á vellinum hlupu þeir út af, og mundi líða um 2y2 klst. þar til þeirra væri von til baka. Fyrst- ur út af vellinum hljóp ber- fættur Pakistanmaður, Havild- ar Aslam, og varð hann 38. í mark. Inni á vellinum hafði verið komið fyrir töflu, þar sem fylgjast mátti með röð kepp- enda. Eftir 5 km. voru Bret- arnir Peters og Cox fyrstir, en strax á eftir þeim Svíinn Jans- son. Eftir 10 km. var Peters enn fyrstur. Jansson annar, en Zatopek var orðinn þriðji. Næstu 5 km. hélzt röðin ó- breytt, en eftir 20 km. var Zatopek kominn í fyrsta sæti, Jansson var stöðugt annar. Nú voru Argentínumenn líka komnir í leikinn Corno var fjórði og Ólympíumeistarinn 1948, Cabrera, fimmti. Næstu fimm km. var röðin óbreytt, en við 35 km. voru Argentínu- mennirnir komnir í þriðja og fjórða sæti. -Nú jókst spenn- ingurinn. Hafði eitthvað óvænt skeð síðustu 7 km,? Nú til- kynnti þulurinn að von væri á fyrsta manni inn á völlinn. Lúðrasveitin tók að leika sig- urtóna. Allir stóðu með öndina í hálsinum. — Rólegur, með sama jafnaðargeði, og án verulegra þreytumerkja, hljóp Zatopek inn á völlinn, og vann þriðja Ólympíusigur sinn á þessum leikum, og setti þriðja Ólympíumetið um leið. Hefir hann því unnið mesta afrek, sem nokkurhlauparihefurunn- ið á Ólympíuleikum. Annarvarð Corno, sem kom mjög á óvart með getu sinni. Svíinn Jansson varð þriðji, Kóreubúinn Choi fjórði, Finninn Karvonen fimmti og Cabrera sjötti. Zatopek var hylltur gífurlega og varð að hlaupa heiðurshring. Tími hans var 2,23,07. Gaman hefði verið að segja frá fleiri greinum, sem margar voru tvísýnar og spennandi, t.d. 4X100 m. boðhlaup kvenna, sem Ástralíustúlkurnar „áttu“, en töpuðu óvænt. Þá var há- stökk kvenna mjög skemmti- leg keppni, og sigraði Suður- Afríkustúlkan Esther Brand á 1,67 m., á undan Lerwill, Bret- landi og Chudina frá Rússlandi. Þá má geta þess, að Svíinn Mikaelsson vann 10 km. kapp- göngu með töluverðum yfir- burðum. R. B. Nýr tannlæknir. V Heilbrigðismálaráðuneytið hefir nýlega gefið út leyfisbréf handa Inga Val Egilssyni til þess að mega stunda tannlækn- ingar hér á landi. KVÖLÐjiaHkat. Á myndinni l ympiuleikanna, en setn varð þriðji " Hin siðari ár hefir vei’zlun- armannahelgin í ágústbyrjun færzt í það horf að verða ein mesta hátíð sumarsins, og reyn- ir þá hver sem betur getur að komast úr bænum eða skemmta sér á annan hátt. Skrifstofu- fólk og verzlunarmenn streyma út um sveitir landsins, en hér í höfuðstaðnum er tjaldað því; sem til er, komið saman til dansleikja eða útivistar. Plá- tíðahöld verzlunarmannasam- takanna eru með glæsibrag, og er það ekki þeim að kenna, þótt eitthvað kunni að hafa mistek- izt hér, en misjafn sauður í mörgu fé, eins og kunnugt er. ♦ Veðrið var óvenjuhag- stætt um þessa verzlun- armannahelgi, og hér á suð- vesturlandi má víst segja, að þetta hafi verið fegurstu dagar þessa sumars, það sem af er. En í kjölfar þeirra, sem vilja njóta verzlunarmannahelginnar við holla útivist og græskulaust gaman, siglir nú fjöldi ung- linga,, sem því miður virðist eiga sér fá hugðarefni, önnur en þau, að vekja á sér athygli fyrir drykkjulæti og hreina skrílmennsku. Allfjölmennur hópur unglinga héðan úr bæn- !um lagði leið sína um Borgar- um þessa helgi, og þá . að Hreðavatni. Við- ______■ þesara Reykvíkinga við þann stað var þessu sinni með þeim hætti, að sumum hefur dottið í hug að nefna hánn Hroðavatn, eftir að öskur hinna drykkjuðu eru hljóðnuð við friðsælt vatnið. ♦ Við Hreðavatn er unaðs- legt að dvelja og ánægju- legt að dansa og skemmta sér á fögrum sumardegi. En kyrrð vatnsins og fagurra skógar- lunda var nú rofin öskrum og óhljóðum, glamri í rúðubrotum og skarkala þeim, sem jafnan er samfara áflogum og því, þegar húsmunir og borðbúnað- ur er molaður. Þessi unglinga- fjöldi, sem streymir úr bænum við slík tækifæri, er vissulega ekki eftirsóknarverð fyrir veit- ingamenn í slíkum stöðum, og auðvitað ekki æskileg í nábýli við þá, sem vilja skemmta sér með öðrum hætti. ♦ Það liggur í augum uppi, að grípa verður til alvar- legra ráðstafana til þess að af- stýra slíkum ófögnuði, og ligg- ur þá beinast við, að lögreglu- menn, nægilega margir, séu til taks, þegar von er á slíkum „gestum“. Allur þorri manna hefur andstyggð á þess konar framferði, að maður tali ekki um tjón, sem af skrílsmennsku þþessari hlýzt. Þessi „Hreða- vatnsvals“, sem stiginn var sL laugardagskvöld, má ekki end- urtaka sig. , ThS ....

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.