Vísir - 11.11.1952, Síða 4
ai
VlSIR
Þriðjudaginn 11. nóvember 1952
DAGBLAÐ
Ritstjórar: Kristján Guðiaugsson, Hersteinn Pálsson.
Skrifstofur Ingólfsstræti 3.
Útgefandi: BLAÐAÚTGÁFAN VÍSIR H.P.
Afgreiðsla: Ingólfsstræti 3. Símar 1660 (fimm linur).
Lausasala 1 króna.
Félagsprentsmiðj an h.f.
iinkennileg úrræði.
Svo sem alþjóð er kunnugt, kveður svo mjög að vanskilum
stórútgerðarinnar, að ellefu botnvörpungar hafa verið
auglýstir til nauðungaruppboðs. í sjálfu sér væru það ekki
mikil tíðindi, þótt eitthvað kvæði að vanskilum hjá útveginum,
;sem öðrum atvinnurekstri, en er vanskilin gerast svo almenn og
•er bæjarfélög eiga aðallega í hlut, en ekki einstaklingar, þá
segir sig sjálft, að ekki er allt, með felldu. Afkoma stórútgerðar-
innar er svo léleg, að frá atvinnurekstrinum verður ekki fé
tekið til afborgana og vaxtagreiðslna, sem útveginum hefur
verið ætlað að greiða, er stofnað var til nýsköpunarinnar.
Aðalfundur L. í. Ú., sem haldin var nýlega hér í bænum,
.•samþykkti ályktun, þar sem skorað var mjög eindregið á
Alþingi, að breyta lögum um lánakjör útvegsins, þannig að
lánstími Stofnlánadeildar útvegsins lengist um einn þriðja og
•afborganir lækki þá tilsvarandi, enda komi lögin þannig breytt
til framkvæmda á næsta ári á venjulegum gjalddaga og af-
borganir þessa ár færist aftur til þess tíma. Ályktun aðal-
fundarins er vissulega ekki gerð að tilefnislausu, en hún sannar
að afkoma stórútgerðarinnar er slík, að hún er á enga lund
• aflögufær. Fyrir nokkrum árum hefðu vanskil atvinnurekenda
•ekki þótt til fyrirmyndar og leitt til þess eins, að atvinnu-
rekstur þeirra hefði verið gerður upp á venjulegan hátt þrota-
búa. Nú er það hinsvegar ríkið og opinberir sjóðir, sem bera
hallann, en í rauninni er það almenningur, sem borgar brúsann
,að lokum.
Sjávarútvegurinn hefur um hálfa öld skapað þjóðinni auð
•og velt stærstu steinunum úr braut annars atvinnurekstrar.
Fyrir fé hans hefur verzlun og iðnaður eflzt, vegakerfi verið
lagt um landið, ræktun aukin stórlega, rafvirkjanir gerðar og
þannig mætti lengi telja. En þegar svo 'er komið hag þessa at-
vinnurekstrar, að hann lýtur kjörum þurfamanna, þá er vissu-
lega ástæða til að stinga við fótum. Þegar svo er um hið græna
tréð, hvað þá um hið visna? Almenningur skilur mætavel, að
ástæða er til róttækari aðgerða, en frestum á greiðslum afborg-
ana og vaxta, þegar jafn þýðingarmikil atvinnugrein á í hlut,
sem sjávarútvegurinn. Skuldaskil vélbátaútvegsins sanna einn-
ig, að ekki er svo búið að þessum atvinnurekstri sem skyldi,
‘þótt aflabrestur og óhöpp ráði þar miklu um.
Greiðslufrestur getur linað þrautir sjávarútvegsins í bili,
■en í því felzt engin endanleg lausn. Það verður að skapa at-
' vinnurekstrinum skilyrði til sæmilega örugga afkomu í venju-
l legu árferði, en að sjálfsögðu verður ekki séð við óvenjulegum
-óhöppum frekar í þessari atvinnugrein, en öðrum áhætturekstri
'hér á landi. Ef slíkt öryggi á að skapa, nægir það eitt ekki að
; fá frest á umsömdum greiðslum, frá ári til árs, sem útvegurinn
■er að kikna undir, heldur verður að létta af honum öllum þeim
'byrðum, sem hann getur ekki borið og skapa honum á annan
' hátt viðunandi rekstrarskilyrði.
