Vísir - 21.06.1953, Qupperneq 6
V
VÍSIR
Laugardaginn 21. júní 1953.
meðfram götunum, fyrir aftan
fótgönguliðið, sem stóð þár á
verði. Sagt er að um 3300
manns haíi fengið viðlagahjálp
yfir daginn, en um 300 hafi
þurft á spítala, sém ekki er
mikið, þegar tekið er tillit til
miiljónanna, sem stóðu eða sátu
í slagveðrinu meðfram skrúð-
gönguleiðinni.
Veitingar voru fáanlegar i
tjöldum aftan við pallana — en
flestir höfðu útbúið sig með
nesti til dagsins. Enda veitti
ekki áf því, þar eð tírriinn, sem
setið var, var tíu klukkutímar.
Fyrr varð ekki komist burtu,
vegna liðsflutninga á götunum.
Menn voru hressir
og kátir.
Fjöldinn, sem þarna stóð, eða
sat, var hinn hressasti. Það
kváðu við smá hlátrasköll og
fyndni hjá fólkinu. Hvað lítið
sem fyrir kom, lustu menn upp
fagnaðarópum — þó ekki væri
annað en að gotusópári færi um
til að hreinsa upp umbúðapapp-
ír nestispakkanna — eða þegar
sagt var frá í hátalara hvað
klukkan væri. Vitaskuld gladdi
það menn, að heyra um hvern
hálftímann, sem liðinn var af(
pessum langa biðtíma.
Þeg'ar athöfnin í Westminster
Abbey hófst, féll hátíðleg kyrrð
yfir mannfjöldann. Það var
hlustað með athygli á hina
skýru og stei’ku rödd Fistiers,
erkibiskups, sem leiddi athöfn-
ina — og á hina björtu og ein-
íægu rödd drotmmgarinnar,
þegar hún sór eiða sina.
Tónlistin — trompetarmr —
fallbyssuskotin — allt fór fram
samkvæmt áætlun — og vér
sáum í anda hina háhvelfdu
oddboga kirkjunnar, með rósa-
gluggunum, sem nú var eins og
sjónarsvið fyrir milljónir
manná. og þar- sem allar athaf m
ir voru mældar út, bæði í tíma
og rúmi. Þar mátti engu skeika,
hvorki með hreyfingar, lát-
bragð né mælt mál -v því nú
var öllu í fyrsta sinn í sögunni,
sjónvarpað inn á þúsundir
heimila um allt Bretland og i
1000 mílna radíus inn á megin-
Jand Evrópu. Og níu klukKu-
tímum seinna var filma komin
vestur yfir Atlantshaf, til sjón-
varps um Bandaríkin og Kan-
sda. Það var Canberraflugvéi.
*em flaug vestur, strax að aí>
höfninni loKinnt.
Hver tignarstétt
yneð sínu lagi.
Og hvílík sjón! Bláhjúpaðar
..valir með sæíaröðum á miiii
súlnanna fornu, allt upp undn’
þak. Framkirkjan lögð með
blárri gólfábreiðu, en krýning-
arkórinn, upphækkaður, með
gullslitu klæði. Á honum rós-
litað hásætið með gullnu flúri.
Og söfnuðurinn — margra
þjóða einkennisbúningar og
þjóðbúningar — frá Afríku-
ströndum — frá Indlandi — frá
Arabíu — og fjarlægum Suður-
hafseyjum, ásamt Evrópuprins-
um og öðrum fulltrúum.
Jarl-marskálkurinn, sem sá
um allt viðvíkjandi útbúnaði og
siðum sem fram fóru, hafði lát-
ið boð út ganga um klæðnað
þann, sem lávarðarnir og aðrir
tignir gestir skyldu íklæðast.
Allt átti það að vera samkvæmt
fornum og viðteknum venjum
við krýningarathöfn brezks
konungs eða drottningar. Lá-
varðarnir skyldu íklæðast rauð-
um, hermelínsbryddum skikkj-
um utanyfir einkennisbúningum
sínum -— og kórónur áttu þeir
að setja upp á vissu stigi í at-
höfninni. Hver tignarstétt með
sínu lagi.
