Vísir - 20.09.1952, Side 6
VlSIR
Laugardaginn 20. september 1952
6
isætt sig við hrokann, svo að
■ég ákvað, sem auðmýkja hann
og sagði: „Má ég tala við ræð-
ismanninn sjálfan?“ „Upptek-
inn“, svaraði strákur og hélt
áfram að skrifa. Þetta var auð-
sjáanlega búið. Ég var afvopn-
nður, patt — heimaskítsmát.
Jóhann, sem dundað hafði
við að skrifa' eitthvað á blað,
xétti nú úr sér, og sagði af
xniklum myndugleik, næsturn
lirokafullt: „Fáið ræðismann-
inum þetta strax.“ Strákur
-drattaðist að barðinu, tók við
'blaðinu og las. — Allt í einu
rann honum allur hofmóður, og
á einu andartaki varð hann aft-
ur ljúfur og laglegur afgreiðslu-
piltur, sem hneigði sig fyrir
Jóhanni og skeiðaði með papp-
irsblað á fund síns herra.
„Hvað skrifaðir þú á blaðið“?
spurði ég Jóhann. Hann glotti.
„Ræðismaður íslands í Kína
foiður viðtals. Það getur oft
komið sér vel að bregða því
fyrir sig, einkum þegar í hlut
eiga þeir, sem betur hefðu mátt
vera upp aldir.“
2Lögin .... ekki með
að spauga.
Dyr opnuðust og smávaxinn,
miðaldra maður birtist. Hann
hneigði sig djúpt, heilsaði inn-
virðulega, bauð til stofu. Þetta
var sjólft hans ágæti, ræðis-
maðurinn í eigin persónu.
Jóhann tók nú að skýra mitt
rnál og hafði uppi hin ágætustu
rök fyrir því að Thailandi
myndi áreiðanlega enginn voði
búinn af vikudvöl minni. Er
jhann hafði flutt um þetta langt
erindi og snjallt hóf starfs-
bróðir hans ræðu sína. Hann
jkvað það að vísu engum efa
bundið að ég færi með friði, en
hinsvegar gæti hann ekki gefið
mér dvalarleyfi, hann gæti sent
skeyti til Bangkok, þar sem
mælt væri með að leyfi yrði
veitt, en svar við því yrði áreið-
anlega rúma viku á leiðinni,
annað og meira væri ekki leyfi-
legt. Hann sagðist albúinn þess
að taka þá ábyrgð á herðar sér
að veita mér leyfi til þess að
fara um Bangkok á leið til Ev-
rópu, en það tæki einungis til
tuttugu og fjögurra klukku-
stunda og yrði eg að vera far-
inn innan þess tíma, svo að allt
væri löglegt, og er við þökkuð-
:um þetta fögrum orðum og af
hrærðum hjörtum, en gátum
þess, að mér hefði lukkast að
komast til Hong Kong um
Bangkok, án þess að hafa þetta
leyfi og hefði í huga að komast
með sama hætti heim, þá var
auðsætt, að það var hvergi neitt
það að finna innan ramma em-
bættis hans, er gefið gæti hon-
um tækifæri til þess að verða
mér að liði.
„Hvað gerist ef eg fer leyfis-
laust?“ spurði eg. Ræðismaður
Thailands saup hveljur, en er
hann loks náði andanum kvein-
aði hann: „Fangelsi, herra minn,
fangelsi. Leyfislaust! Hamingj-
an hjálpi okkur! Það er óðs
manns æði, voðinn vís.“ Svo
sló ræðismaðurinn út báðum
höndum og setti upp ólýsanleg-
an angistarsvip: „Lögin, mínir
herrar. Þau eru ekki með að
spauga." Ög þá urðum við líka
angistarfullir gagnvart almætti
laganna, slógum út höndum,
þar sem við stóðum, og hneigð-
um okkur. Og þá hneigði ræð-
ismaður Thailands sig fyrir
okkur og við hneigðum okkur
enn fyrir honum og í dyrunum
notaði litlii, laglegi afgreiðslu-
pilturinn tækifærið og hneigði
sig djúpt fyrir Jóhanni.
Góða skemmtun
í Bangkok.
