Vísir


Vísir - 26.02.1954, Qupperneq 7

Vísir - 26.02.1954, Qupperneq 7
Föstudaginn 26. febrúar 1954 VÍSIR 7 f'áiiHB 5ti|| BIBI tnH ■■■■ OlH ■■■■ M ■■■■ M ■■■■ ;HH ■■«■ M ■■■■ li ■> I €H0hm tieit AÍM I I ævina.... ! ;•;■ ■ •' ______________ n •; Eftir F. van Wyeh 3Mas&ss. >■" 11 S|: a ■ >;p ■■■■ pi .arr liiii iiu inji ■■■■ ijNi ..« .. iiNi ■■■■ iiiij ■■■■ § ■>■■ íiii ■■■■ gert mér þetta Ijóst í „þurrkvínni11? Hafið þér ekki sýnt Towirs- end þessa list yðar?“ „Nei,“ svaraði Asa hógværlega. „Þið eigið báðir mjög' annríkt og auk þess taldi eg, að þið munduð álita mig frakkami og frek- an, ef eg gerði það.“ „Heyr á endemi! Þér eruð snillingur,“ mselti Blanchard bros- andi út undir eyru og sneri sér síðan að förunaut sínum. „Jæja, eg er fús til að votta þekkingu hans í læknisfræðum." Stanton liðsforingi settist síðan niður og skrifaði meðmæla- skjal allt, sem nauðsynlegt var að íaka fram um Asa. Blanchard stakk upp á því, að Stanton tæki trúnaðareið við herinn af Peabody, en hann hafði ekki vald til þess, mátti einungis senda hann áleiðis til New Jersey. „Peabody mun ekki bregðast okkur, þótt eg geti ekki látið hann sverja fána okkar hollustueiða....Getið þér lagt upp að þrem dögum liðnum?“ Asa fannst fresturinn skammur, en hugsaði sem svo, að ef hann ynni af kappi, mundi hann geta lokið rannsókn sinni á hjarta Tom Duneens og samið nokkra ritgerð um þá, rannsókn á ekki lengri tíma. Stanton misskildi hik hans og kvaðst hafa ætlað að verða honum samferða suður á bóginn, en hann gæti vel frestað brottför sinni um einn dag. Síðan bætti hann við, er Asa kvað sér ekkert að vanbúnaði að þrem dögum liðnum. „Þér verðið jafntiginn höfuðsmanni í stöðu yðar.“ Þeir kvöddust nú og komumenn héldu leiðar sinnar, en Asa settist aftur til þess að reyna að átta sig sem snöggvasfc á því, sem gerzt hafði. Hvílíkt tækifæri sem honum bauðst þama. Kannske hann kæmist áfram í veröldinni, þrátt fyrir það, að hann væri af almúgafólki kominn. Og er stríðinu væri lokið, ætlaði hann sér að sigla til Skotlanas og stunda framhaldsnám við læknaskólann í Edinborg. Hann ætlaði sér að gera föður sinn upp með sér af yngsta syninum. En hvenrig skyldi pabba annars líða? Hann var tekinn að reskjast og sárið, sem hann hafði fengið í bardaganum við Frakka hjá Louisburg, hafði aldrei gróið almennilega. Charít, seinni kona hans, var að vísu ung og mundi geta séð heimilinu far- borða, en á hinn bóginn var hún búin að ala honum þrjú börn. Hvernig færir fyrir þeirn, ef pabbi lognaðist út af? Það kæmi ekki til mála, að nokkur af Peabody-ættinni færi á sveit. Og Ahab bróðir væri kannske orðinn efnaður af víking sinni. Það urðu margir um þessar mundir, þótt þeir væru fleiri, sem ekki ættu afturkvæmt af sjónum. Ekki kæmi til mála að vera að gorta af heppni sinni við Peter og Lucius, hugsaði Asa ennfremur. Hann ætlaði að vera hógvær og lítillátur. En hann komst aldrei niður í kjallarann aftur til félaga sinna, því að nú var barið að dyrum. Frú Southeby lauk upp, rak andlitið inn úr gættinni og tilkynnti: „Peabody læknir, fyrsti sjúklingurinn er kominn.“ „Sjúklingur? Sjúklingur, sem spyr eftir mér?“ Asa hrökk í kút. Hann hafði ekki átt von á þessu. „Jæja, vísið honum inn, frú Southeby.“ „Þetta er enginn hann,“ svaraði ekkjan gremjulega. „Þetta er hún og því fyrr sem hún fer aftur, því ánægðari verð eg.“ SjúklinguriJm. Lizzie Wright hellti úr enn einni könnu í lendabaðið. Hún var montin af því, þótt það væri beyglað og óásjálegt. Það var sönn- unargagn hennar á því, að stúlkur hennar voru hreinlegustu vændisoknur hverfisins. Sannleikurinn vár þó sá, að stúlkurnar fengu ekki að fara í bað hjá henni néma éinu sinni hálfsmánað- arlega og fannst henni það kappnóg. Hilda sat skjálfandi á rúmstokknum og béið eftir að kömast í baðið. „En það ætla eg aðeins áð ségja þér,“ mælti Lizzié, „að þegar þú verður búin að baða þig, verður þú að fara á stúfana og ná í að minnsta kosti tíu shillinga. Anriars skaltú fá að kénna á svipunni.