Vísir - 11.01.1954, Qupperneq 1
44. árg.
Mánudaginn 11. janúar 1954
7. tbl.
Laumuðust út í skip oj
föidu sig inni í skáp.
I fyrrakvöld bárust lögregl-
unni njósnir um það að tvær
ungar stúlkur væru að laumast
út í erlent olíuskip, sem liggur
hér í höfninni.
Lögreglumenn voru sendir
út af örkinni til þess að leita
stúlknanna í skipinu og .eftir
nokkra leit fundust þær loks
inni í skáp þar sem þær höfðu
íalið sig. Stúlkurnar voru báðar
fluttar á lögreglustöiðna.
Olvun í bænum.
Allmikil ölvun var hér í
bænum um helgina, þó hvergi
drægi til stórra tíðinda af þeim
sökum. Á stöku stað kom samt
til smá ryskinga eða handalög-
máls manna á milli og hafði
iögreglan í ærnu að snúast.
Aðfaranótt sunnudagsins
íannst ofuröiva maður liggjandi
og ósjálfbjarga á Lindargöt-
unni og bjargaði lögreglan hon-
um.
Ölvaður bifreiðarstjóri, sem
lent hafði í allharkalegum á-
rekstri á gatnamótum Hverfis-
götu og Snorrabrautar var tek-
inn fastur og fluttur í vörzlu
lögreglunnar, Annar bílstjóri
var talinn vera undir áhrifum
áfengis, en hann komst út úr
bænum áður en lögreglan næði
til hans. En vitað var hinsvegar
hvert maðurinn ætlaði og lög-
reglan á ákvörðunarstað hans
gert viðvart um ferðir hans og
beðin um að taka hann fastan.
Neytti eitraðs áfengis.
í morgun tilkynntu skipverj-
ar á skipi einu hér í höfninni
lögreglunni frá því að félagi
þeirra myndi hafa drukkið vín-
anda af áttavita. Lögreglan
sótti manninn þegar í stað og
flutti hann á spítala þar sem
dælt var upp úr honum og
manninum auk þess gefnar
sprautur.
Eldur í skipi.
í fýrrinótt á fimmta tímanum
varð elds vart í vélarrúmi
Brúarfoss, þar sem hann lá hér
í höfninni.
Hafði komist neisti í rusl þar
um
niðri og kviknaði eldur. Varð
hann fljótt slökktur og munu
skemmdir engar hafa orðið.
Tito 68 Cð
iki lýirælL
Einkaskeyti fr'á AP. -
London í morgun.
Djilas, forseti fullírúadeildar
júgóslavneska þingsins, og einn
af helztu mönnum kommúnista-
flokksins í Júgóslavíu, hefur
sætt þungri gagnrýni fram-
kvæmdaráðs flokksins, fyrir
greinaflokk, sem hann hefur
ritað í Borba, málgagn hans.
I greinum þessum hefur hann
hvatt til að horfið verði að lýð-
ræðislegra fyrirkomulagi. Lýsti
hann sig mótfallinn því, að eir.n
pólitískur flokkur.færi með öll;
völd og nyti forréttinda, en
þessar skoðanir telur frarni-
kvæmdaráðið skaðlegar flokkn -
ura, starfi hans og marki. Segir
í tilkynningu ráðsins, að Djilas
hefði gert grein fyrir stefnu-
breytingu sinni á fundi, en all-
ir aðrir meðlimir ráðsins ver-
ið honum algerlega andstæðir,
og lagt fast að honum að hreyía
þeim ekki, en það hefði hann
gert án vitundar ráðsins. Var
og boðað, að miðstjórn flokks-
ins rnyndi taka málið fyrir. Djil
as hefur fréstað birtingu þeirra
' greina, sem óbirtar voru,
Fréttaritarar í Belgrad segja,
að þar sem Djilas sé einn af
; helztu mönnum flokksins, hand
genginn Tító forseta, og höfuð-
skýrandi kommúnistiskra kenn
inga í landinu, sýni það sem nú
er í ljós komið, mjög alvarleg-
an ágreining._______
® Flugvél hrapaði til jarðar
í Louisiana, Bandaríkjun-
um í morgun og biðu 6
menn bana.
@ Fregnir frá Osló herma, að
norskt eftirlitsskip við
strendur Norður-Noregs
hafi flutt til hafnar rúss-
neskan togara og kært skip
stjórann fyrir landhelgis-
veiðar.
Hér sést nýársmynd af þekktustu liollenzku f ölskyldunni — Júlíönu, manni hennar og
dætrum;, sem virðast ekki allar jafn-ánægðar yfir návist ljósmyndarans. Á myndinni sjást frá
vinstri: Bernliarð prins, Júlíana drottning, Magret, Marijke (sem geispar) Beatrix ríkiserfingi,
og Ircne. Myndin var tekin í Grindelwald í Sviss, þar sem þau eyddu jólunum.
Skyldi það
vera met?
Vísir sagði á Iaugardaginn írá
því, að nýlega hefðu verið slcírð
sjö systkin samtímis í Fossvogs
kirkju, og myndi bað nær eins-
dæmi.
Nú hefur Vísi verið bent á,
að fyrir allmörgum árum voru
9 systkin skírð samímis í Ás-
kirkju í Fellum í N.-Múlasýslu.
Voru þetta börn Gísla bónda
Helgasonar í Skógargerði, og
voru systkinin skírð, um leið
og elzta barnið var fermt. Síra
Þórarinn Þórarinsson á Val-
þjjófsstað skírði. TÍl garnans
má geta þess, að Gísli bóndi var
frambjóðandi Sjálfstæðisflokks
ins við Alþingiskosningar þá,
en eitt barnanna, sem skírt var
við þetta tækifæri, var frarn-
bjóðandi flokksins við síðustu
kosningar.
