Vísir


Vísir - 17.09.1953, Qupperneq 7

Vísir - 17.09.1953, Qupperneq 7
Þeir Reykvíkingar og aðrir sem vilja láta fjármörk sín koma í Markaskrá Árnessýslu, sem á að fara að prenla, komi þeim til Jóhanns Kristjánssonar, Mávahlíð 42 fyrir októberlok. Böðvar Magnússon TlSlB breytti mörgum mönnum, og eftir að barnið fæddist, vildi eg safna peningum handa því.“ „Hvar eru peningar yðar geymdir?“ „Þeir eru í banka hér í borginni. Umboðsmaðurinn minn fær tíu af hundraði, eins og venja er, og síðan er afgangurinn lagður á bók, sem er á dulnefni mínu. Eg kalla mig Jessiku Blake.“ .• |.s ; (%| „Og setjum svo, að eiginmaður yðar finni kvittanir bankans." „Þær geymir umboðsmaðurinn. méð ölhmi skjöium. Pening- arnir eru geymdir í Gotham-bankanum.“ Forsythe hallaði sér aftur á bak í stólnum og hugsaði málið. Það er sennilega mikil fúlga, hugsaði hann, sem henni hefir tekizt að safna á þessum sjö árum. Svo varð honum ósjálfrátt litið á lögbókina fyrir framan sig. „Hvað um skatta?“ spurði hann. „Eg veit það ekki,“ svaraði hún með hægð. „Eg geri ráð fyrir, að umboðsmaðurinn minn greiði þá.“ „Og ef hann gerir það ekki, þá fer illa fyrir honum,“ mælti Forsjdhe aðvarandi. Og er honum var engu svarað, hélt hann áfram: „Þér segið, að þér viljið reyna að koma þessu svo fyrir, að peningarnir renni til sonar yðar?“ „Já, en það verður að skipa honum fjárhaldsmann, því að hann er aðeins sex ára. Eg hefi sent hann til frænku sinnar. Það virtist hyggilegasta fyrirkomulagið.“ Ástandið hlýtur að vera harla bógborið, hugsaði Forsythe, úr því að hún hefir gripið til þessa ráðs. Eiginmaður hennar hlaut að vei'a erkifantur. Hvemig færi, ef hann kæmist að öllu saman, og afréði að ráða henni bana? Það mundi ekki verða miklum vandkvæðum bundið. Hann þyrfti ekki annað en að ýta . við henni, svo að hún dytti fyrir bifreið eða járnbrautarlest. En þetta er hlægileg fjarstæða, hugsaði Forsythe svo. Eg er að búa.til úlfalda úr mýflugunni. Svo að hann sagði henni, að ef hún vildi taka peningana af nafni Jessiku Blake, þá væri það auðvelt fyrir hana og umboðsmanninn, hvenær sem hún vildi. Sjálfur gæti hann tekið það að sér, ef hún óskaði þess. Hún þyrtfi ekki annað en að færa sönnur á, hver hún væri i raun og veru. „Vel á minnzt,“ sagði hann svo. „Þér hafði ekki sagt mér, hvað þér heitið raunverulega. Það gæti átt sér stað, að eg þyrfti að ná sambandi við yður í síma.“ Hún varð aftur óttaslegin á svip. „Nei, það megið þér ekki gera,“ sagði hún. „Eg skal hringja til yðar. En eg vil einungis, að erfðaskráin verði fábrotin og auðskiljanleg. Eins lítið og hægt er til eiginmanns míns, þótt eg' geri ráð fyrir, að hann verði að fá einn þriðja. Hitt á allt að renna til Billys litla, son- ar míns.“ „Og hvað heitir hann fullu nafni?“ „William Blake Collier. Eg held, að þér hafið þekkt eigin- mann minn í Frakklandi. Hann heitir Wilfred Collier, ef þér munið eftir honum.