Vísir - 12.01.1954, Blaðsíða 1
:
44. árg.
Þriðjudaginn 12. janúar 1954
8. thi.
SS8«í»anle|4Bia* laagías* FÍ:
KoniiKHnfstar 'taMh’ reyna a§ kitýja fram
kröfur var§aigdi strflsfanga o§ fímmvetdafuRd
Einkaskeyti frá AP. — London í morgun.
Ekkert samkomulag hefur enn náðst á undirbúnihgsfuná-
inum í Berlín, né á fundi þeirra Dulles og Zarubins i ,Wash-
ington, en talið, að erfiðleikar þeir sem við er að glíma á þessu
stigi, séu tengdir Kóreumálinu, ágreiningnum um fangana og
st j órnmálar áðstef nuna.
Fundur til undirbúnings fundi
utanríkisráðherranna í Berlín
25. þ. m. var haldinn í gær-1
kvöldi og nótt. Var þetta lang-
lengsti undirbúningsfundurinn
til þessa, en hann stóð samfleytt
í 11 klst. og lauk ekki fyrr en
undir morgun. Næsti fundur
verður á morgun og verður
hann haldinn í franska her-
námshlutanum.
Þeir Dulles utanríkisráðherra
Bandaríkjanna og Zarubin sendi
herra Ráðstjórnarríkjanna rædd
ust við í Washington í gær og
stóð fundur þeirra hálfa klst.
Fjallaði hann um dagskrártilhög
un, er ræddar yrðu frekar til-
lögur Eisenhowers í kjarnorku-
málum. — Ekkert er kunnugt
um samkomulag á þessum fund
um.
Talsmaður utanríkisráðuneyt-
is Bandaríkjanna hefur skýrt
frá því, að ráðuneytið hafi nú
til athugunar tillögur Norður-
Kóreu og stjórnarinnar í Pek-
ing um, að halda fund í Pan-
munjom þegar á morgun um
stjórnmálaráðstefnu. Talsmað-
urinn sagði, að svar yrði sent,
þegar búið væri að ræða það
við fulltrúa þeirra þjóða allra,
sem börðust í Kóreu gegn kömm
únistum.
Virðist mönnum svo horfa,
sem kommúnistar reyni að
knýja fram fyrir Berlínarfund-
inn fyrirhugaða, að stríðsföng-
um yrði ekki sleppt úr h'aldi
eftir 22. janúar, eins og boðað
hefur verið að gert verði og
gera ber samkvæmt vopnahlés-
Skilmálunum — og enn fremur
að kommúnistar leitist enn við
að knýja fram kröfuna um
fimmveldafund með þátttöku
kínverskra kommúnista.
Eden reynir að bera
él
Unnið að kaupum á
og annarri tii
Óla Garða.
klæði á vopnin.
Eden utanríkisráðherra Brct-
lands flutti ræðu í gær og var j
henni útvarpað. Talaði hann af .
mikilli hógværð og í anda sátt-
fýsi, bersýnilega til að gréiða
fyrir samkomulagi.. Hann sagði
m. a., að Vesturveldin teidu
einingu Þýzkalands hina mikil-
vægustu, en jafnvel víðlent og
voldugt ríki sem Rússland ætti
kröfu til að fá sanngjörnmn
kröfum framgengt um trygg-
ingu gegn ofbeldisárásum frá
Þýzkalandi. Ráðstjórnarríkjun-
um væri mikil trygging í brezk-
rússneska sáttmálanum, og einn
ig í því, að varnarsamtök Ev-
rópu réðu yfir endurvígbúnaði
Vestur-Þýzkalands, en ef Rúss-
ar teldu þetta ekki nægilegt
væri Vesturveldin öll af vilja
gerð til þess að athuga frekari
tryggingu í þessu efni.
I morgun varð elds vart í
togaranum Óla Garða, þar sem
hann liggur til niðurrifs suð-
ur í Fossvogi.
Undanfarið hefur verið unn-
ið að því að rífa togarann í
brotajárn og liggur hann uppi
í flæðarmáli. Er helzt gizkað
á, að er menn hættu vinnu við
hann í gærkvöldi, hafi einhvers
staðar leynzt neisti og kviknað
út frá honum. Var orðið all-
mikið bál í togaranum, bæði í
vélarúmi og þilfari, þegar
slökkviliðið var kvatt á vett-
vang í morgun. Meðal annars
skemmdist logsuðutæki, sem
geymd voru í skipinu. -
í gær var slökkviliðið tví-
vegis kvatt á vettvang. Laust
eftir kl. 4 í gær var það beðið
um aðstoð að Laugaveg 42
vegna elds, sem kviknað hafði
út frá jólatré. Búið var að
slökkva, þegar slökkviliðið kom
á vettvang og tjón hlauzt ekk-
ert af.
