Vísir - 11.03.1954, Síða 1
44. árg.
Fimintudaginn 11. marz 1954.
58. tbl.
ndum a
og nétt,
m i
ííandaríkjafkighei'inn heíur
nú fíugstöðvar alla IeiS frá
Græníandi til Okinawa.
I þessum löndum: íslandi,
Englandi (bráðum á Spáni),
l í Marokkko, og víðar við Mið-
jarðarhaf, - Grikklandi, Tyrk-
lándi, Saudi-Arabíu, Filipseyj-
um, Japan og Kóreu — og vit-
anlega í Alaska. í þessum
stöðvum eru sagðar vera 700
B-47 þrýstiloftssprengjuflug-
véiar og 200 B-36.
Efri myndin sýnir Vetnishúsið, þar sem vatnið er klofið, en
neðri myndin er úr vélasal ainoniakhússins.
Fyrsti ábwStirÍM sekkjaður
Gufunesí 7.
*
Ænsrðarverksimiðian framleiðir 7—8 gsúsnnsi
tonn á ári fram yfir þörf landsmanna.
Lýðræðissínnar
sigruðu með yfir-
burðum í Hreyfli.
Áburðarframleiðsla er nú haf-
in í Áburðarverksmiðjunni í
Gufunesi, og var fyrsti salt-
péturinn sekkjaður þar 7. þessa
mánaðar, réttum 22% mánuði
eftir að framkvæmdir hófust
við byggingu verksmiðjunnar.
Húsakostur.
Framkvæmdastjóri verk-
smiðjunnar bauð blaðamönnum
í gær að skoða verksmiðjuna og
skýrði þeim nokkuð frá fram-
kvæmdum, og framleiðslugetu
fyrirtækisins. Byggð hafa verið
samtals 10 hús í sambandi við
verksmiðjuna ,og er vetnishús-
ið þeirra langstærst eða 14.450
kubikmetrar. Amoniakshúsið er
5780 rúmmetrar, Sýruvinnslu-
husið 1570 i'úmmetrar, Saltpét-
urshúsið 6830 rúmmetrar, Vikt-
arhusið 230 rúmmetrar. Spenni
stöð 145 rúrnmetrar, verkstæð-
ishús 220 rúmmetrar, áburðar-
geymsla (ein af þrem, sem eiga
að rísa) 7530 rúmmetrar, og
loks skrifstofuhús 2650 rúmm.,
en í lok þessarar viku flytja
skrifstofur Áburðaryerksmiðj-
unnar upp að Gufunesi, en þær
hafa hingað til verið í bænum.
Loks hafa verið reistir margir
geymar, m. a. vatnsefnisgeymir
sem er stærsti geymir á land-
meira, en áburðarþörfin hér-
lendis hefur verið undanfarin
ár. Áætlað er að fyrir sláttar-
byrjun í sumar verði búið að
framleiða 4000—5000 smálest-
ir af áburði. Framleiðslunni
hefur verið valið nafnið
„Kjarni“.
Framleiðsla áburðarins bygg
ist eins og kunnugt er nær ein-
vörðungu á loft- og vatnsefn-
um, og er ekkert erlent hrá-
efni í áburðinum, að undan-
teknum lítilsháttar leirefni, sem
notað er til að húða saitpéturs-
krystallana, og er hann þó ekki
nema um 3% af magni áburð-
arins. Þess má geta að þessi
leirtegund er til hér á landi, og
er verið að rannsaka um kostn-
að við vinnslu hans.
Framleiðsla áburðarins ger-
ist í fimm höfuð áföngum, og
eru íramleiðsluafköst á einstök-
um efnum, sem hér segir:
Vetnisefni 45000 rúmmetrar á
sólarhring, köfnunarefni 15000
rúmmetrar, amoniak 22 smá-
lestir á sólarhring, saltpéturs-
sýra 40 tonn á sólarhring og
fullunninn saltpétur 50 tonn á
sólarhring'.
Lýðræðissinnar unnu glæsi-
legan sigur í kosningum þeim,
er fram fóru í bifreiðastjórafé-
iaginu Hreyfli.