Fiskimaður leitar milljóna.
Faxiia ..ávísimi” á ?> poniíla.
Aþena (AP). — Hér 1 borg
sfendur yfir leit að fjársjóði
miklum, sem fólginn var á
stríðsárunum.
Forsaga málsins er sú, að
grískur fiskimaður fann á floti
meðalaglas lítið og hirti það af
rælni. Sá hann þá, að saman-
brotinn miði var í því, og við
athugun kom í ljós, að miðinn
var undirritaður nöfnum fjög-
urra þýzkra liðsforingja. Kváð-
ust þeir liafa fólgið 2,5 milli.
„sovereign“-peninga úr gulli
(sem eru nú nærri 9 milljóna
punda virði) nærri aðalstöðv-
um félags grískra náttúruskoð-
enda. Einnig var þar uppdrátt-
ur af staðnum, þar sem féð átti
að vera fólgið.
Fiskimaðurinn fór á stúfana,
og voru ýmis ummerki á staðn-
um í samræmi við það, sem á
miðanum stóð. Hefur maðurinn
fengið heimild til að leita á
staðnum, því að samkvæmt
grískum lögum á hann helming
þess, sem hann finnur af verð-
mætum í jörðu. Hitt fellur ti!
ríkisins, og má nærri geta, að
báðir aðilar hafa áhuga fyrir
málinu. Lertin fer fram undir
opinberu eftirlitá.
Börlu líftóruna
m mamtkntm.
Einkaskeyti frá AP.
London í morgun.
Þótt minna sé sagt frá viÓ-
ureigninni við Mau Mau-
menn nú en oft undanfarið,
verður bó ekkert lát á bar-
átíunni gcgn þeim. í gær
gerðist meira að segja held-
ur óvenj*Iegur atburður á
þessu sviði, er svertingjakon-
ur náðu áróðursmanni frá
samíökunum úr höndum
heimavarnarliðsmanna og
börðu líftóruna úr honum. —
í gær voru átta Mau Mau-
menn hengdir fyrir að bera
vopn, en 20 manna flokkur
frá þeim réðst á býli eitt og
varð 7 mönnum að bana en
særði í'jóra.
Fárviðri, skiptapar í Svíþjóð.
Vetrarríki á meginlandi álfunnar.
Einkaskeyti til Vísis. ,
Khöfn og London í morgun.
Fárviðri með frosti og’fann-1
fergi hefur valdið miklu tjóni
í Svíþjóð, og samgöngutruflan-
ir eru miklar þar og í mörgum
löndum meginlandsins vegna
fannkomu. Tvö sænsk skip eru
talin af.
Annað þeirra var með 16
manna áhöfn og var á leið til
Bretlands með timburfarm.
Stýrisútbúnaður þess bilaði við
austurströnd Svíþjóðar í fyrra-
dag og rak það að skerjagarð-
inum hjálparlaust, er neyðar-
kall barst frá því. Nokkru síðar
bárust fregnir um, að farið væri
að reka úr því í skerjagarðin-
um.
Miklar skemmdir hafa orðið
á skógum í Norður-Svíþjóð og
samgöngustafir um alla Norð-
ur- og Mið-Svíþjóð. í Stokk-
hólmi er miklum erfiðleikum
bundið að halda uppi samgöng-
um vegna fannfergis.
í Júgóslavíu eru sleðar nú
helztu farartæki og verður öðr-
um farartækjum vart eða ekki
við komið. Fjöldi bæja og þorpa
er einangraður.
í Vínarborg unnu 6000 manns
að snjómokstri og 250 snjóplóg-
ar voru í notkun í borginni og
grennd hennar um helgina.
Miklar fannkomur hafa verið
í Sviss. Frost eru míkil og næð-
ingur. Vötn á Norður-Ítalíu hef
ur lagt og skipaskurði í Fen-
eyjum og víðar, einnig sums
staðar í Norður-Frakklandi.
í Þýzkalandi og Ardenna-
fjöllum hefur snjóað mikið og í
Sviss, og allt suður á Grikkland..
í Rínarlöndum brá þó til hláku.
í gær og hlýnað hafði í veðri í.
París og Suður-Frakklandi. —
Hvassviðri var á austurströnd.
Skotlands og Englands, e'n. syðst
á Englandi var næstum vorveð-
ur.
Reynt við ms.
Eddu í dag.
í dag átti að gera tilraun til
þess að lyfta v.s. Eddu af botni
Grundarf jarðar, enda stillt veð-
ur og gott þar vestra.
Fréttaritari Vísis í Grafarnesi
tjáði blaðinu í morgun, að í all-
an gærdag hefði verið unnið að
því aj koma geymum, sex að
tölu, íyrir við flakið, en síðan
verður dælt í þá lofti, og flak-
inu leyft með þeim hætti, eins
og Vísir greindi frá fyrir helg-
ina. Vélbátarnir Vöggur og
Nanna. aðsíoða við bjorgunina.
Hafís fyrir
norðan land.
Skip, sem statt var fyrir
norðan land í fyrradag sá
allmijtið hafíshrafl á reki
þar norðurfrá.
Mun ísinn hafa verið rösk-
ar 30 sjómílur norður eða.
norðvestur af Straumnesi.
Var þarna ensku togari á
ferð og sendi hann skeyti um.
ísinn. Ennfremur hefur frétzt
um ís nokkru austar.
Sáítafundur í dag.
Torfi Hjartarson, sáttasemj-
ari ríkisins, hefur boðað til fund
ar i dag kl. 5 með deiluaðilum.
í vélbátaverkfallinu.
Eins og Vísir greindi frá í sl..
viku, var síðast haldinn fund-
ur um miðja vikuna, en síðari
hafa viðræður legið niðri.