“ „Já,“ svaraði Hilda auðmjúldega, „eg slcal gera eins og eg get. Eg — eg skal skemmta honum svo, að hann verði harð- ánægður .... ;Eg er viss um, að hann borgar mér vel.“ Hún var að hugsa um andlit Peabodys læknis, þegar hann var að leggja henni lífsreglumar nóttina áður. „Það færi betur á því, að hann borgaði þér vel fyrir greið- ann,“ mælti kerlingin hi-yssingslega. „Þarna gerir þú beztu við- skiptavini mína vitlausa í þér og frystir þá svo með sinnuleysi þínu. Ef þú færir rétt að, gætir þú haft af hverjum þeirra sk-art- gripi og dýrindis klæði. Þú vilt víst, að þeir elski þig af öllu hjarta. Jæja, góða mín, þú getur víst beðið nokkx-a stundina eftir því. Þér er rétt að minnast þess, að jörðin er ekki íramar byggð neinum riddurum.“ „Já, eg skal muna það,“ sagði Hilda. „Eg skal hætta að svip- ast um eftir slíkum mönnum framvegis.“ Hún fór í baðið og þó líkama sinn vahdiéga. Hitinn úr vatn- inu náði smám saman tökum á henni og yíir hana færðist værð Svar við getraunum. Hér fará á eftir svör við getraunamyndum þeim, er blaðið hefur birt: 1. mynd sýnir sem ............ 2. mynd sýnir 3. mynd sýnir 4. mynd sýnir sem 5. mynd sýnir sem 6. mynd sýnir sem ........... í.............. 7. mynd sýnir sem ........... í ............. 8. mynd sýnir sem ........... Þakjárn Þeir, sem eiga hjá ökkisr þakjárnspantamr, eru beðnir að hafa tai aí okkur hiðjyrsta. ^JJ. ÍJenediltíion CJo. h.j^. Hafnarhvoll — Reykjavík. - BRIDGE - A K, G, 9, 7, 2 V 10, 9, 8 ♦ 9 * Á, 7, 4, 2 N. s. ■ : " A'Á, D, 10, 8, 6 7 Á, D, 7 ♦ Á, 6, 5 * K, 8 Suður spilar í þessu spili 6 spaða. Vestur kemur út með lauf-drottningu. — Spurt er hvernig Suður eigi að spilai spilið? 9. mynd sýnir ........................ sem .................................. í .................................... 10. mynd sýnir ....................... sem .................................. í .................................... Nafn ................................. Heimilisfang ......................... Svörin hafi borizt Vísi fyrir kl. 4 á laugardag, WWWWWWHWWVWtfWWWJWWWWJWVWWUVVW Þeir, sem vilja gera tilboð í branatryggiiigar á húseignurn í lögsagnarumdæmi Reykjavíkur frá 1. aprí! næstkomamríi að telja, fá afhemta útboSsSýs- iiigu og ömwt gögn hjá hagfræðingi bæjariiss, Áusiurstræti 10, IV. hæð. Á kvöldvökunni. Franska Ijóðskáldið Roberfc Edouard þykir framúrskarandi hugulsamur maður. Nýlega kom út ljóðabók eftir hann og í tilefni af því bauð hann til sín mörgum kunningjum sínum. Á hverjum boðsmiða stóð: Þessii miði er trygging fyrir því, að hr. Edouard muni ekkert lesa upp eftir sjálfan sig. €im Mmi Ýmislegt athyglisvert var í bæjarfréttum Vísis hinn 26. febrúar 1919, eins og t. d. þetta: Drengja-list. Nokkrir drengir bjuggu sér nýlega til botvörpung úr snjó inni við Lindargötu og Frakka- stíg, og ennfremur nokkrar bifreiðir. Þótti þetta svo hag- lega gert, að ljósmynd var tek- in af botnvörpungnum, og fjöldi fólks kom til að horfa á. Húsnæðisleysið hér í bænum er mjög ískyggilegt, og mörgum hið mesta áhyggjuefni, hvað við taki 14. maí. Vonandi verður allt gert, sem unnt er, í sumar, til þeess að koma upp nýjum húsum svo að sömu vandræðin verði ekki næsta haust sem sl. haust. 10 sjúk-lingar eru á sóttvarnahúsinu, sýktir af taugaveiki, en enginn mjög þungt haldinn. Veikin gerir nú mest vart við sig í Vesturbæn- um, en hefir áður veríð tíðari í Austurbænum. Átta taúga- veikissjúklingar eru á Landá- kotsspítala. LAUCAVEG 10 - SlMI 3367

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.