„Það er þó allur munur að
hafa fengið að tala við siðaðan
mann,“ sagði ég er út var kom-
ið, „og ég skil það vel eftir
skýringu hans, að fyrir mig er
ekkert annað að gera en að
hætta við þessa Bangkokferð.“
„Ekki er ég nú enn alveg viss
um það,“ sagði Jóhann. Þess-
ar reglur um veitingar dvalar-
leyfa í Bangkok eru þá hinar
einu, sem eru án undantekn-
inga hér í Austurlöndum. För-
um aftur til Wallem.“
Við skýrðum norska af-
greiðslumanninum frá erindis-
lokunum. Hann hlustaði á sögu
okkar. Svo sagði hann stutt-
lega: „Þessi ræðismaður er
líklega nýkominn hingað,
regluþræll eins og margir ný-
liðar.“ Svo sneri hann sér að
kínversku skrifstofustúlkunni
og sagði: „Sendið afgreiðslu
okkar í Thailandi þetta skeyti:
MAGNÚSSON ÍSLAND
NÆSTU FLUGFERÐ
DVALARLEYFISLAUS
VILL VIKUDVÖL BANG-
KOK“. — Svo bætti hann
við: „Þetta verður áreiðanlega
í lagi. Þér farið á miðvikudag-
inn, eins og ráð var fyrir gert.
Góða skemmtun í Bangkok.“
Bara venjuleg
skriffinnska.
Réttri viku eftir þetta kom
til mín einn hinna thailensku
aðstoðarmanna afgreiðslustjór-
ans í Bangkok og sagði: „Lög-
reglan vill finna yður. Það er
eitthvað í sambandi við dval-
arleyfið. Eg hefi verið beðinn
að fylgja yður til lögreglunnar
klukkan hálf ellefu á morgun.“
Hver fjandinn var nú á
seyði? Eg vissi ekki betur en
að dvalarleyfið væri skráð,
skýrum stöfum, í vegabréf
mitt, og að lögreglumaðurinn
hefði einskis spurt en dembt
stimplinum yfir hálfa blaðsíð-
una,' skrifað eitthvað, — og
svo var það búið. — „Uss, töl-
um ekki um það,“ hafði af-
greiðslustjórinn sagt, er eg
spurði hvernig hann hefði far-
ið að þessu, og þá spurði eg
einskis framar, en reiknaði með
að hann hefði þurft að ,,skvísa“
. múta, því að yfirleitt fæst
ekkert þess konar nema fyrir
„squeeze", sem þykir ná-
kvæmlega jafn sjálfsagt í
Thailandi og heiðarleg fýrir-
greiðsla annars staðar.
„Þetta er ekkert, sem máli
skiptir, ekkert nema venjbleg
skriffinnska," sagði afgreiðslu-
stjórinn er eg hringdi til hans.
„Við gleymdum að segja yður
frá því að þér áttuð að koma
til viðtals á lögreglustöðinni
daginn eftir að þér komuð. Seg-
ið einungis, að þér hafið ekkert
um þetta vitað og biðjið afsök-
unar. Þá sleppið þér.“
Framh. á 7. síðu.
Ha£narl| örður
Afgreiðsla blaðsins til fastra kaupenda í Hafnar-
firð, er á Langeyrarvegi 10. Sími 9502.
Hafnfirðingar gerist kaupendur að Vísi, hann er
ódýrastur í áskrift, aðeins 12 krónur mánaðargjaldið.
Askriftasiminn í Hafnarfirði er 9502.
Dtfgblaðið Vísir
Pappírspokagerðin h.f.
Vitastíg 3. Allsk. pappirspokar
MARGT Á SAMA STAÐ
LAUGAVEG 10 - SIMl 33S7
Trésmiiir
Fagbækurnar fást hjá
Haraldi Jónssyni,
Vonarstræti 12
(útbyggingin)
SUNBEAM
Hrærivélar
eru komnar aftur.
Véla- og raftækjaverzlunin
Bankastræti 10. Sími 2852.
Tryggvagötu 23. Sími 81279.
Kristniboðshúsið Betania,
Laufásveg 13. Sunnudaginn
21. sept Almenn samkoma
kl. 5 eftir hádegi. Jóhannes
Sigurðsson talar.
Allir velkomnir.
Haustmót IV. flokks
heldur áfram í dag, laug-
ardag 20. þ. m. kl. 2 — Þá
keppa Víkingur — Þróttur
og strax á eftir Valur —
Fram. ---- Mótanefnd.
RÓÐRAFÉLAG
REYKJAVÍKUR.
Æfing í dag, laug-
ardag, kl. 2 í Naut-
hólsvík og á morgun, sunnu-
dag, kl. 10 f. h.
K. F. U. M.
SAMKOMA
annað kvöld kl. 8,30. Síra
Magnús Runólfsson talar. —
Allir velkomnir.
