Vísir - 07.08.1953, Side 7

Vísir - 07.08.1953, Side 7
Föstudaginn 7. ágúst 1953. TfSIB £> WflftWWWWJWfllWVlWWWVVWtf'iVVVtftft.WfUWA Hne^kMi 7 eftir EMMJLE ZOEA VVUWVVWVWUWWVUWUWWWWVnfuVVWMVVWUVVVti Hann var ekkill og bjó með systur sinni, tuttugu og þriggja ára gamalli stúlku. Daginn sem de Cazalis kom hneykslissögunum á stað kallaði Marteliy Maríus inn á skrifstofuna sína. — Jæja, vinur minn, sagði hann. — Þetta er raunalegur at- burður. Bróðir yðar er glataður maður. Við erum ekki svo máttugir að við getum bjargað honum undan afleiðingunum af flónsku hans. Martelly var í frjálslynda flokknum, og hafði þótt mikið að honum kveða þar, vegna þess að hann hafði sýnt að hann hafði skapríki sem var sjaldgæft, jafnvel á suðrænan mælikvarða. Hann hafði lent í árekstri við de Cazaiis svo að hann þekkti manninn. En hann var vammlaus heiðursmaður og auðugur, svo að ekki var hægt að gera honum bölvun. Frjálslyndi hans var göfugt. Hann sá sóma sinn í því að neyta aldrei aflsmunar. Hann réð Maríusi til að stilla sig og bíða átekta. En iofaði að hjálpa honum eftir megni þegar í harðbakka slæi. Maríus, sem brann af óþolinmæði, var að hugsa um að fá sig iausan frá vinnunni um tíma. En einn morguninn kom Fine hiaupandi til hans, útgrátin. — Þeir hafa tekið herra Pihlippe fastan! kveinaði hún. — Þeir fundu hann með ungu stúlkunni á búgarði í Trois-bon Dieus, mílufjórðung frá Aix. Maríus ætlaði að hlaupa burt til að fá staðefestingu á þessari írétt, en þá brosti Fine gegnum tárin og sagði: — Að minnsta kosti er unga stúlkan ekki lengur með honum! V. VEGUR SYNDARINNAR. Blanche og Philippe fóru úr húsi Ayasses garðyrkjumanns eftir að dimmt var orðið, klukkan hálfátta. Þau höfðu séð lög- reglumenn á þjóðveginum um daginn. Þeim var sagt að þau mættu búast við að verða handtekin um kvöldið, og af hræðslu við það yfirgáfu þau þennan fyrsta griðastað sinn. Philippe fór í bóndaúlpu, og Blanche fekk léðan sirskjól hjá konu bóndans. Þetta var rauðrósóttur kjóll og hún fekk 'Sér ljósrauða svuntu. Hún setti á sig gulköflótt slifsi og barðastóran stráhatt ofan á húfuna. Victör, fimmtán ára drengur garðyrkjumannsins, fylgdi þeim af stað áleiðis til Aix. Kvöldið var hlýtt, aðeins kaldur andvari öðru hverju. Heitan og sterkan ilm lagði upp frá jörðinni og hann mettaði svala goluna, sem lagði frá Miðjarðarhafinu. í vestri var kvöidroðinn enn yfir ásunum. En annars staðar varð dimmblár himininn æ fölari og stjömurnar komu fram smátt og smátt eins og blakt- andi ljós frá fjarlægum bæ. Strokuhjúin gengu hratt, álút og án þess að mæia orð. Þau vildu komast sem fyrst upp í fjallaauðnina. Það kom fyrir rneðan þau voru enn í útjaðri Marseilles að þau mættu vegfarendum, sem störðu á þau með törtryggni. Svo breiddist opið landið út framundan þeim og þau sáu ekki annað en alvarlega grafkyrra smala mitt í fjárhópunum sínum. Og þau héldu flóttanum áfram þessa molluheitu og þögulu nótt. Vindurinn andvarpaði í trjánum og steinvölur ultu undir fótunum á þeim og marraði í. Sofandi umhverfið titraði og teygði úr sér í ömurlegu, einhæfu myrkrinu. Blanche þrýsti sér kvíðin upp að Philippe og hafði sig alla við ti3 að dragast flcki aftur úr. Stundum andvarpaði hún þungt við tilhugsunina um friðsamlegu næturnar í barnæsku sinni. Svo tók fjallið við og djúpu gjárnar sem þau urðu að fara yfir. Kringum Marseilles eru vegirnir sléttir og þægilégir. En þegar dregur inn í landið verða fyrir þessir íjallgarðar, sem hluta miðbik Provences sundur í þrönga og. hrjóstruga dali. Órækiaðar heiðar og naktir fjallakambar þar sem ékkert vex nema timían og lavendel á stangli, blasir við hinum flýjandi. Vegurinn liðaðist í kröppum og bröttum beygjum yfir gil og upp brekkur. Víðá höfðu stór björg hrunið niður á vegirrn. Undjr dimmum hiíiininum var landið líkast