Vísir - 26.02.1954, Blaðsíða 1
44. árg.
Föstudaginn 26. febrúar 1954
47. tbl.
A-Inftúensa
fyEgir kukkmum.
Illvíg inflúenza hefir siglt
í kjölfar kuldanna í Svíþjóð,
að því er fregnir þaðan
berma, og er sýkillinn af A-
tegimd, en menn vita ekki
til þess, að hans hafi áður
orðið vart í Evrópu, þótt hún
sé algeng í öðrum hlutum
heims. Hefir hennar orðið
vart á ýmsum stöðum í Sví-
þjóð, en fyrstu tilfellin komu
upp í Orkelljunga á Skáni,
þar sem tylft manna veiktist.
Síðan breiddist veikin til
Austur-Gotlands, og á sunnu
dag varð fyrstu tilfellanna
vart í SíokMiólmi. A-inflú-
enzan nær venjulega meiri
útbreiðslu en hin venjulega,
leggst þyngra á menn og
fylgikvillar eru algengari.
GiiIKoss þurfti
«kkl alsloB.
„Gullfoss“ kom til Kaup-
mannahafnar kl. 1 x nótt, og
hafði skipið ekki þurft neina
aðstoð við að komast suður
sundið og til Hafnar.
Samkvæmt upplýsingum,
sem Vísir fékk í skrifstofu Eim-
skipafélagsins í morgun, varð
„Gullfoss“ ekki fyrir neinu
hnjaski, og gekk ferðin vel að
öllu leyti. Að vísu kom skipið
nokkru seinna til Hafnar en
ráðgert hafði verið, enda eðli-
legt, þar sem skipið varð að
fara sér hægt síðasta spölinn
vegna íshröngls. Farþegar
stigu á land kl. 8 í morgun,
eftir ágæta ferð.
Hláka er nú í Kaupmaj^na-
höfn, og er því gert ráð fyrir,
að skipið geti lagt af stað heim-
leiðis samkvæmt
þriðjudag.
áætlun á
Svíar hafa samið um kaup á
kaffi í Kolombíu fyrir um 100
milj. ísl. kr.
Menn gætu Ihaldið, að þessi
mynd væri tekin við Norður-
lönd um þessar mundir, þeg-
ar ísinn kreppist um lönd
og siglingaleiðir. Myndin er
nefnilega frá Grænlandi, og
sýnir veiðimenn, sem hafa
unnið á rostung og dregið
hann upp á skörina.
Hellisheiði, Sírýsuvíkurleið og
Hvalfjörður ófær orðin í morgun
Stórhríð á Húsa-
vik í gærkvðMi.
f gærkvöldi mátti heita, að
stórhríð væri á Húsavík, að því
er Júlíus Havsteen sýslumað-
ur, tjáði Vísi í morgun.
Vindur var þá hvass á norð-
austan, en fram að þessu hefur
verið snjólaust þar nyrðra, og
samgöngur verið með eðlileg-
um hætti sem um hásumar
væri.
Byrjað er að vinna við upp-
setningu radar-stöðvar á Langa
nesi, og hefur eitt skip þegar
komið með ýmsar vörur til
þeirrar mannvirkjagerðar, en
þrjú eru væntanleg á næstunni
með viku millibili. Hefur sýslu-
maður sett tollvörð á staðinn
vegna þessara skipaferða.
Nýtt oEiiíflutningsðskip keypt tit
str&'nddutninga hér.
Shelt og Olíuverzlun íslands hafa key.pl:
900 tonna tankskip frá Hottandi.
Siglfirðingar þurfa vélbáta.
JEIma leiðln tíl að foœía
atfvIsMBM'ástóaf&diö.
Siglfirðingar hafa mikinn
hug á að fá vélbáta til bæjar-
xns, og er nú unnið að þeinx
málum.
Vísir átti í morgun tal við
Jón Kjartansson, bæjarsjóra á
Siglufirði. Sagði hann m. a., að
mönnum á Siglufirði væri Ijóst,
að eina færa leiðin til þess að
bæta atvinnuástandið í ltaup-
staðnum og efla atvinnulífið al-
mennt, væri að fá þaneað
nokkra vélbáta. Þess vegna
hefðu ýmsir aðilar snúið sér til
bæjarstjórnarinnar og beðið
hana að greiða fyrir þessum
málum. Bæjarstjórnin hefur
síðan skrifað rikisstjórninni um
raálið, og bíða menn nú átekta.
Þá er þess og að géta, að hrað-
frystihúsin tvö vantar verkefni,
afköst þeirra eru það mikii, að
nauðsyn ber til, að vélbátar
fáist til þess að leggja þeim t.il
afla sinn.
Siglufjarðartogararnir hafa
undanfarið lagt upp afla sinn
hjá frystihúsunum bá-íurn,
frystihúsi Síldarverksmiðja
ríkisins og ísafold, og hefur mik
il atvinna orðið í sambandi við
þá. Allt að 200 manns hafa haft
vinnu, er togararnir hafa lagt
upp aflann.
Mjög hefur verið snjólétt á
Siglufirði, og hafa skíðamenn
áhyggjur af, en í ráði er, að
landsmót skiðamanna veroi háð
‘ ar. í morgun var skafrenning-
ur á Siglufirði, en H-il efanhf'ð
Shell á íslandi h.f. og Olíu-
verzlun íslands (h.f. hafa samið
imx kaup á nýju olíuflutninga-
skipi.
Vísir hafði fregnað að þessir
tveir aðilar hefðu hug á því að
kaupa strandferða-tankskip og
nú þegar Hallgrímur Hall-
grímsson forstjóri kom úr sigl-
ingu í. fyrrakvöld sneri blaðið
sér til hans og spurði hann hvað
hæft væri í þessu.
