Vísir - 09.09.1953, Blaðsíða 8
Þeir sem gerast kaupendur VÍSIS eftir
10. hvers mánaðar fá hiaðið ókeypis til
mánaðamóta. Sími 1660.
HISIR
VfSIS er ódýrasta blaðið og }>ó þaS fjöl-
breyttasta. — Hringið í síma 1660 og gerist
áskrifendur.
Miðvikudaginn 9. september 1953.
Frá adalfundi Fél. ísl. crganieikara:
Nýmæli í íslenzku kirkju-
tónlistarlífi,- „Musica
Sacra“
Ui*valsoi*gaiileik.arar erlemlir koma
hingað til lilíómleikalialds.
Félag íslenzkra organleikara
hyggst beita sér fyrir nýlundu
í tónlistarlífi hérlendis, með
flutningi nýs tónlistarflokks í
vetur, sem nefndur liefur verið
„Musica Sacra“.
Félagið hélt aðalfund sinn í
gær, og var stjórn þess endur-
kjörin, en hana skipa: Dr. Páll
Isólfsson, formaður," Páll Kr.
Pálsson, ritari, Páll Halldórs-
son, gjaldkeri, en í varastjórn
eru þeir dr. Victor Urbancic,
Sigurður ísólfsson og Jón ís-
leifsson.
Hinn nýi tónlistarflokkur er
með þeim hætti, að fluttir verðá
á vegum félagsins 8—10 kirkju-
tónleikar í vetur í Reykjavík,
Hafnarfirði, Akureyri, ísafirði
og líklegast víðar. Verður þeim
að líkindum útvarpað, annað
hvort beint eða teknir á segul-
band og útvarpað síðar. Standa
yfir samningar milli félagsins
og Ríkisútvarpsins um það inál.
Verður flutt íslenzk og erlend
„Musica Sacra“, eða kirkjutón-
list. Fyrstu hljómleikarnir í
þessum flokki verða um næstu
mánaðamót, en þá leikur dr.
Páll ísólfsson í Dómkirkjunni.
Við suma þessara hljómleika
munu kirkjukórar koma fram,
einleikarar og söngvarar, en við
leitni þessi miðar að því að efla
kirkjutónlist í landinu.
Frægir tónlistar-
menn koma.
Þá ætlar félagið að beita sér
fyrir því, að hingað komi 1—2
úrvalsorganleikarar erlendir á
ári hverju til hljómleikahalds,
og kemur hinn fyrsti þeirra
hingað í vor, að nokkru á veg-
um félagsins. Er það E. Power
Biggs, frægasti organleikari
Bandaríkjanna, sem þá verður
á hljómleikaferð um Evrópu og
kemur hingað í þeirri för. Hann
er búsettur í Boston og leikur
þar í útvarpið á hverjum sunnu
degi.
Félagið hyggst og gefa út
kirkjutónlistarmanna, og er
tímarit, sem verður málgagn
fyrsta hefti þess væntanlegt um
nýjár.
Samþykkt var tillaga á fund-
inum. sem miðar að því að bæta
kjör organleikara, og hefur hún
verið send sóknarnefridum.
■
Astralía vill
ráða land-
grunninú.
Ástralska sambandsstjórn-
in hefir ákveðið að taka í
sínar hendur full yfirráð yfir
ástralska landgrunninu og
hefir það þær afleiðingar, að
iandhelgin færist út, sum-
staðar mjög langt.
Af þessu leiðir, að erlend
fiskiskip geta ekki stundað
veiðar eins nálægt Ástralíu-
ströndum og áður, en það
munu vera aðallega japönsk
fiskiskip, sem Ástralíumenn
viija bægja frá. Er þó tekið
fram, að afleiðingin af þessu
verði ekki sú, að Japanar
verðá með öllu útilokaðir frá
að fiska við strendur Astra-
líu.
Frjálsíþrdtt&mát
Arnessýslu.
Frjálsíþróttaniót Árnessýslu
var háð að Selfossi um helgina.
Fimm ungmennafélög sýsl-
unnar tóku þátt í mótinu og
munu þátttakendur hafa verið
20—30 talsins. Veður var óhag'-
stætt til keppni, skúraveður og
kalsi.
Bezti árangur í einstökum
greinum var sem hér segir:
Karlagreinar:
100 m. hlaup: Einar Frímanns
son Self. 11.6 sek.
400 m. hlaup: Rósant Hjör-
leifsson Ölf. 57.6 sek.
1500 m. hlaup: Hafst. Sveins-
son Sef. 4:42.2 mín.
5000 m. hlaup: Hafst. Sveins-
son Self. 18:13.1 mín.
Kúluvarp: Sigfús Sigurðsson
Self. 12.79 m.
Kringlukast: Ingólfur Bárð-
arson Self. 36.38 m.
Langstökk: Einar Frímanns-
son Self. 6.39 m.
Hástökk: Ingólfur Bárðarson
Self. 1.70 m.
Stangarsf.: Einar Frímanns-
son Self. 3.20 m.
Kvennagreinar:
80 m. hlaup: Margrét Lúð-
víksdóttir Self. 11.6 sek.