“ Forsythe fannst kalt vatn renna sér milli skinns og hörunds. Fred Collier hafði verið liðþjálfi í hersveit hans, er hann gekk í liana sem óreyndur liðsforingi. Og Fred hafði verið liðsforingi að því, sem sagt var frá í sögum, harður, samvizkulaus fantur, er trúandi var til að fremja morð, er hann var undir áhrifum áfengis. Hann langaði allt í einu til að ráða stúlkunni frá að fara aftur heim til sín. „Já, eg' man eftir honum, frú Collier. Hann lætur ekki að sér hæða. En hvers vegna farið þér ekki til skyldmenna yðar í Connecticut, ef þér eruð áhuggjufull?" Hún hlustaði ekki á hann. Úti á ganginum heyrðist fótatak manns. Hún bærði ekki á sér, en var orðin náföl. og hún kreppti fingurna um tösku sína, svo að hnúarnir hvítuðu. Andartaki síðar heyrði hann ruddalega rödd í almennu skrifstofunni. ,Eg þarf að tala við Forsythe,“ sagði maðurinn hárri röddu. „Og ef koná mín er hjá honum, þá þarf eg líka að tala við hana.“ „Kona yðar er ekki h’ér,“ svaraði ungfrú Potter snöggt. „Hér eru yfirleitt engar konur nema við tvær. Og Forsythe er ekki við.“ „Mig' grunar, að þér séuð að Ijúga, heillin.“ " „Sama er mér um það,“ svaraði ungfrú Potter fyrirlitlega. „Farið og leitið konu yðar annars staðar. Þetta er lögffæðiskrif- stofa, og' langl yður til að lenda í vandræðum, þá er fjöldi ungra lögfræðinga hér í byggingunni, er mundu vera fúsir til þess að veita yður hirtingu.“ „Eg hefi fengizt við hvolpa áður. Eg læt ekki hræða mig með slíku.“ t, En þrátt fyrir þetta heyrðist rétt á eftir, að ytri dyrum skrif- stoíunnar var skellt aftuv, og Collier gekk öðru sinni eftir gang- inum. Þegar hamr kpm að hurðinni, sem á var letrað „Einka- skrifstofa“, tók hann um snerilinn, og er hurðin reyndist lokuð, og úr herberginu heyrðist ekkert hljóð, gekk hann leiðar sinnar. Hvorki unga konan né Forsythe mæltu orð af vörum, fyrr en þau heyrðu- lyftuna nema staðar við hæðina, og mann fara inn í hana. „Þá er þetta víst búið,“ mælti Forsythe þá. „Mér íellur það þó ekki, að þér skuluð þurfa að fara heim til yðar aftur, frú Collier.“ „Mér er alveg óhætt," svaraði hún. „Eg held að hann viti ekkert með vissu enn, og þangað til hann —-------Eg vona að- eins, að þér verðið ekki fyrir óþægindum mín vegna. Má eg vera hér nokkrar mínútur í viðbót, ef eg geri ekki ónæði?“ „Verið eins lengi og þér viljið,“ svaraði hann. „Reynið að jafna yður. Viljið þér fá annað glas af koníaki?“ „Eg þarf ekki meira, þakka fyrir.“ „Mér flaug annars dálítið í hug, þegar þér nefnduð nafn son- ar yðar,“ mælti Forsythe nú. „Þegar eg var í skóla, kynntist Hrærivél, sem öll smærri heimili kjósa. árs ábyrgð Verð kr. 1580,00 með hakkavél o. fl. Ludvig Storr & Co. 1 Listamanna- skálanum. Fimm ungir listamenn opna í kvöld haustsýningu í Lista- mannaskálanum, og sýna þar 30 olíumyndir og 28 vatnslita- myndir næsta hálfa mánuðinn eða svo. Listamennirnir eru Eiríkur Smith, Hörður Ágústsson, Karl Kvaran, Svavar Guðnason og Sverrir Haraldsson. — Tíðinda- maður Vísis brá sér niður í Listamannaskála í gæ, en þá var verið að koma myndunum: fyrir. Hörður Ágústsson sýndl myndirnar, og skýrði m. a. frá því, að þær væru „non-fígúra* tífar“, en ekki „abstrakt“ í. venjulegum skilningi. Lista- mennirnir fara hér með liti á svipaðan hátt og tónskáldið tónana, setur þá saman á ýrnis- legan hátt til þess að sýna geð- blæ þann, sem þeir eiga að tákna. Myndirnar eru allar nýtísku- legar, sumar