Nú eru kosningar fyrir höndum og stendur þá ekki á til-
lögum til úrbóta, innan þings og utan, en allt til þessa birtist
-engin viðleitni í þá átt að grafist verði fyrir rætur meinsins. Sá
verðlags- og kaupgjaldsgrundvöllur, sem þjóðin býr nú við,
-er með öllu óviðunandi og vaxandi kjarabótadeilur spá sízt
jgóðu um nánustu framtíð. Eina eðlilega og sjálfsagða úrlausn
'þessa vanda, er að stéttirnar sjálfar ræðist við og reyni að
.finna lausn á því ófremdarástandi, sem ríkjandi er. Meðan verð-
lag og kaupgjald er tengt svo saman, sem nú er lögboðið, er
«ekki unnt að þoka neinum umbótum áleiðis. Breyting á slíku
.kann að valda nokkrum vandkvæðum í svip, en betra ér að
...þola óþægindi um skamma stund, en'að búa við vaxandi vand-
jjræði og örbrigð til frambúðar.
Skattalöggjöfin.
' Á nnað skilyrði þess að búið verði sæmilega að atvinnurekstr-
inum, er að skattalöggjöfin verði enduðskoðuð, svo sem
raunar er nú unnið að, þótt hægt fari og sennilega verði málið
•ekki afgreitt á þessu þingi. Benjamín Eiríksson hagfræðingur
hefur nýlega rætt þessi mál innan fjölmennra launþegasam-
taka, og komist þar að þeirri niðurstöðu, að sköttum yrði að
létta á atvinnurekstri, en jafnframt skyldi tekið upp nánara
-eftirlit með slíkri starfrækslu, til þess að skjóta loku fyrir
smisnotkun fríðinda. Vafalaust er þetta rétt stefna, sem myndi
leiða til aukinnar tryggingar fyrir atvinnurekstur og almenn-
áng, en hitt er svo annað mál, að engu verður spáð um, hve
•greiðlega slíkar umbætur ganga fram í þessu landi hins svip-
þrigðalausa sosialisma.
Eymd Alþýðuflokksins.
Formaður flokksins fordæmir skipu-
lag, sem hann átti upptökin að.
AB-málgagnið og broddar AB-flokksins hafa undanfarið
gengið fram fyrir skjöldu og svívirt ríkisstjórnina, sérstaklega
þó viðskiptamálaráðherra, fyrir batagjaldeyrisfyrirkomulagið.
Hafa þeir talið allar gerðir stjórnarinnar í því máli ólöglegar og
gerræðislega árás á afkomu almennings. En það sannast hér
sem öftar, að eymd AB-flokksins ríður ekki við einteyming.
Er því ekki úr vegi að bera saman hvað þeir SEGJA nú og
hvað þeir GERÐU 1949.
Hvað segja þeir nú?
AB. skrifar 7. þ.m.
„STEFÁN JÓH. STEFÁNS-
SON sagði á alþingi í fyrra-
dag, að það væri að minnsta
kosti mjög veik stoð, sem
bátagj aldey risf y r irkomulagið
ætti sér í lögum ef yfiiieitt
um nokkra lagaheimild fyrir
því væri að ræða; og að
minnsta kosti taldi Stefán
Jóhann það mjög óþingsræð-
islegt og ólýðræðislegt, að nú-
verandi ríkisstjórn skyldi
hafa tekið upp bátagjaldeyr-
isfyrirkomulagið án þess að
leita til þess heimildar al-
þingis. Sagði hann það fram-
ferði ríkisstjórnarinnar hafa
skapað mjög varhugavert for-
dæmi, enda væri það sannast
mála, að ef ríkisstjórninni
hefði verið heimilt að taka
upp bátagjaldeyrisfyrirkomu-
lagið án samþykkis alþingis,
væri ekki sjáanlegt, að því
væru nein takmörk sett,
hvernig hún eða síðari ríkis-
stjórnir gætu upp á sitt ein-
dæmi íþyngt þjóðinni með á-
lögum og tekið sér einræðis-
vald til eins eða annars.“
AB-málgagnið hefur undan-
farið ekki átt nógu sterk orð til
að lýsa því hvílík svívirðing sé
að bátafyrirkomulaginu og
hversu fólskuleg árás það sé á
lífskjör alþýðunnar. Hvetur
blaðið þjóðina sterklega að
hrinda af höndum sér stjórn
sem gerir sig seka um slíkar
ráðstafanir.
