Vísir - 26.02.1954, Blaðsíða 5

Vísir - 26.02.1954, Blaðsíða 5
I’östudaginn 26. febrúar 1954 VlSIB Sá skipfélaga sinn myrtan, sat í fangelsi í V.-Afríku. Rabbað við ævintýramanninn Andrés Eirík Ólsen sem oft hefir komizt í hann krappan. Þeir eru orðnir furðu marg- jr, íslenzku sjómennirnir, sem gert hafa víðreist, en líklega eru þeir færri, sem hafa séð skipsfélaga sinn myrtan meðan á borðCialdi stóð, eða setið í fangelsi í Vestur-Afríku og í mánuð á Ellis-ey við New York. Þetta hefir samt komið fyrir ævintýramanninn Andrés Erik Olsen, íslenzkan sjómann af norsku bergi brotinn, sem Vísir átti tal við. Hann er ekki á sjónum þessa stundina, heldur stundar algenga verkamanna- vinnu í bili, eftir því sem heils- an leyfír, því að fótarmein bagar hann. Andrés Olsen er 35 ára gam- all, hefir siglt víða og oft kom- izt í hann krappan. Hér verður aðeins stiklað á stóru í frásögn anum frammi á skipinu, og þar mátti hann dúsa í 3 mánuði, unz hann var settur í land í Belgíu, en þaðan var hann fluttur skemmstu leið heim. Stýrimaður færði honum mat, en ekkert samneyti fékk hann að hafa við aðra skipverja. Þetta atvik fékk mjög a Andrés, eins og eðlilegt var, og urðu viðbrögð hans þau, að hann fór í land í fyrrnefndum smábæ, Abijan, og gerðist ölv aður. Lauk þeirri skemmtan með því, að honum var fleygt út af kránni, og sat síðan og dottaði á þrepum hennar. Þá kom þar að franskur lögreglu maður, sem lamdi hann þrjú högg í höfuðið, svona til hress- ingar, en flutti hann síðan á lögreglustöðina, þar sem hann hans en annars væri nógu af að var játinn í klefa. Daginn eftir taka, ef tími og rúm leyfði. var Andrési sleppt. Auralaus í Afvíku. Skotinn í kaf. Árið 1941, er kafbátastyrj- öldin stendur sem hæst, ræðst Þá var hann auralaus, eins Andrés á hollenzka skipið og stundum kemur fyrir sjó- „Holderstroom“ hér í Reykja- menn, sem líkt er ástatt um. vík, sem flutti kol milli Bret- Hann tók þá það fangaráð að lands og íslands. Ekki varð hræða 60 franka út úr blökkum hann lengi í því skiprúmi, því {bílstjóra með því að miða á að áhöfnin var rekin af skipinu hann pípu sinni í jakkavasan- í Swansea, þar sem hún neit- aði að éta matinn, sem skips- kokkurinn framleiddi. Síðan kemur hann hingað heim, er hér nokkrar vikur, fer síðan á danskt skip, sem „Skjold“ hét, en síðan á ýmsum skipum í ein tvö ár, en um skeið í landbún- aðarvinnu í Norður-Englandi. Svo ræðst hann á danska skipið „Birgitte Mærsk“, en það er skotið í kaf á leið frá Cardiff til Montreal á miðju Atlants- hafi. Andrés kemst lífs af við fjórða mann, en 28 farast. Þeir félagar eru 3 daga að velkjast á hafinu í skipsbáti, unz ensk íylgdarsnekkja bjargar þeim. Næsta hálfa mánuðinn var Andrés í Viktoríu-sjúkrahúsi í Newcastle og annan hálfan mánuð á hvíldarheimili. Svo kom hann heim með „Hrím- faxa“ árið 1944. Síðan gengur á ýmsu, sigl- ingum og öðru, en árið 1947 ræðst hann á finnska skipið um. Aðspurður segir Andrés, að þetta sé sjálfsagt ekki fall- egt, en bætir við: „Hvað á mað- ur að gera, auralaus í Afríku?