í gærkvöldi kviknaði út fi'á
olíukyndingu í Lönguhlíð 13,
en skemmdir urðu engar.
Síðari fregnir.
Hlutlausa nefndin í Kóreu
hefur hafnað tillögu sænsku
fulltrúanna þess efnis, að sleppt
skuli úr haldi hinn 22. jan. þeim
22.000 föngum sem neitað hafa
að hverfa heim.
AP fregn frá Seoul hermir,
að herstjórn Bandaríkjanna
hafi fallist á, að sambandsliðs-
foringjar ræði við kommúnista
um, að fundir verði hafnir af
nýju um stjórnmálaráðstefnu.
Flugfélag íslands flutti nálega
jafn marga farþega árið 1953
og fluttir voru fyrstu 10 árin.j
sem félagið starfaði, og hafa
aldrei fyrr verið fluttir fleiri
farþegar eða meira vörumagn,!
en hins vegar urðu lieildarpóst- j
flutningar heldur minni en í
fyrra.
Á s.l. ári ferðuðust 42.076 far-
þegar með Föxunum, og flutt
voru 915.885 kg'. af vörum og
70.794 kg. af pósti. Á innan-
landsflugleiðum félagsins ferð-
uðust 35.434 farþegar og 6.642
á milli landa. Nemur heildsr-
aukning farþegafjöldans 11 %
sé gerður samanburður á árinu
Síld stöðvaði
botnlogg Esju
1952.
Vöruflutningar með flugvéi-
um F. í. auliast jaínt og þétt
og hafa aldrei orðið meiri en
tímar þeirra urðu 5357, þa>- af
var Gullfaxi á flugi í 1584 klst.
Á s.L.vetri var samþykkt til—
laga frá fjárveitinganefnd Al-
þingis þess efnis, að ríkisstjcrn-
inni sé heimilt að aðstoða F.L
við kaup á einni millilandaflug-
vél og flugvél til innaniands-
flugferða með því að veita rík-
isábyrgð fyrir allt að 14 millj.
króna láni. Hafa íorráðamenn.
félagsins að undanförnu unnið
að undirbúningi vegna væntan-
legra flugvélakaupa, og muu
allt kapp verða lagt á að hraða
þeim málum, svo sem kostur
er á.
s.l. ár. Heildaraukning nam 20'
VertíðarundirbúiiésMji er lokeð.
Xær allii* ákraiiesliáíar tilhúnir.
Frá fréttaritara Vísis. |
Akranesi, í gær.
Hér er öllum undirbúningi
Iokið undir vertíðina og bát-
arnir, að 1—2 undanskildum,
íilbúnir, en þar er um að ræða
báta, sem Iöskuðust í ofviðr-
inu.
Annar þeirra er Böðvar, sem
er hér í slipp til viðgerðar. —
Búið er að ráða á bátana að
rfiestu, og líkurnar þær, að
ekki vanti mannafla, nema
verkfcilin dragist á langinn.
Þá gæti svo farið, að menn
dreifðust. Gæftir hafa verið
stirðar, en segja má þó að þeg-
ar hafi tapazt 3—4 góðir dag-
ar vegna stöðvunarinnar. Bæði
í gær og í dag og var kyrrt veð-
ur og gott í sjó.
Fyrir 3 dögum fóru 2 trillur
á sjó og voru stutt i róðrinum,
en fengu 5—600 kg. af ýsu, og
er það gott. Þessir bátar höfðu
og gamla beitu og stutta línu.
— Ætla má, að fiskur sé á mið-
Það mun víst hefur fátítt, að
síld stöðvi ,,botnlogg“ (leiðar-
mæli) strandferðaskipanna, en
þetta gerðist nú samt á nt.s.
Esju fyrir fáiunfdögum.
Skipið var þá að koma að
austan, og á laugardagsmorg-
un stöðvaðist leiðarmælirinn
tvívegis undan Dyrhólaey.
Mælir þessir er þannig útbú-
inn, að niður úr botni skipsins
er standur, um það bil 2 faðma
frá yfirborði sjávar, og á hon-
um gat, sem skrúfa leikur í, en
snúningar sknifunnar segja svo
til um vegarlengd þá, sem
skipið siglir. Er unnt að taka
mælinn upp um botn skipsins
inn í vélarrúmi, þótt skipið sé
á siglingu, og var þetta gert.
Fundust þá síldarræksni í mæl-
inum, og ollu þau stöðvununum.
Comet-vélar
úr umferð.
um.
Snæfellingar voru á sjó á
laugardag, en þar er róið og á
Vestfjörðunum, upp á það fisk-
verð, sem samið verður uni.
Togarar.