í sjálfseignardeild urðu úr-
slitin þessi: A-listi, sem lýð-
ræðisssnnar stóðu að, hlaut 213
atkvæði og er stjórnin skipuð
þessum mönnum: Bergsteini
t Guðjónssyni, form., Friðrik
. Guðmundssyni varaform. og
) Bergi Magnússyni ritara. B-
listi, sem kommúnistar báru
1 fram, hlaut 139 atkv., en auð-
ir seðlar voru 11. — Á svipaða
lund urðu úrslitin í strætis-
’ vagnadeild. Þar hlaut A-listinn
lýðræðissinna 46 atkv. og alla
! stjórnarmenn kjörna, þá Birgi
Helgason, form., Berg Ólafsson,
varaform. og Hjörleif Friðriks-
son ritara. Kommúnistar fengu
21 atkv., en 3 seðlar voru auðir.
Listi Iýðræðissinna var sjálf-
kjörinn í vinnuþegadeild, en
þar er Ingimundur Gestsson
formaður, Níels Jónsson vara-
form. og Helgi Mjörleifsson
ritari.
igur særi
Stór hópur barna og unglinga
lenti í hrakningum á Hellis-
heiði í gærkveldí og nótt, er
þeir voru að koma úr skíða-
ferð. Tepptusí fjölmargir bíl-
ar í Svínahraimi vegna fóíks-
bifreiðar, sem saí þar föst og
stöðvað'i alla bílalestina með
skólabörnunum.
Komu síðustu barnaskóla-
börnin ekki í bæinn fyrr en kl.
9 í gærkveldi, en gagnfræða-
skólanemendurnir ekki fyrr en
undir klukkan 6 í morgun.
Samkvæmt upplýsingum, sem
Vísir fékk í morgun hjá fræðslu
fulltrúa og Stefáni Kristjáns-
syni kennara í Laugarnesskól-
anum, en hann var með börn-
unum í skíðaferðinni, myndu
börnin hafa verið komin í bæ-
inn á eðlilegum tíma — eða kl.
4—-5 i gær, ef fólksbíllinn, sem
áður getur, hefði ekki stöðvað
bílalestina, en meðan verið var
að losa hann, skelfdi að hinum
bílunum, og eftir að hann hafði
einu sinni verið losaður ók bíl-
mu.
Afköst verksmiðjunnar.
Þá skýrði framkvæmdar-
stjórinn frá því, að afköst verk-
smiðjunnar myndu verða um
50 smálestir á sólarhring, en
það svarar til 1000 poka af
saltpétri. Ársframleiðslan verð-
ur því um 18000 smálestir, og
er það rúmum 7000 smálestum
Héidu þisigsætiuy
íhaldsflokkurinn brezki hélt
þingsæti sínu fyrir kjördæmi í
Vestur-Sussex, en þar fór auka-
kosning fram. Frambjóðandi
flokksins sigraði með 13,437
atkvæða meirihluta, en í sein-
ustu almennum þingkosningum
með 18 þús. atkvæða meirihluta.
Þá kusu 70% kjósenda, nú
54%.
Stóri vinningurinn km
á f jórðungsmida í Rvík.
I gær var dregið í 3. fl. Happ-
drættis Háskólans. Vinningar
voru 700 og 2 aukavinningar.
Vinningaupphæð samt. 332.400
krónur.
Hæsti vinningurinn, 50 þús.
kr., kom á nr. 9557, fjórðungs-
mða í umboði Bóka og ritfanga
i Austurstræti 1. — 10 þús. kr.
vinningurinn kom á nr. 20.811,
hálfmiða í umboði Bóka og rit-
fanga, Laugavegi 39. — 5 þús-
und kr. vinningur kom á nr.
28.661, hálfmiða, sem seldir
voru í umboði í Stykkishólmi
og á Þórshöfn.
(Birt án ábyrgðar).
iórir menn dæmdir í 52500
kr. sekt fyrir smygl.
392 flöskum af áfengl, þar
var nær helmingur spíritus.
Nýlega hafa fjórir menn ver-
ið dæmdÍF í Sakadómi Eeykja-
víkur í samtals 52500 krónu
sekt íyrir smygl.