“ Fleiri ævintýrum lenti hann í í þessari Afríkuför, meðal annars var hann umkringdur af svertingjum á torgi einu, eftir að hann hafði neitað að greiða veitingar fyrir bráð- ókunnugt fólk, sem hafði hlass- að sér niður við borð hans á veitingastofu einni, en vinveitt- ur skósmiður bjargaði honum úr þessu öngþveiti. Árið 1949 er Andrés staddur i Norður-Rússlandi í smáhafn- arbæ þar. Hann er1 þá á norsku skipi, „Marpesa“ frá Drammen. Þar var lestað timbur. Konur unnu að uppskipuninni, en fjöldi var þar af vopnuðum vörðum. Fjórir menn fengu ekki að fara í land, og var Andrés einn þeirra. Leizt hon- um tröllslega á uppskipunar- konurnar. Þá var hann á Grænlands- miðurn 1951 með færeyska skipinu „Marité" frá Trangis- vaag. Árið 1950 er hann á norska skipinu „Hertha“ frá Bergen. Þá tekur hann upp á því að strjúka af skipinu í Detroit, passalaus. Einhvernveginn kemst hann með lest til Chica- go, og þaðan til Minnesota. Þar kom hann á bóndabæ á „blank- heita-göngu“ sinni. Gömul kona lofaði honum að sofa í úthýsi einu, þvoði af honum skyrtu og lét hann raka sig daginn eft- ir, og gaf honum 3 dollara fyrir vagni. Þaðan fór hann til Madison í Wisconsin, og vann þar í 2 daga. í Minnesota fór hann í norsku ræðismannsskrif- stofuna, þóttist vera Norðmað- ur, því að hann kvaðst ekki vilja vera Islendingur, svona á sig kominn, passalaus stroku- maður. Líklega hefir ræðis- manninum þótt hann grun- samlegur, því þegar Andrés kemur til New York flugleiðis, er hann handtekinn þar, og fluttur á Ellis-ey, þar sem vegalausir menn eru geymdir, unz unnt er að flytja þá úr landi, en síðan fór hann með Atlantshafsfarinu „Stavanger- fjord“ til ,Noregs. Eins og fyrr segir, vinnur Andrés nú á Eyrinni, eftir því sem fótarmein hans leyfir, en hann segir, að sig langi aftur á sjóinn. íslenzkir söngvarar rontaðir Tóinsmíðar IfaMSgríms llelgasonar fluttar víðsvegar um Þýzkaland. í grein eftir Gerhard Krause, sem birtist nýlega í tónlistar- ritinu „Kontrakt-Signale fiir lia musikalische Welt“ og gefið er út í Hamborg, er m.a. farið' „Avenir“ frá Mariehamn. Þetta mjög lofsamlegum orðum um skip var í siglingum milli vest- f nokkurra íslenzka söngmenn og urstranda Afríku og Belgíu og tónlistarmenn. flutti mahogny-við. Meðal annars var komið til Dakar, Grand Bassam pg Abijan. sem er smáborg á vesturstrond Afríku. Skipið tók 67 svert- ingja tim borð í Freetown í Líberíu til þess að vinna við fermingu skipsins. Morð um borð. Meðan Andrés var á þessu skipi, bar sitthvað til tíðinda. Svo bar við eitt sinn, er skip- verjar sátu að snæðingi, að einn hásetanna vatt sé'r inn úr dyr- unum og rak hníf. sinn á hol í bak kyndara,. skipsfélaga síns. Gaf maðurinn upp öndina eftir fáeinar mínútur. Manndrápar- . inn var auðvitað handtekinn og ■ hafður í geymslu í keðjukass- Um söng Guðmundar Jóns- sonar og Stefáns íslandi í hlut- verkum þeirra í Rigoletto kemst gréiuarhöfundur m. a. ;að orði: ,,Islendingurinn .Guðmundur Jónsson kynnir sig sem söngv- ara með göfugri, mjúkri og djúpri, .hreimsterkri baritón- rödd. Hann mótar hlutverk sitt með tiginmannlegri tjáningu, syo að Rigoletto verður aldrei um of tilfinningasamur í með- ferð hans. Eins og Schaljapin virðist Guðmundur Jónsson fær um að skapa rétta persónu á sviði án þess að klæðast grirnu. Hann er ekki aðeins fyrirheit heldur ánægjuleg uppfylling nú þegar. Annar íslendingui',- Stefán ís- landi, fer á .beztu kostum sem hertoginn er hann syngur mezza voce (með hálfri rödd“. í niðurlagi greinar sinnar skýrir Krause frá ýmsum vænt- anlegum uppfærzlum á tón- smíðum Hallgríms Helgasonar tónskálds, en þær eru í*stór- um dráttum sem hér segir: Óperusöngkonan