Forstjórinn kvað það satt
vera, að tvö framangreind félög (
hefðu um tírna verið að reyna
fyrir sér um kaup á hentugu
skipi til olíuflutninga meðfram
ströndum landsins. Hann sagði,
að ástæðan fyrir þessu væri
fyrst og fremst sú, að olíuflutn-
ingarnir hefðu aukizt til muna
vegna ákvæðis stjórnarvald-
anna um verðjöfnun á olíu,
sem þau gáfu út í ágústmánuði
í fyrra.
Fengu innlendu olíuflutn-
ingaskipin, Skeljungur og Þyr-
iU, alls ekki lengur annað
olíuflutningaþörfinni meðfram
ströndum landsins og urðu olíu-
félögin hérlendu að taka norskt
olíuflutningaskip á leigu til
þess að hjálpa upp á sakirnar.
Þetta norska skip er nú í þann
veginn að leggja af stað frá
Noregi og hefir verið samið um
leigu á því til tveggja mánaða
t'.yrst um sinn.
Hið nýja olíuflutningaskip,
sem Shell oog Olíuverzlun ís-
lands hafa fest kaup á, var
keypt í Hollandi og er það 900
smál. að stærð. Undiiritaði
Hallgrímur Hallgrímsson for-
stjóri Shell á íslandi h.f. end-
anlega samninga fyrir hönd
beggja félaganna nú fyrir
skemmstu. Taldi Hallgrímur,
að hið nýja skip myndi, gsamt
Þyrli, anna olíuflutningaþörf-
inni meðfram strandlengjunni,
en hinsvegar er Skeljungur of
lítið og óhentugt skip til þessara
nota (hann er aðeins 330 smál.
að stærð) og er gert ráð fyrir
að hann verði seldur úr landi
þegar nýja olíuflutningaskipið
kemur, sem verður væntanlega
í febrúar eða marz að ári.
Ilikynjað kvef
i bænuðn.
Illkynjað kvef hefur gengið
hér í bænnm að undanförnu, og
er útbreytt.
Kvef þetta líkist ýmist in-
flúenzu eða barkabólgu, og
fylgja því oft særindi í hálsi.
Kíghósti hefur orðið vart, sömu
leiðis einstöku tilfelli af skar-
latsótt, og hlaupabóla gerir vart
við sig öðru hverju.
Ekki verður þó sagt, að heilsu
far bæjarbúa sé slæmt, þegar
frá er talið ltvefið, sem fyrr
var nefnt, en hið umhleypinga-
sama veðurfar á sinn þátt í því.
Bílar á Seið til Kefla-
víkur mhu a& snua af tui
Hríðarveðnr víða
■íin land í gær.
I gærkvöldi var komið hér
fárviðri á norðan og í gær var
hríðarveður á Vestur- og Norð-
urlandi.
Var hríðin svo svört viða, að
! vart sá úr augum, en svipaða
sögu er nú að segja af Heilis-
heiði, sem er ófær orðin. Hval-
fjarðarleið er ófær og bílar á
j leið til Keflavíkur sneru aftur
í gærkvöldi.
Hellisheiði var orðin illfær í
gærkvöldi. Áætlunarbifreið Kf.
Árnesinga, sem fór héðan í gær-
kvöldi, komst í Skíðaskálann,
en þar var haldið kyrru fyrir
í nótt. Var bifreiðinni svo hjálp
að yfir fjallið eldsnemma í
morgun og sömuleiðis mjólk-
urbifreiðunum, sem lögðu fyrst
ar af stað að austan, og voru
þær komnar niður í Hveradali
upp úr klukkan 10, og hafa ver
ið gerðar ráðstafanir til þess
að koma þeim í bæinn. Er fyrr-
nefndum bifreiðum hafði verið
veitt þessi aðstoð var svo kom-
ið, að gersamlega ófært var
orðið á heiðinni, moldöskubyl-
ur svo að ekki sá úr augum,
Frétzt hefur, að hjá Stefáns-
höfða við Kleifarvatn sé mann
hæðarhár skafl og Krísuvíkur-
leiðin þar með teppt. Ráðstaf-
anir hafa verið gerðar til þess
að freista þess að ryðja braut
gegnum skaflinn í dag og opna
þar með leiðina.
Bifreiðar, sem voru á leið til
Keflavíkur í gærkvöldi, lentu
í erfiðleikum vegna veðurhæð-
ar og urðu að snúa aftur, en
í morgun voru samgöngur
þangað eins og venjulega.
Hvalfjarðarleiðin var ófær
orðin í gær. Hafði skeflt mikið
innarlega við fjörðinn, einkan-
lega í grennd við Þyril. Ef veð-
ur lægir í dag verður reynt að
opna leiðina.
Á Holtávörðuheiði var skaf-
renningur í gær og blindösku-
bylur í morgun. Bifreiðar fóru
um heiðina í gær.
Hríðarveður var á Akureyri
í morgun. Byrjaði að hríða þar
í fyrrinótt. Ofankafald er ekki
mikið og samgöngur enn í lagi
innan héraðs.
Brattabrekka er ófær og
Fróðárheiði einnig.
Les Passíusálmai
í útvarpið.
Þessa dagana eru lesnir
Passíusálmar í útvarpið, eins
og venja er til á föstunni.
Vegna fyrirspurna getur
Nokkrir menn hafa verið Vísir upplýst, að sá, sem les
dæmdir fyrir njosnir í Passíusálmana í ár, heitir Ari
Tékkóslóvakíu, tveir í ævi-r Stefánsson, meðhjálpari við
langt fangelsi, aðrir í allt Hallgrímskirkju, nokku?? við
a3 15 ára fangelsi. [ aldur, eða 74 ára gamall.