Þetta smygl átti sér stað er
e. s. Selfoss kom hingað til
Reykjavíkur úr síðustu Ev-
rópuferð sinni seint í febrúar.
Þann 24 febrúar fundu tollverð
ir allmiklar birgðir af vínanda
við leit í skipinu. Samtals reynd
ust þetta vera 392 flöskur og
þar af voru 188 flöskur af spíri-
tus.
Við yfirheyrslur í málinu ját-
uðu fjórir skipverja á e.s. Sel-
fossi að eiga vínandann og lauk
rannsókn í málinu þann 4. þ. m.
Niðurstöður dómsins urðu
þær að þrír skipverjanna voru
dæmdir í 13 þúsund króna sekt
hver, en sá fjórði var dæmdur
í 13500 kr. sekt. Þá voru þeir
einnig dæíndir til greiðslu alls
málskostnaðar.
Áfengið var gert upptækt.
morpsi.
stjórinn inn í traðirnar aftur,
setti bílinn fasían á ný, svo að
hinir bílarnir konrust ekki
framhjá.
í gærmorgun fóru um 200
börn úr 12 ára bekkjum Laug-
arness- og Melaskóla upp í
Skíðaskála og rúmlega 100
gagnfræðaskólaunglingar, og
enn fremur fóru börn úr Aust-
urbæjarskóla og Miðbæjarskóla
upp að Lögbergi, og komust
þau klakklaust í bæinn.
Um hádegisbilið vildi það
slys til að drengur úr Laug-
arnesskólanum féll á skíð-
unum og lærbrotnaði. Var
þegar hringt á sjúkrabíl og
lækni og var farið með
drenginn niður í Skíðaskála
og þar gert að brotinu til
bráðabirgða, en síðan var
hann fluttur í sjúkrabílnum
til Keykjavíkur og þar á
spítala. Hafði hann brotnað
mjög illa.
Sagði Stefán Kristjánsson £
viðtali við Vísi í morgun, að
þetta leiðinlega atvik hefði haft
lamandi áhrif á þátttakendur
ferðarinnar, og hefði verið far-
ið að liugsa til heimferðar eftir
að slysið vildi til, enda hefðu
þær fréttir borizt með sjúkra-
bílnum, að byrjað væri að
skafa niðri-í Svínahrauninu. —
Var lagt af stað úr Skíðaskáí-
anum klukkan langt gengin 3.
Þegar niður í Svínahraun kom
var þar fólksbifreið á uppeftir-
leið og sat hún föst, og strand-
aði ÖIl bílalestin þar um skeið,
meðan verið var að koma bíln-
um út af brautinni. Tók það um
klukkutíma, og komust þá all-
margir af bílunum, sem fluttu
skólabörnin,framhjá, en áður
en allir bílarnir voru komnir í
gegn, ók bílstjórinn fólksbif-
reiðinni aftur inn á brautina og
ætlaði að alta í slóðina og snúa
við til Reykjavíkur, en varð
óðara fastur á ný. Þá voru allir
gagnfræðaskólabílarnir eftir og
tveir bílar með barnaskóla-
börnum.
Fóru þá nokkur af börnun-
um úr bílúnum, sem eftir sátu
í bílana, sem komnir voru fram
hjá fólksbílnum, en allmörg
börn urðu eftir í einum bílnum.
Óku fyrri bílarnir síðan beint
í bæinn og gekk þeim greiðlega.
Frá Lögbergi var hringt á Guð-
mund Jónasson, og komu nú
jarðýtur og kranabilar brátt á
vettvang, en þá var orðið mjög
skelft að bílunum uppi í Svína-
hrauni. Skólabörnin, sem eftir
voru, komust í bílinn hjá Guð-
múndi og voru komin í bæinn.
um klukkan 9 í gærkveldi, en
jarðýtur og kranabílar héldu á-
fram við að reyna að losa hina
bílana, sem eftir voru með:
gagnfærðaskólaunglinganna, og
komust þeir ekki í bæinn fyrr
en úrh klukkan 6 í inorgun.