bjartar og heitar, aðrar dökkar og kaldar, en yfir þeim öllum virðist svífa það, sem nefna mætti litagleði. Það nýmæli verður í sam- bandi við sýningu þessa, að um miðbik sýnihgartímans verður. umræðu- og kynningarkvöld, og munu þá taka til máls þeir dr. Símon Jóh. Ágústsson pró- fessor, dr. jur. Gunnlaugur Þórðarson, lesin verður upp ritgerð um málaralist eftir Jóa Stefánsson listmálara, en Hörð- ur. Ágústsson listmálari flytur ræðu. Á kvöldvöknniii. I Þýzkalandi álíta menn að Svíar sé miklir matmenn og vilji lifa vel. Kona ein sat til borðs í veizlu og var Svíi sessu- nautur hennar. Þótti henni hann sýna mikinn áhuga fyrir diski sínum fullum af steik. Hún spurði þá: „Er það satt að fólkið í heimkynnum yðar sé miklir matmenn?" Hann hló og svaraði: „Þér trúið því kannske ekki — en satt er það samt, að forfeður mínir hafa allir látið hníf og gaffal fylgja sér í gröfina." • Þjóðverjar telja yfirleitt að Norðurlandaþjóðimar hugsi meira um munn sinn og maga en andlega næringu. Frú ein sænsk var á ferð í Þýzkalandi, sat í kaffistofu og bað yfir- þjóninn að færa sér eitthvað til að lesa. „Sjálfsagt, náðuga frú!“ sagði hann og færði henni mat- seðilinn. 9 Konan situr við símann og talar þindarlaust. Bóndi henn- ar kemur færandi hendi með vatnskönnu og vatnsglas. „i’Etli þér veiti af því að væta á þér kverkamar, góða, áður en sam- talinu er lokið?“ © Cecil B. de Mille var á ferða- lagi með lest og hafði þar skrif- stofuklefa. Sat hann þar ásamt ljómandi, fallegri ungxi stúlku. Kunningi hans rakst þangað inn,en fór hjá sér er hann sá yngismeyna og benti kvik- myndajöfrinum að tale, við sig. „Fyrirgefðu, sagði vinurinn, „mér þykir þú hafa veitt uppúr. Er þetta vinkona, sem þú hefir eignazt?“ „Sei sei, nei,“ sagði kvik- myndajöfurinn. „Eg hefi bara haft skipti á ferðaritvél og ferðaritara.“ Nýtt tónverk eftir HaSSgrím Hefgason. Nýlega er ú komið tónverk Ricercare, eftir Hallgrím Helga- son. Er það samið fyrir orgel, við stef eftir Willy Burkhard. Fyr- irtækið Gígjan hefir gefið út, en áður er út kominn eftir Hallgrím mikill fjöldi tónverka, eins og’ kunnugt- er. Hallgrím- ur hefir dvalizt erlendis um nokkurra ára bil, aðallega í Sviss, en verk hans verið flutt víða erlendis hin síðari ár, m. a. í útvarp í Þýzkalandi og Svissj og víðar. úm Áiml úar.... Gengu af skipinu. Frétt úr Vísi fyrir 35 árum: „Nokkrir farþegar gengu af Sterling á Blönduósi á dögun- j um, fóru gangandi þaðan suður í Borgames og leigðu þar bát hingað til Reykjavíkur og komu til bæjarins í fvrradag.“ Síldarflutningar. Og hér er önnur frétt úr sama blaði: „Svíar hafa þegar sent eitt gufuskip til Norðurlands- ins eftir síld og liggur það nú fullfermt á Siglufirði. Seglskip nokkur, sem hér liggja, hafa fengið siglingarleyfi til að flytja síld til Svíþjóðar og eru þau á förum héðan.“ Tapað — fundið. Þá var manchettskyrtuhnapp- urinn mikils metinn, sem eftir- farandi auglýsing' úr „Tapað — fundið“ ber með sér: „Tapazt hefir Manchettskyrtuhnappui' Skilist 1 Tóhokshúsið, Lauga- veg 12,“ gfaggafrcát ÁRNASON SÍMi S74ÍN H A.N S A Laugaveg 105. Sími 8-15-25.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.