Vísir - 26.02.1953, Page 1

Vísir - 26.02.1953, Page 1
43. árg. Fimmtuáaginn 26. febrúar 1953. 47. Ibl Hér að ofan sést Henry Cabot Lodge jr., sendiherra Bandarfkj- anna hjá Sameinuðu þjóðunum, heilsa Trygve Lie í aðalstöðvum Sameinuðu þjóðanna. Framlag ROssa í Kóreu fer mjög í vöxt, segir Lodge. Skorar á Vishinsky ad afsanna, að Rússar hjálpi N.-Kóreumönnum. Henry Cabot Lodge, hinn nýi aðalfulltrúi Bandaríkjanna hjá S. Þ., flutti fyrstu ræðu sína á vettvangi þeirra í gær. Bar hann þær sakir á Rússa, að þeir styddu kommúista í Kóreustyrjöldinni í vaxandi mæli. Þessi stuðningur hefði þó verið örlátalegur frá fyrstu, en framan af hefðu Rússar þó ekki lagt þeim til þungahergögn, eins og þeir gerðu nú. Auk þess hefðu þeir lagt þeim til um 1250 þrýstilofts-orrustuflugvél ar af MIG-gerð og álíka marg- ar aðrar, eða samtals a. m. k. 2500 herflugvélar og væru þær allar smíðaðar af Rússum. Lodge skoraði á Vishinsky, að afsanna þessar staðhæfingar og kvaðst Vishinsky taka á- skoruninni og svara, er hann hefði kynnt sér ræðu -Lodge til hlítar. — Þetta gerðist á fundi stjórnmálanefndarinnar í gær- kvöldi, en hún kemur aftur sam an til fundar síðdegis í dag. Rússar reyna enn. Felld var tillaga frá Rússum um að leyfa fuUtrúum frá N.'- Kóreu að taka þátt í umræðum um Kóreustyrjöldina. Með til- lögunni greiddu 16 þjóðir at- kvæði, en 35 á móti, og sex sátu hjá. Dagskrárnefnd samþykkti 1 gær, að taka Kóreumálið á dag- skrá og verður það tekið fyrir fyrst höfuðmála, sem rædd verða á þinginu. Gestaþraut Þjéðviijaiis. Þjóðviljinn getur helgað hugð- arefnum sínum enn meira rúm en áður, síðan „íslenzka blaðið" stækkaði. í morgun stendur til dæmis á einum stað: „Landneminn kemur út annan hvern föstu- dag. — Hvað sagði salernisvörð urinn?“ Já, talaði hann um pappírinn eða efnið? Notendur sjónvarpsviðtækja í Bretlandi eru nú yfir 2 millj., en sjónvarps- og útvarpsvið- tækja 12,7 millj. Skæruhernaður i tónSistar- máflum breytist i styrjöld. Ekki stendur á Eisenhower. Washingíon (AP). — Eisen- hower segir, að ekki skuli standa á sér, ef hægt sé að tryggja friðinn örugglega. Sagði forsetinn við bláða- menn í gær, að hann mundi koma hálfa leið til móts við Stalin eða hvaða þjóðarleiðtoga sem væri í þessum tilgangi. En þá yrði líka að búa svo um hnútana, að staðið yrði við gerða samninga. Þó sagðist Eis - enhower ekki gera neitt í þess- úm efnum, án þess að ræða fyrst við bandamenn Banda- ríkjanna. Ráðning dr. Urbaneic að Þjóðleik- húsinu líkí við árásina á Pearl Harbor. Ganghraði „Kórfoss" 30 mílur. Frásögn Vísis af Kórfossi, hinum nýstárlega farkosti Karlakórs Reykjavíkur, hef- ir vakið mikla athygli. Vísi hefir verið bent á, að svolítil villa hafi slæðzt inn í frásögnina í gær. Aflvél skipsins er ekki af Ford- gerð, heldur af Willys-Over- Iand-Whippet-gerð, módel 1928. Vélfræðingar karla- kórsins fullyrða, að vélar af nýrri gerð hafi reynzt miklu verr. Þá er fullyrt, að ganghraði Kórfoss verði um 30 sjómil- ur á klst. í sterkum mót- vindi Reynsluför verður e. t. v. farin á morgun, og er mikill viðbúnaður, að því er Vísir hefir frétt. Skæruhernaður sá, sem Tón- listarfélagið hefur haldið uppi að undanförnu á hendur Þjóð- Ieikhúsinu vegna ráðningar dr. Urbancic að leikhúsinu út leik- árið, virðist nú hafa breytzt í fullkomna styrjöld. Vitnazt hefur um bréf, sem Ragnar Jónsson forstjóri hefur ritað Guðlaugi Rósinkranz, þar sem sveigt er þunglega að Þjóð- leikhússtjóra með næsta óvenju legu orðalagi. Vísir hefur gert sér nokkurt far um að fygjast með þessari furðulegu styrjöld, þar sem vissulega er um að ræða mál, sem varðar allan almenning. Hefur blaðið átt stutt tal við Þjóðleikhússtjóra út af bréfi þessu, en hann kvaðst ekki kæra sig um að birta bréf Ragn- ars, en staðfesti hins vegar ým- islegt, sem Vísir hafði heyrt að stæði í