HERBERGI! Kennari ósk- ar eftir góðu herbergi, helzt í Hlíðahverfi eða Miðbænum. Uppl. í síma 3133 kl. 5—7 í dag og á morgun. (558 0 KVENVESKI fundið á Frakkastíg. — Uppl. í símá 80289. (554
KVENARMBANDSÚR, gyllt með kúptu gleri, tapað- ist í gærdag í Austurbænum. Skilist á Fjölnisveg 13, gegn fundarlauniun. Sími 6569. (556
HERBERGI óskást með aðgangi að eldhúsi, baði og síma fyrir reglusamt kær- ustupár. Uppl. í síma 80505 í dag og á morgun. (559
TAPAZT hefur kvenarm- bandsúr, sennilega í strætis- vagni. Voga-hraðferð kl. 14.35 19. sept. Uppl. í síma 1064. Góð fundarlaun. (565
HERBERGI til leigu í Hlíðunum. Uppl. í sima 2959. (546
EINHLEYP stúlka eða kona, getur fengið eitt her- bergi og eldhús, ásamt hita, fyrir húshjálp annan hverri dag til hádegis. Tilboð, — merkt: „Myndarleg“ sendist Vísi fyrir þriðjudagskvöld. (548
Wt/tffiMlífM
i7flnöí®ö mynéfoskóinin Grundarstíg 2 A. Sími 5307. Innritun kl. 6—7 e. h. —
IBUÐ óskast. — Barnlaus hjón óska eftir 1—2 her- bergjum og eldhúsi. Hús- hjálp kemur til greina. Til- boð sendist Vísi fyrir mánu- dagskvöld, merkt: „Góð um- gengni — 466“. (549 KENNSLA. Enska — danska. Áherzla á talæfingar og skrift. Aðstoða skólafólk. Kristín Óladóttir, Grettis- götu 16. Sími 4263. (544
LÍTIÐ forstofuherbergi á rishæð til leigu í Sigtúni 35.
KÁPUEFNI, karlmanna- föt, stakar buxur. Sauma- stofa Ingólfs Kárasonar, Nönnugötu 8. Sími 6937. — (557
SKÓLAPILTAR óska eftir herbergi, helzt í Hlíðunum. Uppl. í síma 80736. (562
LÍTIÐ herbergi til leigu við miðbæinn. Aðgangur að baði og síma. Uppl. í síma 1891. (561
BARNAVAGN til sölu. — Reynimel 38, kjallara. (560
ÍBÚÐ óskast. Þrennt í heimili. Fyrirframgreiðsla. Sími 81619. (563 HJÁLPIÐ BLINDUM. — Kaupið bursta frá Blindra- iðn. Ingólfsstræti 16. (547
GOTT herbergi óskast, helzt ásamt fæði. — Uppl. í síma 7489. (655 BARNARÚM (2 kojur) til sölu. Reykjaví.kurveg 25, kjallara, eftir kl. 1 í dag. — (551
VANDAÐUR fermingar- kjóll til sölu. Uppl. í síma 2457. (552
GET TEKIÐ KJÓLA í saum með stuttum fyrirvara, sníð einnig og máta og tek kjóla til að breyta. — Sana Finnbogadóttir, Lækjargötu 8. Gengið irin frá Skólabrú.
DÍVANAR, allar stærðir, fyrirliggjandi Húsgagna- verksmiðjan, Bergþórugötu 11. Sími 81830. (394
TVÆR stúlkur óska eftir einhverskonar atvinnu frá 1. okt., helzt á matsölu. Eru vanar saumaskap. — Tilboð sendist á afgr. Vísis fyrir 27. sept, merk: „Reglusamar — 415“. (553 CHEMIA-Desinfector er vellyktandi, sótthreinsandi vökvi, nauðsynlegur á hverju heimili til sótthreins- unar á munum, rúmfötum, húsgögnum, símaáhöldum, andrúmsloft o. fl. Hefir unnið sér miklar vinsældir hjá öllum esm hafa notað hann. (446
GÓÐ STÚLKA vön matar- tilbúningi óskast í vist. — Uppl. í síma 1088. (555
SNÍÐ og máta drengjaföt. Sel einnig pappírssnið af hverskonar herra- og drengjaklæðnaði. Þórhallur Friðfinnsson, klæðskeri, — Veltusundi 1. (496 HVERS VEGNA að kaupa nýjar harmonikur? — Við höfum gott úrval af góðum, hljómfögrum og mjög ódýr- um 2ja, 3ja og 4ra kóra harmonikum. — Við kaup- um, skiptum og seljum. — Sendum um allt land. — Antikbúðin, Hafnarstræti 18. , Sími 6919. (524
RAFLAGNIR OG VIÐGERÐIR á raflögnum.
Gerum við straujárn og önnur heimilistæki. Raftækjaverzlunin Ljós og Hiti h.f. Laugavegi 79. — Sím; 5184. KAUPUM flöskur; sækj- um heim. Sími 5395. (838
KAUPUM vel með farin karlmannaföt, saumavélar o. fl.. Verzlunin, Grettisgötu 31. Sími 3562. (465
PLÖTUR á grafreiti. Út- vegum áletraðar plötur á grafreiti með stuttum fyrir- vara. Uppl. á Rauðarárstíg 26 (kjallara). — Sími 612S,
i FJÓRIR karlmenn geta fengið þjónustu og fæði í Sörlaskjóli 40. (564