Þannig tala kratarnir 1952.
Hvað gerðu þeir 1949?
Bjöm Ólafsson benti á í.þing-
ræðu 5. þ. m., að broddar Al-
þýðuflokksins væru nú búnir
að gleyma gerðum símun 1949,
þeg'ar þeir innleiddu „gotu-
gjaldeyririnn“. Það skipulag
var byggt upp á sama hátt og
,,bátagjaldeyririnn“ nú. Þegar
„gotu-skipulagið“ var tekið
upp, var formaður Alþýðufl.
forsætisráðherra og sá sem
hafði framkvæmdina á hendi
var þáverandi viðskiptamála-
ráðherra, Emil Jónsson, ein
aðál máttarstoð flokksins. —
Engra sérstakra lagaheimilda
var aflað til að framkvæma
gotu-kerfið. En það var í því
fólgið, að útvegsmönnum var
heimilað að ráðstafa gjaldeyri
sínum fyrir hrogn, gellur, faxa-
síld, smásíld, sundmaga, há-
karlalýsi, reyktan fisk o. fl. —
Þeir máttu ílytja inn ákveðnar
vörutegundir og leggja á þær
auk venjulegrar verzlunar-
álagningar allt að 50-60%, eft-
ir því hversu mikið þurfti til
að fá greitt framleiðsluverð
afurðanna. Vörurnar sem þeir
máttu flytja inn voru; Gólf-
teppi, snyrtivörur, reiðhjól,
ljósakrónur, niðursoðnir ávext-
ir o. fl. Fengu útvegsmennirnir
sjálfir innflutningsleyfin og
seldu þau svo fyrir hátt verð
eða fluttu sjálfir irm vörurnar.
Þetta skipulag innleiddi Alþ.
fl. og framkvæmdi án þess að
nokkurt styggðaryrði hrykki út
úr AB-málgagninu. Þeir gáfu
fordæmið. Þótti þeim þá þetta
hið mesta snjallræði og í alla
staði löglegt.
Þannig voru gerðir þeirra
1949.
Tók
myndir á sek.
í fyrirlestri, sem dr. Penney,
irezki kjarnorkuvísindamaður-
inn flutti í útvarp nýlega, sagði
haun um kjarnorkusprenging-
una á Monte Bello-ey, að hún
hefði verið ógurlegri en orð fá
lýst.
Hann tók undir þá ósk Chur-
ehills, að kjarnorkuvísindi og
rannsóknir kæmust á það stig',
að styrjaldir væru óhugsan-
legar.
Smíðuð var myndavél til töku
mynda af sprengingunni og gat
hún tekið 100,000 myndir á sek-
undu, en auk þess voru um
300 önnur tæki, sjálfvirk, sem
„tilkynntu“ verkanir spreng-
ingarinnar áður en þau sjálf
eyðilögðust.
Forseti ísraei iátinn.
Tel Aviv (AP). — Weiz-
mann, forseti í ísrael, lézt í
fyrradag á heimili sínu
skammt frá Tel Aviv, hartnær
78 ára að aldri. Banamein hans
var hjartabilun.
Weizmann var fæddur í
Rússlandi, en fluttist til Bret-
lands og varð brezkur borgari.