Elísabetn Urbaniak syngur í næsta mán- uði | borginni Súchteln h]á Köln nokkur ' sönglaga Hall- gríms Helgasonar; við hljóð- færið verður próf. Paul Miles í Köln. Þýzki hljómsveitarstjórinn Fritz Gerhard hefur nýlega leikið ,,Rímnadans“ Hallgríms fyrir píanó á hljómleikum : Rudolf-Steiner-skólanum í Wuppertal-Elberfeld í Ruhr- héraðinu. Rúmenska söngkonan Ina Graffius flytur sönglög eftir Hallgrírp á hljómleikum í Essl- ingen, Göppingen, Reutlingen, Trossingen og Tubingen, dag- ana 31. marzLil S. apxíl. í lok maí hefur Hallgrímur Skósmíðavélar sem Kti8 eru nota^ar. Einn pússningsrokkur fyrir tvo menn, tveir skurðarhnífar, annar notaður, en hinn nýr, og má fletta með honum, einn randsaumari, einn gróphnífur og saumavél. Pilboð óskast í allt í einu. Tilboð séu merkt: „Skósmíðavélar — 487“, sendist Vísi sem fyrst. Katipl gull og ste KAUPHOLLIN er miðstöð verðbréfaskipt- anna. — Sími 1710. BEZT AÐ AUGLYSAIVISI Barnaskíði kr. 62.00 Lfngiingaskíði kr. 120.00 Skíðastafir kr. 30.00 UR RIKI NATTURUNNAR: Þyngtkrlögmálið endterskoðað. Kenning Einsteins og próf.Hlavatis. Eftirtektarverð grein er í 3ja hefti af tímaritinu „News- week“ í ágústmánuði síðastl. Fjallar hún um Albert Ein- stein og hina nýju kenningu hans, sem hann kallar „Unified Field Theory“, og kalla mætti kenninguna um Einingargrund- völlinn á íslenzku. Leitast hann þar við að sýna fram á að tvö meginöfl í heiminum, þyngdar- lögmálið og rafsegulorkan, samsvari hvort öðru og sé í rauninni eitt og hið sama. Sýn- ir hann þetta með líkinga- reikningi. Þá kemur við sögu Hlavaty, prófessor við Indíanaháskóla. Hann hefir gert líkinga-út- reikning Einsteins svo einfaldan að segja má, að kenning Ein- steins sé ekki lengur kenning, heldur megi sanna hana með tilraunum. Þegar það er gert, segir Hlavaty, að þyngdarlög- málið sé úrelt. Það mun koma í ljós að þyngdarlögmálið er aðeins einn af eðlisþáttum raf- segulmagnsins, eins og ljós- öldur, hljóðöldur og aðrar út- geislanir rafsegulmagnsins. Þá sannast það um leið, að jörðin og allar aðrar stjörnur og him- inlíkamir eru segulaflstöðvar (magnet). Sú var skoðun fornvitringa að þyngdarlögmálið væri ekki til. í gamalli bók um frumspeki segir svo (löngu áður en Ein- stein og útreikningar hans komu til sögunnar): Gagnkvæm segulmagnssambönd eru milli reikistjarnanna, sem allar eru segulaflstöðvar. Fomvitringar töldu þetta sannreynd. Sam- dráttur og útþensla stórheims- ins var kunn þegar á dögum. Empediclesar (483—23 f. K.b.) Rafsegulmagn er frumafl í náttúrunni. Það er eins víst og að þyngdarlögmálið er ekki til.“ verið : boðið að' taka þátt í hljómleikum í Leverkusen, þar sem m. a. óperusöngkonan Christel Röttgen, Köln mun syngja sönglög eftir hann. Þá hefur fiðluleikarinn Al- bert Beese í Haldensleben ný- lega leikið „Romanze“ eftir Hallgrím Helgason fyrir ein- leiksfiðlu og hljómsveit, þar í borg. Var góður rómur að verk- inu og flutningi þess. SKIPAUTGCRI) RIKISINS M.s. Skjaldbreið til Snæfellsneshafna og Flat- eyjar hinn 4. marz n.k. Vöru- móttaka á mánudaginn. Far- seðlar seldir á miðvikudag. Mctffi Metcjnson til Vestmannaeyja í kvöld. Vörumóttaka daglega. Útsala Siðustu dagar útsölunn- áf etú föstudag og laugardag. Versl. Frawn Klapparstíg 37. Sími 2937. Mðnnðar" húsnœði óslíast. Upplýsingar í síma 81730.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.