Hástökk: Hólmfríður Gests-
dóttir Vaka 1.30 m.
Leiðatigur vfsindatnanna
fer í dag mn á hálendið.
Aðaltilgangurinn þyngdar- og segui-
mælingar og jarðhitarannsóknir.
í dag lagði héðan úr bænnmi
leiðangur, innlendra og erlendra
visindamanna upp á miðhálendi j
landsins og er aðaltilgangurinn
að annast þyngdar- og segul-
mælingar á hálendinu og enn
fremur jarðhitarannsóknir í
Vonarskarði.
Það eru þeir prófessor Trausti
Einarsson og Þorbjörn Sigur-
geirsson formaður Rannsókna-
ráðs ríkisins, sem standa að þess
um leiðangri, en í för með þeim
verða tveir franskir menn, sem
eru að athuga skilyrði fyrir
franskan vísindaleiðangur, sem
hingað er væntanlegur að ári.
Enn fremur verður Baldur Lín-
dal með í ferðinni til jarðhita-
rannsókna.
Prófessor Trausti Einarsson
mun annast þyngdarmælingar á
miðhálendinu, en þær eru einn
liður í stórri áætlun um þyngd-
armælingar, sem dr. Trausti
hefur unnið að þrjú undanfarin
sumur víðsvegar um landið. Yf-
irlitsmælingunum er nú senn að |
Ijúka, og telur dr. Trausti þetta 1
muni verða síðustu langferðina!
í þessu skyni.
Adenauer og helztu stuðn-
ingsmenn hittast á morgun.
jBrezk. hlöð óttasá ummæli Iiaiis.
Einkaskeyti frá AP. —
London í morgun.
Helztu menn Kristilega demo-
krataflokksins í Vestur-Þýzka-
landi koma saman á fund á
morgun. Búizt er við, að Aden-
auer leggi til, að sömu flokkar
óg áður taki þátt í nýrri sam-
steypustjórn ,er mynduð verður.
Flokkurinn hefur að vísu bol-
magn til þess að mynda stjórn
upp á eigin spýtur, en Aden-
auer hefur þegar kveðið upp úr
með það, að hann telji hyggi-
legast, að samstarfið milli stjórn
arflokkanna haldist.
í heimsblöðunum var enn í
morgun rætt 'um úrslit kosn-
inganna og sum blöð ræða sér-
staklega hvað Adenauer hafi átt
við, er hann talaði um að „leysa
úr viðjum 18 milljónir Þjóð-
verja í Austur-Þýzkalandi“, og
eru þeirra meðal Daily Herald
í London og Yorkshire Post. —
Daily Herald spyr um, við hvað
Adenauer hafi átt með þessum
orðum^ og bendir á, að hvað
sem fyrir honum hafi vakað, er
hann lét sér þau um munn fara,
geti slíkt tal spillt fyrir frið-
samlegu samkomulagi um deilu
málin. Yorkshire Post telur
ekki líklegt, að við forystu Ad-
enauers verði breytt um stefnu,
og reynt að knýja fram lausn
mála með valdi.
„Blóð og járn“.
En það er uggur í Frökkum,
sem óttast, að aftur rísi upp
voldugt Þýzkaland, og sama
uggs verður vart í Daily Her-
ald, sem minnir á, að Aden-
auer hafi ávarpað sömu þjóð og
Hitler og fyrirrennarar hans,
sem höfðu að einkunnarorðum
„blóð og járn“. — í Moskvuút-
varpinu hefur verið ráðist á Ad-
enauer og hann kallaður stríðs-
æsingamaður. — En yfirleitt er
litið svo á, í vestrænum lönd-
um, að Adenauer sé friðatins
og samvinnunnar maður, er
muni beita öllum áhrifum sín-
um til aukins samstarfs við lýð-
ræðisþjóðirnar.
Staurinn brotnaði, billinn laskað-
ist, konan meiddist.
VL-bílnum hafði ekki verið stolið.
Laust fyrir hádegið í dag
varð slys á Reykjavíkurvegi í
Skerjafirði, skammt fyrir sunn-
an Brú.
Kona, sem var í jeppabíl, ók
á ljósastaur við veginn með
þeim afleiðingum, að staurinn
brotnaði, bíllinn skemmdist mik
ið og konan mun hafa skorizt
eitthvað á höfði
Þegar lögreglan kom á stað-
inn með sjúkrabíl var konan
farin á brott í bíl, sem borið
hafði að, og tekið konuna með
sér. Ekki er vitað með vissu um
meiðsli hennar, en ekki talið að
þau séu alvarleg.
Mannlaus bíll á feríS.
Það óhapp vildi til á Ný-
lendugötunni í gærdag að
mannlaus bíll sem stóð þar í
nokkrum halla rann af stað,
skömmu eftir að bifreiðarstjór-
inn hafði farið út úr henn og
lenti á tveim öðrum bílum sem
stóðu þar á götunni.
Töluverðar skemmdif urðu
á öðrum bilnum, en litlar á
hinum eða engar.
Forðað slysi.