því. f bréfinu er ráðningu dr. Urbancic sem hljómsveitar- stjóra Þjóðleikhússins líkt við árás Japana á Pearl Harbor. Þá telur Ragnar ráðninguna „einhverja ógeðslegustu menn- ingarárás, sem hann hafi orðið vitni að“, og að hún sé „rauna- legur þáttur í menningu okkar, sem verði skrifaður á reikning Guðlaugs Rósinkranz“. Þá full- yrðir Ragnar, að með hinni nýju hljómsveit Þjóðleikhússins „sé hörfað aftur á bak um 10 ár“. Þjóðleikhússtjóri sagði í við- tali við Vísi í morgun, að stefna Þjóðleikhússins í tónlistarmál- um væri óbreytt þrátt fyrir þessi viðbrögð Ragnars og Tón- listarfélagsins. Allt bendir þó til, að ekki sé búið að súpa kál það, sem. í ausuna er komið, og að ým- islegt eigi eftir að gerast, sem varpa muni enn skýrara ljósi yfir þessa undarlegu styrjöld í heimi íslenzkrar tónlistar. Evrópuherinn ekki í höfn. Róm (AP). — Fundum utan- ríkisráðherranna er lokið, og náðu þeir nokkru samkomulagi en ekki algeru. Náðu þeir aðeins samkomu- lagi um það, að þeir skyldu leggja eindregið til við stjórnir sínar, að þær hröðuðu fullgild- ingu samningsins um Evrópu- her. Getur því enn dregizt, að samningurinn verði fullgerður, og einkum er búizt við því, að franska þingið kunni að verða erfitt viðureignar. Ætluðu til sjós á þvottabala. Bíllinn horHnn, er komið var á vettvang. í fyrramorgun vrar Iögregl- unni símað úr Ánanausíum, að þar \ræru nokkurír smákrakkar að búa sig út £ sjóferð, en far- kosturinn væri gamall þv'otta- balL Lögreglan brá við og fór á staðinn, og voru krakkarnir þá IMærri 51 þúsund ferðamenn logðu leið sína um líefBavikurvöll á sl. MiHiKantdafBugvéfer Besifui; 1483 smoinii. Á árina sem leið urðu lend- ingar á Kcflavíkitrfhigvelli, annarra en herflugvéla, samtals 1656, en alls fóru 50.996 far- þegar um völlinn á árinu. Af þessum 1656 lendingum voru 1483 millilandaflugvélar. í hitt eð fyrra urðu lendingar samtals 1972. Efst á blaði að því er lend- ingar snertir, var brezka félagið BOAC, með 324 lendingar, þar næst kanadíska félagið TCA, þá í og 7% frá KLM. íslenzkar einkaflugvélar, 147,1 Flestar urðu lendingamar síðan PAA, 137, Air France, 132, KLM 105 og Seaboard & Western 91 lending. Auk þess voru þama ýmis félög og fyr- irtæki með færri lendingar, svo sem Israel Airlines, 46 lend- ingar, Arabian-American Oil Co., 2, Ind-Amer. Inc. (Ind- versk-ameríska félagið), 2, ríkisstjórn Mexíkó, 2. o. s. frv. Aí millilandalendingum voru frá TCA, 22% frá BOAC, 16yo 9% frá PAA, 9% frá Air France ágústmánuði, eða 192, en fæst- ar í desember, 53. Tala farþega varð 50996, eins og fyrr segir, en 63.931 árið 1951. Til KeflavikurvpUar komu 1013, en þaðan fóru 1012. Vöruflutningar með vélum um völlinn nárnu samtals 1.506.995 kg., en til Kefalvíkurvallar komu 30.941 kg., en þaðan voru send 14.184 kg. Póstflutningar um völlinn námu samtals 311.727 kg. en til vallarins komu 11.678 kg., en þaðan fóru 3.829 kg. í þann veginn að ýta úr vör á þvottabalanum. Lögreglan tók balann af þeim og fylgdi krökk- unum heim til þeirra, og þar með var ævintýri þetta úr sög- unni. Um tíuleytið í fyrrakvöld var hring til lögreglunnar og til- kynnt, að vegfarendur um Hafnarfjarðarveg hefðu séð bíl á hvolfi þar við veginni skömmu áður. Lögreglan tók. þá að halda uppi spurnum um. atburð þennan og kom þá upp úr kafinu, að bílstjóri á áætl- unarbíl Landleiða hafði um kl. 9 um kvöldið orðið var við bíl á hliðinni eða á hvolfi við veg- inn á móts við Arnarnes. Jafn- framt sá hann menn vera acS hjálpa farþegum bílsins út úr honurn, en meira vissi hanra ekki um atburð þennan eða fil- drög hans. Lögreglan sendi bíl og menn. á staðinn, en þá var þar engan. bíl að sjá né nokkur ummerkii um slys. Ekki hafði heldur ver- ið komið með slasað fólk hvorki á Slysavarðstofuna né Land- spítalann.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.