Vísir - 29.12.1952, Síða 8
LÆKNAR O G LYFJABÚÐIR
Vanti yður lækni kl. 18—8, þá hringið í
Læknavarðstofuna, sími 5030.
Vörður er í Lyfjabúðinni Iðunn, sími 7911.
LJÓSATÍMI
bifreiða er 15,00 til 10,00.
Flóð er næst í Reykjavík ki. 16,25.
Breyting á stjórnarskrá
Frakka talin nauðsynleg.
Enn engin stjórn í Frakklandi.
Einkaskeyti frá A.P. —
París í morgun.
Sousthelle úr samfylkingu
De Gaulles gafst upp í gær við
tilraun sína tii þess að mynda
stjórn og hefur Auriol Frakk-
landsforseti nú beðið Bidault
að reyna.
Bidault — fyrrverandi for-
sætis- og utanríkisráðherra —
,er einn af höfuðleiðtogum
kristilega lýðræðisflokksins, en
það var afstöðu hans að kenna
á dögunum, að Pinay neyddist
til að biðjast Iausnar fyrir sig
og ráðuneyti sitt. Kunnugt er,
að mikill áhugi er fyrir því, að
reyna að leysa vandann fyrir
áramótin, en vandséð að það
muni takast, þar sem Bidault
getur ekki svarað Auriol. fyrr
en í dag, er hann hefur rætt við
flokk sinn, en að fenginni heim-
ild flokksins og afhendingu
svars til Auriol, eru eftir við-
ræðuimar við hina flokksleið-
togana.
Tilraunir Sousthelles strönd-
uðu á því, að jafnaðarmenn og
róttækir (radik. fl.) vildu ekki
ganga til samstarfs við hann.
Mönnum ber saman um, að
Pinay hafi orðið talsvert á-
gengt að skapa öruggara ástand
í efnahags- og atvinnumálum,
og honum tókst að minnsta
kosti að halda verðlagi í skeíj-
tim, og jafnvel lækka það. En
fjárhags- og efnahagsmál eru
enn í miður góðu. lagi. Sam-
komulagsumleitanir Sousthelles
eru sagðar hafa leitt í ljós, að
allir flokkar séu sammála um,
að stjórnarskrárbreyting til
þess að veita ríkisstjórninni
meira öryggi og völd, sé nauð-
synleg.
Seinustu fregnir frá París
herma, að' Bidault hafi til-
kynnt Auriol, að hann muni
taka að sér að reyna að
mynda samsteypustjórn.
200 herskip á
fíotasýningu vsi
krýninguna.
Einkaskeyti frá AP. —
Lpndon í gær.
Brezfea flotamálaráðuneyt-
ið vonast til þess, að hægt
verði ao safna saraan 200
skipum til flotasýningar, sem
efnt verður til á Spithead
— undan Porísmouth —
þegar krýning Elisabetar 2.
fer fram í júníbyrjun. Þegar
önnur skip bætast við, sem
þarna munu einnig vcrða,
svo sem erlend lierskip og
kaupskip, mun íalan ekki
verða mjög f jarri þeim f jölda
sem safnað var við flotasýn-
inguna 1937, en þá voru þau
300. Þarna verða 12 flug-
stöðvarskip, en aðeins eitt
orrustuskip (fjórum hefur
verið lagt), 10 beitiskip eða
fleiri o. s. frv. ■
rnmyt er shritið
Ensklr læknar uadrast lita-
breytingar hvítvoiunga.
r • •
Onnur hSlðin félnar, þegar
þeir Sigg|a á hiiðinni.
Læknar í sjúkrahúsi einu í
Newcastle-iipon-Tyne brjóta nú
mjög heilan um einkennilega
litabreytingu, sem verður á lík-
ama hvítvoðunga þar í stofn-
uninni.
Atburðir þessír eiga sér stað
í fæðingarstofnun, sem heít-
ir Princess Mary Maternity
Hospital, og meðal þeirra, sem
r'eyna að komast til botns í
þeim er dr. G. A. Neligan, sem
starfandi er við Durham-há-
skóla, en hann og læknar við
sjúkrahúsið hafa ritað um það
í enska læknablaðið Lancet.
Þeir voru einu sinni að vírða
fyrir sér 3ja daga gamalt barn,
sem lá á hægri hliðinni i súr-
efnistjaldi. AUt í einu varðl
vinstri hlið barnsins miklu föl-
ari en áður, enda þótt sami
bleiki liturinn værí á hægri
hliðinni. Markalínan var eins
ekörp og greinileg og ef hun
hefði verið dregin með ritblýi
og reglustiku, og var nákvæm-
.lega eftir endilöngum Iíkama
barnsins — skipti höfði og bol
í tvo jafna hluti. Þetta stóð í
nokkrar mínútur en þá tók allur
líkami barnsins á sig eolilegan
lit.
Þetta gerðist fyrir meira en
ári, en á næstu tólf mánuðum
tóku læknar eftir þessu sama
fyrirbrigði að því er snerti 21
barn að auki. Þess er og getið,
að læknar annars staðar hafi
veitt hinu sama eftirtekt.
Hvítvoðungarnir lágu ævin-
lega á hliðinni, þegar þetta
gerðist, og efri hliðin varð alltaf
fölari. Ef barninu var snúið á
íhina hliðina, breyttist litarhátt-
ur þess í samræmi við það.
Enskir læknar hafa ekki enn
fundið neina fullnægjandi
skýringu á þessu. en þeir halda
áfram að athugamálið.
WsSa róa Kínverj-
ar undir.
Lögreglan hafði næg
verkefni um heigina.
Jalswert osn siys og- ©Ivíeis,
auk árásar ©g éspekta®
HSaneSSökEss' á Filipps-
eyium.