I gærkveldi var bil ékið út
af Suðurlandsbraut rétt við
gatnamót Laugarnesvega..-. A-
stæðan til þessa var sú að
strákur sem var á reiðhjóli fór
þvert yfir veginn rétt fyrir
framan bílstjórann og til þess
að forðast slys, varð hann að
aka út af veginum.
Drengur verður
fyrir reiðlijóli.
í gær hljóp drengsnáði út af
gangstétt í Pósthússtræti og
varð fyrir hjólríðandi manni.
Drengurinn meiddist lítilshátt-
ar.
Hafði aldrei verið stolið.
Seint í gærkveldi barst lö’g-
regluvarðstofunni í Reykjavík
tiikynning frá Keflavíkurflug-
velli varðandi bifreiðina VL
368, sem talið var að hefði verið
stolið af flugvellinum í fyrri-
nótt og búið var að lýsa eftir.
Nú kom það upp úr dúrnum að
bilnum hafði alls ekki verið
stolið og allt það veður sem út
af honum hafði verið gert, á
misskilningi byggt.
Munaði mjóu.
í gær lenti sendiferðabifreið
með framhjólin. fram af einni
verbúðabryggjunni og munaði
minnstu að hún lenti í sjónum.
Ástæðan fyrir þessu var sú að
bryggjan var öll ötuð í grút og
glerhál. Þegar bifreiðarstjórinn
ætlaði að hemla, dugðu heml-
arnir ekkert og bíllinn rann
viðstöðulaust áffam unz hún
staðnæmdist eftir að framhjól-
in voru komin út í sjó. Lögregl-
an gerði ráðstafanir til þess að
slík atvik endurtækju sig ekki.
Þorbjörn Sigurgeirsson vinn-
ur einnig að meiri háttar áætlun
um segulmælingar, sem hann
er þegar byrjaður á, og er þetta
hluti úr þeirri áætlun.
Baldur Líndal efnaverkfræð-
ingur mun mæla og rannsaka
jarðhita í Vonarskarði og eru
þær mælingar einn liður í alls-
herjar yfirlitsrannsóknum á
jarðhita í landinu.
Frakkarnir tveir, sem taka
þátt í leiðangrinum, hafa dval-
ið hér um vikuskeið og er ferð
þeirra fyrst og fremst heitið til
Gæsavatna við sunnanverðan
Vatnajökul. Hafa þeir hugsað
sér umhverfi Gæsavatna sem
dvalarstað fyrir franskan vís-
indaleiðangur, sem væntanleg-
ur er til íslands á næsta vori éða
sumri. Munu þátttakendur leið
angursins einkum verða jarð-
fræðingar og jöklarannsókna-
menn og ætla þeir að rannsaka
og mæla norðvesturhluta Vatna
jökuls. Frakkarnir tveir, sem
eru hér nú, munu í ferð þessari
einnig kynna sér hvaða lelð
muni heppilegust til Gæsavatna
fyrir leiðangurinn að ári.
Auk framangreindra vísinda
manna munu einhverjir fleiri
taka þátt í leiðangrinum. Áætl-
að er, að hann standi yfir 7—8
daga og verður farið í bíl Guð-
mundar Jóriassonar.
Leiðangurinn fer í dag norður
á Kjöl og gistir að Hveravöll-
um. Þaðan verður haldið norð-
ur Auðkúluheiði og síðan sveit-
ir til Búðardals. Frá Mýri verð-
ur ekið í Jökuldal við Tungna-
fellsjökul og þaðan í Gæsavötn,
Köldukvíslarbotna, Illugaver og
síðan fer það eftir vatnavöxt-
um, hvort haldið verður suður
af yfir Tungná, eða haldið norð
ur yfir aftur og um sveitir til
Reykjavíkur.
Heræfíngar við
Orikkland.
Ileræfingar á vegnm NATO
hófust við Grikklandsstrendur
í g*r.
Lið var sett þar á land og
reynt að hindra landgönguna.
— Flugvélar frá brezku flug-
i vélaskipi taka þátt í æfingun-
um.
Kommúnistar hand-
teknir í íran,
London (AP). — í Telieram
hafa yfir 500 Tudeh-menn
(kommúnistar) verið teknir
höndum, þeirra meðal nokkrir
forsprakkar þeirra.
Jafnframt er tilkynnt, að
handteknir hefðu verið fjölda
margir betlarar í höfuðborg-
inni, en þar, eins og víðar í
Asíulöndum hefur grúi manna
ofan af fyrir sér með betli. —
Zahedi hefur skipað svo fyrir,
að betlararnir skuli settir í bygg
ingavinnu.
Nýjar Comet-vél-
ar smíðaðar.
London (AP). — De Hvail-
land-félagið hefur fullgert nýja
og endurbætta gerð Comet-
véla.
Þessi nýjá gerð getur flogið
með meiri flutning —eða fólk
— lengri leið með meiri hraða
en þær Comet-vélar, sem nú
eru í gangi. Fær BOAC-félagið
12 slíkra flugvélar á næstunni.
Þær flytja 44 farþega 3500 km.
leið' í lotu.