Sama var um lávarðafrúrnar
— en þær áttu sæti gegnt lá-
j vörðunum. Svalirnar, þar sem
þær sátu, líktust blómabeði,
með hvítum liljum — sagði einn
höfundur, sem sæti fékk í
kirkjunni. Skaiiatsskikkjur
iþeirra voru umgjörð blómanna,
en daggarskrúðið voru dem-
antarnir, sem blikuðu á hinum
björtu hálsum, handleggjum og
Framh. á 7. síðu
FERÐIR frá Ferðaskrif-
stofu ríkisins um helgina:
1. Farið verður upp í Hval-
fjörð eftir hádegi á sunnu-
dag ef hvalur er inni. Á leið-
inni verður komið við í nýju
áburðarverksiniðjunni. — 2.
Farið verður á sunnud. eftir
hádegi, hringurinn: Krýsu-
vík, Hveragerði, Sogsfossar,
Þingvellir. — 3. Farið verð-
ur til Gullfoss og Geysis kl.
9 f.h. á sunnudag. — 4. MiS-
nætursólarflug. Flogið verð-
ur á sunnudagskvöld, ef veð-
ur leyfir, norður ýfir Heim-
skautsbaug. •—- 4. Handfæra-
veiðar. í ráði er að efna til
handfæraveiða á laugardag.
ÁRMANN OG K. R. hafa
sameiginlegt innanfélags-
mót í köstum á íþróttavell-
inum í dag kl. 3.
TVO spilaborð töpuðust
sl. fimmtudag af bíl, sem
ók'fr-á miðbæ vestur á Sel-
tjarnarries. Finnandi vin-
samlega geri rannsóknarlög-
reglunni aðvart. (593
ÓSKA eítir herbergi 1.
júlí. Tilboð er greini verð
sendist Vísi fyrir þriðjudag,
merkt: „Reglusamur— 243.“
STÚLKA óskar eftir litlu
herbergi í austurbænum og
helzt fæði á sama stað. —
Uppl. í síma 81241. (589
HERBERGI óskast! Sjó
maður óskar eftir herbergi,
helzt á hitaveitusvæðinu.
Tilboð, merkt: „Sjómaður—
242,“ sendist afgr. Vísis fyr-
ir mánudagskvöld. (588
HERBERGI til leigu fyrir
einhleypa stúlku. Upþl. á
Sólvallagötu.68. Ódýr barna-
kerra til sölu á sama stað.
(581
KONA óskar eftir litlu
herbergi. Fyrirframgreiðsla.
Tilboð, auðk.: „Strax—247,“
sendist afgr. blaðsins. (612
IBUÐIR til leigu. Tvennar
2ja—3ja herbergja íbúðir
til leigu utan til við bæinn.
Helzt eldra fólk. — Uppl. í
síma 81677.(600
HERBERGI óskast, helzt í
Kleppsholti. Tilboð sendist
blaðinu fyrir mánudags
246.“
(602
STÚLKA óskar eftir her-
bergi í austurbænum. Lítils-
háttar húshjálp getur komið
til greina. Uppl. í síma 7901.
(604
LAGHENTUR
ist afgr. blai
mánudagskvöld.
Uppl. í síma 80933.