Hann varð snemma kunnur
maður og hafði þegar í fyrri
heimsstyrjöldinni samstarf við
kunnustu menn Bretlands, m.
a. Churchill. Hann átti mikinn
þátt í því, að sú stefna var tek-
in að stofna þjóðarheimili Gyð-
inga í Palestinu (Balfour-yfir-
lýsingin). Hann var samþykk-
ur stefnu Breta á umboðsstjórn
artímanum, en andvígur hermd
arverkastarfseminni í Pale-
stinu. Þegar umboðsstjórnar-
tíma Breta lauk og bráða-
birgðastjórn var mynduð í ísra
el, varð hann forseti hennar og
síðar kjörinn forseti landsins.
MAIi ♦
Fyrir helgina var skýrt frá
því í fréttum hér í blaðinu, að
verksmiðja hér í bæ væri farin
að súta skinn með nýrri aðferð,
sem gerðu skinnin mun end-
ingarbetri. Hefur þessari að-
ferð verið lýst í fréttum blað-
anna og verður ekki nánar far-
ið út í það á þessum stað.
En það var annað, sem mig
langaði til þess að gera að um-
talsefni, og það er hve fullkom-
in sútun skinna krefst mikillar
vinnu, en eg dreg í efa að al-
menningur geri sér það ljóst.
Tekur 9 daga.
í sambandi við kynningu á
hinni nýju sútunaraðferð, sem
nú verður hér upp tekin, var
blaðamönnum boðið að skoða
sútunarverksmiðju við Braut-
arholt, og fylgjast með ferð
gærunnar í gegnum verk-
smiðjuvélarnar. Það er sannar-
lega í frásögur færandi, að það
tekur 9 daga að ganga svo frá
einni gæru, að hún sé talin
fullunnin. En það eru mörg
handtökin á þeirri leið.
Sextíu skinn á dag.
f Sútungrverksmiðjunni h.f.
vinna 7 menn og Jjúka þeir við
að súta um 60 skinn á dag.
Verkstjórinn, Hafliði Barnason,
sem unnið hefur við sútun
skinna í áratugi, sýndi gestum
vélarnar, sem notaðar eru, og
lýsti verkinu. Gærurnar eru
keyptar saltaðar víðs vegar að
og fyrsta verkið er að klippa
þær með rafmagnsklippum,
síðan fara þær úr einni vélinni
í aðrá. Holdrosinn er tekinn af
í vél, síðan eru þær látnar
velkjast í vatni í 24 klst., eltar
og borin í feiti og á þann liátt
mettuð svo þau drekki ekki í
sig vatn.
Kembd og klippt á ný.
Þá taka við nýjar vélar þar
sem skinnin eru kembd, þau
barin, svo allt laust hár losni,,
og er séstölc vél til þess. Fyrir
síðari klippingu er þeim velt
upp úr sagi, og á þann hátt
hreinsuð. Allt tekur þétta sinn
tíma, en bæði böðunin eða
þvotturinn og þurrkunin tekur
langan tíma. En loks eftir að
hafa gengið í gegnum allar
þessar vélar eru skinnin út-
skrifuð og hæf til þess að not-
ast í fóður í ails konar flíkur,
svo sem kuldaúlpur. o. fl
Nýja aðferðin.
Það, sem þó er merkilegast
er hin nýja aðferð, Zaboaðferð-
in, sem nú er tekin upp en með
efnablöndu, sem skinnin eru
látin liggja í, er hægt að gera
þau þannig úr garði, að þau
mega blotna og þorna aftur við
allmikinn hita' án þess að
skorpna og skemmast. Þessi að-
ferð er nýjung, eins og áður
hefur verið sagt frá, og á senni-
lega eftir að valda byltingu í
sútun skinna. — kr.
Nr. 297:
Allsber gaur, sem átti pell,
á ýmsar hliðar skopþá varin,
nefinu klórar niður á svell,
nokkuð gruggótt drekkur
hann.
Svar við gátn nr. 296:
Kvörri.