Akurej’ kom inn á laugardag
með um 90 smál. eftir viku úti-
vist. Bjarna Ólafssonar er von
á morgun. Harni mun heiía eitt-
hvað meira. Seinni hluta Veiði-
ferðai'innar mun hann hafa
þreifað fyrir sér með karfa, en
nánara um það ófrétt.
ViH breyta Taft-
Eisenhower Bandaríkjaforseti
hefur sent' þjóðþinginu 14 til-
lögur um breytingar á Taft-
Haríleylögunum.
Sumar tillögurnar eru bornar
fram að ráði atvmnurekenda,
aðrar að ráði verklýðsfélaga.
j Meðal tillagnanna er ein, sem
j lýsir verkföll ólögleg nema
þau, sem stofnað er til að und-
angenginni leynilegri atkvæða-
greiðslu í verkalýðsfélögum.
en flutt voru 793.646 kg. inn-
anlands og 122.239 kg. milli
landa. Eins og undanfarin ár
hafa vöruflutningar verið mikl-
ir á milli Öræfa og Reykjavík-
ur, enda hefur mest aí afurð-
um og nauðsynjum Öræía-
bænda verið flutt flugleiðis svo
og líflömb, sem flutt hafa ver-
ið frá Fagurhólsmýri til íjár-
skiptasvæðanna sunnanlands.
Póstflutningar í heild eru
heldur minni en í fyrra, en þó
hefur orðið 6,5% aukning á inn-
anlandsflugleiðum. Þann 1. okt.
s.l. gekk í gildi nýr samningm:
milli póststjórnarinnar og Flug-
félags íslands um flutning á
pósti með flugvélum innan-
lands, sem leitt hefur til þess,
að póstflutningar hafa aukizt
til mikilla muna á innanlands-
flugleiðum félagsins síðustu
þrjá mánuði ársins. Á þessu
tímabili 1952 voru fluttar rösk-
ar 5 smál. af pósti innanlands
samanborið við 36 smálestir á
sama tima 1953.
Grænlandsferðir hafa verið
nokkuð tíðar á árinu. Farnar
hafa verið 30 ferðir með far-
þega, vörur og póst og lent víðs
vegar, bæði á sjó og landi
Haldið var uppi áætlunarflug
ferðum til 23 staða á landinu
auk Reykjavíkur yfir sumar-
mánuðina, en auk þess voru
flugvélar F. í. leigðar ti1 síld-
arleitar og ljósmyndatöku úr
lofti. Þá voru þær einnig sendar
til sjúkraflutninga.
Flugfélag fslands starfrækti
6 flugvélar á s.l. ári, og flugu
þær samanlagt vegalengd, sem
nemur um 1,5 milljön km. Flug
Reynt að na flak-
inu upp,
BOAC, brezka flugl'élagið,
tók ákvörðun um það í gær, að
fresta frá miðnætti s. I. öllum
ferðum Comet-flugvéla, en.
frönsk flugfélög hafa gert hlið-
stæða ráðstöfun.
BOAC hefur 7 Comet-flug-
vélar í notkun og þau frönsku.
6. Kanadíska flugfélagið, sem
hefur tvær í notkun, telur á-
stæðulaust að fresta áætlunar-
ferðum sinna flugvéla.
BOAC hefur tilkynnt, að lík-
lega verði reynt að ná upp leif-
unum af flaki flugvélarinnar,
sem hrapaði í Miðjarðarhaf, en.
það liggur á 260 feta dýpi um
10 mílum suður af Elbu.
EHsabet scfur þéjig.
Harsöra þétt til
bráÖabirgÖa.
Bráðabirgðaþéttingu þeirri,
sem Landhelgisgæzlan sá un*
á e.s. Hanön, scm strandaði við
Engey, er nýiega lokið.
Liggur skipið nú við festar-
bauju á Viðeyjarsundi og hefur
verið skilað í hendur eigenda.
— Afhending tafðist vegna
þess að ekki fékst leyfi til þess.
að taka það inn í höfnina.
Elisabet Bretadrottning setti
í moiftm með mikilli \ iðhöfn
þing Nýja Sjálands.
Drottning var klædd krýn-
ingarkjóí og bar kórónu á höfði.
Mikill marmfjöidi hylti drotín-
ingu og mann hennar á leið til
þinghússins.
Sitjóflóð vaida
matHiskóðuin.
Brugðið liefur til hláku í
Öípunum og snjóflóðahættan
aukist gífurlega. Kunnugt er,
að snjóflóð hafa orðið á
nokkriun stöðum.
Á einum stað grófust 22
menn í fönn, en nánari
fregnir vantar, þar sem sím-
slit hafa orðið og margir bæ-
ir einangraðir. — Hjálpar-
sveitir eru hvarvetna við-
búnar til þess að svara neyð-
arkölíum.