wm/mmitm
11 ÁRA TELPA. vill gæ.ta barns eða vera til snúninga hjá góðu fólki. Uppl. Sncrra- hraut 40. (606 LAXVEIÐIMENN. Beztu ánamaðkana fáið þið á Tún- götu 43, uppi. — Sími 7122. (610
STÚLKA, vön konfektgerð, getur fengið góða atvinnu. Uppl. Túngötu 49, kl. 7—8 e. h. (598 ÁNAMAÐKAR til sölu á Freyjugötu 3 A. (605
ÁNAMAÐKAR til sölu. Sörlaskjól 56. (608
MATREIÐSLUKONA, lærð og dugleg, óskast á veitinga- hús. Mjög góð kjör. Uppl. í síma 1676. (551
GOTT barnarúm, með dýnu, til sölu á Grenimel 23, kjallara. Sími 6901. (613
SLÆ BLETTI ef óskað er. Sími 80849. (583 LAXVEÍÐIMENN. Bezta maðkinn fáið þið í Garða- stræti 19. — Pantið í síma 80494. (582
KAUPAKONA óskast — Uppl. Bergþórugötu 35. (590
STÚLKA, með 6 ára barn, óskar eftir vist eða ráðs- konustöðu, helzt í Reykja- vík. Uppl. í síma 7901. (594 GÓÐUR barnavagn á há- um hjólum til sölu í Höfða- túni 4. Á sama stað óskast barnakerra til kaups. Uppl. frá kl. 2. (584
MAREIÐSLUKONA, lærð og dugleg, óskast á véitinga- hús. Mjög góð gjör. Uppl. í síma 1676. (551
NÝKOMIÐ fallegt úrval af káputölum. Antikbúðin, Hafnarstræti 18. (585
RAFLAGNIR OG VIÐGERÐIR á raflögnum. Gerum við straujárn og önnur heimilistæki. Raftækjaverzlunin Ljós og Hiti h.f. Lauiiavegi 79. — Sírm 5184. TEKIÐ í umboðssölu gamlir og nýir, fallegir munir. Antikbúðin, Hafnar- stræti 18. (586
TIL SÖLU leirmunir, skrautvörur myndavélar, klukkur, úr o. m. fl. Antik- búðin, Hafnarstræti 18. (587
ÓDÝRIR barnakjólar til sölu á Egilsgötu 22. (552
ÁNAMAÐKAil fást á Ægisgötu 26. Sími 2137.(591
PLÖTUR á grafreiti. Út- vegum áletraðar plötur á grafreiti með stuttum fyrir- vara. Uppl. á Rauðarárstíg 26 (kjallara). — Sírni 6126
HAFNARFJÖRÐUR. — Barnavagn til sölu á Álfa- skeiði 49. Sími 9703. (596
KVENREIÐHJÓL, ekki mikið notað og ferða- grammófónn, til sölu á Laugateig 4 kl. 4—9 í dag. (Kjaiíara). (607
SAUMAVÉLA-viðgerðir. Fljót afgreiðsla. — Sylgja, Laufásvegi 19. — Sími 2656. Heimasími 82035.
VIÐGERÐIR á dívönum og allskonar stoppuðum húsgögnum. Húsgagnaverk- smiðjan, Bergþórugötu 11. Sími 81830. (224 GÓÐUR barnavagn til sölu á Vegamótastíg 3. (609 DÍVANAR, allar stærðir. fyrirliggjandi. Husgagna- verksmiðjan, Bergþórugötu 11. Sími 81830. (394
CHEMIA-Desinfector er vellyktandi, sótthreinsandi vökvi, nauðsynlegur á hverju heimili til sótthreins- unar á raunum, rúmfötum, húsgögnum, símaáhöldum, andrúmslofti o. fl. Hefir unnið sér miklar vinsældir hjá öllum sem hafa notað hann. (446
GÓÐUR, enskur barna- vagn til sölu á Leifsgötu 26, efstu hæð. (611
BARNAKERRA óskast, með eða án poka. Uppl. í i síma 2705 eftir kl. 2. (603
Copr. RtC« nuttou»h».lntr-T«r. Be*.U B P»t Ofl
plstr. by ]únited yeature Syndícate, Inc.
(?. /Surrcugki.
/3M
Tarzan skynjaði þegar hættuna
sem yfir honum vofði og opnaði
augun. Skipti engum togum, að hann
■Vatt sér fram úr rúminu þreif til
óþokkans og keyrði hendur .hans
aftur á bak. Áráearmaðurinn varaði
sig ekki á viðbragðsflýti Taizans og
var nú sem leiksoppur í höndum
Jians.- Ujn lqið og Tarzan sveiflaði
manninum í kring um sig og slceliti
honum í gólfið vöknuðu .þeir Volthar
og Gemnon, og stukku báðir fram úr
rúmum sínum. „Náið í ljós,“ hróp-
aði Volthar, „Tarzan hefur gripið
árásarmann." ..