grjóthaíi, sem hefir stirðnað um aldur; og ævi í stórviðri. Viétor, 'seni fór á undan, blístfaði lágt þjóðvísu írá Provence og hoppaði stein af steini, léttur eins og geit. Hann hafoi farið um þessa grjóteyðimörk síðan hann var barn og þekkti hverja nybbu. Blanche og Philippe þvældust á eftir honum með mestu erfiðismunum. Ungi maðurinn bar konuna sína að hálfu leyti og hún var orðin fótsár á grjótinu. Hún kvartaði ekki og þegar Philippe horfði snyrjcndi á hana brosti hún bara angurblítt til hans. '•au voru nýlega komin fram hjá Septemes þegar uppgefin unga stúlkan datt. Tunglið var komið á loft og í skini þess sá Pihlippe, að andlit hennar var mjög folt og laugað tárum. Hann laut niður að henni kvíðandi. — Þú grætur, sagði hann. — Þér ííður illa, vesglings ekku vinurinn minn. Æ, eg er hrakmenni aS baka þér þetta. — Þetta máttu ekki segja, Philippe, svaraði hún. —• Eg græi af því að mér líður svo illa. Eg get varla borið fæturna, skilurðu. Við hefðmn heldur. átt að krjúpa á kné fyrir frænda mínum og biðja hann vægðar. Hún tók á öllum þeim kröftum sem hún átti og stóð upp og þau stauluðust áfram yfir þessar hræðilegu torfærur. Þetta var enginn gamanflótti elskandi oflátunga. Það var ömurlegur flótti, fullur kvíða og þjáninga, flótti tveggja skjálfandi og þögulla syndara. Loksins voru þau komin framhjá Gardanne og nú stauluðust þau áfram vondan veg nærri því fimm tíma. Þau afréðu að beygja niður á aðalveginn til Aix, og þar var öllu greiðfærara, þó að moldrykið hálfblindaði þau. Þau voru nú komin upp á Arc-ásinn og þar skildi Victor við þau. Blance hafði gengið þrjár mílur á tæpum sex tímum. Hún settist á steinbekk við bæjarhliðið og sagðist ekki komast lengra. Philippe, sem var hræddur um að þau yrðu tekin, fór til að reyna að ná í vagn. Hann hitti konu með kerru, sem ætlaði til Lambesc, og hún sansaðist á að Blance og Philippe fengi að sitja á kerrunni. Blanche var svo uppgefin að hún sofnaði strax, og hún vakn- aði ekki fyrr en þau komu að bæjarhliðinu í Lambese. Hún hafði róazt við svefninn. Fannst hún vera orðin óþreytt og fær í allt. Philippe borgaði konunni fyrir aksturinn. Nú fór að birta af degi, hressandi björt afturelding tendraði nýja von hjá þeim. Allur ömurleiki næturinnar var, horfinn.. Flóttahjónin höfðu gleymt fjöllunum í Septemes núna, ér þau gengu hlið við hlið í daggyotu grasinu, ölvuð af ást og æskuþrótti. Þau hittu ekki de Girouse heima, en hann höfðu þau ætlað að biðja um gistingu. í staðinn fóru þau á greiðasölustað og þar lifðu þau loksins dag í kyrrð og friði. Gestgjafinn sem hélt að þau væri systkini ætlaði að láta búa upp tvö herbergi handa þeim. Blanche brosti. Og nú hafði hún djörfung til að segja: — Eitt herbergi nægir. Þetta er maðurinn minn. Daginn eftir fór Philippe heim til de Girouse og nú var hann kominn heim. Hann sagði honum alla söguna og bað hann ráða. — Hvað er að heyra þetta. Þetta er mjög alvarlegt mál, sagði gamli aðalsmaðurinn. — Þér hafið hagað yður eins og asni. Hefði þetta gerst fyrir hundrað árum þá hefði de Cazalis látið hengja yður fyrir að dirfast að snerta við frænku hans. í dag getur hann ekki meira en látið varpa yður í fangelsi. Og þér getið bölvað yður upp á að hann lætur það ekki undir höfuð leggjast. — Hvað á eg að gera? -— Hvað þér eigið að gera? Sendið stúlkuna heim til frænda hennar og reynið að forða yður yfir landamærin hið fyrsta. — Þér skiljið að eg mundi aldrei fást til að gera það. — Þá verðið þér að bíða rólegur eftir að þér verðið handtek- inn. Annað ráð get eg ekki gefið yður. De Girouse talaði vinsamlega en í fullri hreinskilni og beztu meiningu. Philippe kom mjög óvart að fá svona kaldar móttökur, en þegar hann bjóst til að fara kallaði de Girouse til hans, tók í hönd honum og sagði, ekki beiskjulaust: — Það er skylda mín að