Einkaskeyti frá AP. —
Manila í morgun.
Lögreglu- og herlið hefur
handtekið yfir 300 Kínverja á
Filipseyjum fjrrir kommúnist-
iska starfscmi.
Handtökur þessar voru fram-
kvæmdar að undangengnum
árs athugunum, sem unnið var
að með leynd. — Búizt er við,
að frekari handtökur séu fyrir
dyrum.
Fiugvélarffaki nál
upp.eftir 7 ár.
Livorno (AP). — Náð hefur
vérið upp úr liöfninni hér flaki
af amerískri flugvél.
Flugvél þessi, sem var
sþrengjuflugvél, hrapaði í
höfnina árið 1945, en hennar
var ekki leitað fyrr en nú fyrir
skemmstu.
IÁgúst Guðmundsson I
yfirvélstjóri
Ágúst Guðmundsson, yfirvél-
stjóri í rafmagnsstöðinni við
Elliðaár, lézt að heimili sínu í
fyrradag.
Ágúst var 63ja ára er hann
lézt, traustur maður, og vel lát-
inn af öllum, er til hans þekktu.
Hann hafði starfað við Elliða-
árstöðina frá upphafi.
$tal laJeSli á dag.
Pisa (AP). — Kona nokkur,
tæplega fertug, hefur verið
handtekin fyrir næsta óvenju-
lega þjófnaði.
Játaði hún við yfirheyrslur,
að hún hefði stolið einu reið-
hjóli á degi hverjum á undan-
förnum tveirn mánuðum.
Allmikil ölvun var hér í bæn-
um um helgina og hafði lög-
reglan ærið nóg að gera, eink-
um þó á laugardagskvöldið.
Auk þess urðu og nokkur slys
á mönnum í sambandi við á-
rekstra.
Um hádegisleytið á laugar-
daginn varð bifreiðarslys á
Grettisgötu, móts við verzlun-
ina Fell. Maður, sem þar var á
ferð í bifreið sinni, varð þess
var að eítthvað kom við bif-
reið hans aftanverða. Nam hann
þá staðar og hugði að þessu
nánar og sá dreng liggjandi í
götunni og grátandifyrir aftan
bílinn. Sjónarvottar töldu sig
hafa séð drenginn hlaupa út á
götuna og lenda á aftanverðri
bifreiðinni. Drengurinn, sem
mun vera 4 ára gamall, heitir
Þórarinn Beck, til heimilis á
Grettisgötu 57. Hann var flutt-
ur á sjúkrahús, en meiðsli hans
ekki talin mikil.
í gærmorgun var lögreglan
kvödd tnl þess að skakka leik
óróaseggja, er lent höfðu í rysk-
ingum á gatnamótum Berg-
staðastrætis og Nönnugötu. Er
lögreglan kom á staðinn voru
þar tveir menn fyrir, er höfðu
orðið fyrir barsmíð þriðja
manns, sem þá var horfinn. Var
annar þessara manna mjög
blóðugur með brotnar tennur
og skemmdan tanngarð. Hann
var fluttur á Landspítalann til
athugunar og aðgerðar.
Um miðjan dag í gær lenti
hjólreiðamaður, Þorkell Magn-
ússon, Freyjugötu 1-7, á bíl á
gatnamótum Barónsstígs og Ei-
ríksgötu. Hann skarst töluvert
í andliti, bæði á nfi og enni
auk fleiri meiðsla. Var hann
fluttur á Landsíptalann, þar
sem gert vár að meiðslum hans,
en síðan var honum ; leyft að
fara heim.
Um líkt leyti í gær.fékk mað-
ur krampa að húsabaki hjá
Hótel Borg. Maðurinn datt, en.
í fallinu lenti hann á tunnu og
skarst við það á enni. Sár hans
var saurnað saman.
Síðdegis í gær, var bifreið ek-
ið aftan á.aðra bifreið á Njarð-
argötu. Varð áreksturinn það
harður að. hvorug bifreiðanna
var í ökuhæfu standi á eftir og
varð að flytja þær burt með
kranabíl. Stúlka, sem sat í ann-
arri bifreiðinni, meiddist nokk-
uð, en ekki alvarlega.
Láust eftir miðnætti í nótt
kom maður inn á lögreglustöð
og bað urn aðstoð til þess að
leita manns, er hefði ráðist á
sig í Traðarkostsundi og ætlað
að ræna sig peningum. Lög-
reglumenn fundu skömmu síðar
mann er þeir grunuðu um að
vera valdan að árásinni og tóku
hann í vörzlu sína. Málið er £
rannsókn.
Um svipað leyti barst lög-
reglunni tilkynning um að mað-
ur hefði dottið hjá mjólkur-
stöðinni og skorizt allmikið á
höfði. Lögreglan flutti rnann-
inn fyrst á læknavarðstofuna,
en þegar þar var ekki neinn
læknir að finna hélt hún áfram
með hinn slasaði mann á Land-
spítalann og var þar búið úra
sár mannsins.
í nótt kl. 4 var lögreglunni
tilkynnt að óvelkominn máður
væri kominn inn í bifreið, sem
hann ætti ekki að vera í. Fór
lögreglan á staðinn og hitti þar
fyrir mann, ölvaðan og illa til
reika, sem seztur var undir
stýri bifreiðarinnar. Lögreglan
tók hinn ölvaða mann í vörzlu
sína.
Eitt mcsta flugslys, er sögur fara af, áttu sér stað í Bandaríkjunum rétt fyrir jólin, en þá
fórst flugvél sem var að flytja hermcnn í jólaleyfi. Um 89 Iiermeun létú þá lífið Mýndin er
tekin af flaki vélarinnar.