sjá um að þér verðið tekinn fastur. Eg telst til aðalsstéttarinnar, og þér hafið móðgað hana. En hlustið þér nú á mig: Fyrir handan Lamesc á eg lítið hús, sem BR9DGE ♦ G, 10, 7, 4 ¥ 5 ♦ K, 9, 6, 5 ♦ Á, D, 4, 3 N. Útspil: A K. ♦ 3„ S. ♦ Á, 6 ¥ Á, 8, 7, 6 ♦ D, 10, 8, 7, 4 ♦ K, 7 Austur byrjar á 1 ¥. Suður segir 2 ♦ og Vestur 2 ♦. N. 4 ♦. Suður 5 ♦ og Norður þá 6 ♦, sem Austur tvöfaldar. Vestur lætur út A K. og Aust- ur lætur ♦ 3. Hvernig væri réttast hjá Suður að spila spil- ið? Svar í laugardagsblaðinu. Símanúmer vor eru: 82550 (5 línur). Beint samband eftir skrif- stofutíma: 82551 skrifstofan 82552 bifreiðaverkstæðið 82553 verzlunin 82554 húsvörður 82555 forstjóri RÆSIR H.f. Á kvöldvöknnni. Banki einn í Bandaríkjunum er farinn að notast við sjón- varp til þess að auðvelda starf- semi sína. Þegar viðskiptamað- ur afhendir úttektareyðublað, skýrir gjaldkerinn frá reikn- ingsnúmeri hans í síma. Eftir andartak birtist á sýningar- tjaldi hjá honum nafn reikn- ingseigandans, inneign hans og undirskrift. • Maður nokkur spurði franska skopleikarann Fernandel, hve gamall hann væri, og fór loks „í taugarnar“ á honum, svo að leikarinn svaraði: „Eg skal segja yður það. Fyr- ir nákvæmlega 50 árum datt móðir mín og fótbrotnaði, en faðir minn týndi gullúrinu sínu og húsið þeirra brann. Þetta var fagran dag í apríl. Eg veit ekki, hvernig þetta gerðist, en fimm árum síðar fæddist ég.“ © I dýragarði Lundunaborgar er hlébarði, 'ér heitir Prins. Er hann svo gæfur, áð hann etur mat, sem börn rétta honum inn um grindurnar á gáfíji. • . Maður nokkur kom inn til fuglasala til þess,: að;, kaupa páfagauk. Var honum sýndur mjög fallegur fugl, og það lát- ið fylgja með, að þegar fuglinn stæði á vinstra fæti, færi hann með Ijóð eftir góðskáld eitt, en stæði hann á hægri fæti, blístraði hann lag. „Og hvað gerir hann, þegar hann stendur á báðum fótum?“ spurði maðurinn. „Þá held ég kjafti,“ svaraði páfagaukurinn. úm áimi Grasleysið. Frá Sauðárkróki var það ný- lega sagt, að þar hefðu í sumar fengizt einir 6 hestburðir af töðu af túni, sem í venjulegu árfeði fást 60 hestar af, og 10 hestburðir af öðru, sem venju- lega íást 120 hestb. áf. Veðrið. Menn búast við breytingu á tíðarfarinu nú um tunglkom- uan, rigningum og óþurrkatíð. í morgun var aftur orðið með kaldasta móti. Mestur hiti á landinu hér í bænum, 11 st., 9.5 á ísafirði, 11 á Akureyri, 6.5 á Grímsstöðum, 7.2 á Seyðisfirði og 8.7 í Vestmannaeyjum. . ViHemoos (sena. nú heitir Selfoss)' er nú væntanlegur hingað á hverri stundu. SKIPA1ITG6RÐ RIKTSINS Vetsmannaeyjaferð ’ r/Esja" fer héðan föstudaginn 14. þ.m. kl. 10 að kvöldi með fólk í skemmtiferð til Vestmannaeyja, ðg liggur skipið þar við bryggju fram á sunnnudagslcvöld, en verður komið aftur til Reykja- víkur kl. 6—7 á mánudags- morgun. Geta farþegamir búið um borð í skipinu í Eyjum og féngið þar fæði, enda ganga þeir fyrir, sem kaupa far á þanrt hátt. Mun útgerðin á ýmsan hátt greiða fyrir því, að fólk geti notið dvalarinnar í Eyjum og vísast til þess, að fyrri sams, konar ferðir hafa orðið sér- staklega vinsælar. NorðurlandaferS r RLs. Helda \ I Hugmynd var að láta m.s. Heklu fara til Spánar eða Norð- urlanda um næstu mánaða- mót, en þar sem komið hefur í ljós, að meiri áhugi er íyrir Norðurlandaferð, hefur hún verið afráðin. Mun skipið fara héðan sunnudaginn 23. þ.m. og koma aftur að kvöldi 10. sept- ember. Leið skipsins verður um Bergen, Harðangursfjörð,. Osló, Gautaborg, Kaupmanna- höfn og Þórshöfn, og verð- ; ur við:;i.öðu á hverjum stað | hagað eftir því, sem ætla má, að iiestir farþegar óski. Nánari Upplýsingar um ferðatilhögun og fgr.gjöld verða veittar í: I sfcrifstöfil 'jýorafj j og. 'Ferðaskfif- j stofu ríkisins, sem sjá mun unt | afgreiðslu farmiða.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.